Morgunblaðið - 05.09.2003, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 43
DAGBÓK
Afmælisþakkir
Fjúka lauf með feikna hvini
fjarri sumarnóttin bjarta
yndælt þá að eiga vini
sem ylja og gleðja gamalt hjarta.
Alla sem mig glöddu og gáfu gjafir blóm og
heim mig sóttu þeim fjær og nær ég færi þakkir
og þúsundfalda drottins blessun.
Kær kveðja,
Sigríður Sveinsdóttir,
Mýrarvegi 111, Akureyri.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert glaðlynd/ur og
draumlynd/ur og hefur auð-
ugt ímyndunarafl. Þú átt
spennandi ár framundan
sem mun einkennast af nýju
upphafi, spennandi ævintýr-
um og framandi slóðum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu þolinmæði í vinnunni í
dag. Þú hefur mjög sterkar til-
finningar til einhvers en verður
að gæta þess að missa ekki fót-
anna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sterkar ástríður setja svip sinn
á tilveru þína. Þetta kemur
ekki á óvart þar sem nautið er
eitt ástríðufyllsta stjörnumerk-
ið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú finnur til óöryggis og þér
hættir því til að krefjast of
mikils af öðrum. Þú ert í raun
að reyna að ná stjórn á að-
stæðum en verður að muna að
til þess að sambönd haldi verða
þau að fá svigrúm til að þróast.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur óvenjumikla þörf fyr-
ir stöðugleika í samböndum og
átt því á hættu að gera of mikl-
ar kröfur til annarra. Það er
hætt við að þetta ógni stöð-
ugleikanum í stað þess að auka
hann.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Farðu varlega í fjárútlátum í
dag. Það er hætt við að þú
kaupir einhverja vitleysu í
fljótfærni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gerðu ekki of mikið úr því þótt
þú viljir hafa hlutina eftir þínu
eigin höfði í dag. Þetta er til-
finning sem mun líða hjá á
næsta sólarhring.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu ekki aðra stjórna þér
með sektarkennd í dag. Ef þér
finnst gengið á hlut þinn þá er
það örugglega rétt hjá þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er ekki til neins að reyna
að hafa betur í deilum við vin
þinn í dag. Það er tilgangslaust
að ræða málin við fólk sem
neitar að hlusta.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þig langar til að ganga í augum
á einhverjum í dag og ert tilbú-
in/n til að láta allt annað sitja á
hakanum. Þú ættir að spyrja
sjálfa/n þig að því hvort þessi
tiltekni einstaklingur sé fyr-
irhafnarinnar virði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er hætt við hörðum deilum
um stjórnmál og trúmál í dag.
Mundu að það er ekki hægt að
nota skynsemisrök til að
hrekja skoðanir sem ekki eru
byggðar á skynsemi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú vilt halda utan um eignir
þínar í dag og ganga úr skugga
um að þú fáir það sem þér ber.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Forðastu að beita brögðum til
að stjórna ástvinum þínum í
dag. Það er hætt við að það
skapi leiðindi í stað þeirrar
hlýju og þess trausts sem þú
sækist eftir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SIGLING
Hafið, bláa hafið, hugann dregur.
Hvað er bak við yztu sjónarrönd?
Þangað liggur beinn og breiður vegur.
Bíða mín þar æskudrauma lönd.
Beggja skauta byr
bauðst mér aldrei fyrr.
Bruna þú nú, bátur minn.
Svífðu seglum þöndum,
svífðu burt frá ströndum.
Fyrir stafni haf og himininn.
Örn Arnarson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 5. sept-
ember, er sextugur Her-
mann Bragason, Aðalgötu
12, Stykkishólmi. Eig-
inkona hans er Júlíana
Gestsdóttir.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 5. sept-
ember, er fimmtugur Ólafur
Búi Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Háskólans á
Akureyri. Hann og eig-
inkona hans, Agnes Jóns-
dóttir, fagna tímamótunum,
svo og því að þau áttu silfur-
brúðkaupsafmæli 26. ágúst,
erlendis.
TVEIMUR leikjum er
lokið í átta liða úrslitum
Bikarkeppninnar. Sveit
Sparisjóðs Siglufjarðar og
Mýrasýslu (Ólafur Jónsson)
vann Suðurnesjasveitina
(Kristján Örn Kristjánsson)
með umtalsverðum yf-
irburðum (192–65), og sveit
Guðm. Sv. Hermannssonar
lagði Subarusveitina (Jón
Baldursson) í jöfnum leik
(64–54). Lítum á spil frá síð-
arnefndu viðureigininni:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 743
♥ G1032
♦ ÁK75
♣K7
Vestur Austur
♠ Á ♠ G105
♥ KD98 ♥ 654
♦ D10843 ♦ 6
♣G103 ♣986542
Suður
♠ KD9862
♥ Á7
♦ G92
♣ÁD
Liðsmenn Subaru, Sverr-
ir Ármannsson og Að-
alsteinn Jörgensen, voru í
NS gegn Ásmundi Pálssyni
og Guðm. P. Arnarsyni:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Sverrir Ásmundur Aðalsteinn
– 1 tígull Pass 1 spaði
Dobl Redobl 2 lauf 4 spaðar
Pass Pass Pass
Redobl Sverris er svokall-
að stuðnings-redobl og sýnir
nákvæmlega þrílit í svarlit
makkers.
