Morgunblaðið - 11.10.2003, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 29
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið annað kvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal.
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16,
í dag kl. 10.00-17.00 og á morgun kl. 12.00-17.00.
Boðin verða upp um 160 verk, þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna.
Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is Rauðarárstígur 14-16,
sími 551 0400.Ásgrímur Jónsson
300 MANNA karlakór mun
hljóma í Íþróttahúsinu á Sel-
fossi í dag kl. 17. Þar eru saman
komnir sjó kórar: Karlakórinn
Jökull Höfn í Hornafirði, Karla-
kór Rangæinga, Karlakór
Hreppamanna, Karlakór Sel-
foss, Karlakórinn Fóstbræður,
Karlakór Keflavíkur og Lög-
reglukórinn. Kórarnir koma
fram einir og sér, en í lok tón-
leikanna munu þeir sameinast í
300 manna karlakór og flytja
nokkur þekkt karlakóralög.
Sameiginlegi kórinn flytur
m.a. lagið Brennið þið vitar og
minnast með því 110 ára fæð-
ingarafmælis Páls Ísólfssonar
sem er á morgun. Sagt er að
hann hafi samið lagið við brim-
hljóðið við Ísólfsskála sem
stendur ekki fjarri fjöruborðinu
við Stokkseyri.
300 karlar
þenja bark-
ana á Selfossi
Nanna Hovmand syngja einsöng í Gloríu Vivald-
is með Kammerhljómsveitinni í Randers. Hún
mun og syngja hlutverk Nikulásar í uppfærslu
NANNA Hovmand, lýrískur mezzósópran og
Jónas Ingimundarson, píanóleikari eru næstu
gestir Tíbrár-tónleikaraðar Salarins kl. 14.30 í
dag. Fluttir verða söngvar eftir norrænu tón-
skáldin P.E. Lange-Müller, Carl Nielsen, Edvard
Grieg og Peter Heise og íslensk sönglög eftir
Sigvalda S. Kaldalóns, Hallgrím Helgason, Karl
O. Runólfsson, Jón Ásgeirsson, Jónas Ingimund-
arson, Jórunni Viðar og Þórarinn Guðmunds-
son.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Nanna syngur
hér á landi. Hún söng við góðan orðstír Ottaviu í
óperunni Krýning Poppeu með Sumaróperu
Reykjavíkur í ágúst sl. Nanna nam söng við Kon-
unglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn
(Det Kongelige Danske Musikkonservatorium)
og við Óperuakademíuna í Kaupmannahöfn.
Meðal óperuhlutverka sem hún hefur sungið eru
Frasquitá í Carmen, Donna Elvira í Don Juan og
Eliza í My Fair Lady, allt uppfærslur Jósku
óperunnar. Einnig hefur hún sungið Magnolia í
Show Boat við Nørrebros Teater, Despina i Cosi
fan tutte með Den Ny Opera, Lehrbube í Meist-
arasöngvunum við Det Kongelige Teater og
Litlu hafmeyjuna í Flugten, sem er nútíma raf-
og tölvutónlistarópera í uppfærslu hjá Den
Fynske Opera. Að auki hefur hún komið fram
sem einsöngvari á nýárstónleikum Sinfón-
íuhljómsveitarinnar á Sjálandi, en hún mun
syngja nokkra tónleika í röð með þeirri hljóm-
sveit á komandi nýárstónleikum 2004. Þá mun
Jósku óperunnar á Ævintýrum Hoffmanns á
næstunni og taka þátt í nýrri óperu sem flutt
verður við Fjónsku óperuna vorið 2004.
Lög eftir íslensk og norræn tónskáld
Morgunblaðið/Jim Smart
Jónas Ingimundarson píanóleikari og Nanna Hovmand sópransöngkona koma fram í Salnum í dag.
Symbiosis
Symbiosis eftir Ísraelann Itzik
Galili var fyrsta verk á vetrardag-
skrá Íslenska dansflokksins. Verkið
var frumsýnt í febrúar 2003. Það er
dansað sem fyrr af Katrínu Johnson
en Guðmundur Elías Knudsen kem-
ur nýr inn. Verkið er dúett og yf-
irskrift þess er fáránleiki hversdags-
legra ástarsambanda. Dansgerðin
einkennist af skvettum út frá miðju
líkamans og hnútum sem parið bind-
ur sig saman í og leysir síðan í flétt-
ur. Dansverkið ber með sér róman-
tískan blæ. Ljósgul lýsingin, tónlist
eftir J. S. Bach og búningar parsins
leggja línurnar. Það var ljúft að
horfa á verkið líða um sviðið í meðför
dansaranna. Dansinn hefur yfir-
bragð léttleika þótt dansgerðin sé
langt því frá einföld í framkvæmd.
