Morgunblaðið - 27.08.2003, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKIÐ Emax hefur sent Samkeppn-
isstofnun erindi, þar sem óskað er eftir sameig-
inlegri rannsókn stofnunarinnar og Póst- og
fjarskiptastofnunar á meintri skaðlegri undir-
verðlagningu á ADSL-samböndum Landssím-
ans og Og Vodafone. Fyrirtækin vísa því á bug,
að þau veiti umrædda þjónustu undir kostn-
aðarverði. Og Vodafone er nú að íhuga að senda
erindi til samkeppnisyfirvalda eða dómstóla
vegna tilboðs Landssímans, þar sem boðinn er
ókeypis búnaður með ADSL-tengingu.
Fyrir viku kynnti Og Vodafone nýja þjón-
ustu, ADSL IV, þar sem boðið var upp á eins
megabætis samband á sekúndu á sama verði og
áður hafði verið boðið upp á 512 kílóbæti á sek-
úndu. Í kjölfarið tilkynnti Síminn að 512 kíló-
bæta tengingar yrðu uppfærðar í 1536 kíló-
bæti, án verðbreytingar.
Breyttar skilgreiningar
Eggert Skúlason, framkvæmdastjóri Emax,
segir að með breyttri verðlagningu hafi fyr-
irtækin umturnað öllum skilgreiningum sem
þau sjálf hafi unnið eftir. „Verðlagning á þjón-
ustu sem þau hafa verið að selja okkur hefur
alltaf verið stigvaxandi eftir afkastagetu og ég
á mjög erfitt með að skilja af hverju svo er ekki
lengur,“ segir hann.
Eggert segist telja afar líklegt að fyrirtækin
séu að borga með þjónustunni. „Ef við horfum
á þetta í heild sinni er ljóst að þau eru að gefa
ógrynni af búnaði, stækka samböndin og lækka
verð. Ég þekki ekki neinar þær tækninýjungar
sem gera mönnum kleift að gera þetta,“ segir
hann.
Eggert nefnir dæmi. „Ég óskaði eftir
tveggja megabæta sambandi til Víkur í Mýrdal
hjá Landssímanum. Fyrir utan upphafskostn-
að er mánaðargjaldið um 100 þúsund krónur.
Nú getur einstaklingur í Breiðholti fengið
ADSL-tengingu, 1,5 megabæta, fyrir 4.800
krónur á mánuði. Ég spyr bara: Er sanngirni í
þessu og er þetta eðlilegt?“
Eggert segist ekki vera mjög vongóður um
að Samkeppnisstofnun taki málið fyrir á næst-
unni. „Svörin sem ég fékk þar voru á þá leið að
fjarskiptamarkaðurinn væri ekki forgangs-
markaður hjá stofnuninni. Þar áttu menn von á
að geta sinnt þessu um jólaleytið, nema þeir
myndu skilgreina málið sem mjög áríðandi og
brýnt.“ Hann segir að af þessum sökum hafi
hann í kærunni farið þá leið að vitna í leiðbein-
andi reglur fyrir Samkeppnisstofnun og Póst-
og fjarskiptastofnun, þar sem kveðið sé á um að
stofnunum sé heimilt að skoða svona mál sam-
an.
Að sögn Eggerts auka tilboð af þessu tagi
líkur á fákeppni á fleiri sviðum á fjarskipta-
markaði. „Fákeppnin er til staðar á gsm-mark-
aði og þessi tvö fyrirtæki hafa það mjög huggu-
legt þar. Ég tel líkur á að þessi ADSL-tilboð
þrengi mjög að Internetþjónustuaðilum og til
lengri tíma litið getur það orðið til þess að ein-
hver slík fyrirtæki verði að renna saman eða
hætta starfsemi,“ segir hann.
