Morgunblaðið - 24.09.2003, Qupperneq 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 23
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
2., 7., 14. og 21. okt.
alm. ver› m.v. tvo í stúdíó án
gar›s‡nis í 7 nætur.
Aukagjald f. gar›s‡ni er 3.500 kr.
á mann í viku.51.855 kr.*
Hausttilbo› á Brisa Sol
alm. ver› á mann m.v. 2 í stúdíó
á mann í 7 nætur.32.560 kr.*
Tveir fyrir einn í október
* Innifali›: flugvallaskattar, akstur til og frá hóteli erlendis,
gisting og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
23
45
09
/2
00
3
Allir Íslendingar sem komi› hafa til Portúgal flekkja
Brisa Sol. Einstaklega gott og fallegt hótel flar sem
öll a›sta›a er til fyrirmyndar.
4ra stjörnu íbú›ahótel
Aukafer
›
2. - 9. o
kt.
Paraiso de Albufeira
me› gó›um íbú›um og glæsilegum hótelgar›i.
ÞJÓÐSAGA nefnist ljósmyndasýning Jónu
Þorvaldsdóttur sem nú stendur yfir í Ljósa-
fold, Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14–16.
Jóna Þorvaldsdóttir stundaði nám við
European Institute of Photography í Pól-
landi 1997 til 2000. Hún hefur einnig sótt
námskeið í ljósmyndun í Slóveníu (2000),
Bandaríkjunum (2001) og á Íslandi (2003).
Árið 2000 tók hún þátt í samsýningu á
vegum tímaritsins Warsaw Voice í Póllandi
og hlaut verðlaun fyrir bestu ljósmyndina
auk viðurkenningar fyrir tvær aðrar. Þetta
er önnur einkasýning Jónu Þorvaldsdóttur,
en í vor hélt hún sýningu á Mokka.
Sýningin stendur til 5. október.
Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10–18,
laugardaga til 17 og sunnudaga kl. 14–17.
Ein ljósmynda Jónu í Galleríi Fold.
Ljósmynda-
sýningin
Þjóðsaga í
Galleríi Fold
BORGARLEIKHÚSIÐ býður
gestum og gangandi til kynn-
ingarkvölds á stóra sviði leik-
hússins í kvöld, miðvikudags-
kvöld. Dagskráin hefst kl. 20.
Leiksýningar vetrarins hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, Ís-
lenska dansflokknum og sam-
starfsaðilum Leikfélagsins
verða í brennidepli. Einnig má
búast við óvæntum innkomum
þekktra persóna úr leikhúsbók-
menntunum. Allir leikarar og
dansarar í Borgarleikhúsinu
sýna listir sínar.
Borgarleik-
húsið kynnir
dagskrá sína
„AFMÆLIÐ mitt er nú bara yfirvarp til að
halda tónleika. Það þarf auðvitað ekkert sér-
stakt tilefni til að halda tónleika, en ég geri
það samt,“ segir Ólafur Kjartan Sigurðarson
um tónleikana sem verða í Óperunni í kvöld í
nýrri tónleikaröð: Haustkvöld í Óperunni.
Þar fagnar Ólafur Kjartan Sigurðarson barí-
ton 35 ára afmæli sínu ásamt Jónasi Ingi-
mundarsyni píanóleikara og því hafa tónleik-
arnir hlotið yfirskriftina „Hann á afmæli í
dag...“
„Afmælið er því bara afsökun og engin sér-
stök tímamót í mínu lífi önnur en þau að þeg-
ar ég byrjaði að syngja fór ég fljótt að hlakka
alveg svakalega til þess að verða þrítugur.
Ég var alltaf að bíða eftir því að röddin
þroskaðist. Þegar ég varð svo þrítugur komst
ég að því, að ég var ekki nema rétt kominn af
stað í þroskanum og gat ekki beðið eftir því
að verða þrjátíu og fimm. Núna er staðan sú,
að ég vil bara ljúka þessu afmæli af, svo ég
geti farið að hlakka til þess að verða fertug-
ur,“ segir Ólafur Kjartan um þessa sérstöku
„afsökun“ á því að syngja fyrir fólk, en bætir
því við að fólk eigi að gera sér glaðan dag á
afmælinu sínu og auðvitað finnst honum
skemmtilegast að syngja fyrir aðra – ekki
síst með Jónasi.
