Morgunblaðið - 28.09.2003, Page 35
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 35
JÚDAS Ískaríot er tólfti ogsíðastur á postulalistum sam-stofna guðspjallanna, en erekki nefndur í upptalningunni
í Postulasögunni, enda er þar
verið að segja frá þeim sem í loft-
stofunni í Jerúsalem dvöldust, eft-
ir uppstigningu Jesú af Olíu-
fjallinu.
Þótt ekki sé Júdas þessi á hverri
blaðsíðu í Nýja testamentinu, er
það samt oftar er hinir postularnir
flestir. Faðir hans var Símon, og er
hann einnig nefndur Ískaríot (Jó-
hannesarguðspjall 6:71, og 13:2 og
26). Flestir eru á því, að viðurnefni
þeirra feðga sé grísk umritun
(byggð á misskilningi) á hebreska
Ish Karioth (eða Kerioth), sem
þýðir „maður frá Karioth“ (eða
„Kerioth“), en samnefnt þorp var
að finna í Júdeu, líklega sunnan til.
Þar eru nú rústir el Karjetein. Í
Jósúabók 15:25 er minnst á Ker-
íjót Hesron meðal syðstu borga „í
kynkvísl Júda sona, við landamæri
Edóms, í Suðurlandinu …“ Híer-
ónýmus kirkjufaðir (347–419) áleit
viðurnefnið reyndar tengt Issach-
ar, sem merkir „laun“ (sbr. 1.
Mósebók 30:18) og annar leitaði
samsvörunar í orðinu hierochites,
sem merkir „Jeríkóbúi“. Og vegna
þess að Júdas er í sýrlenskum
handritum guðspjallanna kallaður
Scariot, hefur einnig komið fram
sú tilgáta, að á bak við það liggi
gríska nafnorðið scortia (leð-
urjakki), og eru menn þá með
pyngjuna í huga, eða eitthvað slíkt,
eitt helsta einkennistákn hans síð-
ar.
En áleitin er líka sú hugmynd,
að Ískaríot geti verið arameiskt
orð yfir launmorðingja, einhvers
konar umritun af hinu latneska
sicarius („hnífstungumaður“); það
er á grísku sicarios. Meðal vand-
lætara, öðru nafni sílóta, fundust
þannig menn, og voru þeir reiðu-
búnir að beita kutum sínum á
Rómverja ef svo bar undir. Ým-
islegt styður það nefnilega, að fjór-
menningarnir í þriðju einingu
postulahópsins hafi allir tengst
þessum herskáa, gyðinglega trú-
flokki. Vera kann að Messías-
arvonin hafi upphaflega leitt þá til
Jesú, og ekki fyrr en síðar lokist
upp fyrir þeim hvað var að gerast.
Ef svona er í pottinn búið, hefur
faðir Júdasar einnig verið sílóti.
Í samstofna guðspjöllunum birt-
ist þessi postuli ekki fyrr en á síð-
ustu ævidögum Jesú, ef nafnalist-
arnir eru frá taldir, en í
Jóhannesarguðspjalli er á hann
minnst fyrr í tvígang. Eftir krafta-
verkið með brauðin og fiskana,
vildu margir taka Jesú með valdi
og gera hann að konungi (6:15).
Hann vék undan og í framhaldinu
er mikil ræða, þar sem hann reynir
að útskýra hlutverk sitt. Upp úr
því hurfu margir lærisveinanna frá
honum. Jesús spyr þá postulana
hvort þeir ætli líka að fara.
Símon Pétur svaraði honum: „Herra, til
hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs
lífs, og vér trúum og vitum, að þú ert hinn
heilagi Guðs.“ Jesús svaraði þeim: „Hef ég
eigi sjálfur útvalið yður tólf? Þó er einn yðar
djöfull.“
Og Jóhannes nefnir til útskýr-
ingar, að þar hafi meistarinn átt
við Júdas Ískaríot. Hinn textinn er
í 12:1–8. Jesús er í húsi í Betaníu
og María tekur „pund af ómeng-
uðum, dýrum nardussmyrslum“
og smyr fætur hans. Júdas bregst
við með því að spyrja, hvort ekki
hefði verið réttara að koma þeim í
verð og gefa fátækum. Og svo
kemur Jóhannes enn með nánari
útlistun:
Ekki sagði hann þetta af því, að hann léti sér
annt um fátæka, heldur af því, að hann var
þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók það, sem
í hana var látið.