Hröð, nokkuð flókin dansgerð með
kröfu um léttleika leynir á sér. Katr-
ín hefur þroskast sem listamaður og
túlkun hennar, sem í verkinu er af-
slappaðri en oft áður, inniheldur nú
meiri dýpt og einlægni. Hún er fær
dansari sem áhugavert hefur verið
að fylgjast með frá því hún gekk til
liðs við ÍD. Guðmundur Elías Knud-
sen stóð sig með prýði í dans og leik.
Dans beggja var léttur og kíminn
þegar það átti við. Verkið er með
hæfilega mikið af listrænum innskot-
um til að viðhalda léttleikanum í
samskiptum parsins. Annars er því
ætlað að þjóna hreyfingunni eða
dansinum. Það var ljúft að horfa á
Symbiosis þar sem hreyfingar og
tónlist urðu eitt í meðför dansar-
anna.
Party
Verk Guðmundar Helgasonar
Party var fyrst sýnt í júní 2003.
Þetta er gleðiverk sem á að
skemmta. Tvenn pör ásamt plötu-
snúð dansa og bregðast við óvæntum
uppákomum í samkvæmi. Verkið er
samið við tónlist af ýmsum toga. Það
opnar á fjörugum dansi að viðbætt-
um yndislega aulalegum töktum
Eggerts Þorleifssonar. Uppákom-
urnar eru mátulega margar og gera
það sem þeim er ætlað að gera, það
er að auka enn frekar á tístandi
glensinn. Verkið var opnað, upp-
byggt og því lokað á sannfærandi
máta. Uppbygging þess var jafn-
framt hnitmiðuð. Katrín Ingvadóttir
sem er heillandi sviðsdansari og ný-
liðinn Valgerður Rúnarsdóttir voru
grípandi gáskafullar. Party er gleði-
verk, bráðsnjallt og skemmtilegt.
Match
Gestahöfundur kvöldsins er Hol-
lendingurinn Lonneke van Leth.
Verkið fjallar um landsleik í fótbolta
milli Íslands og Hollands og er samið
við tónlist Ske, áður Skárr’en ekkert.
Verkið hefst í leikhúshléi á að einn
liðsmaður hitar upp fyrir leikinn á
sviðinu. Starfsmaður, síðar dómari í
leiknum, birtist á sviðinu. Hann er að
mála línur vallarins fyrir leikinn og
notar tækifærið til að láta ljós sitt
skína, þegar enginn sér. Hann tekur
lagið með tilheyrandi danssveiflu. Að
því loknu birtast leikmennirnir á
sviðinu, baráttuglaðir og fullir
keppnisvilja. Þeir heilsast eins og
gert er ráð fyrir og leikurinn hefst.
Verkið fór vel af stað. Dansararnir
voru einbeittir og baráttuviljinn lýsti
af þeim. Tónlistin sem er kraftmikil
og taktföst hentaði verkinu vel. Hún
magnaði spennuna í leiknum upp.
Engu að síður var hún of hátt stillt
því að á köflum heyrðist meira í há-
vaðanum en kröftugri tónlistinni.
Hreyfingarnar smáar sem stórar
voru tilvitnun í hreyfingar fótbolta-
manna. Þær ásamt búningunum
gerðu fótboltaleikinn/dansinn trú-
verðugan og yfirbragð dansaranna
varð fótboltamannslegt og þeir
þannig sannfærandi á sviðinu. Upp-
brot um miðbik verksins þar sem par
dregur sig saman truflaði framvind-
una í verkinu. Hugmyndin er ágæt
en dregur of mikið úr spennandi
leiknum. Engu að síður er verkið að-
gengilegt eins og höfundur vill hafa
það. Peter Anderson fær að láta ljós
sitt skína í upphafi verksins og nýtir
það tækifæri til fullnustu. Að öðrum
ónefndum þá vakti Steve Lorenz at-
hygli fyrir einbeitni og útgeislun.
