Morgunblaðið - 11.10.2003, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 11.10.2003, Qupperneq 54
ÍÞRÓTTIR 54 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT ÞJÓÐVERJAR unnu Íslendinga, 1:0, í leik þjóðanna með liðum skip- uðum leikmönnum 21 árs og yngri, en leikurinn fór fram í Lübeck í Þýskalandi í gærkvöld. Sigurmark- ið skoraði Benjamin Lauth á 83. mínútu og þótti það vera vafasamt því svo virtist sem knettinum væri spyrnt úr höndum Ómars Jóhanns- sonar, markvarðar íslenska liðsins. Þjóðverjar voru sterkari fyrstu 20 mínútur leiksins í gær og fengu á þeim tíma þrjú hættuleg færi, en síðan jafnaðist leikurinn en frum- kvæðið var þó áfram í höndum Þjóðverja. Íslenska liðið varðist fimlega. Þýska liðinu gekk illa að brjóta það íslenska á bak aftur í fyrri hluta fyrri hálfleik. Það náði þó tveimur til þremur þokkalegum færum. Íslendingar voru þó alltaf hættulegir í skyndisóknum sínum og m.a. fékk Gunnar Heiðar Þor- valdsson tvö ákjósanleg færi, hið fyrra á 68. mínútu og hið síðara á 77. mínútu. Þolinmæðin er dyggð og Þjóðverjum tókst með þolin- mæði að seiglast áfram og skora markið sem að lokum skildi liðin að. Sigur dugði Þjóð- verjum ekki HANDKNATTLEIKUR Sunnudagur: Meistaradeild Evrópu Ásvellir: Haukar - Barcelona ....................17 Íslandsmót karla, RE/MAX-deildin, suð- urriðill: Vestmannaeyjar: ÍBV - FH.......................16 Ásgarður: Stjarnan - ÍR .......................19.15 1. deild kvenna: Ásgarður: Stjarnan - Haukar....................15 Fylkishöll: Fylkir/ÍR - Fram ....................15 Kaplakriki: FH - KA/Þór...........................15 Vestmannaey.: ÍBV - Grótta/KR ..............14 Víkin: Víkingur - Valur ..............................15 KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: 1. deild kvenna: DHL-höllin. KR - ÍS ..................................16 Sunnudagur: Kjörísbikarkeppni karla, fyrsta umferð, fyrri leikir: Borgarnes: Skallagrímur - UMFN .....19.15 Laugardalsh.: Ármann - Keflavík........19.15 Ísafjörður: KFÍ - KR ............................19.15 Sandgerði: Reynir S. - UMFG ..................16 Smárinn: Breiðablik - ÍR......................19.15 Stykkishólmur: Snæfell - Hamar19.15 Þorlákshöfn: Þór Þ. - Haukar ..............19.15 Hlíðarendi: Valur - Tindastóll ...................17 BORÐTENNIS Fyrsta stigamót vetrarins verður haldið í íþróttahúsi TBR á sunnudag. Keppni hefst kl. 10.30 í eldri flokki karla, kl. 11 í 1. flokki karla og kvenna og kl. 13 í meistaraflokkum karla og kvenna. HANDKNATTLEIKUR KA – Víkingur 32:25 KA-heimilið, Akureyri, Íslandsmót karla, RE/MAX-deildin, norðurriðill, föstudaginn 10. október 2003. Gangur leiksins: 1:4, 2:8, 7:10, 13:12, 17:17, 20:18, 25:20, 29:23, 32:25. Mörk KA: Arnór Atlason 10/6, Andreus Stelmokas 6, Einar Logi Friðjónsson 6, Jónatan Magnússon 4, Bjartur Máni Sig- urðsson 3, Ingólfur Axelsson 2, Árni Björn Þórarinsson 1. Varin skot: Stefán Guðnason 1, Hafþór Einarsson 12/1 (þar af 2/1 til mótherja). Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Víkings: Andri Haraldsson 6/1, Tom- as Kavolius 5, Þröstur Helgason 5/1, Ragnar Haltested 3, Brjánn Bjarnason 2, Karl Grönvold 2, Benedikt Örn Jónsson 1, Þórir Júlíusson 1. Varin skot: Reynir Reynisson 15 (þar af 5 til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Brynjar Einarsson og Vilbergur Sverrisson. Áhorfendur: Um 300. Afturelding – Grótta/KR 24:26 Varmá, Mosfellsbæ: Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 2:4, 7:7, 8:11, 9:13, 11:15, 13:15, 20:22, 23:22, 23:26, 24:26. Mörk Aftureldingar: Einar Ingi Hrafnsson 6/5, Daníel Berg Grétarsson 4, Hrafn Ingv- arsson 3, Vladislav Trúfan 2, Hilmar Stef- ánsson 2, Níels Reynisson 2, Magnús Frið- rik Einarsson 2, Ásgeir Jónsson 1, Reynir Árnason 1, Ernir Hrafn Arnarson 1. Varin skot: Davíð Svansson 7/1 (þar af fór 5/1 aftur til mótherja), Stefán Hannesson 6 (þar af fóru 3 aftur til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Gróttu/KR: Páll Þórólfsson 8/5, Sverrir Pálmason 5, Magnús Magnússon 4, Kristinn Björgúlfsson 3, Savukynas Gint- aras 3, Kristján Þorsteinsson 2, Brynjar Hreinsson 1. Varin skot: Gísli Guðmundsson 4/1 (þar af fór 1 aftur til mótherja), Hlynur Morthens 4 (þar af fóru 2 aftur til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Arnar Kristinsson og Þorlákur Kjartansson. Áhorfendur: 160 Valur – Fram 26:26 Hlíðarendi, Reykjavík: Gangur leiksins: 4:0, 5:1, 8:2, 8:5, 10:5, 11:8, 14:11, 15:12, 15:15, 17:17, 19:19, 22:20, 24:21, 24:24, 26:26. Mörk Vals: Hjalti Gylfason 5, Baldvin Þor- steinsson 4/2, Freyr Brynjarsson 4, Ragn- ar Ægisson 4, Markús Máni M. Maute 3/1, Hjalti Pálmason 2, Heimir Árnason 2, Sig- urður Eggertsson 2. Varin skot: Roland Valur Eradze 22/3 (þar af fóru 3 skot aftur til mótherja), Pálmar Pétursson 5. Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Fram: Jón Björgvin Pétursson 6/4, Valdimar Þórsson 5, Þorri B. Gunnarsson 5, Héðinn Gilsson 4, Björgvin Þór Björg- vinsson 2, Guðjón Drengsson 2, Hafsteinn Ingason 1, Arnar Sæþórsson 1. Varin skot: Egidijus Pethevicius 11/2, Sig- urjón Þórðarsson 1. Utan vallar: 12 mínútur, þar af fékk Björg- vin Þór Björgvinsson rautt spjald vegna leikbrots á 18. mínútu. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, voru frekar slappir. Áhorfendur: Tæplega 300. KÖRFUKNATTLEIKUR Grindavík – Njarðvík 105:103 Íþróttahúsið í Grindavík, úrvalsdeild karla, Intersport-deild, föstud. 10. október 2003. Gangur leiksins: 5:5, 15:16, 23:20, 36:23, 46:43, 55:48, 63:55, 71:66, 75:70, 85:77, 89:83, 91:91, 94:91, 99:99, 99:103, 105:103. Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 36, Páll Vilbergsson 29, Dan Trammel 18, Guð- mundur Bragason 13, Ragnar Ragnarsson 5, Steinar Arason 2, Jóhann Ólafsson 2. Fráköst: 27 í vörn - 21 í sókn. Stig Njarðvíkur: Brandon Woudstra 32, Friðrik Stefánsson 26, Guðmundur Jóns- son 16, Páll Kristinsson 14, Ólafur Ingva- son 10, Egill Jónasson 5. Fráköst: 27 í vörn - 10 í sókn. Villur: Grindavík 27 - Njarðvík 24. Dómarar: Leifur Garðarsson og Aðal- steinn Hjartarsson. Áhorfendur: Um 300. Keflavík – Hamar 100:72 Íþróttahúsið í Keflavík: Gangur leiksins: 0:2, 11:2, 13:9, 24:11, 30:15, 36:15, 49:22, 49:31, 55:34, 57:48, 61.53, 67:59, 72:59, 89:61, 97:65, 100:72. Stig Keflavíkur: Derick Allen 27, Nick Bradford 23, Falur Harðarson 15, Gunnar Einarsson 13, Jón Hafsteinsson 6, Magnús Gunnarsson 5, Hjörtur Harðarson 5, Arnar F.Jónsson 4, Halldór Halldórsson 2. Fráköst: 24 í vörn - 24 í sókn. Stig Hamars: Chris