Athyglisvert er í þessu sam-
bandi, að hliðstæðan texta er að
finna í Markúsarguðspjalli 14:3–9
og þar er hvergi minnst á Júdas,
heldur einungis að þar hafi verið
„nokkrir, er gramdist þetta.“
Vegna þessa og ýmissa annarra at-
hugasemda Jóhannesarguðspjalls
í garð umrædds postula, hafa
menn látið sér detta í hug, að um
seinni tíma viðbót eða innskot geti
verið að ræða. Í samstofna guð-
spjöllunum veit t.d. enginn hinna
postulanna hvern Jesús er að tala
um, þegar hann segir, að einn
muni reynast svikari. Og ýmislegt
bendir til þess, að Júdas Ískaríot
hafi verið þarna í töluverðum met-
um, enda fágaðri en óheflaðir
Galíleumennirnir.
Hvað gerðist þá eiginlega?
Hvers vegna kallaði hann fram
þessa atburðarás, sem er yrkisefni
ítalska listmálarans Cimabue
(Cenni di Peppi) (1240–1302) í
freskumyndbrotinu, sem þessum
pistli fylgir? Hið grátlega er, að
e.t.v. vakti það eitt fyrir honum að
knýja fram einhver viðbrögð hjá
Jesú, fá konung himnanna til að
opinbera þarna mátt sinn og vald,
kalla til vopnaðar englahersveitir.
En það brást, og ekki fyrr en þá
áttaði Júdas sig á alvöru málsins.
Hann kastaði silfurpeningunum
þrjátíu inn í musterið og tók síðan
eigið líf. Er hægt að iðrast sár-
legar en það? Órígenes (182–251)
taldi, að Júdas hefði viljað með
þessu komast sem fyrst í Helju,
ríki dauðra, til að geta beðið son
Guðs þar fyrirgefningar. Það er
ekki ólíklegri skýring en hver önn-
ur, og raunar eitt af örfáum dæm-
um um kristilega hlýju í garð
þessa aumkunarverða postula.
Allt er þetta drama samt óljóst
og torrætt, ef litið er til baka.
Kannski réð annað þessari för, afl
sem ekki lét stjórnast af mannlegu
ráði. Eða kannski var Júdas með
eitthvað skuggalegra á prjónunum
en það sem hér að framan var
nefnt. Hver veit? Í áframhaldandi
pælingum, og e.t.v. ásökunum, er
þó rétt að fara varlega og ávallt
með það í huga sem meistarinn
segir í Jóhannesarguðspjalli 8:7:
„Sá yðar, sem syndlaus er, kasti
fyrstur steini …“
Júdas Ískaríot
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Með kossi lét hann meist-
ara sinn í hendur róm-
verskra yfirvalda og tvö
þúsund árum síðar er enn
deilt um ástæðu þeirrar
gjörðar hans. Sigurður
Ægisson fjallar í dag um
einhvern mest hataða ein-
stakling í gjörvallri sögu
Vesturlanda.
Lærisveinarnir 12
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Sigrún Rósa Kjartansdóttir, 463 3117
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
KIRKJUSTARF
Á ÞRIÐJUDÖGUM kl. 14.30 verður í
vetur boðið upp á samverur í safn-
aðarheimilinu Borgum. Þar verður
lagið tekið undir forystu Sigrúnar
Þorgeirsdóttur, söngkonu. Stefnt er
að því að í hverri samveru komi frá-
sögn eða innlegg frá þátttakanda í
starfinu. Í fyrstu samverunni þriðju-
daginn 30. september annast Pétur
Guðfinnsson, fyrrverandi útvarps-
stjóri, þann þátt. Boðið verður upp á
kaffi en yfir kaffibolla gefst fólki
gott tækifæri til samræðna og gef-
andi samveru. Í lok hverrar samveru
verður ritningarlestur og bæn. Allir
velkomnir.
Sóknarprestur – sóknarnefnd.
Hvernig iðkum við
biblíulega íhugun?
MIÐVIKUDAGINN 1. október hefst
í Leikmannaskóla kirkjunnar nám-
skeiðið Iðkun og efling. Efni nám-
skeiðsins er að leiðbeina fólki við
biblíulestur og þá á nótum hinnar
fornu aðferðar sem kallast Lectio
Divina. Kennari á námskeiðinu er sr.
María Ágústsdóttir héraðsprestur
en hún þýddi smárit sem fjallar um
aðferðina. Markmiðið með nám-
skeiðinu er að nálgast efni Biblíunn-
ar út frá sjónarhorni íhugunar og
þannig að efla trúarlíf einstaklinga.
