Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 36

Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 36
MESSUR 36 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ S ú mynd hefur yfirleitt verið dregin upp af ís- lenskum landbúnaði að þar ríki ekki lögmál hins frjálsa markaðar. Miklu frekar hefur landbúnaður- inn haft þá ímynd að hann sé fast- ur í alls kyns reglum og höftum og verðlagning vörunnar sé meira eða minna öll undir ríkisforsjá. En ef marka má fréttir sem birst hafa að undanförnu af kjöt- markaðinum á Íslandi hefur ým- islegt breyst í landbúnaðarkerf- inu á síðustu árum og það liggur við að maður álykti sem svo að lögmálið um framboð og eftirspurn virki hvergi betur á Ís- landi en í landbúnaðinum, a.m.k. þeim geira landbúnaðarins sem byggir á því að framleiða kjöt. Ís- lensk stjórnvöld eru þó enn, líkt og stjórnvöld í flestum ríkjum heims, að leggja verulega fjár- muni til landbúnaðarins. Samkvæmt þeim reglum sem gilda í dag hafa allir sem hafa áhuga á að framleiða kjöt fullt frelsi til að framleiða eins mikið kjöt og þeir vilja. Þetta gildir vel að merkja líka fyrir sauðfjárrækt- ina. Og framleiðslan hefur líka verið næg. Það ríkir sömuleiðis fullt frelsi í sölu og verðlagningu afurðanna. Framleiðendur og af- urðastöðvar keppast við að bjóða sem lægst verð til að tryggja sölu kjötsins. Það er því bæði hörð samkeppni milli afurðastöðva sem selja lambakjöt og eins milli kjöt- greina. Svínakjöt er t.d. nú boðið á yfir 30% lægra verði en það var boðið til sölu á fyrir einu ári og þetta hefur kallað á viðbrögð ann- arra á kjötmarkaðinum. Þeir hafa líka lækkað verð á sinni vöru til að tryggja sölu hennar. Þegar offramboð er á mark- aðinum er smásalinn í sterkri stöðu. Hann getur einfaldlega sagt við framleiðandann: „Ég tek ekki þína vöru í sölu nema að þú gefir mér 20% afslátt af verði.“ Framleiðandinn á erfitt með að segja þvert nei, því hann veit að ef hann gerir það fær samkeppn- isaðilinn samskonar tilboð og hann getur því hugsanlega setið uppi með vöru sem ekki selst. Þetta er sú staða sem verið hef- ur á kjötmarkaðinum. Verðið lækkar og lækkar og samkeppnin harðnar dag frá degi. Neytendur fá ódýra vöru og neyslan eykst. Að vísu viðurkenna flestir að verðið sé orðið það lágt að það dugi ekki fyrir framleiðslukostn- aði, en jafnframt reikna menn með að framundan séu einhver gjaldþrot sem aftur leiði til þess að það fari einhverjir framleið- endur út af markaðinum. Það mun svo aftur leiða til þess að það dragi úr framleiðslu sem að lok- um leiðir til þess að verðið leitar nýs jafnvægis. Á kjötmarkaðinum gildir því lögmálið um framboð og eftirspurn í sinni tærustu mynd. Þessi harða samkeppni á kjöt- markaðinum vekur upp þá spurn- ingu hvort yfirleitt sé einhver samkeppni á öðrum sviðum við- skiptalífsins. Er einhver sam- keppni um sölu á bensíni, trygg- ingum, fjármálaþjónustu eða sjóflutningum? Það er kannski ofsagt að segja að það ríki engin samkeppni á þessum sviðum á Íslandi, en það er jafnljóst að samkeppnin er ekki hörð. Á síðustu 12 mánuðum hef- ur verð á fjármálaþjónustu hækk- að um 4,5% og verð á tryggingum hefur hækkað um 4,3%. Á sama tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2%. Almennt kjöt- verð hefur hins vegar lækkað á þessu tímabili um 5,7% og svína- kjöt hefur lækkað um 31,2%. Verð á sjóflutningum hefur að vísu haldist óbreytt á síðustu 12 mán- uðum en skipafélögin hækkuðu gjaldskrá sína á síðasta ári um 13,4%. Um samkeppni olíufélag- anna þarf ekki að hafa mörg orð. Það væri hægt að taka fleiri vörur sem dæmi. Ekki er t.d. sjáanlegt að hörð samkeppni hafi ríkt um sölu á fiski til neytenda og virðist þá ekki skipta máli þó verð á ýs- unni hafi lækkað á fiskmörkuðum vegna mikillar veiði. Það hlýtur að vera áhugavert fyrir viðskipta- fræðinga að skoða það sem hefur verið að gerast á kjötmarkaðinum og bera það saman við við- skiptaumhverfi í öðrum greinum. Niðurstaðan hlýtur að vera sú að eðli vörunnar skiptir miklu máli. Það tekur heilt ár að framleiða lambakjöt og nautakjöt og all- marga mánuði að framleiða svína- kjöt og