Dade 17, Marvin Valdi- marsson 16, Lárus Jónsson 14, Fahemim Nelson 10, Hallgrímur Brynjólfsson 5, Svavar Pálsson 4, Atli Örn Gunnarsson 2, Pétur Ingvarsson 2, Sveinn Júlíusson 2. Fráköst: 19 í vörn - 9 í sókn. Villur: Keflavík 19 - Hamar 20. Dómarar: Helgi Bragason og Karl Frið- riksson. Áhorfendur: Um 180. KNATTSPYRNA Þýskaland – Ísland 1:0 Lübeck, Þýskalandi, Evrópukeppni U21 árs landsliða karla: Mark Þýskalands: Benjamin Lauth 83. Lið Íslands: Ómar Jóhannsson - Hjálmur Dór Hjálmsson, Guðmundur Viðar Mete, Tryggvi Bjarnason, Haraldur Freyr Guð- mundsson - Örn Kató Hauksson (Hannes Þ. Sigurðsson 84.), Viktor Bjarki Arnars- son, Ólafur Ingi Skúlason, Sigmundur Kristjánsson, Atli Jóhannsson - Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Áhorfendur voru 6.100. Skotland – Litháen...................................3:2 Lokastaðan: Skotland 6 4 1 1 10:6 13 Þýskaland 6 4 1 1 11:5 13 Litháen 6 3 0 3 10:10 9 Ísland 6 0 0 6 2:12 0  Skotland og Þýskaland fara í úrslita- keppnina. Þjóðverjar komust áfram með bestan árangur í öðru sæti. UM HELGINA BARCELONA, liðið sem Haukar leika við á morgun í Meistara- deild Evrópu, er eitt sigursælasta handboltalið í heimi og titlarnir sem liðið hefur unnið skiptir tug- um. Börsungar fögnuðu sigri í EHF-keppninni á síðustu leiktíð, sigruðu rússneska liðið Dynamo Astrakhan í úrslitum, samanlagt, 68:49. Frá því Valero Rivera Lopéz tók við þjálfun liðsins 1984 hefur liðið orðið að því stórveldi sem það er í dag en undir stjórn Rivera hefur Barcelona unnið 65 titla. Barcelona hefur unnið Evr- ópukeppni meistaraliða sex sinn- um, fimm sinnum í Evrópukeppni bikarhafa, einu sinni í EHF- keppninni, tólf sinnum spænskur meistari, tíu sinnum bikarmeist- ari auk ýmissa annarra titla. Það er því óhætt að segja að Hauk- arnir ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur á sunnudag- inn þegar þeir mæta Barcelona á Ásvöllum kl. 17 í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Barcelona sigursælt Heimamenn komu ákveðnir tilseinni hálfleiks, skoruðu tvö fyrstu mörkin og spiluðu af krafti. Gestunum tókst þó að halda þeim í hæfi- legri fjarlægði fyrir aftan sig allt þar til um 10 mínútur voru eftir. Þá tóku leikmenn Afturelding- ar völdin og þegar um 6 mínútur voru eftir af leiknum náðu þeir for- ystunni í fyrsta skipti í leiknum, 23:22. Þá tóku gestirnir við sér og skoruðu fjögur mörk og gerðu út um leikinn og uppskáru að lokum tveggja marka sigur. Sverrir Pálmason var drjúgur fyr- ir Gróttu/KR og skoraði nokkur mikilvæg mörk, einnig stóð Páll Þór- ólfsson fyrir sínu. Leikmenn Aftur- eldingar sýndu ágæta baráttu með því að ná að koma sterkir til baka eftir að hafa verið undir allan leik- inn. Daníel Grétarsson átti skínandi leik í seinni hálfleik og var sínum mönnum mikilvægur. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, var sáttur við sína menn í leikslok: „Við unnum Val síðast og ég hafði dálitlar áhyggjur af þessum leik. Afturelding er með unga og fríska stráka og það er erfitt að eiga við þá. Við leiddum allan tímann nema þarna á smákafla í lokin, þá vorum við klaufar að missa þá fram úr okkur, en við náðum að sýna mik- inn karakter, náðum að vinna þenn- an leik og ég er virkilega sáttur við það,“ sagði Ágúst í leikslok. Fyrsti heimasigur KA KA-menn lögðu Víkinga 32:25 ígærkvöldi og lönduðu þá sín- um fyrstu stigum á heimavelli í vet- ur. Sigurinn var í höfn um miðjan síð- ari hálfleik en þá virtist allur vindur úr Víkingum sem höfðu barist vel og leitt leikinn allan fyrri hálfleikinn. Gestirnir komust í 4:1 og 8:2 strax í upphafi leiks og KA-menn vissu varla hvaðan á sig stóð veðrið. Vörn þeirra var í molum og markvarslan engin nánast allan fyrri hálfleikinn. Víkingar nýttu sér það og fór Andri Haraldsson á kost- um í sókninni. KA-mönnum tókst síðan að minnka muninn smám sam- an og í hálfleik var jafnt, 17:17. Síðari hálfleikurinn var eign heimamanna sem sýndu mun betri leik en fyrir hlé. Víkingar sáu vart til sólar og á tímabili gekk þeim allt í mót. Leikmönnum gekk illa að nýta færin, menn fuku út af auk þess sem nokkrir dómar féllu þeim ekki í geð. Svo fór að lokum að KA sigraði með sjö marka mun og aðeins fyrir mjög góða markvörslu Reynis Reynisson- ar varð munurinn ekki meiri. Bestu menn gestanna voru, auk Reynis, þeir Andri Haraldsson og varnar- jaxlinn Brjánn Bjarnason. Í liði KA bar enginn af en Ingólfur Axelsson sýndi skemmtilega takta eftir að hann kom inná. Jónatan Magnússon fyrirliði reif sína menn áfram, skæl- brosandi, sama á hverju gekk. Hann var ánægður í leikslok og hafði þetta að segja. „Það var gott að ná sjö marka sigri hér í kvöld eftir að hafa verið sex mörkum undir í upphafi. Við vorum mjög óagaðir í byrjun og vörnin virkaði engan veginn. Við breyttum svo í 3-2-1 og náðum smám saman tökum á leiknum. Í seinni hálfleik fannst mér aldrei nokkur spurning að við myndum vinna. Það er gott fyrir okkur að vera komnir með sigur á heimavelli eftir tap í tveimur fyrstu leikjunum. Það var komin smápressa á okkur. Nú er bara að halda áfram og safna sem flestum stigum.“ Töpuð stig á báða bóga Framarar eru enn ósigraðir ínorðurriðli RE/MAX-deildar karla eftir að liðið gerði jafntefli við Valsmenn, 26:26, á Hlíðarenda í gærkvöldi. Heimamenn voru sterk- ari framan af – höfðu yfir 14:11 í hálfleik – en Fram- arar mættu ákveðnir eftir hlé, gerðu til- kall til stiganna tveggja en gerðu sig seka um slæm mistök á örlagastundu. Eftir leiki kvöldsins situr Fram á toppi riðils- ins ásamt Gróttu/KR en Valsmenn eru einu sæti fyrir neðan, stigi á eft- ir. Valsmenn byrjuðu leikinn af mikl- um krafti og eftir stundarfjórðungs- leik höfðu þeir sex marka forskot, 8:2. Á átjándu mínútu var svo Björg- vini Björgvinssyni, leikmanni Fram, vikið af leikvelli fyrir leikbrot – afar umdeildur dómur – og það varð til þess að kveikja í Frömurum. Þeir söxuðu á forskotið og höfðu minnkað muninn í þrjú mörk í leikhléi, 14:11. Gestirnir héldu ótrauðir áfram eftir leikhlé, jöfnuðu 15:15, eftir fimm mínútna leik og komust svo yfir 17:16 og 19:17 á næstu tíu mínútum. Með forskotið í höndunum var sókn Framara mjög mistæk og tapaði boltanum í þrígang – færði heima- mönnum mörk á silfurfati. Valsmenn komust þremur mörkum yfir þegar rétt tæplega tíu mínútur voru eftir til leiksloka, nýttu ekki færin í sókn- inni og jafntefli varð niðurstaðan. „Þetta var mjög svekkjandi, við byrjuðum mjög vel, vorum vel stemmdir og komumst í góða stöðu. Eftir það slökuðum við heldur mikið á og ég er þess fullviss að