Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 12
ÚR VERINU
12 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UM 200 borgarar mættu í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu nýlega
til að taka þátt í hverfisfundi miðbæj-
ar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður hverfisráðs miðbæjar, stýrði
fundi og bauð gesti velkomna um leið
og hún kynnti borgarstjóra.
Í ávarpi sínu fór borgarstjóri bæði
almennt í málefni Reykjavíkurborg-
ar, m.a. samgöngumál, fjármál og
skipulagsmál, og áætlanir næstu ára.
Rakti hann þar meðal annars áform
um að reisa þjónustumiðstöðvar í út-
hverfum, þar sem íbúar úthverfanna
gætu sótt þjónustu borgarinnar á ein-
um stað í stað þess að sækja hana nið-
ur í miðborg. Þannig mætti draga úr
bílaumferð niður í miðbæ.
Borgarstjóri fjallaði einnig um al-
menningssamgöngur og áætlanir um
breytingar á leiðakerfi strætisvagna.
Ennfremur fór hann yfir það hvernig
skattfé er varið og vakti athygli á því
að meira en helmingur skattfjár borg-
arinnar er lagður í starfsemi fyrir
börn og unglinga, t.d. menntun og
íþrótta- og tómstundamál. Taldi hann
því fjármagni vel varið.
Miklar framkvæmdir
Í máli borgarstjóra kom fram að
borgin setur árlega um 10–15 millj-
arða af um 34 milljarða tekjustofni
sínum í fjárfestingar. Einnig fjallaði
hann um skulda- og eignastöðu borg-
arinnar síðustu ár, bæði hvað varðar
borgarsjóð og borgina alla.
Eftir yfirferð yfir mál borgarinnar í
heild tók borgarstjóri fyrir nærtæk-
ari málefni miðbæjarins. Fór hann yf-
ir áætlanir um byggingu tónlistar- og
ráðstefnuhúss og áhrif þeirrar bygg-
ingar á skipulag miðbæjarins. Einnig
fjallaði hann um endurbætur og ný-
byggingar í miðbænum og tilraunir til
að endurvekja gullaldarútlit Aðal-
strætisins frá þarsíðustu aldamótum.
Færsla Hringbrautar kom einnig upp
í máli borgarstjóra og sú þýðing sem
hún hefur fyrir þróun miðborgarinn-
ar, sérstaklega þegar byggingarland
losnar í Vatnsmýrinni, þar sem
Reykjavíkurflugvöllur er í dag.
Að loknu erindi borgarstjóra tók til
máls Illugi Jökulsson, fulltrúi íbúa í
miðborginni. Hann sagði í skoplegu
máli frá því hvernig honum þætti að
lifa í borginni og sagði að „hnignun
miðborgarinnar“ væri einungis í aug-
um „fólks sem kemur á jeppunum sín-
um úr úthverfunum í tilgangslausri
og einmanalegri leit að fleiri tísku-
búðum“. Honum þætti miðbærinn al-
veg ágætur. Mælti hann með að læk-
urinn í Lækjargötu yrði grafinn upp
og Sundhöllin stækkuð, auk þess sem
hann lýsti yfir löngun í lítið bíó sem
sýndi vandaðar kvikmyndir. Illugi
þakkaði framtakssömum mönnum
eins og Jakobi Magnússyni, veitinga-
manni á veitingastaðnum Horninu, og
Árna Einarssyni, sem ákvað að lengja
afgreiðslutíma Máls og menningar á
Laugavegi, fyrir að stuðla að líflegri
miðborg og lagði áherslu á að mið-
borgin yrði ekki líflegri fyrir tilstuðl-
an nefnda eða ráða, heldur íbúanna
sjálfra.
Umdeilt bílastæðahús
Eftir stutt kaffihlé hófust umræður
og tóku margir fundargestir til máls
og ræddu sínar hugmyndir um mið-
borgina og málefni hennar.
