Morgunblaðið - 28.09.2003, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 9
Hafið samband við söluskrifstofur eða fjarsöludeild
Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud.-föstud.
kl. 8-20, laugard. kl. 9-17 og sunnud. kl. 10-16).
www.icelandair.is/vildarklubbur.
París
Minneapolis
Vildartilboð
Láttu hjartað ráða ferðinni
Tryggið ykkur sæti. Síðasti söludagur er 5. október.
Greiða verður með Vildarkorti VISA og Icelandair.
Ferðatímabil: Október og nóvember.
Lágmarksdvöl: Aðfaranótt sunnudags.
*Börn, 2ja - 11 ára, fá 50% afslátt af punktum.
*Börn, yngri en 2ja ára, fá 90% afslátt af punktum.
Öflugasta tryggðarkort á Íslandi
Handhafar Vildarkorts VISA og Icelandair eru félagar í
Vildarklúbbi Icelandair og fá m.a. ferðapunkta í hvert
sinn sem þeir fljúga með Icelandair. Að auki fást punktar
þegar greitt er með kortinu í viðskiptum við fjölmörg
innlend samstarfsfyrirtæki í verslun og þjónustu.
Þú sækir um Vildarkort VISA og Icelandair í næsta
viðskiptabanka eða sparisjóði.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar
og þjónustugjald.
19.980kr.
og 10.000 ferðapunktar*
Innifalið: Flug, flugvallarskattar
og þjónustugjald.
26.400 kr.
og 15.000 ferðapunktar*
Innifalið: Flug, gisting á Holiday
Inn Bloomington í 3 nætur,
flugvallarskattar og þjónustgjöld.
38.150 kr.
á mann í tvíbýli
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
33
1
0
9/
20
03
Þú þarft að fara í skoðunarferðir, fá þér
hnausþykkt heitt súkkulaði, skoða kistu
Napóleons, sigla um á Signu og taka langt
hádegi á alvöru frönskum veitingastað.
Þú þarft að fara í Mall of America, í leikhús, á tónleika, skoða eitt besta
listasafnið í Banda ríkj unum og upplifa ógleymanlega stemningu í glæsilegri
íþróttahöll.
til handhafa Vildarkorts VISA og Icelandair
VEKJA þarf fólk í til umhugsunar í
auknum mæli um aðgengismál fatl-
aðra með samræðum milli ólíkra
hagsmunasamtaka úr röðum fatl-
aðra og stjórnvalda, fyrirtækja,
arkitekta, hönnuða, o.s.frv. Þetta
segir Karen Bendixen, upplýsinga-
stjóri Dansk Center for Tilgænge-
lighed – stofnunar um aðgengismál í
Danmörku, sem boðið var hingað til
lands á dögunum af félagsmálaráðu-
neyti í tengslum við nýja fram-
kvæmdaáætlun um aðgengismál
fatlaðra sem unnið er að hér á landi
á Evrópuári fatlaðra. Karen var
boðið hingað til að fjalla m.a. um
hvernig vinna við framkvæmdaáætl-
un hefur gengið fyrir sig í Dan-
mörku.
„Ég var að segja þeim frá sam-
vinnu sem við höfum átt við ráðu-
neyti, fyrirtækjasamsteypur, arki-
tekta, hönnuði og mismunandi
hagsmunasamtök fatlaðra í Dan-
mörku. [...] Það þarf að breyta af-
stöðu fólks til þessara mála og þó að
það taki langan tíma er ástandið að
batna, best er að hafa samvinnu við
sem ólíkasta hagsmunahópa,“ segir
Karen.
Mikilvægt að vinna eftir
framkvæmdaáætlun
Hún segir mikilvægt í þessu sam-
bandi að einblína ekki um of á fatl-
aða heldur að finna lausnir sem
gagnist fleirum. Sem dæmi verði
næstu lestar sem byggðar verða í
Danmörku búnar sérstökum sætum
sem gagnist fötluðum og öldruðum.
Spurð um árangur í aðgengismálum
fatlaðra í Danmörku á Evrópuári
fatlaðra segir hún:
„Það hefur verið áhersla á mál-
efni fatlaðra en vandamálið er að
fatlaðir verða áfram fatlaðir þótt ár-
ið sé liðið. Þeir verða fatlaðir á
næsta ári og árið þar á á eftir líka.
Það er því mjög mikilvægt að fólk
hafi einhverja framkvæmdaáætlun í
höndunum til að vinna eftir.“
Danskur fulltrúi ræddi við stjórnvöld um aðgengismál fatlaðra
Ólíkir hagsmuna-
hópar ræði saman
KARLMAÐUR hefur játað 15 millj-
óna króna skattsvik á árunum 2001
og 2002 fyrir dómi á grundvelli
ákæru efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra og má vænta hátt í 30
milljóna króna sektar þegar dómur
verður kveðinn upp í máli hans síðar
í haust.
Ákærði játaði brot á lögum um
virðisaukaskatt með því að stinga
undan 11,3 milljónum króna sem
honum bar að standa tollstjóra skil á.
Þá játaði hann brot á lögum um stað-
greiðslu opinberra gjalda með því að
stinga undan 3,8 milljónum króna.
Játar skattsvik
SVEITARSTJÓRI Þingeyjarsveit-
ar, Jóhann Guðni Reynisson, vill
árétta að þátttaka sveitarfélagsins í
samstarfsverkefni um rafrænt sveit-
arfélag með Húsavíkurbæ og Aðal-
dælahreppi tengist á engan hátt
sameiningu sveitarfélaga. Hér sé
eingöngu um að ræða sjálfstætt sam-
starfsverkefni.
Tilefni áréttingarinnar eru um-
mæli Reinhards Reynissonar, bæj-
arstjóra Húsvíkinga, í Morgun-
blaðinu á fimmtudag sem höfð voru
eftir honum á blaðamannafundi þeg-
ar verkefnið var kynnt. Sagðist
Reinhard þar aðspurður ekki útiloka
að verkefnið gæti verið „ágætur að-
dragandi“ að því að skoða samein-
ingu þessara sveitarfélaga á næstu
árum.
Rafrænt
samfélag
tengist ekki
sameiningu
Þingeyjarsveit
♦ ♦ ♦
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.