Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 9 Samkvæmisfatnaður Síðir flauelskjólar og -jakkar Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Ný sending frá Kringlunni, sími 588 1680. Seltjarnanesi, sími 5611680. iðunn tískuverslun Gæði og glæsileiki Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15. undirfataverslun Síðumúla 3-5, sími 553 7355                   AutoCAD 2004 Autodesk 2004 Autodesk RÍN 2003 Grand Hótel Reykjavík - 4. og 5. september 2003 Ráðstefna íslenskra AutoCAD og Autodesk notenda Upplýsingar og skráning á heimasíðu Snertils Sími: 554 0570 www.snertill.is snertill@snertill.is Styrktaraðilar: Opið virka daga frá kl.11-18, laugardaga kl. 11-15. Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. ÚTSÖLULOK Allt á hálfvirði - Ótrúlegt úrval INNAN fimm ára gætu komið á markaðinn bóluefni gegn ýmis konar ofnæmi og astma. Þetta kom fram í máli breska ónæmisfræðingsins Marks Larche á ársþingi Norrænu ónæmisfræðisamtakanna. Þetta er í þriðja sinn sem norræna ónæmis- þingið er haldið á Íslandi en þar koma saman helstu sérfræðingar í ónæm- isfræði. Um 230 manns, víðs vegar úr heiminum, taka þátt í þinginu og margir þekktir vísindamenn halda þar erindi um rannsóknir sínar. Á þinginu er fjallað um ýmsar hlið- ar ónæmisfræða en sérstaklega hvernig nota megi ónæmiskerfið til að lækna ýmsa sjúkdóma, t.d. sykursýki, krabbamein og smitsjúkdóma. Þyrfti ekki að vera dýr meðferð Ónæmisfræði er frekar ung fræði- grein sem tengist mörgum sviðum læknisfræðinnar. Ónæmiskerfið er vörn gegn sýkingum, krabbameini og fleiri sjúkdómum. Ef ónæmiskerfið er of næmt getur það komið fram með ofnæmi fyrir ýmsum annars skað- lausum efnum í umhverfinu, s.s. grasi og gæludýrum. Ónæmiskerfið getur einnig bilað en þá eru einstaklingar með litla vörn gegn árásum sýkla. Mark Larche hélt erindi á þinginu um ónæmisfræðilega meðferð við kattarofnæmi. Larche hefur rannsak- að orsakir ofnæmis lengi með það að leiðarljósi að þróa bóluefni gegn því. „Við rannsökum ofnæmissjúklinga til að reyna að skilja hvernig ónæmis- kerfið virkar. Við skoðum við hvaða aðstæður það fer í gang og notum þær upplýsingar til þess að skilja hvernig er hægt að slökkva á því,“ segir Larche. Rannsóknir Larche hafa nú þegar auðveldað mörgum of- næmis- og astmasjúklingum lífið en hann hefur m.a.beint rannsóknum sínum að kattarofnæmi. „Þetta þyrfti ekki að vera sérlega dýr meðferð. Sennilega þyrfti viðkomandi að fá bóluefnið fjórum sinnum fyrsta árið og svo einu sinni á ári eftir það,“ segir Larche og bendir á að efnið gæti verið í sprautu eða jafnvel í plástraformi. Meðferðin yrði varanleg en ef ein- staklingur er með ofnæmi fyrir fleiri en einu efni þyrfti að endurtaka með- ferðina með viðeigandi bóluefni. „Efnið gæti komið á markaðinn eftir um það bil fimm ár,“ segir Larche. Susan Wong, ónæmisfræðingur frá Bristol í Bretlandi, flutti einnig erindi á ráðstefnunni, en hún hefur unnið að rannsóknum á sykursýki. Að sögn Wong nýtist hún við rannsóknir of- næmissérfræðinga en rannsóknir á sykursýki hafa ekki náð jafnlangt. „Við erum að vinna með ung börn svo að öll efni sem við prófum þurfa að vera algjörlega örugg,“ segir Wong og bendir á að vonin sé að finna var- anlega lækningu við sykursýki. Ársþing Norrænu ónæmisfræðisamtakanna Góðar líkur eru á að bólu- efni gegn ofnæmi finnist Í TILEFNI af sigri Hróksins á meistaramóti norrænna skák- félaga á dögunum bauð félagið vinum og velunnurum til móttöku í Íslensku óperunni þar sem sig- urliðið var heiðrað. Hrafn Jökuls- son, forseti Hróksins, segir að sig- ur á mótinu hafi verið þeim mun sætari þar sem Hrókurinn hafi verið með þriðja stigahæsta liðið í keppninni. „Þetta var fyrsta al- þjóðlega keppnin sem við tökum þátt í og þetta var í fyrsta sinn sem Jóhann Hjartarson tefldi í okkar sveit þannig að þetta var í alla staði mjög sætur og ánægju- legur sigur og þá sérstaklega að geta fagnað þessum sigri rétt fyr- ir fimm ára afmæli Hróksins sem verður í september.“ Á myndinni eru í neðri röð f. v. Jóhann Hjartarson, Tómas Björns- son, Róbert Harðarson. í efri röð f.v. eru Stefán Kristjánsson, Páll Þórarinsson, Hrafn Jökulsson for- seti félagsins og Ingvar Þór Jó- hannesson. Morgunblaðið/Jim Smart Norðurlanda- og Íslandsmeistarar Hróksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.