Það eru hreyfingarnar, tónlistin og
leikur dansaranna sem er eftirminni-
legt í þessu ágæta dansverki.
Dansflokkurinn hittir beint í mark
með þessari gleðiþrennu. Sýningin
er full af gáska og léttleika. Gott
dæmi um einföld viðfangsefni sem
skila sér í vönduðum dansverkum.
Beint í mark
Lilja Ívarsdóttir
LISTDANS
Borgarleikhúsið
Symbiosis. Danshöfundur: Itzik Galili. Að-
stoðardanshöfundur: Yaron Barami. Tón-
list: Johann Sebastian Bach. Sviðsmynd,
búningar og lýsingarhönnun: Itzik Galili.
Dansarar: Katrín Johnson, Guðmundur
Elías Knudsen.
Party. Danshöfundur: Guðmundur Helga-
son. Tónlist: Orchestra conducted by
Robert Farnon, Rita Pavone, George
Greeley his Chorus and Orchestra. Sviðs-
mynd, búningar og hljóðhönnun: Guð-
mundur Helgason. Lýsingarhönnun: Kári
Gíslason. Dansarar: Katrín Ingvadóttir,
Guðmundur Helgason, Peter Anderson,
Valgerður Rúnarsdóttir. Leikari: Eggert
Þorleifsson.
Match. Danshöfundur: Lonneke Van
Leth. Tónlist: Ske. Sviðsmynd og bún-
ingar: Elín Edda Árnadóttir. Lýsing-
arhönnun: Benedikt Axelsson. Hljóð: Jak-
ob Tryggvason. Dansarar: Guðmundur
Helgason, Guðmundur Elías Knudsen,
Katrín Ingvadóttir, Katrín Johnson, Nadia
Katrín Banine, Peter Anderson, Steve
Lorenz, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir,
Valgerður Rúnarsdóttir.
Fimmtudagur 9. október 2003.
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Morgunblaðið/Jim Smart
„Dansflokkurinn hittir beint í mark með þessari gleðiþrennu. Sýningin er
full af gáska og léttleika,“ segir m.a. í umsögninni. Atriði úr Match.
Í SVERRISSAL Hafnarborgar opn-
ar Sigríður Erla Guðmundsdóttir
sýningu kl. 15 í dag, laugardag. Sýn-
inguna nefnir hún Einn og einn og
gefur þar að líta leirlist Sigríðar
Erlu. Verkin eru öll unnin úr íslensk-
um hráefnum. Leir er aðalefnið,
brenndur og óbrenndur, ásamt kuð-
ungum og rekavið.
Þetta er þriðja einkasýning Sig-
ríðar Erlu en hún hefur enn fremur
tekið þátt í samsýningum heima og
erlendis. Sigríður er menntuð við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands,
leirlistadeild.
Meðal verka hennar má nefna inn-
setninguna Dýrðleg veisla sem hún
setti upp víða, m.a. í Hafnarfirði,
Hólmavík, Stykkishólmi, Assens í
Danmörku, Hrísey, Súðavík og
Djúpavogi. Í dag kemur einnig út
samnefnd bók þar sem ferill gjörn-
ingsins er rakinn. Hann stóð yfir í sjö
ár, frá 1997 til 2003 og fjallar um
samskipti fólks á ólíkum stöðum á
ólíkum tíma í gegnum mat og borð-
búnað.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og henni
lýkur 27. október.
Leirverk
úr íslensku
hráefni
♦ ♦ ♦
Fúsi froskagleypir
eftir Ole Lund
Kirkegaard er
komin út í nýrri út-
gáfu. Þýðandi er
Anna Valdimars-
dóttir. Bókin kom
fyrst út á íslensku
1973 og naut mik-
illa vinsælda og er löngu uppseld.
Bókin er prýdd teikningum höfund-
arins en dóttir hans, Maya Bang
Kirkegaard, hefur litað þær sér-
staklega fyrir þessa útgáfu.
„Bærinn okkar er fullur af þorp-
urum og öðrum stórum, heimskum
slánum sem geta ekki látið góða
drengi eins og mig og nokkra aðra í
friði,“ segir hinn litli óforbetranlegi
sögumaður bókarinnar.
Útgefandi er JPV-útgáfa. Verð:
2.480 kr.
Börn