Morgunblaðið - 28.09.2003, Page 46
46 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
1 2 3 4 5 6 7 8
9
10 11
12
13
14
15
16 17
18 19
20
21 22 23 24
25
26
27
28 29
Lárétt
1.Leikur sem er ekki fyrir síli. (15)
9.T.d. Gosi og Askur eða höfuðverkur. (10)
10.Flest vanda með ofríkisstefnu. (10)
12.Fatnaður kenndur við þjóðina sem fann hann upp
eða frægt amerísk afbrigði. (10)
13.Tæki hugans er notað af tölvum. (10)
14.Mikill fiskur hjá miklum manni (7)
15.Verndari Suttungamjaðar. (7)
17.Frú er ein í kulda. (5)
18.Bækur innihalda „mene, mene, tekel ufarsin“ og
fleiri orð frá sama höfundi. (13)
24.Fallegur öðu fann af tegundinni Cardium eleg-
antulum. (9)
25.Stutt leið sem eitthvað hrekur á ferð. (9)
26.Barátta reipa er öll í huganum. (10)
27.Enginn fantur og engin vandræði. (6,3)
28.Maður lítilla hluta. (13)
29.8 e. Kr. felur í sér tilhneigingu. (6)
Lóðrétt
1.Hóll við haf hefur hæðina 0 m. (9)
2.Nei, glóra að þetta taki mjög langan tíma. (8)
3.Fatnaður Kermits er notaður við köfun. (13)
4.Blóm sem gætu verið heiti á sumarleyfisparadísum.
(8)
5.Það sem er alltaf auglýst með drómedara. (5)
6.Bíði ataður eftir döguninni. (10)
7.Óupplýstir stórbæir fyrir norðan? (11)
8.Bókstafur ámu er byggingarefni hennar. (11)
11.Maður mun á eftir fara niður til vinnu sinnar. (9)
16.Vætusamur hluti ársins. (9)
17.Frú tekur val á morgunverði. (9)
19.Gort laðar að miðsvæði. (8)
20.Óviturlegt sigti leiðir til bruðls. (7)
21.Er segli hagað þannig að skapraun valdi. (7)
22.Heilt en hefur ekki gaman af. (7)
23.Skal um orðalausan núna fjalla. (6)
1. Hver er besta plata sögunnar
samkvæmt vefsvæðinu
zagat.com?
2. Hvað heitir væntanleg
kona Friðriks Danaprins?
3. Og hvaðan er hún?
4. Í hvaða bæ er Players
sport bar?
5. Hvað heitir ný plata
David Bowie?
6. Hvar býr Emilíana Torrini
nú um stundir?
7. Hver leikstýrir Hröppum 2
(Bad Boys II)?
8. Hvað heitir gítarleikari
Dúkkulísanna?
9. Johnny Depp kemur við sögu í
tveimur kvikmyndum sem sýnd
ar eru um þessar mundir í
kvikmyndahúsum hér á landi.
Hvað heita þær?
10. Frá hvaða landi er fatahönn-
uðurinn Julien MacDonald?
11. Ný íslensk sakamálamynd er í
bígerð. Hvað mun hún heita?
12. Hver fór með hlutverk Bridget
Jones í myndinni Dagbækur
Bridget Jones?
13. Hver er orðin hundleið á lög-
unum sínum?
14. Hver fer með aðalhlutverkið í
myndinni Geggjaður föstudag-
ur (Freaky Friday)?
15. Hvaða félagsskap, sem snýst
um íslenska hljómsveit, tilheyrir
þetta fólk?
1. Born to Run eftir Bruce Springsteen. 2. Mary Donaldson.3. Hún er áströlsk.4. Kópavogi. 5.
Reality. 6. Í Brighton. 7. Michael Bay. 8. Gréta Jóna Sigurjónsdóttir. 9. Sjóræningjar Karíbahafsins
og Einu sinni var í Mexíkó. 10. Wales. 11. Allir litir hafsins eru kaldir. 12. Reneé Zellweger. 13.
Barbra Streisand. 14. Jamie Lee Curtis. 15. Þetta eru meðlimir í Gullna liðinu, aðdáendaklúbbi
Sálarinnar hans Jóns míns.
Spurt er Spurningakeppni um efni sem finna má ásíðum Fólks í fréttum í Morgunblaðinu.
Lárétt: 1. Ástríkur, 5. Lamadýr, 8. Slöngulokk-
ar, 10. Sirka, 13. Fönnugur, 14. Havana, 16.
Hugrakkar, 17. Stáltaugar, 18. Stravinsky, 19.
Vandamál, 23. Tildur, 25. Glærur, 26. Rjól, 29.
Bakaraofn, 30. Gæsahúð, 31. Fimbulvetur, 32.
Pönnukaka.
Lóðrétt: 2. Selló, 3. Ranabjalla, 4. Kaup-
félagið, 5. Lukkudýr, 6. Morgunhani, 7. Reifa-
barn, 9. Olnbogaskot, 11. Krakkaormur, 12.
