Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert fagurkeri sem kann
að njóta þess besta sem lífið
hefur upp á að bjóða. Kom-
andi ár getur orðið besta ár
ævi þinnar. Draumar þínir
geta ræst.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú munt eiga mikilvægar
samræður við maka þinn eða
náinn vin í dag. Þú hefur
tækifæri til að bæta hlutina.
Vertu opin/n fyrir ráðlegg-
ingum annarra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gerðu eitthvað til að bæta
heilsu þína. Hugaðu að mat-
aræðinu og því hvaða ósið þú
getur helst hugsað þér að
gefa upp á bátinn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn hentar vel til al-
varlegrar íhugunar. Þú get-
ur komist til botns í ein-
hverju sem þú hefur verið að
velta fyrir þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er góður dagur til að
koma skipulagi á hlutina.
Taktu til í húsinu og hentu
því sem þú hefur ekki lengur
not fyrir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vegna stöðu plútós hentar
dagurinn vel til breytinga á
þínu nánasta umhverfi.
Reyndu að breyta þeim að-
stæðum sem þú ert ósátt/ur
við.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir fengið tækifæri til
að láta gott af þér leiða í
dag. Gríptu þau tækifæri
sem þér gefast til að gera
öðrum gott.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur það í hendi þér að
breyta aðstæðum þínum og
útliti. Þær breytingar sem
þú gerir munu verða til góðs.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta er góður dagur til hug-
leiðslu og alvarlegrar íhug-
unar. Skilningsleit þín mun
bera árangur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú munt sennilega hitta
valdamikinn einstakling í
dag. Þú berð mikla virðingu
fyrir þessum einstaklingi og
munt njóta samræðna ykk-
ar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er hætt við að þú lendir í
andstöðu við sterkan ein-
stakling eða hóp fólks í dag
og að þú þurfir að laga
markmið þín að markmiðum
þeirra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt auðvelt með að kafa
djúpt í málin í dag. Þú hefur
séstakan áhuga á sálfræði og
sjálfshjálparaðferðum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Dagurinn hentar sér-
staklega vel til rannsókn-
arvinnu. Þú munt komast til
botns í því sem þú ert að
velta fyrir þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ERLA
Erla, góða Erla!
Ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð,
því kveldsett löngu er.
Úti þeysa álfar
um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn
hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla,
nú ertu þæg og góð!
Stefán frá Hvítadal
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 11.
október, er sjötug Guðbjörg
Stella Ögmundsdóttir. Eig-
inmaður hennar er Guðni Ó.
Gestsson. Hún er stödd er-
lendis á afmælisdaginn.
NÁKVÆM tímasetning er
ekki til, en sennilega eru 35–
40 ár síðan þetta spil kom upp
í rúbertukeppni í London:
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♠ G754
♥ 876
♦ KD
♣10832
Suður
♠ ÁD96
♥ KG9
♦ 4
♣ÁKG75
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 tígull Dobl
2 tíglar Pass Pass 2 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Tveggja spaða sögn suðurs
kemur spánskt fyrir sjónir.
Spilarar nútímans myndu
dobla aftur yfir tveimur tígl-
um, því vissulega ætti suður
að eiga fimmlit a.m.k. fyrir
frjálsri spaðasögn. En það er
ákveðinn stíll yfir tveggja
spaða sögninni. Líklegasta
geimið er í spaða og besta leið-
in til að fá makker til að taka
vitrænan þátt í sögnum er að
ganga hreint til verks og
melda litinn. Skoðum hinn
möguleikann að dobla aftur.
Hvað á þá að gera við tveimur
spöðum frá makker? Passa
eða hækka í þrjá? Skot í
myrkri.
Nóg um sagnir. Vestur
kemur út með smáan tígul og
austur tekur með ás og spilar
litlu hjarta. Hvernig á að
spila?
Ónefndur sagnhafi fann fal-
lega leið: Rauk upp með
hjartakóng, sem hélt. Tók því
næst ÁK í laufi og báðir fylgdu
lit. Spilaði sér svo út á hjarta:
Norður
♠ G754
♥ 876
♦ KD
♣10832
Vestur Austur
♠ 1083 ♠ K2
♥ D432 ♥ Á105
♦ G982 ♦ Á107653
♣96 ♣D4
Suður
♠ ÁD96
♥ KG9
♦ 4
♣ÁKG75
Tilgangurinn var að neyða
vörnina til að spila blindum
inn, svo hægt væri að svína í
trompinu. Landsliðsspilarinn
Kenneth Kostam var í austur.
Hann tók hjartaslaginn með
ás og spilaði hjarta til baka á
drottningu makkers. Austur
var hins vegar ekki með á nót-
unum og spilaði tígli. Þar með
komst sagnhafi inn í borð til að
svína í spaðanum, og þegar
kóngurinn kom annar var
geimið í höfn.