Borgarstjóri var spurður um af-
stöðu sína til flugvallarins, en flugum-
ferð væri gríðarlegt vandamál í mið-
bænum vegna hávaða og hættu sem
skapaðist. Borgarstjóri sagðist skilja
málið. Sagði hann það í raun leysa sig
sjálft innan tíðar vegna þeirrar þró-
unar sem er að eiga sér stað í sam-
göngumálum á Íslandi og nefndi hann
þar þróun flugmála og breikkun
Reykjanesbrautar. Það væri fyrirsjá-
anlegt að rekstur tveggja flugvalla
yrði ríkinu þungur baggi í framtíðinni
og til lítils að ræða málefni Reykjavík-
urflugvallar í dag, því það mál væri
einfaldlega ekki á dagskrá nú.
Einnig komu fram spurningar
varðandi framtíð bílastæðamála í
miðborginni og þá sérstaklega hlut-
verk Tjarnarinnar þar að lútandi. Var
þá spurt hvort ekki stæði til að
hreinsa og endurnýja Tjörnina, þar
sem hún væri í raun lítið annað en líf-
laust fen sem gæfi frá sér daunillan
fnyk þegar hvessti og vatnið gáraðist.
Um lífríki Tjarnarinnar væri ekki
lengur að ræða og því brýnt að endur-
lífga hana. Borgarstjóri sagði miklar
deilur þar að lútandi milli mismun-
andi sjónarmiða, en sagðist þó styðja
það að tækifærið yrði nýtt til að
hreinsa og bæta Tjörnina. „Varðandi
bílastæðahús, þá munu bílastæði und-
ir tónlistar- og ráðstefnuhúsi létta
mjög á því svæði hvað varðar bíla-
stæði. Enn eru menn þó ekki sam-
mála um hugsanlegt bílastæðahús
undir Tjörninni. Þar takast á sjónar-
mið um hagkvæmasta og ódýrasta
kostinn annars vegar og hins vegar
tilfinningaleg mörk þess sem menn
eru til umræðu um varðandi Tjörnina.
Þar lýsti ég minni sýn, að röskun á
byggingartíma væri minnst ef byggt
væri í Tjörninni og hægt væri að gera
Tjörnina vel úr garði að byggingu lok-
inni. En þetta er óútkljáð mál.“
Umhverfisátak fram undan
„Það var ákveðin eldskírn að fara á
hverfisfund borgarstjóra í sjálfri mið-
borginni, því ég hef lagt sérstaka
áherslu á að beita mér fyrir úrbótum í
miðborg Reykjavíkur,“ sagði Þórólf-
ur aðspurður hvernig honum hefði
þótt fundurinn heppnast. „Það var
mjög áhugavert að heyra hvað við-
brögð íbúanna eru jákvæð við upp-
byggingu og þéttingu byggðar, þó að
á þá reyni mest á framkvæmdatím-
anum, því eins og allir vita er mikið
rask, uppgröftur og hávaði sem fylgir
framkvæmd.
Mér þótti líka mjög gaman að því
hvað íbúarnir eru áhugasamir um að
fegra og bæta sitt nánasta umhverfi
og ég tilkynnti það að ég mun beita
mér fyrir sérstöku hreinsunar- og
þrifaátaki næsta vor, sem verður und-
irbúið í samvinnu við íbúa, þar sem
lögð verður áhersla á lagfæringar á
húsnæði, görðum og lóðum, meiri
þrif, fleiri ruslafötur og að allir taki til
hendinni saman, jafnt borgarbúar og
borgaryfirvöld. Það var greinilega
mikill stuðningur við þetta.“
Borgarstjóri var einnig ánægður
með það hversu auðvelt fólk átti með
að tjá áhyggjur sínar og umkvörtun-
arefni og sagði mikilvægt að fólk lægi
ekki á slíkum tilfinningum. „Fólk
hafði áhyggjur af því hvort uppbygg-
ing skólastarfs héldist í hendur við
þéttingu byggðar. Þar blasa ef til vill
við mestu úrlausnarefnin. Fólk er
mjög spennt fyrir byggingu nýs tón-
listar- og ráðstefnuhúss, sem nú er
kominn góður skriður á, undir verk-
stjórn fyrrverandi borgarverkfræð-
ings, Stefáns Hermannssonar. Mjög
mikill áhugi er fyrir því að skipulag
miðborgarinnar allt frá tónlistarhúsi
yfir að Lækjartorgi og út að Mýrar-
götu verði skoðað sem ein heild. Þar
er í raun stærsta skipulagsverkefni
sem ráðist hefur verið í á byggðu bóli
á Íslandi.“
Borgarstjóri sækir hverfisfund með íbúum miðbæjar
Fundargestir áhuga-
samir um eigið umhverfi
Framkvæmdir, rask,
slæm umgengni við göt-
ur miðbæjarins, úti-
sundlaug og leiksvæði
fyrir börn voru meðal
þess sem bar á góma á
fundi borgarstjóra með
íbúum miðbæjarins.