Námskeiðið fer fram í Grens-
áskirkju, hefst kl. 18 og stendur í
klukkutíma hvert sinn. Hægt er að
skrá sig á námskeiðið í síma 535
1500 eða á vef kirkjunnar,
www.kirkjan.is/leikmannaskoli
Tómasarmessa í
Breiðholtskirkju
FYRSTA Tómasarmessan á þessu
hausti verður í Breiðholskirkju í
Mjódd í kvöld, sunudaginn 28. sept-
ember, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið
mikla ánægju þeirra sem þátt hafa
tekið og virðist hafa unnið sér fastan
sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík
messa hefur verið haldin í Breið-
holtskirkju í Mjódd síðasta sunnu-
dag í mánuði, frá hausti til vors, síð-
ustu fimm árin. Framkvæmdar-
aðilar að þessu messuhaldi eru
Breiðholtskirkja, Kristilega skóla-
hreyfingin, Félag guðfræðinema og
hópur presta og djákna, og er það
jafnan um 30 manna hópur sem tek-
ur þátt í undirbúningi og fram-
kvæmd.
Heiti Tómasarmessunnar er dreg-
ið af postulanum Tómasi, sem ekki
vildi trúa upprisu drottins nema
hann fengi sjálfur að sjá hann upp-
risinn og þreifa á sárum hans. Mark-
mið messunnar er öðru fremur að
leitast við að gera nútímamanninum
auðveldara að skynja návist Drott-
ins, einkum í máltíðinni sem hann
stofnaði og í bænaþjónustu og sál-
gæslu, en mikil áhersla er lögð á fyr-
irbænaþjónustu. Þá einkennist mess-
an af fjölbreytilegum söng og
tónlist. Það er von okkar, sem að
messunni stöndum, að þær góðu
móttökur sem Tómasarmessan hef-
ur hlotið hingað til gefi tóninn um
framhaldið og að hún megi áfram
verða mörgum til blessunar og starfi
íslensku kirkjunnar til eflingar.
Tímamót – ferming-
arfræðsla
KJALARNESPRÓFASTSDÆMI
hefur framleitt 6 stutt myndbönd til
að nota í fermingarfræðslu kirkj-
unnar. Efni myndbandanna, sem
bera heitið Tímamót, er vinskapur
tveggja krakka sem pæla í lífinu og
tilverunni en hugleiðingar þeirra
tengjast viðfangsefni ferming-
arfræðslunnar um manneskjuna,
Guð og kirkjuna. Myndböndunum
fylgja skrifaðar spurningar sem síð-
an eru notaðar til að vekja umræður
í fermingartímunum.
Á nýliðnum héraðsfundi Kjal-
arnesprófastsdæmis sem haldinn
var í Svartsengi á Reykjanesi voru
myndböndin frumsýnd við góðar
undirtekir. Höfundur handrits og
leikstjóri myndbandanna er Oddur
Albertsson og með honum unnu að
gerð myndanna fjölmargir áhuga-
menn á öllum aldri. Myndböndin
verða til sölu fyrir söfnuði sem vilja
nota þau í fermingarfræðslu sinni og
má fá allar nánari upplýsingar á
skrifstofu Kjalarnesprófastsdæmis í
síma 566 7301 eða á heimasíðu pró-
fastsdæmisins, www.kjalarpr.is
Samvera í
Kópavogskirkju
Morgunblaðið/Arnaldur
Grensáskirkja. Unglingastarf 9. og 10.
bekkjar sunnudagskvöld kl. 19.30.
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Félagsvist
á morgun í Setrinu kl. 13. Pútt alla daga
kl. 10 ef veður leyfir. Haustlitaferð eldri
borgara verður nk. þriðjudag kl. 13.
Skráning í síma 511-5405.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfélagið
kl. 20–22 (fyrir 8.–10. bekk).
Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æskulýðs-
félag Árbæjarsafnaðar, með fundi í
safnaðarheimilinu.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum alla virka daga
frá kl. 9–17 í síma 587 9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og
10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðs-
félag fyrir 8. bekk kl. 20.
Bessastaðasókn. Sunnudagaskólinn er
í sal Álftanesskóla kl. 11. Umsjón með
sunnudagaskólanum hafa Kristjana og
Ásgeir Páll. Allir velkomnir.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu-
dag kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601.
Í kvöld er samkoma kl. 20. Helga R. Ár-
mannsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbæn-
ir. Barnagæsla fyrir 1–7 ára börn á sam-
komutíma. Kaffi og samfélag eftir
samkomu. Allir eru hjartanlega velkomn-
ir.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Martin Hallett frá Bret-
landi. Gospelkór Fíladelfíu sér um lof-
gjörðina. Allir velkomnir. Bænastund
alla virka morgna kl. 6–7. www. gosp-
el.is
Safnaðarstarf