Morgunblaðið - 11.10.2003, Síða 56
KVIKMYNDIR
56 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR nefnt er bókmennta- og
menningarfyrirbærið bítnik kemur
manni síst í huga Skotland. En Young
Adam er nafn á skáldsögu frá 1954
eftir gleymt skoskt bítskáld sem heit-
ir Alexander Trocchi. Þau leyna sér
heldur ekki bítáhrifinn í þessari kvik-
myndagerð sem birtist nú tæpri hálfri
öld síðar. Sagan segir frá Joe (Mc-
Gregor) rótlausum og fámálum
náunga, frústreruðu skáldi sem vinn-
ur á kolapramma sem lullar um á ánni
Clyde. Hann vinnur fyrir Ellu (Tildu
Swinton) og Les (Peter Mullan),
óhamingjusöm hjón enda lifa þau og
strita á örvæntingafullum tímum 6.
áratugarins. Myndin er í aðra röndina
sálfræðileg glæpasaga því þeir Joe og
Les veiða einn „góðan veðurdag“ lík
hálfnaktrar ungrar konu uppúr ánni
og tilkynna til lögreglu. Lífið heldur
samt áfram og pramminn líka eftir
ánni, en hugur beggja verður eftir þar
sem þeir fundu líkið enda hið dular-
fyllsta mál sem fyllir forsíður dag-
blaðana á hverjum degi. Brátt kemur
á daginn að Joe veit eitthvað meira
um lát konunnar en hann lætur í veðri
vaka og um leið kemur í ljós margt
æði skuggalegt í fari hans. Hann er
miskunnarlaus kvennaflagari og fer á
fjörurnar við Ellu vinnuveitanda sinn
og þau eiga saman ástarfundi á bak
við Les. Jafnhægt og pramminn lullar
áfram, stigmagnast ólgan um borð,
frygðin, ástríðan og sektarkenndin.
Og þótt hann virðist með öllu tilfinn-
ingasljór finnur maður vanlíðanina
heltaka hinn ótrúa, samviskulausa og
sjálfhverfa Joe eins og krabbamein.
Hann veit vel að hann hefur skilur eft-
ir sig rotna slóð og að um seinan sé að
bæta fyrir gjörðir sínar.
Hér er á ferð hreint ótrúlega heil-
steypt og þroskuð karakterstúdía hjá
hinum 37 ára gamla skoska leikstjóra
David Mackenzie. Með hæfilegri
blöndu af ljóðrænu, nákvæmni og
vægðarleysi tekst honum, með aðstoð
frábærlega nákvæmrar og taktvísrar
kvikmyndatöku og áhrifaríkrar og
Tindersticks-skotinnar tónlistar Dav-
ids Byrnes úr Talking Heads, að
skapa lævi blandið andrúmsloft, kola-
drullugt og kaldranalegt en um leið
alveg fáránlega seiðandi og róman-
tískt á einhvern óþægilega afbrigði-
legan máta. Það er að miklu leyti að
þakka einkar áhugaverðri persónu-
sköpun á hinum óræða Joe, sem bæði
í senn er ruddalegur og þokkafullur –
hin fullkomna andhetja. Aðra eins
sögupersónu rekur mann ekki minni
til að hafa séð á hvíta tjaldinu í háa
herrans tíð. Og má þar líka þakka
magnaðri frammistöðu hins fjölhæfa
Ewan McGregor sem hefur hreinlega
ekki verið betri. Hér er það ekki
hamagangurinn og hver „Óskarssen-
an“ á fætur annarri sem gefur til
kynna snilli hans heldur hitt hversu
sannfærandi hann er í hlutverki hins
hlédræga og sakbitna syndasels –
skuggalegur og sexí í senn. Tilda
Swinton og Peter Mullan leggja líka
heilmikið til myndarinnar, sér í lagi
hún í hlutverki hinnar lífsþreyttu og
ástríðusveltu Ellu sem springur út í
sveittum örmum Joes.
Young Adam er tvímælalaust ein-
hver áhugaverðasta breska mynd
sem hingað hefur á fjörur rekið í
nokkurn tíma, myrk, þungmelt en
sérlega gefandi fyrir þá sem kunna að
meta safaríka og sexí sálarkrimma.
Að lokum: Einhver hugmynd um
hver þessi Adam er? Mín tilgáta er
ófætt barn. Langsótt.
ADAM (YOUNG ADAM)
Regnboginn –
Kvikmyndahátíð Eddunnar
Leikstjórn og handrit David Mackenzie
eftir samnefndri skáldsögu Alexanders
Trocchis. Kvikmyndatökustjóri Giles
Nuttgens. Tónlist David Byrne.
Aðalleikendur Ewan McGregor, Tilda
Swinton, Peter Mullan,Emily Mortimer.
95 mínútur. HanWay Films.
Skotland 2003.
Sakbitinn
syndaselur
Flagari með kalið hjarta. Ewan
McGregor og Emily Mortimer í
hlutverkum sínum í Young Adam.
Skarphéðinn Guðmundsson
Geirmundur Valtýsson
í kvöld
Leikhúsgestir, munið spennandi matseðil
TVEIR MENN
OG KASSI
eftir Torkild Lindebjerg
Sun. 19. okt. kl. 14.00.
PRUMPUHÓLLINN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Sun. 12. okt. kl. 14.00.
HEIÐARSNÆLDA
eftir leikhópinn
Sun. 26. okt. kl. 14.00.
