Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 39

Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 39
átt afa eins og hann. Það gerir mann að betri manni. Ég mun sakna hans. Ragnar Helgi Ólafsson. Nú þegar afi er kvaddur rifjast upp allar heimsóknirnar til afa og ömmu á Siglufirði. Minningarnar þaðan eru ótal margar og ógleymanlegar. Aldrei ávarpaði afi mig öðruvísi en sem nafna, og mikið var ég stoltur af því að vera nafni hans. Ég gat gleymt mér tímunum saman innan um allar bækurnar í bókasafninu hans og þó það væri engin leið að hafa tölu á þeim þá vissi ég þó að hann hafði lesið þær allar. Afi fylgdist ætíð vel með öllu því sem ég tók mér fyrir hendur og studdi vel við bakið á mér. Hvatning- arorð og hrós frá afa voru gulls ígildi. Hans verður sárt saknað. Hvíl í friði, elsku afi. Þinn nafni, Ragnar Jónasson. Hauststormar sækja á. Laufin falla af trjánum eftir gott og gjöfult sumar. Farfuglarnir sem heimsótt höfðu okkar góða land á sl. vori fara að huga að brottför sinni til suðlægra landa. Óafvitandi sest að smávetrarkvíði. Það eru fleiri sem leggja í langferð um þessar mundir, við vitum ekki hversu löng sú leið er. Bróðir okkar Þ. Ragnar hóf síðustu ferð sína hinn 6. okt. sl. Þar verður eftir stórt og vandfyllt skarð, bæði í fjölskyldunni og í hans eigin bæjar- félagi. Ragnar var næstelstur okkar Eiðs- staðasystkina sem upp komumst. Þegar faðir okkar lést langt um aldur fram árið 1933 voru engar aðrar leiðir taldar færar í þá daga en að fjölskyld- an tvístraðist og systkinahópurinn dreifðist á stærstu heimilin í sveitinni til að byrja með. Ragnar hafði þá lok- ið búfræðinámi á Hólum. Hann tók þá ákvörðun að halda til Danmerkur í mjólkurfræðinám og með góðra manna hjálp tókst það því lengi hafa verið hjálpsamir menn í okkar góðu sveit. Eftir rúmlega sex ára dvöl í Danmörku að námi og starfi loknu hélt hann heim með hinni frægu Pets- amóferð árið 1940, þegar ríkið sendi skip til að sækja Íslendinga sem lokast höfðu inni á Norðurlöndunum og víðar vegna heimsstyrjaldarinnar. Fyrst eftir heimkomuna vann Ragnar við ýmis störf. Eftir að hann flutti til Siglufjarðar árið 1941 veitti hann Mjólkursamsölunni á Siglufirði forstöðu. Einnig var hann skrifstofu- maður hjá Byggingafélaginu Sveini og Gísla hf. Árið 1950 var Ragnar ráð- inn bækjargjaldkeri á Siglufirði og gegndi hann því starfi í þrjátíu ár. Oft á tíðum á því tímabili var hann settur bæjarstjóri. Á þessum árum var háð hörð varnarbarátta fyrir bæjarfélag- ið og skiptust á skin og skúrir eins og gengur í sveitarstjórnarmálum. Allir telja að Ragnar hafi innt sín störf af hendi þar eins og annars staðar með stakri prýði og trúmennsku. Samtím- is var hann framkvæmdastjóri Sjúkrahússins á Siglufirði um nokk- urt skeið. Um þessar mundir voru miklar pólitískar hræringar á Siglu- firði sem bærinn var oftsinnis frægur fyrir og þurfti því oft að sigla á milli skers og báru og ósjaldan sem grípa þurfti til málamiðlunar. Mjög gott samstarf tókst milli Ragnars og þeirra bæjarstjóra sem störfuðu á þessu tímabili. Allir voru þessir bæj- arstjórar úrvalsmenn og lá Ragnari mjög hlýtt orð til þeirra og var þeim þakklátur fyrir samstarfið. Eftir starfslok sín hjá bænum hóf Ragnar að vinna að sínum hugðarefn- um sem var fræðimennska. Áhugi hans beindist snemma að ýmiskonar söfnun á þjóðlegum fróðleik. Gegnum árin hafði hann safnað að sér marg- víslegum upplýsingum