Morgunblaðið - 11.10.2003, Qupperneq 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 41
✝ Björg Ólöf Helga-dóttir fæddist í
Neskaupstað 4. mars
1915. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað
sunnudaginn 5. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Jón Helgi Bjarnason,
f. á Sveinsstöðum í
Hellisfirði 27. maí
1888, d. 6. september
1953, og Soffía Guð-
mundsóttir, f. á Mel í
Fljótsdal 30. nóvem-
ber 1893, d. 29. jan-
úar 1925. Systkini Bjargar voru;
Guðmundur, f. 12.2. 1913, d. 20.12.
1974, Guðrún Ólafía, f. 16.5. 1918,
Bjarni, f. 27.10. 1919, d. 26.10.
1999, og Soffía, f. 23.1. 1925, d.
22.2. 2001.
Björg giftist 13. janúar 1941
Einari Aðalsteini Jónssyni, f. 15.
febrúar 1914, d. 20. desember
1974. Þau eignuðust sex börn, þau
eru; Helga Soffía, f. 28.2. 1939, bú-
sett í Stykkishólmi, gift Marteini
Elíassyni og eiga þau fjögur börn;
Guðný, f. 10.6. 1941, búsett í Svarf-
aðardal, gift Stefáni Hólm Þor-
steinssyni og eiga þau fimm börn;
Jenný, f. 10.6. 1941, búsett í Garði,
gift Þorsteini Torfasyni og eiga
þau þrjú börn; Jón
Hlífar, f. 13.11. 1943,
búsettur í Neskaup-
stað, kvæntur Krist-
ínu Björgu Jónsdótt-
ur og eiga þau sex
börn og eru fimm
þeirra á lífi; Stein-
unn Lilja, f. 15.6.
1945, búsett í Nes-
kaupstað; gift
Kristni Ívarssyni og
eiga þau þrjú börn;
Kristján, f. 31.7.
1954, búsettur á Ný-
fundnalandi, kvænt-
ur Lilju Sólveigu
Kristinsdóttur og eiga þau fjögur
börn. Langömmubörnin eru fjöru-
tíu talsins.
Björg og Aðalsteinn bjuggu all-
an sinn búskap í Neskaupstað. Síð-
ustu þrettán árin var Björg búsett
í Breiðabliki, íbúðum aldraðra í
Neskaupstað. Björg vann flest
verkakvennastörf bæði í fiski og
síld auk þess sem hún saumaði fyr-
ir fólk. Björg starfaði mikið að fé-
lagsmálum í Kvennadeild Slysa-
varnafélagsins, Kvenfélaginu
Nönnu og var virkur félagi í
Sjálfsbjörg á Norðfirði.
Björg verður jarðsungin frá
Norðfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Í dag kveðjum við elskulega móð-
ur, tengdamóður og ömmu, Björgu
Ólöfu Helgadóttur frá Mel í Norð-
firði.
Við eigum bara góðar minningar
um hana Boggu ömmu. Ég frá upp-
eldisárum mínum heima á Norðfirði,
Lilja konan mín og síðan börnin okk-
ar frá öllum samverustundunum
bæði heima á Norðfirði og heima hjá
okkur á Dalvík.
Þar sem ég var yngstur systkina
minna, þá naut ég þess kannski best
af okkur systkinunum að vera „litla
gólfsópið“ hennar mömmu. Ef ég
man rétt þá fékk ég líka stundum að
heyra það frá eldri systkinum mín-
um. Margar góðar minningar á ég
frá uppvaxtarárum mínum heima á
Norðfirði, t.d. er mér minnisstætt að
mamma treysti mér fljótlega til að
hjálpa til við matseld og þannig fékk
ég oft að elda matinn heima þegar
bæði hún og pabbi unnu úti. Aldrei
komum við síðan í heimsókn til
mömmu öðruvísi en að hún þyrfti að
slá upp veislu og var þá gjarnan hó-
að í einhverja fleiri til að njóta gamla
góða heimilismatarins frá Mel.
Bogga amma á alveg sérstakan
sess í huga ömmubarnanna. Þegar
jólapakkasendingin kom að austan
var alltaf farið að spá í hvað Bogga
amma væri nú búin að prjóna, hekla
eða sauma út. Og alltaf tókst henni
að koma á óvart. Það verður því erf-
itt að mæta næstu jólum án jóla-
pakkanna frá Boggu ömmu.
Eftir að faðir minn féll frá 1974
lagði mamma áherslu á að njóta sem
flestra samverustunda með okkur
systkinunum og fjölskyldum okkar.
Ófáar ferðirnar fór hún hvort sem
var suður eða norður; í skírnarveisl-
ur, í afmælisveislur, í fermingar-
veislur, í giftingarveislur eða bara til
að vera.
Elsku mamma, mér var það ljóst
þegar við heimsóttum þig um versl-
unarmannahelgina í sumar að sam-
verustundunum gæti nú farið að
fækka. Bæði var að við Lilja og Jök-
ull vorum að flytja búferlum til Ný-
fundnalands og eins hitt að heilsa
þín gæti farið að gefa sig hvað úr
hverju. Okkur fannst þó svo gaman
að heyra þig segja okkur í byrjun
september hvað þú værir orðin brött
og farin að labba upp á götu, eftir
erfið veikindi í byrjun sumars.
Það var sárt að geta ekki verið hjá
þér þegar þú kvaddir þennan heim
sl. sunnudag, en við huggum okkur
við að þú ert nú í góðum höndum. Nú
ertu komin til hans pabba, sem aldr-
ei fékk að kynnast Lilju og afabörn-
unum sínum. Við vitum líka að bræð-
ur þínir og systir taka vel á móti þér
og umvefja þig þeirri hlýju og ást
sem þú alltaf gafst öðrum.