Í fullum rétti
Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga-
og kynningarmála hjá Og Vodafone, segir að
fyrirtækið hafi ekki fengið afrit af kæru Emax
og því byggist viðbrögðin á því sem fram hafi
komið í fjölmiðlum um það. Fyrirtækið líti hins
vegar svo á að málið sé tvískipt. „Annars vegar
lýtur það að því að í byrjun síðustu viku kynnt-
um við nýtt tilboð, þar sem við jukum hraðann á
tengingum á sama gamla verðinu. Við teljum
okkur hafa verið í fullum rétti til þess. Það sem
gerir okkur þetta kleift er mikil fjölgun við-
skiptavina í ADSL-þjónustu. Alls eru þeir nú
um 35.000 á landinu og Og Vodafone er með yf-
ir 30% af þeim. Þá höfum við gert hagstæða
samninga og höfum gert skynsamlegar fjár-
festingar í tækjabúnaði, sem gerir okkur þetta
kleift,“ segir hann.
Hins vegar, segir Pétur, snýst málið um við-
brögð Landssímans við þessu tilboði, þar sem
boðið var margfalt lægra verð á þráðlausum
búnaði en áður. „Við höfum efasemdir um að
honum sé heimilt að gera það. En af fenginni
reynslu fáum við ekki úr því skorið hjá Sam-
keppnisstofnun fyrr en um áramót. Við höfum
undir höndum bréf frá stofnuninni, þar sem
segir að fjarskiptamál séu ekki í forgangi,“ seg-
ir Pétur. Hann segir að Og Vodafone hafi ekki
getað setið aðgerðarlaust hjá og því boðið bún-
að ókeypis gegn því að viðskiptavinurinn skuld-
bindi sig til að vera hjá fyrirtækinu í eitt ár.
„Við lítum ekki svo á að við séum að brjóta
neitt með þessu. Um okkur gilda ekki sömu
reglur og um Landssímann. Við erum ekki
markaðsráðandi fyrirtæki eins og Landssím-
inn,“ segir Pétur. Hann segist því að hluta til
geta tekið undir erindi Emax, en að öðru leyti
ekki.
Pétur segir að Og Vodafone sé ekki að reyna
að koma í veg fyrir samkeppni frá smærri að-
ilum. „Nei, við vorum knúin til að bregðast við á
þennan hátt. Við sýnum erindinu fullan skiln-
ing, en mál eru bara þannig vaxin að við getum
ekki beðið til áramóta eftir svari frá samkeppn-
isyfirvöldum eða Póst- og fjarskiptastofnun.
Það getur þó allt eins verið að við sendum er-
indi til Samkeppnisstofnunar, eða jafnvel dóm-
stóla, vegna þessa útspils Landssímans,“ segir
Pétur.
Ekki borist kæran
Heiðrún Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi
Landssímans, segir að kæran frá Emax hafi
ekki borist til Landssímans. Því geti fyrirtækið
ekki svarað henni efnislega. Við munum þó
eðlilega gera það fyrir Samkeppnisstofnun og
Póst- og fjarskiptastofnun þegar við höfum
kynnt okkur þær ávirðingar sem þar kunna að
leynast,“ segir hún.
Heiðrún segir að þær ásakanir sem talsmað-
ur Emax hafi borið á Landssímann í fjölmiðlum
séu rangar. „Síminn er í fullum rétti að mæta
kröfum viðskiptavina sinna með þeim hætti
sem kynntur var í síðustu viku. Með breyting-
unum hefur áskriftum ADSL-þjónustunnar
verið breytt, verð þeirra er óbreytt en gagna-
hraðinn sem viðskiptavinurinn fær er aukinn
verulega. Með þessum breytingum er Síminn
að koma til móts við viðskiptavini sína og svara
þeirri hörðu samkeppni sem er á markaðnum.“
Að sögn Heiðrúnar byggjast tilboðin á arð-
semisútreikningum sem standist þær kröfur
sem gerðar séu lögum samkvæmt. „Verðskrá
Símans er gegnsæ, þ.e. lögð er áhersla á að
hver þjónusta beri sig, en ekki er verið að
greiða eina þjónustu niður með annarri,“ segir
hún.