frá fyrri tíð. Sérstaklega beindist söfnun þessi að siglfirskum málefnum og Trölla- skagabyggðum. Söfnun hans spannar víðfeðmt svið. Eftir hann liggja fimm bækur: Saga Siglufjarðar, Siglfirskar þjóðsögur og sagnir, Siglfirskir sögu- þættir og Siglfirskur annáll um mennta- og heilbrigðismál frá upp- hafi til síðustu aldamóta. Ragnar var vel ritfær og hafði mjög gott vald á ís- lenskri tungu. Hann átti einnig létt með vísna- og ljóðagerð en var ákaf- lega lítið gefinn fyrir að flíka því. Ragnar hlaut fyrstu menningarverð- laun Siglufjarðarkaupstaðar árið 1997 fyrir fræðistörf. Framan af gaf Ragnar sig nokkuð að félagsstörfum. Hann var einn af stofnendum Lionsklúbbsins á Siglu- firði og starfaði þar lengi. Hann var einnig einn af stofnendum bræðra- félags Frímúrara sem síðar var Fræðslustúkan Dröfn. Hann starfaði að málefnum sjálfstæðismanna um margra ára skeið og var lengi frétta- ritari Vísis. Árið 1943 giftist Ragnar eftirlif- andi eiginkonu sinni, Guðrúnu Reyk- dal. Foreldrar hennar voru hjónin Sæunn Oddsdóttir og Ólafur Reykdal trésmiður á Siglufirði. Guðrún og Ragnar eignuðust þrjú mannvænleg börn; Ólaf, Jónas og Eddu, sem öll hafa verið mætir og góðir samborg- arar. Ragnar var góður heimlisfaðir og lét sér mjög annt um velgengni barna sinna og heimilis. Hinn 29. maí sl. áttu þau hjón sextíu ára brúð- kaupsafmæli. Öll þau mörgu ár hafa verið þeim hamingjusöm og farsæl. Slík sambúð sem varir svo lengi hnökralaus er byggð á trausti og virð- ingu milli einstaklinga. Örfáir dagar voru í níræðisafmælið þegar kallið kom. Þeim áfanga var Ragnar farinn að hugsa fyrir og gera sér vonir um að geta verið meðal vina og ættingja. Hugurinn var stöðugt vökull og minnið óbrigðult þótt hreyfigetan væri nokkuð farin að láta undan. Langri og farsælli göngu er lokið. Það eru mikil straumhvörf að missa lífsförunaut sinn eftir svo langa og gifturíka samleið. Það ber að þakka að gott heilsufar og gæfa hafa ávallt ríkt ásamt miklu barnaláni. Við send- um Guðrúnu, börnum hennar og barnabörnum einlægar samúðar- kveðjur og biðjum Guð að leiða hana um ókomna tíð. Við kveðjum kæran bróður í vissu um að á hinni ókunnu strönd standi systurnar Ásta og Heiða og taki á móti honum syngj- andi og glaðar eins og þær tóku ætíð á móti ættingjum sínum. Ef til vill verða í för með þeim þrír litlir bræður sem ekki fengu að lifa og fóta sig á þessari jörð. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Með systkinakveðjum. Skúli, Inga og Guðmundur. Hugurinn leitaði til Siglufjarðar, heim í „Þormóðs ramma fagra fjörð,“ heim í „sveitina góðu í skjóli fjalla- hlíða, þar sem hafið breiðir faðminn fríða og fram á djúpið bendir vaskri drótt“ þegar mér voru færðar þær fréttir, að góður vinur, hann Þ. Ragn- ar Jónasson, væri ekki lengur mitt á meðal okkar. Ragnar átti farsælt og blessunarríkt líf og starf að baki. Nokkra daga vantaði upp á að hann næði því marki að lifa í níutíu ár. Þau hjónin, hann og Guðrún Reykdal, áttu að baki 60 ára hjónaband. Það er mik- il gjöf í lífinu sem ég veit að hún Guð- rún er þakklát fyrir, nú þegar kveðju- stund lífsins er upprunnin. En missir hennar er mikill því að segja má að þau hjónin hafi svo sannarlega verið eitt í öllu lífi, ákaflega samrýnd og samhuga í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Ég kynntist Ragnari árið l976 þeg- ar ég kom til Siglufjarðar til að þjóna þar sem sóknarprestur. Þá starfaði