Saurgerlar, 15. Stuttbuxnalið, 19. Virkisgröf,
20. Nægtahorn, 21. Jarðarber, 22. Sólarlag,
24. Durgur, 27. Snotra, 28. Aðsókn.
Vinningshafi krossgátu
Ásdís Snorradóttir, Viðarrima 5, 112
Reykjavík. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Napóleonsskjölinn eftir Arnald Indr-
iðason sem gefin er út af Vöku-Helgafell.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11
12
13 14
15 16
17
18
19 20
21
22 23 24 25
26
27 28
29 30
31
32
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgát-
unnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni
og heimilisfangi ásamt
úrlausninni í umslagi
merktu Krossgáta
Sunnudagsblaðsins,
Morgunblaðið, Kringlan
1, 103 Reykjavík. Skila-
frestur á úrlausn kross-
gátunnar rennur
út fimmtudaginn
2. október.
Heppinn þátttakandi
hlýtur bók af bóksölu-
lista, sem birtur er í
Morgunblaðinu.
VINNINGUR ER GEFINN AF FÉLAGI ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA.
K r o s s g á t u v e r ð l a u n
HEIMILSFANG
PÓSTFANG
NAFN
OPIN kerfi í samstarfi við Sambíóin
stóðu fyrir litasamkeppni í
tengslum við barna- og fjölskyldu-
myndina Sinbad sæfari og þjóðsag-
an um höfin sjö sem kemur frá
framleiðendum Shrek. Litasam-
keppnin var í tveim flokkum. Ann-
ars vegar gat yngri kynslóðin litað
myndir af aðalsögupersónunum í
sérstakri tölvulitabók á heimasíðu
Opinna kerfa og prentað út. Eldri
kynslóðin gat tekið þátt í frjálsri
aðferð, sem fól í sér að taka afrit af
myndum úr Sinbad sæfara og þjóð-
sögunni um höfin sjö og líma saman
á eitt blað.
Um 250 myndir bárust í sam-
keppnina sem stóð til 1. september
sl. Best litaða myndin í tölvulita-
bókinni litaði Lilja Kristín Svavars-
dóttir, Lundabrekku 4 í Kópavogi
og fékk hún HP psc 1210 fjölnota-
prentara. Frumlegustu myndina
teiknaði Hanna Björk Hilmars-
dóttir, Baldursgarði 11 í Reykja-
nesbæ, en hún bjó til teiknimynda-
sögu um ævintýri Sinbads sæfara.
Hanna Björk fékk HP psc 2110-
fjölnotaprentara í verðlaun. HP-
fjölnotaprentarar eru, auk þess að
vera prentarar, skannar og með
ljósritunarmöguleika.
Upplýsingar um vinningshafa er
að finna á heimasíðu Opinna kerfa
hf., www.ok.is, en aðrir vinnings-
hafar fengu Sinbad-litakassa,
mjúka hunda úr myndinni, Sinbad-
boli með myndum af Sinbad sæfara
og Marinu sæfara og bíómiða á
myndina. Verðlaunahafar á lands-
byggðinni hafa þegar fengið vinn-
ingana senda til sín, en vinnings-
hafar á höfuðborgarsvæðinu eru
beðnir um að nálgast vinningana
hjá Opnum kerfum á Höfðabakka 9
í Reykjavík.
Verðlaunahafar
í Sinbad-litaleik
Lilja Kristín Svavarsdóttir, Halldóra
Matthíasdóttir, markaðsstjóri Op-
inna kerfa, og Hanna Björk Hilm-
arsdóttir við veitingu verðlauna.
ÞÓRÐUR Ægir Óskarsson, fasta-
fulltrúi Íslands hjá Alþjóðakjarn-
orkumálastofnuninni í Vínarborg,
undirritaði á ársfundi stofnunarinn-
ar sem haldinn var fyrir skömmu
sérstaka viðbótarbókun við heildar-
samning stofnunarinnar um örygg-
isráðstafanir. Viðbótarbókunin
kveður á um eftirlitshlutverk stofn-
unarinnar með notkun og nýtingu
kjarnkleyfra efna í friðsamlegum
tilgangi í aðildarríkjunum og hefur
tekið gildi í 36 ríkjum.
Aðild sem flestra ríkja að ofan-
greindum samningi og viðbótarbók-
un hans felur í sér mikilvæga styrk-
ingu á öryggiseftirlitskerfi Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar og er
eitt forgangsverkefna hennar í dag.
Á ársfundi stofnunarinnar var stór-
efld pólitísk áhersla lögð á eflingu
eftirlitshlutverks stofnunarinnar
varðandi notkun og nýtingu kjarn-
kleyfra efna í aðildarríkjunum, ekki
síst vegna vanefnda ríkja á borð við
Íran og Norður-Kóreu á skuldbind-
ingum sínum gagnvart stofnuninni.
Starfsemi Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar miðar að því að
auka öryggi og eftirlit með nýtingu
kjarnorku og geislavirkra efna í
friðsamlegum tilgangi í aðildarríkj-
unum sem eru 136 talsins. Á vett-
vangi stofnunarinnar fer fram
margvíslegt tæknilegt og vísinda-
legt samstarf í þágu aukins öryggis
á þessu sviði. Stofnunin sinnir þró-
un lagalega bindandi alþjóðasamn-
inga um öryggi vegna friðsamlegr-
ar nýtingu kjarnorku og geisla-
virkra efna auk þess að vinna að
fjölþættum aðgerðum gegn smygli
og þjófnaði á geislavirkum efnum
og úrgangi.
Viðbótarbókun
um kjarnorkumál