Morgunblaðið/Sverrir
Þórólfur Árnason borgarstjóri sagði frá mörgu og fékk að heyra enn meira
frá íbúum miðborgarinnar á miðvikudagskvöld.
FRÉTTIR
FUNDARMENN spurðu margvíslegra spurninga á
fundi með borgarstjóra.
Óþægindi vegna flugvallarins, hávaðamengunar
og hættu af honum.
Áhyggjur vegna óheftrar útbreiðslu borgarinnar.
Fleiri og betri leiksvæði fyrir börn.
Lýst yfir ánægju með „Battavelli“.
Erfið staða nágranna sendiráðs Bandaríkjanna í
kjölfar ellefta september.
Möguleiki á því að fá grill í Hljómskálagarðinn.
Í upprunalegum teikningum að Hljómskálagarð-
inum er rauðamöl í göngustígum sem myndar mót-
vægi við grasið. Hvernig væri að endurvekja það?
Hvenær hefjast framkvæmdir við efri hluta Skóla-
vörðustígs?
Framtíð Hlemmtorgs.
Áhyggjur af fjölgun hótela í kjarna miðborgar.
Mikið af rusli á götunum, fleiri ruslafötur.
Skemmdir á trjám í miðbænum um helgar eru
óviðunandi, hvað er til ráða?
Glerbrot liggja um allar götur eftir drykkjufólk.
Þetta er óþrifnaður og hættulegt.
Þörf á umhverfisátaki.
Er hægt að tala um „Lífríki Tjarnarinnar“?
Fyrst strætó er rekinn með tapi almennt, af hverju
ekki að hafa ókeypis í hann og bæta nýtinguna?
Vöffluhús á Skólavörðuholti til að lífga upp á það.
Nánar verður fjallað um umræðuna á vef Reykjavík-
urborgar: www.reykjavik.is.
Margt spurt á fundinum
NÍU íslenzk fyrirtæki kynntu
framleiðslu sína og lausnir á sjáv-
arútvegssýningu í Vigo á Spáni,
sem nú er nýlokið. Sýnendur voru
almennt ánægðir með árangurinn.
Sýningin haldin á 6 ára fresti síðast
árið 1997.
Góðar fyrirspurnir
Lárus Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðsmála hjá
Marel, var ánægður með gang
mála. „Við opnuðum söluskrifstofu
í Vigo í febrúar og réðum þar sem
forstöðumann fyrrverandi starfs-
mann hjá spænska sjávarútvegs-
risanum Pescanova í Vigo. Fyrir
vikið var undirbúningur okkar fyr-
ir sýninguna mjög góður. Spán-
verjar eru mikil fiskveiðiþjóð og
fiskætur og við fengum marga góða
gesti á sýninguna frá Spáni, Portú-
gal og mörgum fleiri löndum. Við
fengum góðar fyrirspurnir og eig-
um von á ágætissölu í kjölfarið,“
segir Lárus.
Hann segir ennfremur að það sé
gott fyrirkomulag að íslenzku fyr-
irtækin haldi hópinn undir merkj-
um Útflutningsráðs Íslands. Það sé
ódýrara en ella og skili sér vel í
góðri aðsókn.
Mikill fjöldi gesta mætti á sýn-
inguna eða um 70.000 manns fyrstu
fjóra daga sýningarinnar, á sunnu-
dag var sýningin opin fyrir almenn-
ing og er greinilega mikill áhugi al-
mennt fyrir sjávarútvegi því mikill
fjöldi gesta kom þann dag.