„Ég syng fimm sönglög eftir Tsjaíkovskíj,
á rússnesku – allt undurfögur lög sem fanga
mann inn að hjartarótum, hvert á sinn hátt,
og svo syng ég hvorki meira né minna en Vier
Ernste Gesänge eftir Jóhannes Brahms,“
segir Ólafur Kjartan um efnisskrána. En
þetta er bara fyrri hlutinn, og Ólafur Kjartan
segir að eftir þessa törn verði hlé sennilega
vel þegið. Hann vílar ekki fyrir sér að syngja
á rússnesku, en ætlar ekki að biðja rússneska
tónleikagesti að leggja sig sérstaklega eftir
framburðinum. „Ég fékk þó aðstoð við þetta
frá vinkonu minni úr Hamrahlíðarkórnum
Áslaugu Thorlacius. En eins og þú sérð, ætl-
um við að láta taka okkur alvarlega fyrir hlé,
að minnsta kosti. Eftir hlé verður meira „af-
mæli“ í músíkinni, skemmtileg stund, en
engu að síður alvarleg tónlist. Við gefum eng-
an músíkalskan afslátt, þótt við ætlum að
skemmta okkur pínulítið. Eftir hlé syngjum
við bara það sem okkur þykir skemmtilegast
að syngja, og vonum að aðrir hafi jafngaman
af.“
Ólafur Kjartan varð fyrstur söngvara til að
skrifa undir fastráðningarsamning við Ís-
lensku óperuna, þar sem hann hefur nú starf-
að í rúm tvö ár, og meðal hlutverka sem hann
hefur komið fram í á þeim tíma eru Macbeth,
Fígaró og Papagenó.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ólafur Kjartan Sigurðarson með Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara.
Við gefum
engan
músíkalsk-
an afslátt
HAFNARBORG í
Hafnarfirði efnir til há-
degistónleika í vetur,
undir listrænni stjórn
Antoníu Hevesi, píanó-
og orgelleikara. Pétrún
Pétursdóttir, forstöðu-
kona Hafnarborgar,
segir þetta tónleika-
hald þó byggt á göml-
um grunni. „Hafnar-
borg hefur starfað í
fimmtán ár, og í upp-
hafi vorum við með
mánaðarlega eftirmið-
dagstónleika í sam-
vinnu við Tónlistarskól-
ann í Hafnarfirði, þar
sem kennarar skólans eða aðrir sem
tengdust honum komu fram. Þegar
skólinn flutti datt þetta tónleikahald
niður. Í sumar var Antonía svo fengin
til að skipuleggja hádegistónleika í
tilefni af lista- og menningarhátíðinni
Björtum dögum, sem stóð yfir í júlí.
Tónleikarnir mæltust svo vel fyrir og
þóttu svo skemmtilegir og áhuga-
verðir, að mér datt í hug að frá Ant-
oníu til samstarfs við að endurnýja
þessa eftirmiðdegistónleikaröð, en
með öðru yfirbragði. Við vildum hafa
tónleikana í miðri viku og höfða til
fólks sem vinnur hér í miðbænum.
Það gæti þá nýtt hádegishlé sitt til að
njóta góðrar tónlistar.“
Antonía tók tilboðinu vel og hefur
þegar skipulagt tónleikadagskrá til
áramóta. Reyndar tóku þær forskot
á veturinn með tónleikum Hlöðvers
Sigurðssonar tenórsöngvara og Ant-
oníu, en þeir vöktu mikla lukku. Allir
tónleikarnir verða á fimmtudögum
og hefjast kl. 12.00. Hjörleifur Vals-
son fiðluleikari verður gestur Anton-
íu á fyrstu tónleikunum, í hádeginu á
morgun. Tónleikarnir bera yfir-
skriftina: Leikið lausum hala. „Þetta
verða mjög fjörugir tónleikar og við
flytjum eingöngu alvörufiðluverk,
bravúrstykki, þar sem Hjörleifur fær
tækifæri til að sýna sig,“ segir Ant-
onía.
„Crazy - á barmi örvæntingar,“ er
yfirskrift hádegistónleikanna 30.
október, en gestur Antoníu þá verður
Kristín R. Sigurðardóttir. „Kristín
syngur aríur þar sem
persónurnar sem
syngja eru ýmist geggj-
aðar, eða á barmi sjálfs-
morðs eða annarrar ör-
væntingar. Þetta
verður mjög drama-
tískt.
20. nóvember býð ég
Öldu Ingibergsdóttur
að syngja með mér, og
þá tónleika köllum við
Töfra Mozarts, – við er-
um báðar skotnar í
Mozart, og hún syngur
bæði aríur og fleira,
meðal annars aríu Næt-
urdrottningarinnar úr
Töfraflautunni. 11. desember kemur
Þórunn Guðmundsdóttir og við flytj-
um jólalög af ýmsu tagi.“
Pétrún segist hlakka til að fá há-
degistónleika í húsið, – tónleikarnir í
sumar hafi verið skemmtileg viðbót
við starfsemina í húsinu, þeir hafi því
gefið mjög góða raun. „Það verður
enginn aðgangseyrir, fólk getur
komið til að njóta tónlistarinnar í
þann hálftíma sem tónleikarnir
standa, og kaffistofan okkar verður
opin fyrir þá sem vilja fá sér hádeg-
isverð að þeim loknum.“
Hádegistónleika-
röð í Hafnarborg
Antonía Hevesi