En vörnin átti að hafa bet-
ur. Ef vestur spilar þrettánda
hjartanu út í þrefalda eyðu,
getur austur trompað með
kóng og byggt upp slag á
tromptíu makkers!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessar ungu vinkonur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar
Rauða krossi Íslands og söfnuðust 2.500 krónur. Þær heita
Hildur Marín Ævarsdóttir, Bergþóra Agnes Bjarnadóttir
og Ragnheiður Vilma Ingvarsdóttir.
1. e4 c5 2. Rc3 d6 3. f4 Rc6 4.
Rf3 g6 5. Bc4 Bg7 6. 0-0 e6 7.
d3 Rge7 8. De1 h6 9. Bb3 a6
10. a4 b6 11. Be3 0-0 12. Hd1
d5 13. Bc1 Ha7 14. f5 exf5
15. Dh4 h5 16. Bg5 d4 17.
Rd5 Be6 18. Rf6+ Kh8 19.
Rxh5! gxh5 20. Dxh5+ Kg8
21. Bxe7! Dxe7 22. Rg5 Hd8
23. Dh7+ Kf8 24. Rxe6+
fxe6 25. Hxf5+! Ke8 26.
Dg6+ Kd7 27. Hf7 Kd6 28.
Hxe7 Hxe7 29. Hf1 Re5 30.
Dg3 Hh8 31. Bc4 a5 32. c3
Hh6 33. cxd4 cxd4 34. Bb5
Hg6 35. De1 Rg4
36. Da1 Hc7 37.
Hc1 Bh6 38. e5+
Staðan kom
upp í Evr-
ópukeppni tafl-
félaga sem lauk
fyrir skömmu á
Krít. Þegar kom-
ið var í 27. leik
skákarinnar hafði
Sigurbjörn
Björnsson
(2.302), hvítt,
unnið drottningu
andstæðings síns,
Júrí Tihanov
(2.382). Úrvinnslan
vafðist fyrir Sigurbirni enda
varðist Hvít-Rússinn af
mikilli hörku. Þegar hér er
komið við sögu virðist sem
hvítum hafi loksins tekist að
yfirstíga mótspyrnu and-
stæðingsins en annað átti
eftir að koma á daginn. 38. –
Kxe5! 39. Hxc7 Be3+ 40.
Kh1 Rf2+ 41. Kg1 og jafn-
tefli samið enda ljóst að það
er hvítur sem er í taphættu
eftir 41. – Rg4+ 42. Kf1
Rxh2+ 43. Ke1 Hxg2 44.
Da2 Rf3+ 45. Kd1 Hd2+
46. Kc1 Hxd3+ 47. Kb1
Hd1+ 48. Kc2 Hc1+ 49.
Kb3 Hxc7.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
HLUTAVELTA
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 11. október, eiga 50
ára hjúskaparafmæli hjónin Ragnheiður Daníelsdóttir og
Árni Sigurðsson frá Hjarðarási, N-Þing. Heimili þeirra er í
Gnoðarvogi 38, Reykjavík.
Viltu við mig dansa í nótt?
Munið gömlu dansana í endurnýjuðum Glæsibæ
í kvöld. Vindbelgirnir og Hljómsveit Þórleifs Finnssonar
ásamt söngkonunni Mjöll Hólm
leika fyrir dansi frá 21.30 - 02.00.
Mætum öll og tökum með okkur gesti.
F.H.U.R.
Félag
harmonikuunnenda
í Reykjavík
Þýskaland-Ísland í Goethe-
Zentrum Goethe-Zentrum á Lauga-
vegi 18, 3. hæð mun laugardaginn
11. október sýna útsendingu þýsku
sjónvarpsstöðvarinnar ZDF frá
landsleik Íslendinga og Þjóðverja í
Hamborg á kvikmyndatjaldi. Upp-
hitun fyrir leikinn þar sem spáð
verður í spilin hefst á ZDF kl. 13.30
og leikurinn sjálfur kl. 15. Gestum
býðst að taka þátt í getspá um úrslit
leiksins þar sem vinna má verðlaun
frá Þýska knattspyrnusambandinu.
Einnig verður í gangi spurninga-
leikur um Þýskaland og þýsk mál-
efni í boði kennara í þýsku við Há-
skóla Íslands og hljóta
vinningshafar bókaverðlaun. Að-
gangur er öllum heimill.