Ragnar sem bæjargjaldkeri. Hann tók virkan þátt í atvinnu-, félags- og menningarlífi Siglufjarðar, kaup- staðnum sem hann unni svo mjög á allan hátt. Leiðir okkar Ragnars lágu m.a. saman í starfi Lionshreyfingarinnar þar á stað. Var Ragnar formaður Lionsklúbbs Siglufjarðar sem er næstelsti Lionsklúbbur landsins. Þar var og er unnið að mörgum mikilvæg- um málefnum fyrir land og þjóð. Sá sem kynntist Ragnari komst þó fljótt að því að eitt aðaláhugamál hans laut að því að skrá svonefndan Sigl- firskan annál. Áratugum saman viðaði Ragnar að sér margháttuðum fróðleik um Siglufjarðarbyggðir. Af- rakstur af ómetanlegum fræðistörf- um hans birtist í bókum hans Úr Siglufjarðarbyggðum. Í þeim bókum, sem sonur hans Ólafur Ragnarsson í Vöku-Helgafelli gaf út, varpar Ragn- ar ljósi á fortíð jafnt sem nútíð og fær okkur til að skynja betur tíðarandann hverju sinni ásamt því að skynja nú- tímann betur. Segja má að yfirskrift alls fræðistarfs Ragnars hafi verið hin fornu orð er segja: „Hyggja ber að fortíðinni og því sem hún geymir, en hún er góður förunautur, því án fræðslu þess liðna sést ei hvað er nýtt.“ Þennan mikla áhuga Ragnars á sögu Siglufjarðar fann ég ekki síst þegar við í Siglufirði ákváðum að halda guðsþjónustur á fornum sögu- slóðum. Hann lagði sitt af mörkum þegar við messuðum á Siglunesi, hvar eitt sinn stóð kirkja og í Héðinsfirði þar sem á sínum tíma var til staðar hálfkirkja. Eftirminnilegar eru grein- ar hans um söguna og byggðina á þessum stöðum sem hann skrifaði í blöð staðarins í tengslum við messu- ferðirnar. Þá gladdist Ragnar mjög þegar ákveðið var að messa upp í Hvanneyrarskál, sem á síldarárunum var nefndur staður elskendanna. Mér fannst hugur Ragnars lyftast í hæðir við þessi uppátæki prestsins að messa úti á grænum grundum, á nesj- um og í fjörðum. Án efa hefur áhugi Ragnars á öllu fornu og göfugu leitt hann inn í lönd frímúrarastarfsins, en að þeim mannræktarmálefnum starf- aði hann af heilum hug um árabil. Nú á kveðjustundu er efst í huga mér og okkar hjónanna heimsóknir á heimili þeirra Guðrúnar og Ragnars að Hlíðarvegi. Að koma þangað í gegnum tíðina og eiga með þeim hjónum stund hefur verið okkur dýr- mætt. Í grein sinni sem Ragnar nefndi „Ágrip af kirkjusögu Siglufjarðar“, sem birtist í afmælisbók Siglufjarð- arkirkju l932 –l982, segir Ragnar: „Hin kristna kirkja hefur nú í nær þúsund ár göfgað og menntað fólkið í landinu. Í kirkjunum hefur þjóðin átt sínar mestu gleðistundir og einnig þar fundið huggun og styrk á mestu alvöru- og sorgarstundum. Í kyrrð og helgi guðsþjónustunnar hafa menn fundið frið í sálinni og öðlast þrek í stríði hins daglega lífs og notið áhrif- anna frá hinu boðaða fagnaðarerindi við hljóðfall sálmasöngsins. Kirkjurn- ar hafa verið musteri trúarinnar og tilbeiðslunnar og verið ramminn um þann háleita sannleika, sem lyftir oss duftinu frá.“ Þessi orð Ragnars sem hann ritaði í janúar l982 eiga vel við þegar hann er kvaddur hinstu kveðju. Við Elín biðjum góðan Guð að styrkja og blessa Guðrúnu, börnin þeirra, tengdabörnin og afabörnin. Megi minningarnar góðu og björtu um Ragnar lifa þótt ár og dagur líði. Vigfús Þór Árnason. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 39 Með hlýjum og einlægum huga minnist ég míns fyrsta og besta kennara, Rögnvaldar Jónssonar, og læt orð skagfirska skáldsnill- ingsins Stephans G. Stephans- sonar túlka þakklæti mitt fyrir trausta leiðsögn og lífstíðar vin- áttu: Þitt er menntað afl og önd eigirðu fram að bjóða hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna og góða. Með innilegum samúðarkveðj- um til ástvinanna. Björn Jónsson. HINSTA KVEÐJA  Fleiri minningargreinar um Þ. Ragnar Jónasson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. miklum ágætis manni sem var vinur minn alla tíð. Það var einkum hóg- værðin sem einkenndi Rögnvald. Hann var alltaf jafn yfirvegaður og ekkert haggaði þessum skapstillta manni. „Já, það skulum við gera sr. Þórsteinn minn, ef Guð lofar“ var gjarnan svar hans, þegar ég var að bera undir hann messuáform og söngæfingar fram í tímann. Óhætt er að segja að Valdi og Ebba voru miklir vinir okkar hjóna og til þeirra var allt- af gott að koma og dætrum okkar þótti ávallt gaman að vera með þegar við fórum í Flugumýrarhvamm vegna þess að þar fundu þær svo mikla hlýju og vináttu. Nú eru þau aftur samein- uð og við hjónin þökkum fyrir að hafa kynnst þeim, þau hafa gefið okkur af hógværð sinni og mildi og að því vega- nesti búum við að til æviloka. Þórsteinn Ragnarsson, fyrrv. prestur á Miklabæ. Ástkær móðir mín, frú KRISTÍN PÁLSDÓTTIR, lést á Landspítala Fossvogi að kvöldi miðviku- dagsins 1. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hennar einlægur sonur, Auðunn Víðir Pétursson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÓLÖF KARLSDÓTTIR, Greniteigi 53, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnu- daginn 5. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á MND-félagið, sími 565 5727. Víglundur Guðmundsson, Guðbjörg Kristín Víglundsdóttir, Guðmundur Ingi Guðjónsson, Magnea Inga Víglundsdóttir, Gunnar Magnús Magnússon, Hafrún Ólöf Víglundsdóttir, Sverrir Víglundsson, Hallfríður Anna Matthíasdóttir, Jóhann Sigurður Víglundsson, Halla Sjöfn Hallgrímsdóttir, Íris Víglundsdóttir, Böðvar Bjarnason, Lilja Víglundsdóttir, Njáll Karlsson, Ragnheiður Víglundsdóttir, Kristján Valur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, systir okkar og mágkona, GUÐRÚN HELGA SIGURBJARTSDÓTTIR, Merritt Island, Flórída, áður til heimilis í Hólmgarði 19, lést föstudaginn 3. október. Útförin hefur farið fram á Flórída. Tracy Unnur María Andylson, Einar V. Sigubjartsson, Helen Sigurbjartsson, Sigurbjörn Sigurbjartsson, Guðlaug Hauksdóttir, Gunnar Sigurbjartsson, Bára J. Todd, Hrafnhildur Sigurbjartsdóttir, Örn Sigurbjartsson, Hilmar Sigurbjartsson, Þór Sigurbjartsson, Kathryn Sigurbjartsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR MARÍA EINARSDÓTTIR, Ögurási 8, Garðabæ, áður til heimilis í Hólmgarði 19, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 30. september. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til lækna og starfsfólks á deild A-6 Landspítala Fossvogi. Einar V. Sigubjartsson, Helen Sigurbjartsson, Sigurbjörn Sigurbjartsson, Guðlaug Hauksdóttir, Gunnar Sigurbjartsson, Bára J. Todd, Hrafnhildur Sigurbjartsdóttir, Örn Sigurbjartsson, Hilmar Sigurbjartsson, Þór Sigurbjartsson, Kathryn Sigurbjartsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, ÞÓRA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Vatnagarði, Landsveit, Stórholti 26, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 10. októ- ber. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 17. október kl. 13.30. Brynhildur Ósk Gísladóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.