Laufgosinn kom út og Að-
alsteinn sá fram á fjóra
hugsanlega tapslagi: tvo á
spaða, einn á hjarta og einn
á tígul. En opnunardobl
vesturs var hjálplegt og Að-
alsteinn nýtti sér þær upp-
lýsingar umsvifalaust til að
koma vestri í klípu. Hann
tók fyrsta slaginn á laufás,
spilaði svo laufdrottningu á
kónginn og spaða úr blind-
um á kóng og blankan ás
vesturs. Nú er samning-
urinn öruggur, því vestur
kemst ekki út úr spilinu án
þess að gefa slag. Hann
reyndi tíguldrottningu í
þeirri von að suður ætti Áxx
í hjarta og Gx í tígli. En svo
var ekki. Aðalsteinn drap,
gaf austri spaðaslaginn sinn
og þvingaði vestur síðan í
láglitunum upp á ellefta
slaginn.
Á hinu borðinu vann
Helgi Jóhannsson einnig
fjóra spaða með því að
þvinga vestur í hjarta og
tígli.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Bxc6 dxc6 5. O-O Bg4 6.
h3 h5 7. d3 Df6 8. Rbd2 Re7
9. He1 Rg6 10. hxg4 hxg4
11. Rh2 Hxh2 12. Dxg4 Dh4
13. Dxh4 Hxh4 14. Rf3 Hh5
15. d4 exd4 16. Rxd4 O-O-O
17. Rf3 Bc5 18. g3 He8 19.
Kg2 Re5 20. Rh2
Staðan kom upp í
landsliðsflokki áS-
kákþingi Íslands
sem lauk fyrir
skömmu í Hafn-
arborg í Hafnarfirði.
Róbert Harðarson
(2285) hafði svart
gegn Ingvari Ás-
mundsyni (2321).
20... Bxf2 Mun ein-
faldari vinningsleið
var að vinna mann
eftir 20...Hxh2! 21.
Kxh2 Rf3+. 21. He2
Bc5 22. Bf4 Rd7 23.
Kf3 f6 24. Kg4 Heh8
25. Rf3 g6 Eins og skák-
dómari mótsins, Ríkharður
Sveinsson, benti á þá gat
svartur mátað í tveimur
með 25...f5! exf5 Rf6# en
eins og framhaldið ber með
sér var hinsvegar eingöngu
um gálgafrest að ræða fyrir
hvítan. 26. Rd2 g5 27. Be3
Re5+ 28. Kf5 g4+ 29. Ke6
He8+ 30. Kxf6 Hf8+ 31.
Ke6 Rd7 og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
70 ÁRA afmæli. 10.september nk. verð-
ur sjötugur Stefán Runólfs-
son. Í tilefni þess munu
Stefán og eiginkona hans,
Helga Víglundsdóttir, taka
á móti gestum laugardaginn
6. september í íþróttahúsinu
Smáranum Kópavogi, ann-
arri hæð, milli kl. 20.00 og
23.30.
Morgunblaðið/Ragnhildur
Þessir duglegu drengir héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfn-
uðu þeir 1.997 kr. Þeir eru Þorkell Nordal, Jón Nordal og Agnar Smári Jóns-
son.
HLUTAVELTA
KIRKJUSTARF
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kaffi og spjall.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11:00.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Út-
varpi Boðun FM 105,5. Allir alltaf vel-
komnir.
Fríkirkjan Kefas: Í kvöld er 13–16 ára
starf. Samvera, fræðsla og fjör. Allir
13–16 ára eru hjartanlega velkomnir.
Fíladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Ræðumenn Robert Maasbach
og Ashley Schmierer. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Tónleikar kl. 17.
Kirkjukór Zions-kirkjunnar í Bethel í
Þýskalandi syngur undir stjórn Rolands
Muller. Með kórnum leikur blásarakvar-
tett. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.
Kirkja sjöunda dags aðventista.
Samkomur laugardag:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Brynjar Ólafsson.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla/ Guðs-
þjónusta kl. 10.15. Ræðumaður Amic-
os og Sigríður Kristjánsdóttir.
Safnaðarheimili Aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric
Guðmundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Biblíufræðsla/ Guðs-
þjónusta kl. 10.30.
Safnaðarstarf
LAUGARDAGINN 6. september er
hverfishátíð í vesturbænum og af
því tilefni kynnir Neskirkja vetr-
arstarf sitt kl. 11–12.
Kynningin hefst með tónlist-
arflutningi og stuttri helgistund í
kirkjunni. Að svo búnu verður fólki
boðið í kaffi og kleinur í safn-
aðarheimilinu en þar verða uppi
auglýsingaspjöld og kynningarefni
um fjölbreytt starf kirkjunnar á
komandi vetri svo sem helgihald,
fræðslu og margs konar fé-
lagsstarfsemi. Þá gefst fólki og
tækifæri til að kynna sér teikn-
ingar að nýja safnaðarheimilinu
sem nú er í byggingu og að skoða
myndaverkefni fermingarbarna
sem þau unnu á nýafstöðnu sum-
arnámskeiði.
Barnakórar
Fella- og Hólakirkju
INNRITUN fer fram í safn-
aðarheimili Fella- og Hólakirkju
nk. sunnudag 7. september, kl. 12-
13. Æfingar kórskólans (7-9 ára)
verða miðvikudaga kl. 16.30-17.30
og föstudaga kl. 17-18. Æfingar
stúlknakórs (10 ára og eldri) verða
mánudaga kl. 15-16 og miðviku-
daga kl. 16-17.30. Kórastarfið hefst
miðvikudaginn 10. september.
Nánari upplýsingar veita Lenka
Mátéová í síma 564 5027 og Þórdís
Þórhallsdóttir, í síma 551 0226 og
869 4544.
Morgunblaðið/Jim SmartNeskirkja
Kynning á
vetrarstarfi
Neskirkju
Þessar duglegu stúlkur, Edda Sigríður Sigfinnsdóttir
og Rannveig Dóra Baldursdóttir, héldu tombólu til
styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu þær 1.273 kr.
Morgunblaðið/Ragnhildur