ef við hefð- um keyrt áfram á þá hefðum við unnið með að minnsta kosti fjórum mörkum. Við áttum einnig að nýta góð færi í lokin – að mínu mati töp- uðum við stigum í kvöld,“ sagði Ósk- ar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir leikinn. Heimir Ríkarðsson, þjálfari Fram, tók í svipaðan streng og kollegi hans: „Þetta var erfiður leikur. Við vorum ekki alveg tilbúnir í byrjun leiks og töpuðum á því. Eft- ir að við náðum okkur á strik fannst mér við vera betri aðilinn og við átt- um að vinna,“ sagði Heimir. Grótta/KR skellti sér í efsta sætið GRÓTTA/KR settist á topp norðurriðils Íslandsmótsins í handknatt- leik karla í gær þegar liðið lagði Aftureldingu að Varmá, 26:24. Gestirnir voru ávallt skrefinu á undan heimamönnum í fyrri hálfleik. Afturelding náði nokkrum sinnum að jafna metin en gestirnir hleyptu þeim aldrei fram úr sér. Undir lok hálfleiksins gaf Grótta/ KR svo í án þess að heimamenn næðu að halda í við þá svo þegar flautað hafði verið til leikhlés var Grótta/KR komin með 4 marka forystu, 15:11. Benedikt Rafn Rafnsson skrifar Einar Sigtryggsson skrifar Andri Karl skrifar ÁSGEIR Sigurvinsson, landsliðs- þjálfari, er ánægður með aðstöðu sem íslenska landsliðið hefur í Hamborg. Landsliðið hefur aðsetur á Marriott Hotel Treudelberg í Norderstedt norðan við Hamborg. „Það eitt að leikmenn Hamburger SV dvelja hér þegar þeir búa sig undir þýðingarmikla leiki, segir okkur allt um gæði hótelsins, sem býður upp á 18 holu golfvöll, boð- legan fyrir meistaragolf. „Það fer vel um okkur hér og við vitum að það er þýðingarmikill leikur fram- undan. Það er þetta sem við þráum og óskum eftir – að vera í keppni um efsta sætið. Við höfum ekki tap- að í fjórum síðustu leikjum og erum ákveðnir að gera allt til að engin breytingar verði á,“ sagði Ásgeir. Hér er gott að vera BYRJUNARLIÐ Íslands gegn Þjóð- verjum í dag verður ekki tilkynnt fyrr en skömmu áður en flautað verður til leiks í Hamborg. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru allar líkur á því að byrjunarlið Íslands verði skipað eftirfarandi leikmönnum og ætla Ásgeir Sigur- vinsson og Logi Ólafsson að notast við 3:5:2 leikaðferðina líkt og gegn Þjóðverjum á Laugardalsvelli. Árni Gautur Arason verður markvörður; Ívar Ingimarsson, Ólafur Örn Bjarnason og Hermann Hreiðars- son verða í hjarta varnarinnar, Þórður Guðjónsson úti á hægri vængnum og Indriði Sigurðsson á þeim vinstri. Arnar Grétarsson og Arnar Þór Viðarsson verða „djúp- ir“ á miðjunni og Rúnar Kristinsson þar fyrir framan. Í fremstu víglínu verða Helgi Sigurðsson og fyrirlið- inn Eiður Smári Guðjohnsen. Svo gæti hins vegar farið að Ríkharður byrji inná í stað Helga, ef eitthvað er marka það sem gert var á síðari æfingu landsliðsins í hamborg í gær. Ef þetta gengur eftir þá kemur Ívar í stað Lárusar Orra í vörnina, Arnar leysir Jóhannes Karl af og Helgi eða Ríkharður hleypur í skarðið fyrir Heiðar Helguson frá fyrri leiknum við Þjóðverja á Laug- ardalsvelli í síðasta mánuði. Þá er talið sennilegt að Arnar Þór komi í stað Péturs Hafliða marteinssonar sem meiddist á æfingu í gær, en annars mátti gera ráð fyrir að Pét- ur yrði í byrjunarliðinu. Verður Ríkharður frammi með Eiði Smára?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.