kjúklinga. Það tekur því marga mánuði fyrir framleið- endur að draga úr framleiðslu ef þeir sjá fram á að geta ekki selt vöru sína. Til samanburðar tekur það gosdrykkjaframleiðanda nokkra daga eða vikur að draga úr framleiðslu ef hann sér fram á að geta ekki selt alla framleiðslu sína. Þrátt fyrir að sumir bændur kunni að vera þeirrar skoðunar að allt of mikið frelsi ríki í sölu og verðlagningu á kjöti og ríkið eigi áfram að hafa þar mikið hlutverk verður ekki séð hvernig hægt er að stíga skref til baka. Mjög ólík- legt er að pólitísk samstaða skap- ist um að breyta um stefnu. Sumir forystumenn í landbúnaði tala líka um að síðustu misseri hafi verið „dýrt námskeið“ og menn muni læra af þeim mistökum sem gerð hafi verið. Þó neytendur hafi á síðustu misserum átt kost á að kaupa ódýrt kjöt (sagt er að íslenskt svínakjöt sé nú á lægra verði en danskt svínakjöt en Danir eru meðal stærstu svínakjöts- framleiðenda í heimi) mun kostn- aðurinn við að framleiða kjöt und- ir framleiðslukostnaði lenda á einhverjum. Það er alveg ljóst að lánastofnanir hafa orðið fyrir verulegu tjóni og það tjón hljóta viðskiptamenn bankanna að bera með einum eða öðrum hætti. Samkeppni á kjöt- markaði Þessi harða samkeppni á kjötmark- aðinum vekur upp þá spurningu hvort yfirleitt sé einhver samkeppni á öðrum sviðum viðskiptalífsins. Er einhver sam- keppni um sölu á bensíni, tryggingum, fjármálaþjónustu eða sjóflutningum? VIÐHORF Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Kór Ás- kirkju syngur. Organisti Kári Þormar. Kaffi eftir messu. Árni Bergur Sig- urbjörnsson BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11.00. Fjölbreytt tónlist. Skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna. Guðs- þjónusta kl. 14.00. Súgfirðingar annast ritningarlestur. Barna- og unglingakórar kirkjunnar syngja undir stjórn Jóhönnu Þórhallsdóttur. Einsöngur Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Messukaffi Súgfirðinga- félagsins. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur, organisti er Marteinn Frið- riksson. Eftir messu verður fundur í safnaðarfélaginu. Á fundinum fjallar Salmann Tamini um Islam (múham- eðstrú) Barnastarf á kirkjuloftinu með- an á messu stendur. Minning- artónleikar kl. 17.00 um dr. Pál Ísólfsson. Marteinn Friðriksson og Dómkórinn flytja verk eftir dr. Pál en 110 ár eru nú liðin frá fæðingu hans. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.00 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur, djákna o.fl. Guðsþjónusta kl. 11.00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Ar- inbjarnarson. Sr. María Ágústsdóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Hreinn S. Há- konarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna- starf kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts- son prédikar og þjónar ásamt sr. Jóni Bjarman. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Sunnu- dagsfundur kl. 13.00. Efni: Stefnumörk- un þjóðkirkjunnar: Steinunn A. Björns- dóttir. Félagar í Grettisakademíunni taka þátt í umræðum. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Barnaguðsþjón- usta kl. 13.00. Umsjón Hrund Þórarins- dóttir, djákni. LANDSPÍTALI Háskólasjúkrahús: Foss- vogur: Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Ingi- leif Malmberg. Hringbraut: Helgistund kl. 10.30. Rósa Kristjánsdóttir, djákni. Landakot: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr. Ingileif Malmberg. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Org- anisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju leiða almennan söng. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið. Kaffisopi eftir stundina. LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11.00. Sunnudagaskóla- kennararnir Hildur, Heimir og Þorri taka á móti börnunum. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið og Kór Laugarneskirkju leiðir safnaðarsönginn, en Bjarni Karls- son sóknarprestur þjónar ásamt Sig- urbirni Þorkelssyni meðhjálpara. Messukaffi Sigríðar kirkjuvarðar bíður svo allra í safnaðarheimilinu á eftir. Kvöldmessa kl. 20.30. Djasskvartett Gunnars Gunnarssonar leikur og kór Laugarneskirkju syngur. Sr. Bjarni Karls- son þjónar ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara. Að messu lokinni er messukaffi í safnaðarheimilinu en jafn- framt er boðið til fyrirbæna við altarið í umsjá bænahóps kirkjunnar. NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Kór Nes- kirkju syngur. Organisti Reynir Jón- asson. Prestur sr. Frank M. Hall- dórsson. Barnastarf á sama tíma. Sögur, brúður og söngur. Öll börn fá kirkjubókina og límmiða. Kaffi, djús og spjall í safnaðarheimilinu eftir messu. SELTJARNARNESKIRKJA: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11.00. Börnin hvött til að mæta og taka með sér góða vini í kirkjuskólann. Sögur, söngur, leikir og margt fleira. Minnum á æskulýðsfélagið kl. 20.00. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Kirkjudagurinn/ Fjölskylduguðsþjónusta kl.14.00. Kaffi- sala kvenfélagsins eftir messu. Rjóma- tertur og annað nammi namm. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barnastarf klukkan 11.00. Allir velkomnir. Farið verður að vanda niður að tjörn eftir stundina og öndunum gefið. Safn- aðarstarf Fríkirkjunnar. Taizé messa klukkan 20.30. Taizé messa verður í Fríkirkjunni í Reykjavík klukkan 20.30. Þessi stund er samvinnuverkefni Lága- fellskirkju í Mosfellsbæ og Fríkirkjunnar í Reykjavík. Tónlist er í umsjón Jónasar Þóris og Önnu Siggu. Allir velkomnir. Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í Reykjavik og Lágafellskirkju. Sr. Hjörtur Magni Jó- hannsson og sr. Jón Þorsteinsson. ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Söngur, sögur og leikir. Al- menn guðsþjónusta og sunnudagaskól- inn rennur saman í eitt. Í fjölskyldu- guðsþjónustunum er alltaf líf og fjör. Hvetjum við pabba, mömmu, afa og ömmu og fjölskylduna alla til að koma og eiga góða og uppbyggjandi stund í kirkjunni. Rebbi refur mætir og fleiri góðir vinir. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11.00. Messa kl. 11.00. Org- anisti Sigrún M. Þórsteinsdóttir. Sr. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Útvarpsmessa kl. 11.00. Prestur sr. Gunnar Sig- urjónsson. Organisti Kjartan Sig- urjónsson. Kór Digraneskirkju. Sunnu- dagaskóli á sama tíma í kapellunni á neðri hæð kirkjunnar. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir messu (kr. 500). Kvöldsamkoma kl. 20.30 með léttri gospelsveiflu. Tónlist annast Þorvaldur Halldórsson. Prestur sr. Gunnar Sig- urjónsson. (Sjá nánar:www.digra- neskirkja.is). FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Messa kl. 11.00. Altarisganga. Prestur: Sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Djákni: Lilja G. Hallgrímsdóttir. Organisti: Lenka Mátéová. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Elínar Elísabetar Jóhannsdóttur. Boðið upp á kaffi og svaladrykk í safnaðarheimilinu á eftir guðsþjónustu. Rúta ekur um hverfið í lokin. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Séra Sigurður Arnarson pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kór Graf- arvogskirkju syngur. Organisti: Kristín Jónsdóttir. Barnaguðsþjónusta kl. 11.00 í Grafarvogskirkju. Prestur séra Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón: Signý og Kolla. Organisti: Gróa Hreinsdóttir. Barnaguðsþjónusta kl. 11.00 í Borg- arholtsskóla. Prestur séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón: Sigga og Sigurvin. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. HJALLAKIRKJA: Lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. ÞorvaldurHalldórsson, tónlistarmaður, leiðir létta tónlist og söng. Barnaguðs- þjónusta kl. 13. Tóta trúður kemur í heimsókn. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 og Opið hús á fimmtudag kl. 12 (sjá einnig www.hjallakirkja.is) KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 11.00 í um- sjón Dóru Guðrúnar, Bóasar og Önnu Kristínar. Guðsþjónusta kl. 11.00. Séra Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur predikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa- vogskirkju syngur og leiðir safn- aðarsöng. Organisti Guðmundur Ómar Óskarsson. Kaffi í Borgum að lokinni guðsþjónustu. Sr. Ægir Fr. Sig- urgeirsson. LINDAKIRKJA: Næstkomandi sunnudag 12. október verður helgihaldið með ör- lítið breyttu sniði frá því sem verið hef- ur í Lindasókn þetta haustið. Kl. 11 verður að venju sunnudagaskóli í Linda- skóla. Um kvöldið kl. 20 verður svo haldin gospelmessa í Glersalnum við Salaveg (í sama húsi og Nettó, gengið inn bakatil inn í lyftu og upp í sal). Sal- urinn er allur hinn glæsilegasti og hent- ar vel fyrir samkomur af þessu tagi. Um tónlistarflutning sér Kór Lindakirkju ásamt Hannesi Baldurssyni organista. Leynigestur kvöldsins er ung söngkona sem örugglega á eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Allir eru vel- komnir og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Hressandi söngur, sögur og lifandi samfélag. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Val- geir Ástráðsson prédikar . Organisti Jón Bjarnason. Kór Seljakirkju leiðir söng. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Guðsþjón- usta kl. 11. Fræðsla fyrir börn og full- orðna. Halldóra Ásgeirsdóttir kennir. Kl. 20 er fjölbreytt samkoma í umsjón unga fólksins í kirkjunni. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp: Samkomur alla laugardaga kl. 11.00. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20.00. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Út- varp Boðun FM 105,5. Allir alltaf vel- komnir. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Samkoma á morgun kl. 16. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl. 19.30 bænastund. Kl. 20 hjálpræð- issamkoma. Umsjón majór Anne Marie Reinholdtsen. Mánudagur: Kl. 15 heim- ilasamband. Valgerður Gísladóttir talar. Allar konur velkomnar. FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti 601: Sunnudaginn 12. okt. fellur sam- koma niður vegna vinnu við loftklæðn- ingu í kirkjulofti. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma sunnudag kl. 17. Lofgjörð fyrir samkom- una frá kl. 16.40. Góðir gestir frá Bandaríkjunum. Lofgjörð og fyrirbæn að lokinni samkomu. Fræðsla fyrir börn 2– 14 ára í aldursskiptum hópum. Matur á fjölskylduvænu verði eftir samkomu. All- ir velkomnir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík: Kristskirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Há- messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Alla laugardaga: Trúfræðsla barna kl. 13.00 í Landakotsskóla. Að henni lokinni er barnamessa í Krists- kirkju (kl. 14.00). Rósakransbæn í október: Alla mánudaga og föstudaga fyrir kvöldmessu kl. 17.30 og alla mið- vikudaga að kvöldmessu lokinni. Sunnudagin 12. október: Að hámessu lokinni verður selt kaffi og heimabak- aðar vöfflur í safnaðarheimili okkar (verð kr. 250,-). Allur ágóði rennur til viðhaldssjóðs orgels Kristskirkju. Reykjavík: Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug- ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30 Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl. 20.00 Hafnarfjörður: Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Miðviku- daga: Messa kl. 18.30. Rósakransbæn í október: Farið er með rósa- kransbænina hálftíma á undan mess- um á sunnudögum og miðvikudögum. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Keflavík: Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnud: Messa kl. 11. Flateyri: Laugard: Messa kl. 18. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnud: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturs- kirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Rósakransbæn í október: Mánudaga til fimmtudaga í Brálundi 1 kl. 19.00, föstudaga og laugardaga kl. 17.30 í Péturskirkju og sunnudaga kl. 10.30. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: Barnaguðsþjónusta í kirkjunni sunnu- dag kl. 11 f.h. Foreldrar velkomir með. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11.00 Sunnudagaskóli í kirkjunni. Allir (Lúk. 14). Guðspjall dagsins: Jes- ús læknar á hvíldardegi. Skútustaðakirkja í Mývatnssveit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.