Flestir gestir frá Spáni
Um 700 sýnendur frá 60 löndum
voru á sýningunni til að stofna til
nýrra viðskiptasambanda. Flestir
gestanna eru Spánverjar, margir
koma síðan frá Evrópu, þá sérstak-
lega Portúgal og einnig Suður-Am-
eríku. Útflutningsráð Íslands sá
um skipulagningu þjóðarbáss þar
sem níu íslenzk fyrirtæki kynntu
vörur sínar og þjónustu. Þau eru
Optimar Island, Marel, Hampiðjan,
Sæplast, Póls, 66 Norður, Reykja-
víkurhöfn, Hafnarfjarðarhöfn og
NAS.
„Sýningin er mjög svipað upp-
byggð og sjávarútvegssýningin í
Kópavoginum, aðallega var um að
ræða veiðarfæri, vélar og tæki
tengd sjárvarútvegi og einnig fyr-
irtæki í fiskeldisgeiranum, lítið var
um fisk á sýningunni,“ segir Berg-
lind Steindórsdóttir, verkefnastjóri
hjá Útflutningsráði.
„Almennt voru íslenzku fyrir-
tækin ánægð með gang mála á sýn-
ingunni, fengu til sín mikið af góð-
um gestum og fóru heim með
þónokkuð af áhugaverðum fyrir-
spurnum.“
Árni M. Mathisen sjávarútvegs-
ráðherra, sem staddur var í Vigo á
fundi sjárvarútvegsráðherra Evr-
ópu, kom á sýninguna og heilsaði
upp á íslensku sýnendurna.
Nú er hafin á sama stað Conx-
emar-sýningin sem er fyrir frosnar
sjávarafurðir. Eftir því sem næst
verður komizt eru það aðeins SÍf
og SH sem taka þátt í sýningunni
af íslenzkum fyrirtækjum. Tölu-
verður fjöldi íslenzkra gesta sækir
sýninguna hins vegar heim, en
henni lýkur á morgun.
Eigum von á
ágætissölu
Níu íslenzk fyrirtæki tóku þátt
í sjávarútvegssýningu á Spáni
Frá sjávarútvegssýningunni sem haldin var í Vigo á Spáni.
SAMTÖK fiskvinnslustöðva, Kín-
versk-íslenska viðskiptaráðið og
Útflutningsráð vinna að undirbún-
ingi sendinefndar til Kína í sam-
starfi við sendiráð Íslands í Peking,
dagana 24. október til 2. nóvember
n.k.
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin
China Fisheries and Seafood Expo
verður haldin í Shanghai dagana
29.-31. október og er Útflutnings-
ráð með þjóðarbás á sýningunni.
Alls eru sjö íslensk fyrirtæki þátt-
takendur á sameiginlegum bás en
auk Útflutningsráðs kynna þar
starfsemi sína Asiais Ltd., Icelandic
Japan KK, Sæplast, Style Interna-
tional, E. Ólafsson ehf., Póls og Ís-
lenska útflutningsmiðstöðin.
Kínverska sjávarútvegssýningin
er sú stærsta sinnar tegundar í As-
íu og sú eina sem haldin er í Kína.
Alls sýndu þar 556 fyrirtæki á síð-
asta ári, frá yfir 30 löndum. Þar af
var ríflega helmingur fyrirtækj-
anna á sviði sjávarafurða, 19%
sýndu búnað tengdan fiskeldi, 12%
sýndu búnað til fiskvinnslu, 5%
búnað til fiskveiða en 8% fyrirtækj-
anna aðra vöru og þjónustu tengda
sjávarútvegi. Sýningin er nú haldin
í 8. sinn og er búist við að hana
sæki um 13.000 gestir frá yfir 50
löndum.
Íslenska viðskiptasendinefndin
verður í Shanghai á sama tíma og
sjávarútvegssýningin stendur yfir.
Töluverður áhugi er á þátttöku í
ferðinni, en tilgangurinn er fyrst og
fremst að kynnast aðstæðum í fisk-
eldi og fiskvinnslu. Heimsótt verða
nokkur fiskvinnslufyrirtæki í þrem-
ur borgum, Qingdao, Dalian og
Shanghai, auk þess sem heimsótt
verða fiskeldisfyrirtæki í Qingdao
og Shanghai.
Sjö fyrirtæki
sýna í Kína