VÖLUSPÁ
eftir Þórarin Eldjárn
Sun. 26. okt. kl. 16.00.
Foreldrafélög,
munið hópafsláttinn!
Sími 562 5060
Netfang: ml@islandia.is
www.islandia.is/ml
erling
Fim 16.10. kl. 20 UPPSELT
Sun 19.10 kl 16 UPPSELT
Sun 19.10 kl 20 UPPSELT
Fös 24.10. kl. 20 ÖRFÁ LAUS SÆTI
Fös 24.10. kl. 20 ÖRFÁ LAUS SÆTI
Miðasala í síma 552 3000
Miðasala opin 15-18 virka daga
Ósóttar pantanir seldar daglega
loftkastalinn@simnet.is
Einnig sýnt í Freyvangi
Stóra svið
Nýja svið
Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Í dag kl 14 - UPPSELT, Su 12/10 kl 14 - UPPSELT
Lau 18/10 kl 14 - UPPSELT, Su 19/10 kl 14 - UPPSELT
Lau 25/10 kl 14 - UPPSELT, Lau 25/10 kl 17 - UPPSELT
Su 26/10 kl 14- UPPSELT, Lau 1/11 kl 14 - UPPSELT
Su 2/11 kl 11 - AUKASÝNING UPPSELT
Su 2/11 kl 14 - UPPSELT, Lau 8/11 kl 14 - UPPSELT
Su 9/11 kl 14 - UPPSELT
Lau 15/11 kl 14
Su 16/11 kl 14 - UPPSELT
Lau 22/11 kl 14,
Su 23/11 kl 14
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
BORGARLEIKHÚSIÐ ER FJÖLSKYLDUVÆNT LEIKHÚS
Börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum
Gildir ekki á barnasýningar og sýningar með hækkuðu miðaverði.
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN SÝNIR:
THE MATCH eftir Lonneke Van Leth -
heimsfrumsýning
SYMBIOSIS eftir Itzik Galili
PARTY eftir Guðmund Helgason
2. sýn su 12/10 kl 20 - gul kort
3. sýn lau 18/10 kl 20 - rauð kort
4. sýn fi 30/10 kl 20 - græn kort
5. sýn su 2/11 kl 20 - blá kort
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Í kvöld kl 20, Su 19/10 kl 20, Su 26/10 kl 20
Ath. Aðeins þessar sýningar
FLUGUR e. Jón Thoroddsen
Gjörningur o.fl í samstarfi við trúðinn ÚLFAR
Su 12/10 kl 20.30 - Kr. 1.000
KVETCH e. Steven Berkoff
í samstarfi við á SENUNNI
Mi 15/10 kl 20, - UPPSELT
Lau 18/10 kl 20,- UPPSELT, Fö 24/10 kl 20, - UPPSELT
Fi 30/10 kl 20, Fö 31/10 kl 20
Ath: Aðeins örfáar sýningar
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 18/10 kl 15:15 Voces Thules - Þá og Nú
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
Meira (en) leikhús!
HÆTTULEG KYNNI byggt á sögu Laclos
í samstarfi við DANSLEIKHÚS MEÐ EKKA
Forsýning lau 18/10 kl 20
Frumsýning su 19/10 kl 20,
fö 24/10 kl 20, su 26/10 kl 20
Aðeins 5 sýningar
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Fö 17/10 kl 20,
Fö 24/10 kl 20
Fö 31/10 kl 20,
Lau 8/11 kl 20
eftir Kristínu Ómarsdóttur
sýn. fös. 17. okt Örfá sæti laus
sýn. fös. 24. okt Örfá sæti laus
sýn. sun. 26. okt
sýn. fim. 30. okt
Sýningar hefjast klukkan 20.
Aðeins þessar sýningar
Miðasala í 555 2222 eða á theater@vortex.is
Mink
leikhús
MÁNUDAGINN 20/10 - KL. 20 UPPSELT
ÞRIÐJUDAGINN 21/10 - KL. 20 UPPSELT
MIÐVIKUDAGINN 22/10 - KL. 19 AUKASÝNING LAUS SÆTI
FIMMTUDAGINN 23/10 - KL. 19 UPPSELT
MÁNUDAGINN 27/10 - KL. 19 UPPSELT
ÞRIÐJUDAGINN 28/10 - KL. 19 LAUS SÆTI
MIÐVIKUDAGINN 29/10 - KL. 19 LAUS SÆTI
Tenórinn
4. sýn. laugard. 18. okt. kl. 20.00.
5. sýn. föstud. 24. okt. kl. 20.00.
Sellófon
Gríman 2003: "Besta leiksýningin,"
að mati áhorfenda
Í kvöld 11. okt. kl. 21.00. UPPSELT
Mið. 15. okt. kl. 21.00. UPPSELT
Sun. 19. okt. kl. 21.00. UPPSELT
Fim. 23. okt. kl. 21.00. Örfá sæti
Sun. 26. okt. kl. 21.00. Nokkur sæti
www.sellofon.is og sellofon@mmedia.is
Ólafía
Sýning á leikritinu eftir Guðrún
Ásmundsdóttur í Fríkirkjunni og Iðnó
Mið. 22. okt. kl. 20.00.
Mið. 29. okt. kl. 20.00.
ATH. aðeins 2 þessar sýningar eftir
Miðasala í síma 562 9700
www.idno.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga
ATVINNA mbl.is