Morgunblaðið - 05.09.2003, Page 14
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
MÖRG teikn eru á lofti um að ýsu-
veiði hér við land verði með besta
móti á komandi árum. Ýsukvóti ný-
hafins fiskveiðiárs er sá mesti sem
um getur, seiðavísitala ýsu í ár er
sú langhæsta sem mælst hefur og
góð skilyrði í hafinu gefa vonir um
að seiðin komist á legg.
Vegna góðrar nýliðunar hefur
ýsustofninn verið í örum vexti síðan
árið 2000 en þá var hann í lágmarki.
Í upphafi ársins voru bæði veiði- og
hrygningarstofn meira en tvöfalt
stærri en árið 2000 og vísitölur úr
stofnmælingu í mars sl. benda til
mun stærri stofns. Það samræmist
hinsvegar illa niðurstöðum úr fyrri
stofnmælingum, einkum varðandi
árganga frá árunum 1998 og 1999
sem verða 60-70% aflans á árunum
2003 og 2004. Alls voru veidd tæp
50 þúsund tonn af ýsu hér við land á
síðasta ári, ríflega 10 þúsund tonn-
um meira en árið 2001 og heildar-
ýsukvótinn á fiskveiðiárinu sem er
nýhafið er 75 þúsund tonn og hefur
aldrei verið meiri.
Seiðavísitala ýsu á síðasta ári var
sú hæsta sem mælst hafði frá upp-
hafi en seiðavísitala þessa árs er þó
tvöfalt hærri. Samkvæmt fyrsta
mati virðist 2002 árgangurinn vera
stór en síðan 1998 eru fjórir af
fimm árgögnum taldir stórir en
slíkt er mjög óvenjulegt.
Betri lífsskilyrði í hafinu
Sveinn Sveinbjörnsson var leið-
angursstjóri í seiðarannsóknaleið-
angri Hafrannsóknastofnunarinnar
sem er nýlokið. „Við sjáum yfirleitt
lítið af ýsuseiðum við suðurströnd-
ina, þar fer klakið fram og seiðin
berast þaðan með straumum sem
lirfur. Dreifing ýsuseiðanna var
töluvert meiri en áður, sérstaklega
er dreifingin fjær ströndinni en við
höfum áður séð, bæði hvað varðar
þorsk- og ýsuseiði. En það sem
mest er um vert er að við erum að
sjá miklu hærri vísitölu í ýsu en
nokkru sinni fyrr. Þó að við höfum
ekki miklar mælingar á fæðufram-
boði fyrir þessi seiði, þá er almennt
talið að lífskilyrði á hafsvæðinu séu
betri á hlýsjávarskeiðum eins og nú
er.“
Sveinn segir að líklega sé sam-
band milli stækkandi ýsustofns og
hárrar seiðavísitölu. „Við höfum séð
það hjá þorskinum að þegar hrygn-
ingarstofninn stækkar virðast meiri
líkur á að hann framleiði góða ár-
ganga, bæði seiðaárganga og ár-
ganga í veiðistofni. Það er því rök-
rétt að áætla að þegar ýsustofninn
stækkar þá sé seiðaframleiðslan
meiri. En það er hinsvegar ekki þar
með sagt að afkoma seiðanna verði
góð, það er svo margt sem hefur
áhrif þar á. Nægir þar að nefna
þorskárganginn frá árinu 2001.
Seiðavístitala hans var nokkuð há
en hann hefur komið fremur illa út í
nýliðunarrannsóknum. Við höfum í
sjálfu sér engar haldbærar skýr-
ingar á þessari slæmu afkomu.
Reyndar var dreifing þessara seiða
nokkuð óvenjuleg því þau voru mun
austar en vanalega. Það er því
hugsanlegt að seiðin hafi borið af
leið og lent þar sem lífsskilyrðin
voru léleg. Núna var dreifing
þorskseiðanna hefðbundnari hvað
svæði varðar en fjær landi en áður.
En það tengist nokkuð örygglega
flæði hlýsjávar norður með land-
inu,“ segir Sveinn.
!
Góðar horfur á
betri ýsuveiði
ÚRSKURÐARNEFND sjómanna
og útvegsmanna hefur lækkað fisk-
verð til ísfisktogaranna Sturlaugs H.
Böðvarssonar AK og Haraldar
Böðvarssonar AK en þeir eru báðir í
eigu Haraldar Böðvarssonar hf. á
Akranesi.