Þá segir Heiðrún að stærðarhagkvæmni hafi
gert verðbreytingarnar mögulegar. „Neytend-
ur hafa tekið vel í tilboð okkar, enda er verið að
auka gagnamagn áskrifta til muna, neytendum
til góða. Líta ber til þess að fjöldi notenda í
ADSL hefur margfaldast á nokkrum árum og
nálgast nú 35.000 samtals hjá Landssímanum
og Og Vodafone. Það er eðlilegt, þegar fleiri
áskrifendur nýta sér ákveðna þjónustu, að verð
lækki, enda eru þá fleiri til að greiða niður fjár-
festingu og kostnað. Þá ber að horfa til þess að
innkaupsverð til Símans hefur lækkað til muna,
auk þess sem kostnaður hefur farið lækkandi,
um leið og áskrifendum fjölgar. Þessi þróun er
neytendum til góða,“ segir Heiðrún.
Og Vodafone og Síminn
sökuð um undirboð
Og Vodafone íhugar að
kæra Símann vegna
ókeypis búnaðar
Morgunblaðið/Arnaldur
Emax hefur sent Samkeppnisstofnun erindi,
þar sem óskað er eftir sameiginlegri rann-
sókn stofnunarinnar og Póst- og fjar-
skiptastofnunar á meintri skaðlegri und-
irverðlagningu á ADSL-samböndum
Landssímans og Og Vodafone.
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Straumur keypti í gær 34,72% hlut
í Framtaki fjárfestingarbanka og
er eignarhlutur Straums í Fram-
taki nú 91,79%.
Bréfin sem Straumur keypti í
Framtaki eru 882.096.723 krónur
að nafnverði og fóru viðskiptin
fram á genginu 1,9. Kaupverðið er
því tæpar 1.676 milljónir króna.
Seljendur bréfanna voru Norvik
ehf., móðurfélag BYKO sem átti
27,57% hlut, Eyrir fjárfestingar-
félag, sem er að mestu í eigu Þórð-
ar Magnússonar fjárfestis, Kaup-
þing Bank Lúxemborg og
Íslandsbanki.
70,94% af kaupverðinu verður
greitt með bréfum í Fjárfesting-
arfélaginu Straumi á genginu 3,3
og 29,06% verður greitt með
reiðufé. Gert er ráð fyrir að gengið
verði frá viðskiptunum innan viku.
Eftir kaupin á Norvik 7,08% hlut
í Straumi en átti fyrir 0,2% hlut. Í
síðustu viku seldi Kaupþing Bún-
aðarbanki 8,01% hlut sinn í
Straumi til Straumborgar, sem er í
eigu Jóns Helga Guðmundssonar
forstjóra BYKO, og Eyris. Straum-
borg keypti tæp 5% og Eyrir ríf-
lega 3% hlut af þeim 8% hluti sem
Kaupþing Búnaðarbanki seldi í
Straumi.
Fjármálaeftirlitið veitti í síðustu
viku samþykki fyrir því að Straum-
ur eignaðist virkan hlut í Framtaki.
Fjárfestingarfélagið Straumur
keypti á mánudag 2% hlut í Eim-
skip og á nú 15,8% hlut í félaginu.
Norvik selur hlut
sinn í Framtaki
MEÐ breytingum sem orðið hafa í
eignarhaldsfélögum í eigu feðganna
Björgólfs Guðmundssonar og
Björgólfs Thors Björgólfssonar
munu þeir skipta með sér verkum
með skýrari hætti en hingað til.
Björgólfur Guðmundsson hyggst
ganga úr stjórn Pharmaco og ein-
beita sér að starfi sínu sem formað-
ur bankaráðs Landsbanka Íslands.
Björgólfur Thor, sem er formaður
stjórnar Pharmaco, mun hins vegar
taka virkari þátt í störfum þess fé-
lags og beina kröftum sínum eink-
um að skráningu fyrirtækisins á er-
lendan markað. Frá þessu var
greint í fréttatilkynningu frá þeim
feðgum í gær. Þar segir að þeir séu
sammála um að þeim finnist rétt að
binda fé sitt þar sem þeir verji
kröftum sínum.
Í tilkynningunni kemur fram að
Givenshire Ltd., eignarhaldsfélag í
eigu Björgólfs Thors Björgólfsson-
ar, hafi keypt öll hlutabréf Bell
Global Ltd., eignarhaldsfélags
Björgólfs Guðmundssonar, í Amber
International Ltd. Amber er
stærsti hluthafi í Pharmaco hf. með
27,5% eignarhlut. Eignarhlutur fé-
laga í eigu Björgólfs Thors eftir
þessi viðskipti í Pharmaco er 30,8%,
en Givenshire átti 3,3%. Félög í
eigu Björgólfs Guðmundssonar eiga
ekki lengur hlut í Pharmaco.
