Morgunblaðið - 28.09.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16.
SV MBL
ZOMBIE- SKONROKK
FM 90.9
HK DV
Kvikmyndir.com
Kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal.
Miðaverð 500 kr.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Barnapössun hefur aldrei verið
svona fyndin! Frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Frábær gamanmynd með hinum vinsæla Ashton Kutcher.
Hann er skotinn í dóttur yfirmann síns og gerir allt til að
komast yfir hana. En Suma hluti gerir maður bara ekki!
Um það leyti sem þú heyrir í honum eða
sérð hann. Er það um seinan.
Svakaleg hrollvekja sem fór beint á toppinn í
Bandaríkjunum
ATH! FYRSTA SÝNISHORNIÐ ÚR LORD OF THE
RINGS:THE RETURN OF THE KING VERÐUR
FRUMSÝNT Á UNDAN MYNDINNI.
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Námsmannalínu félagar fá
2 fyrir 1 á myndina ef greitt
er með ISIC debetkortinu
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15. Sýnd kl. 2 og 4. Með ísl. tali.
Sýnd kl. 2 og 4.
Með ísl. tali - Tilboð 400 kr.
Fór beint átoppinn í
USA!
Þeir eru mættir aftur! Frá ofur
framleiðandanum Jerry
Bruckheimer.
ir r ttir ft r! r f r
fr l i rr
r i r.
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16 áraSýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 16 ára
Um það leyti sem þú heyrir í honum eða
sérð hann. Er það um seinan.
Svakaleg hrollvekja sem fór beint á toppinn í
Bandaríkjunum
ATH! FYRSTA SÝNISHORNIÐ ÚR LORD OF THE
RINGS:THE RETURN OF THE KING VERÐUR
FRUMSÝNT Á UNDAN MYNDINNI.
FRUMSÝNING
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir
þú gera?
Fyndnasta mynd sumarsins frá
leikstjóra
Liar Liar og Ace Ventura
ÞORSTEINN Guðmundssonleikari hefur nóg að geraþessa dagana. Hann er á
fullu við framleiðslu gaman- og
fræðsluþáttanna Atvinnumaðurinn
á Skjáeinum auk þess sem hann
hefur nýlokið við að skrifa söng-
leik fyrir nemendur Verzló sem
verður settur upp í vetur. Þor-
steinn vinnur einnig að skáldsögu
og verður með uppistand í vetur
eftir að vinnu við þættina lýkur.
Meðfram þessu öllu sinnir Þor-
steinn fjölskyldunni, en hann er
búinn að vera í barnseignarleyfi í
sumar.
Hvernig hefurðu það?
Ógeðslega gott á milli þess sem
ég ligg lamaður með andþrengsli
af tilvistarangist og sjálfsvorkunn.
Hvað ertu með í vösunum?
„That’s for me to know and you
to find out!“
Uppvaskið eða skræla kart-
öflur?
Uppvaskið, ekki spurning.
Ég á mínar bestu stundir
með gúmmíhanska á
höndunum.
Hefurðu tárast í bíói?
Nei, ég græt inni í mér
og hendi tyggjói í hár-
ið á fólkinu fyrir fram-
an mig til þess að
halda kúlinu.
Hverjir voru fyrstu
tónleikarnir sem þú
fórst á?
Ég fór með afa mínum
og ömmu á Sinfóníutón-
leika. Stórkostleg upplif-
un.
Ef þú værir ekki
skemmtikraftur, hvað vild-
irðu þá vera?
Konan mín.
Hvaða leikari fer mest í taug-
arnar á þér?
Robin Williams. Gjörsamlega óþol-
andi náungi.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Körfubolti.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Sjarmi, húmor, gáfur, forystuhæfi-
leikar og lítillæti.
Bítlarnir eða Stones?
Bítlarnir. Þeir höfðu vit á því að
hætta.
Humar eða hamborgari?
Ég borða humar í morgunmat, há-
degismat og kvöldmat. Þannig að
ég býst við því að það sé ham-
borgari.
Hver var síðasta bók sem þú last
tvisvar?
Egils saga.
Hvaða lag spilarðu áður en þú
ferð út á laugardagskvöldi?
Hvaða laugardagskvöldum? Þá
er ég yfirleitt að vinna. Ég fæ
mér aðeins áfengi á mánu-
dags-, þriðjudags-, miðviku-
dags- og fimmtudagskvöld-
um nema ég hafi eitthvað
sérstakt tilefni.
Hvaða plötu keyptirðu
síðast?
Atomic Kitten. Ég gaf
hana í afmælisgjöf. Ég
sver það. Ég sver
það.
Hvert er þitt mesta
prakkarastrik?
Að sannfæra þjóðina
um að ég sé skemmti-
kraftur.
Hver er furðulegasti
matur sem þú hefur borð-
að?
Appelsínubörkurinn sem móðir
mín gaf okkur í eftirmat á jól-
unum.
Trúirðu á líf eftir dauðann?
Nei, ég á meira að segja erfitt
með trúa á líf fyrir dauðann.
Sjarmi, húmor, gáfur, for-
ystuhæfileikar og lítillæti
SOS
SPURT & SVARAÐ
Þorsteinn
Guðmundsson
HIN fornfræga sveit The
Incredible String Band
heimsótti landann í vor
og lék við góðar undir-
tektir í Íslensku óper-
unni. Sá er stóð að inn-
flutningnum var
Steingrímur Guðmunds-
son, trymbill og einlægur
aðdáandi sveitarinnar.
Nú er sú staða komin upp
að Steingrími hefur ver-
ið boðið að leika með
sveitinni inn á plötu sem
tekin verður upp í októ-
ber í hljóðveri Peter Gabriel, Real-
World Studios. Fer Steingrímur ut-
an um miðjan mánuðinn til þessa.
„Þetta kom þannig til að ég var að
leika með bandinu Barduka í partíi
eftir tónleikanna. Þá sáu þeir mig
spila,“ segir Steingrímur.
„Ég fæ alveg frjálsar hendur með
mitt innlegg og hef verið að und-
irbúa þetta heima í Pro-Tools (upp-
tökuforrit). Útgáfudagur plötunnar
hefur ekki enn verið staðfestur.“
Platan verður tekin upp beint,
fyrir framan áhorfendur.
„En samt er þetta stúdíóplata,“
segir Steingrímur. „Það verður
stoppað t.d. ef eitthvað klikkar. Dá-
lítið undarlegt. Ætli þetta sé ekki
einhver stemningspæling.“
Sveitin ætlar að leika gamalt efni í
nýjum búningi og munu upptökur
standa yfir í tvo daga.
Steingrímur Guðmundsson spilar
Leikur inn á hljómplötu
Incredible String Band heilsaði upp á Jón Sig-
urðsson á meðan hljómsveitin dvaldi hér.
með Incredible String Band
www.incrediblestringband.com