Elsku mamma, tengdamamma og
amma. Takk fyrir allar frábæru
samverustundirnar. Megi allir
heimsins englar vaka yfir þér.
Kristján, Lilja, Kristinn,
Kolbrún, Júlíana og Jökull.
Elsku besta amma.
Nú ertu farin frá okkur, en munt
alltaf eiga stóran stað í hjarta okkar.
Mér þótti alltaf gaman að koma
austur á Neskaupstað til þín og fá að
hitta þig, taka utan um þig og finna
„Bogg-ömmu“-lyktina af þér. Alltaf
á jólunum þegar ég opnaði jólagjöf-
ina frá þér, og þetta var eitthvað
sem þú hafðir prjónað eða heklað,
var alltaf það fyrsta sem ég gerði að
finna lyktina – athuga hvort það
væri ekki örugglega „Bogg-ömmu“-
lykt af því.
Ég veit að nú er amma komin á
öruggan stað og það verður tekið vel
á móti henni, og loksins hittir hún
afa aftur.
Júlíana.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Elsku amma, ég sakna þín svo
mikið. Nú fæ ég aldrei að sjá þig aft-
ur og taka utan um þig. Ég vona að
englarnir passi þig og mér finnst
líka gott að þú sért nú komin til hans
afa.
Bless, amma mín
Jökull.
Elsku Bogga amma.
Í örfáum orðum langar mig að
þakka þér fyrir allar góðu stundirn-
ar sem við höfum átt saman. Það er
erfitt að átta sig á því að þú ert farin
frá okkur, þú sem hefur verið fastur
punktur í tilverunni. Þegar þú áttir
heima í Ásgarði þá var stutt að
hlaupa til þín. Alltaf áttir þú eitthvað
gott og tókst vel á móti öllum sem
komu. Stundum þegar ég var að
labba heim úr skólanum og fann
kleinulykt upp á götu þá vissi ég al-
veg hver það var sem var að baka
kleinur. Þegar við Kalli vorum í
Reykjavík í námi þá passaðir þú allt-
af upp á það að vera búin að baka
kleinur, rúgbrauð eða parta handa
okkur ef við áttum leið austur. Þá
fengum við gott nesti með okkur til
baka.
Þú varst algjör meistari þegar
kom að prjónaskap og hekli og þau
eru ófá verkin sem eftir þig liggja.
Börnin okkar Kalla, þau María Rún
og Hlynur, eiga ófáar flíkur sem þú
prjónaðir og þetta kem ég til með að
passa um ókomin ár. Mér eru minn-
isstæðar grænu buxurnar sem þú
prjónaðir handa Maríu Rún. Að þínu
mati voru þetta þær ljótustu buxur
sem þú hafðir nokkru sinni gert. En
þessar buxur vöktu alls staðar mikla
lukku.
Ég veit það, elsku amma, að þú
varst ekkert of ánægð með flutn-
ingana okkar til Ísafjarðar síðastlið-
ið haust. En þegar ég talaði við þig í
síma þá léstu það auðvitað aldrei í
ljós.
Nú er komið að leiðarlokum hjá
þér. Þú varst ekki búin að vera lengi
veik og þurftir ekki að þjást mikið.
Kalli, María Rún og Hlynur þakka
þér fyrir allt.
Elsku Bogga amma, takk fyrir
alla samveruna.
Þorbjörg Ólöf.
BJÖRG ÓLÖF
HELGADÓTTIR
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur vinsemd og samúð vegna láts
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
SIGURÐAR JÓNSSONAR
frá Engey í Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis á Hásteinsvegi 53,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja og Hraunbúða.
Ægir Sigurðsson,
Arnþór Sigurðsson,
Guðlaug Björk Sigurðardóttir,
tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna andláts og útfarar ástkærrar eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞORFINNU STEFÁNSDÓTTUR,
Bylgjubyggð 37,
Ólafsfirði.
Ólafur Víglundsson,
Jörgína Ólafsdóttir, Rögnvaldur Ingólfsson,
Þröstur Ólafsson, Brynja Júlíusdóttir,
Sigurlaug Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Hjartans þakkir sendum við öllu því góða fólki
sem sýndi okkur samúð í orði og í verki við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
KRISTINS JÓNS JÓNSSONAR,
Brautarholti 13,
Ísafirði.
Ólafía Aradóttir,
Jón Guðni Kristinsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Halldóra Kristinsdóttir, Baldur Þ. Jónasson,
Hugrún Kristinsdóttir, Gunnar Gaukur Magnússon
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS ÖGMUNDSSON
frá Syðri-Reykjum,
áður til heimilis á Grandavegi 47,
sem andaðist föstudaginn 3. október, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudag-
inn 13. október kl. 15.00.
Kristín Ágústsdóttir,
Ögmundur Magnússon, Dóra Garðarsdóttir,
Sigurður Magnússon, Hulda Friðgeirsdóttir,
Hjalti Magnússon, Jónína Þorbjörnsdóttir,
Garðar Gíslason, Margrét Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við and-
lát og útför sambýliskonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
SVEINVEIGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Múlavegi 9,
Seyðisfirði.
Úlfur Ingólfsson,
Guðbjörg Úlfsdóttir, Pétur Böðvarsson,
Kolbrún Erla Pétursdóttir, Björn Sveinlaugsson,
Hjördís Pétursdóttir, Jónas Ýmir Jónasson,
Böðvar Pétursson,
Daníel og Jason Ýmir.
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og votta
virðingu án þess að það sé gert
með langri grein.
Frágangur
afmælis- og
minningar-
greina