Í DAG
Skákfélagið Hrókurinn og Hag-
kaup standa fyrir skákhátíð í
Vetrargarðinum í Smáralind á
morgun, sunnudaginn 12. október,
kl. 13.30–16.30. Hátíðin er haldin í
tilefni af útgáfu Ísaldar á Skák-
spilinu Hróknum. Fram koma á há-
tíðinni m.a.: KK, Jónsi og Villi í
200.00 Naglbítum. Boðið er upp á
fjöltefli við Reginu Pokornu og Ró-
bert Harðarson, fyrirliða Hróksins,
sem og andlitsmálun fyrir börnin.
Alþingismenn mætast í skákspilinu
Hróknum. Sigurður Kári og Guð-
laugur Þór verða fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins en Mörður Árnason
og Katrín Júlíusdóttir tefla fyrir
hönd Samfylkingarinnar. Gestir og
gangandi eiga einnig kost á að reyna
sig í Skákspilinu.
Safnaðarmarkaður í Félagsheim-
ili Félags frímerkjasafnara verður
haldinn sunnudaginn 12. október kl.
13–17 í Síðumúla 17, 2. hæð. Til sölu
og til skipta verða frímerki, umslög
og ýmislegt annað sem tengist frí-
merkjasöfnun. Þá verður þarna
mynt, íslenskir og erlendir seðlar,
minnispeningar, barmmerki, pennar
o.fl.
Myntsafnarafélag Íslands og Félag
frímerkjasafnara standa að mark-
aðnum.
Kaffisala kristniboðsfélags karla
verður í Kristniboðssalnum, Háa-
leitisbraut 58–60, á morgun, sunnu-
daginn 12. október, kl. 14–17. Þetta
er árleg fjáröflun félagsins fyrir
kristniboðs- og þróunarverkefnum
Kristniboðssambandsins. Boðið
verður upp á kaffi, kökur og holl-
ustubrauð.
Sparisjóðshlaup UMSB. Á morg-
un, sunnudaginn 12. október, fer hið
árlega Sparisjóðshlaup UMSB fram.
Boðhlaupið hefst við kirkjuna á
Hvanneyri kl. 13. Hlaupið er um
Hvítárvallaflóann yfir Hestháls, inn
í Skorradal, niður Borgarfjarð-
arbraut og endað við Grjóteyri. Nán-
ari uppl. hjá UMSM í síma eða á
umsb@umsb.is
Á MORGUN
Ráðstefna um rannsóknir á ís-
lensku ferskvatni. Vatnamælingar
Orkustofnunar og Íslenska vatna-
fræðinefndin standa sameiginlega
fyrir ráðstefnu um rannsóknir á ís-
lensku ferskvatni á Grandhóteli
Reykjavík mánudaginn 13. október
kl. 8.30–17. Ráðstefnan er haldin í
tilefni af Ári ferskvatnsins 2003, og
er hún einkum ætluð þeim sem
koma að vatnarannsóknum með
beinum eða óbeinum hætti og þeim
sem nýta sér slíkar rannsóknir, svo
og áhugafólki um þetta efni. Sér-
staklega verður leitast við að líta til
framtíðar í allri umfjöllun fyrirles-
ara. Auk gestafyrirlesturs Óla Grét-
ars um áhrif veðurfarsbreytinga á
vatnarannsóknir verða flutt þar 17
erindi innan efnisflokkanna: Ákvarð-
anataka og skipulag vatnarann-
sókna, ráðgjöf um vatnarannsóknir
og grunnrannsóknir á ferskvatni.
Á ráðstefnunni verður einnig sér-
stök dagskrá milli kl. 13 og 14 vegna
skólaverkefnis um ferskvatn, „Börn
og vatn“, sem vatnafræðinefndin
stendur fyrir í samvinnu við
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Þar
mun Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti Íslands, afhenda við-
urkenningar og verðlaun fyrir þátt-
töku í verkefninu.
Haukur Hauksson, magister í fjöl-
miðlun og alþjóðamálum frá
Moskvuháskóla, heldur fyrirlestur í
MÍR salnum, Vatnsstíg 10, Reykja-
vík, laugardaginn 18. október kl. 15.
Hin ýmsu málefni verða rædd, með-
al annars: Hverjir eiga Rússland?
ástand og horfur í Rússlandi, og er
Ísland á sömu leið og Rússland o.fl.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir. Kaffiveitingar.
Kynning á starfi ITC Hörpu Þriðju-
daginn 14. október kl. 20 heldur ITC
deildin Harpa í Reykjavík kynning-
arfund í sal Flugvirkjafélags Íslands
í Borgartúni 22. ITC miðar að því að
efla sjálfstraust félaga sinna og gera
þeim kleift að tjá sig af öryggi og
æfa sig í skipulögðum vinnubrögð-
um í félagsstarfi. ITC (International
Training on Communication) eru al-
þjóðleg þjálfunarsamtök sem starfa í
fjórum heimsálfum.
Á NÆSTUNNI
FRÉTTIR