Áhafnir skipanna og útgerð þeirra
náðu ekki samkomulagi um breyt-
ingar á fiskverði til skipanna. Lands-
samband íslenskra útvegsmanna vís-
aði því málinu til úrskurðarnefndar í
lok júlí sl. og krafðist þess að fisk-
verð til skipanna tæki breytingum í
samræmi við ákvarðanir Verðlags-
stofu skiptaverðs um breytingar á
viðmiðunarverði og vísaði til úr-
skurða gerðardóms frá árinu 2001.
Fór LÍÚ fram á að verð á slægðri
ýsu lækkaði um 40%, verð á karfa
um 20% og ufsaverð um 20%. Ekki
var gerð krafa um lækkun á verði á
þorski.
Fulltrúar Sjómannasambands Ís-
lands og Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands í úrskurðarnefnd
fóru fram á að kröfu LÍÚ yrði vísað
frá nefndinni og krafan lýst ómark-
tæk, enda væri hún ekki í samræmi
við þau samtöl eða tilboð sem farið
höfðu milli útgerðarinnar og áhafna
umræddra skipa varðandi endurnýj-
un á fiskverðssamningi. Þó var fallist
á 6% verðlækkun á karfa en að öðru
leyti að síðast gildandi fiskverðs-
samningur yrði framlengdur óbeytt-
ur.
Meginniðurstaða úrskurðarins
var sú að verð á undirmálsþorski var
ákveðið 86 krónur fyrir hvert kíló en
að öðru leyti var þorskverð óbreytt.
Verð á karfa í eldri fiskverðssamn-
ingi HB hf. var lækkað um 6% frá 29.
júlí til 25. ágúst. Frá 1. september
var verð á karfa lækkað til viðbótar
um 10% miðað við útgefið viðmiðun-
arverð Verðlagsstofu skiptaverðs.
Verð á ýsu var lækkað frá 1. sept-
ember um 15% frá útgefnu viðmið-
unarverði Verðlagsstofu skipta-
verðs. Verð á ufsa var lækkað um
10%.
Úrskurðarnefnd sjómanna og
útvegsmanna úrskurðar um fiskverð
Verðlækkun á
karfa, ýsu og ufsa
MAHMUD Abbas, forsætisráðherra
palestínsku heimastjórnarinnar,
forðaðist lokauppgjör við Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í
ræðu sem hann flutti á palestínska
þinginu í gær. Hann viðurkenndi að
hann hefði átt í deilum við Arafat og
hvatti heimastjórnina til að leita
sátta við hann.
Abbas skoraði einnig á Banda-
ríkjastjórn að hætta að sniðganga
Arafat sem hann lýsti sem „rétt-
kjörnum og lögmætum forseta“ pal-
estínsku þjóðarinnar.
Forsætisráðherrann óskaði eftir
stuðningi þingsins og sagði að ella
gæti það afturkallað umboð hans.
Hann krafðist þó ekki formlegrar at-
kvæðagreiðslu um stuðning.
Í stað þess að krefjast þess að
þingið tæki afstöðu í valdabaráttu
hans við Arafat beindi Abbas spjót-
um sínum að Ísraelsstjórn og sakaði
hana um að bera ábyrgð á því að svo-
kallaður Vegvísir til friðar í Mið-
Austurlöndum hefur ekki borið ár-
angur.
Vill að Bandaríkjamenn þrýsti
á ísraelsk stjórnvöld
Stjórn Ísraels ákvað að hætta öll-
um viðræðum við stjórn Abbas eftir
mannskætt sprengjutilræði Hamas-
hreyfingarinnar í Jerúsalem 19.
ágúst eftir sjö vikna vopnahlé. Ísr-
aelsher hefur síðan gert nokkrar
flugskeytaárásir á liðsmenn Hamas
á Gaza-svæðinu og sakað Abbas um
að hafa svikið loforð um að skera upp
herör gegn hryðjuverkahreyfingum.
Abbas hvatti til þess að friðarvið-
ræðurnar yrðu hafnar að nýju til að
binda enda á ofbeldið. Hann sagði að
nú væri nauðsynlegt að Bandaríkin,
Evrópusambandið, Sameinuðu þjóð-
irnar og Rússland gerðu allt sem í
valdi þeirra stæði til að tryggja að
friðarvegvísirinn færi ekki út um
þúfur.
Forsætisráðherrann gagnrýndi
ennfremur Bandaríkjastjórn fyrir að
beita ekki áhrifum sínum til að knýja
stjórn Ísraels til að „láta af ögrunum
sínum“ áður en vopnahléið var rofið.