Einnig kemur fram í tilkynning-
unni að Bell Global hafi keypt af
Givenshire 8,55% hlut í Samson
eignarhaldsfélagi ehf., sem er
kjölfestufjárfestir í Landsbanka Ís-
lands hf. Er eignarhlutur beggja fé-
laga eftir viðskiptin 42,5% í Sam-
son.
Áhættufjárfestingar
fyrir yngri menn
Haft er eftir Björgólfi Thor í
fréttatilkynningunni að starfsemi
Pharmaco sé áhættusöm enda mikil
samkeppni á þeim alþjóðamarkaði
sem félagið starfi á. „Ég vildi auka
við eignarhlut minn í félaginu þar
sem ég er reiðubúinn að taka
áhættu og geri að sama skapi háa
ávöxtunarkröfu á fjármuni mína.
Þar sem ég er búsettur erlendis og
sinni fyrst og fremst alþjóðlegum
verkefnum er það vel til fallið að ég
komi með skýrum hætti að kynn-
ingu á félaginu ytra og skráningu
félagsins á erlenda markaði,“ segir
Björgólfur Thor.
Björgólfur Guðmundsson segir að
formennska í bankaráði Lands-
bankans hafi krafist meira af hon-
um en hann hafi ætlað í fyrstu.
Vandamál bankans séu meiri en lát-
ið hafi verið af í upphafi eins og
fram hafi komið í nýlegri afkomu-
tilkynningu bankans.
„Ég vil auka hlut minn í bank-
anum. Þá finnst mér rétt samhliða
sölunni að draga mig út úr Pharma-
co. Eftir nýlegar hækkanir á bréf-
um í félaginu er verð nú hátt og því
ávöxtun góð. Þá fylgir áhætta starf-
semi lyfjafyrirtækis á alþjóðlegum
samkeppnismarkaði og vildi ég
setja fé mitt í starfsemi þar sem
gerð er lægri krafa um ávöxtun eins
og í bankastarfsemi. Það er meira
að skapi yngri manna að standa í
áhættusömum fjárfestingum og
gera háa ávöxtunarkröfu. Ég hef
siglt þann krappa sjó en kýs nú
lægri öldur og tryggari heimkomu,“
segir Björgólfur Guðmundsson.
Breytingar í eignarhaldsfélögum Björgólfs Guðmunds-
sonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar
Annar einbeitir
sér að Landsbanka
hinn að Pharmaco
Björgólfur Thor
Björgólfsson
Björgólfur
Guðmundsson
BAUGUR greiddi 11 milljónum
punda (u.þ.b. 1,4 milljörðum króna)
hærra verð fyrir Hamleys en félagið
hafði ætlað sér að gera en heildar-
verðið nam 59 milljónum punda (um
7,7 milljörðum króna). Þetta er haft
efir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, for-
stjóra Baugs, á fréttavef Financial
Times. Hann er sagður stefna að því
að tvöfalda stærð Baugs á þremur
árum og þessi yfirtaka sé einungis sú
fyrsta af mörgum í Bretlandi.
Margir töldu að Baugur hefði
greitt of hátt verð fyrir Hamleys og
Jón Ásgeir játar að verðið hafi verið
rausnarlegt. Hins vegar er hann
sagður spá því að viðskiptaáætlun
Hamleys muni skila árangri og vísar
til þess að flestir hafi vanmetið þann
hluta Hamleys sem kallaður er
Bangsaverksmiðjan og gerir fólki
kleift að búa til sinn eigin bangsa.
Kaupin á Hamleys eru sögð marka
tímamót hjá Baugi og að fyrirtækið
vænti þess að hér sé um að ræða
fyrstu yfirtöku þess af mörgum í
Bretlandi. Jón Ásgeir eygi enn góð
tækifæri á breska hlutabréfa-
markaðinum þrátt fyrir miklar
breytingar á honum.
Hærra verð fyrir
Hamleys en áætlað var