Reuters
Mahmud Abbas, forsætisráðherra Palestínumanna, gengur inn í þinghúsið
í borginni Ramallah á Vesturbakkanum, umkringdur öryggisvörðum.
Reynt að leysa innbyrðis deilur meðal Palestínumanna
Abbas hvetur til
sátta við Arafat
Ramallah. AFP.
GÍFURLEGA miklum mat er hent í
Noregi vegna þess að hann er kom-
inn fram yfir „best fyrir“ dagsetn-
inguna og magnið af matvörum sem
framleiddar eru fyrir ruslakörfuna
eykst sífellt. Þannig var 500 þúsund
tonnum af mat hent í norskum versl-
unum og hjá matvælaframleið-
endum árið 2000 vegna þess að ekki
þótti í lagi að selja hann en árið 1999
var talan fjórðungi lægri, að sögn
norsku hagstofunnar.
Sífellt strangari reglur um síðasta
neysludag og „best fyrir“-merking-
ar gera að verkum að fólk hendir
mat mun fyrr en áður var jafnvel
þótt hann sé í góðu lagi. Þá er unga
fólkið langtum fljótara að henda
matnum en hinir eldri enda á það
erfiðara með að greina hvort mat-
urinn sé í lagi og er hræddara við að
borða gamlan mat.
Gefa börnum ekki
útrunninn mat
„Um leið og matvara nálgast
„best fyrir“ dagsetninguna fer hún í
ruslið. Hér er kynslóðabil á milli
hinna ungu og þeirra sem eldri eru,“
segir Tron Eggen, markaðsstjóri
norsku matvörukeðjunnar Kiwis, í
samtali við Aftenposten. „Mæður í
dag gefa börnum sínum ekki útrunn-
inn mat. Áður fyrr áttu foreldrar
líka mun auðveldara með að dæma
sjálfir um geymsluþol matarins og
hvernig best væri að geyma hann.“
Eggen heldur því fram að ostur,
buffkjöt og lundir séu oft í góðu lagi
þrátt fyrir að komið sé fram yfir
dagsetninguna á umbúðunum. Hann
telur að fólk sé sífellt uppteknara af
að spá í geymsluþol matar. Strangar
reglur Evrópusambandsins um
merkingar á matvælum geri það að
verkum að fleiri vörur verði að
merkja sem geri fólk hræddara um
að þær geti verið skemmdar.
Árið 1958 fóru 40% af tekjum
heimilisins í mat en 1979 voru það
20%. Nú fer hins vegar einungis tí-
undi hluti þeirra í mat. Eggen telur
að lægra matvöruverð hafi sitt að
segja. „Hér áður fyrr notaði hver
fjölskylda stærri hluta tekna sinna í
mat en nú. Þá voru mörkin um hve-
nær ætti að henda mat allt önnur.“
Til samanburðar má svo bæta við
að vægi matvöru og drykkja hér á
landi sem hlutfall af útgjöldum
heimilana er 15,2% eða 50% hærra
en í Noregi.
Anders Røed, markaðsstjóri ann-
arrar verslanakeðju, tekur í sama
streng og Eggen og segir að „best
fyrir“ merkingin sé einungis leið-
beinandi. Hún sé höfð til að vörurn-
ar bragðist alltaf eins þegar þær eru
keyptar. Margar matvörur megi
borða eftir þá dagsetningu en þá
verði að geyma þær óopnaðar í ís-
skáp. Atle Wold hjá matvælaeftirlit-
inu segir aftur á móti að fólk eigi
ekki einu sinni að hugsa um að borða
útrunninn mat. „En fólk getur notað
þekkingu sína á mat. Hana hefur
unga fólkið þó ef til vill ekki og
hendir því mat fyrr en nauðsynlegt
er.“
„Best fyrir“ aðeins
leiðbeinandi
Þess má geta að „Best fyrir“
merkingin er fyrst og fremst leið-
beinandi og ekki er heilsuspillandi
að borða matvöru þótt hún sé komin
nokkra daga framyfir. Bragðið get-
ur þó breyst. „Geymist til“ og „síð-
asti neysludagur“- merkingar eru
aftur á móti endanlegar dagsetn-
ingar og það getur verið hættulegt
heilsunni að borða mat eftir þann
tíma.
Æ meiri óskemmdur
matur fer í ruslið
Ungir Norðmenn misskilja dagstimplana „Best fyrir“
og henda matnum að jafnaði fyrr en hinir eldri
Morgunblaðið/Þorkell
!
"
"
"
"
#
#
#
!# #
#