Morgunblaðið - 26.10.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Nánari upplýsingar á www.icelandair.is/frakkland
Hafið samband við hópadeild Icelandair í síma 5050 406.
Á mann í tvíbýli. Innifalið: flug, gisting í 3 nætur, rútu -
ferðir, íslensk fararstjórn, skoðunarferðir, vínsmökkun,
morgunverður og kvöldverður og flugvallarskattar.
Ath. að lágmarksþátttaka er 20 manns.
Verð frá 74.970 kr.
7. -10. nóvember
til Frakklands
Vínmenningarhátíð í vetrarbyrjun
Einstakt tækifæri til að njóta eðalvína og
franskrar matargerðar listar.
Ekið frá París til Dijon, höfuðborgar Búrgúndí -
héraðs, þar sem hinn víðfrægi þjóð vegur hinna
miklu eðalvína byrjar. Gist verður í tvær nætur í
Dijon og ekið út á vínekrur til að hitta vín rækt -
endur og óðals bændur. Aðfaranótt mánudags
verður gist í París.
4 rétta sælkerakvöldverður í Dijon
4 rétta sælkeraveisla í Chateau de Gilly
3 rétta eðalkvöldverður í París
Fararstjóri: Halldór E. Laxness
GEVREY-CHAMBERTIN • CLOS DE VOUGEOT • MORIN Í NUITS ST. GEORGES • BEAUNE
CHABLIS • DIJON • CHATEAU DE MEURSAULT • PULIGNY-MONTRACHET • VÉZELAY • PARÍS
Sælkeraferð
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Ferðin gefur 3600
ferðapunkta
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
26
30
10
/2
00
3
Ellismellirnir vilja líka „Vilko“ hr. Davíð.
Ný bók um fötlunarfræði
Uppbygging
nýs fræðasviðs
Rannveig Trausta-dóttir er ritstjórinýrrar bókar sem
Háskólaútgáfan hefur gef-
ið út og nefnist Fötlunar-
fræði – Nýjar íslenskar
rannsóknir. Hún er gefin
út í tilefni Evrópuárs fatl-
aðs fólks 2003 og er tileink-
uð baráttunni fyrir mann-
réttindum og fullri
samfélagsþátttöku fatl-
aðra. Bókin er byggð á
greinum tíu fræðimanna
frá þremur háskólum, Há-
skóla Íslands, Háskólan-
um á Akureyri og Kenn-
araháskóla Íslands, í
samstarfi við samtök fatl-
aðra, Öryrkjabandalag Ís-
lands og Landssamtökin
Þroskahjálp.
Rannveig sagði við
Morgunblaðið að bókin væri til
vitnis um hvernig unnt væri að
tengja fræðastarf og samfélags-
baráttu, og um mikilvægi rann-
sókna og þekkingaröflunar fyrir
baráttu minnihlutahópa.
Hvað er fötlunarfræði?
„Fötlunarfræði er ung fræði-
grein sem vaxið hefur hratt á und-
anförnum árum. Fræðileg þróun á
þessu sviði endurspeglar vaxandi
áhuga á fötlun sem samfélagslegu
fyrirbæri og mikilvægum þætti í
lífi okkar allra, enda líta fræði-
menn í auknum mæli á fötlun sem
mikilvægt viðfangsefni. Fræði-
menn á sviði fötlunarfræða hafa á
undanförnum árum sett fram ögr-
andi spurningar og andæft hefð-
bundnum skilgreiningum á fötlun.
Umfjöllun um þetta fræðasvið
hefur verið lífleg í nágrannalönd-
um okkar. Hér á landi hefur
fræðileg umfjöllun um fötlun hins
vegar verið í lágmarki.“
Hver er ástæðan fyrir tilurð
bókarinnar?
„Innan fötlunarfræða er bent á
að rannsóknir á fötlun hafi ekki
haft sama sýnileika og rannsóknir
sem lúta að kynþætti, þjóðerni,
þjóðfélagsstéttum, kynhneigð og
kynferði. Það er út af fyrir sig at-
hyglisvert að fatlað fólk hefur ver-
ið ósýnilegra en aðrir hópar. Eða
er ekki fjölbreytileiki líkamlegs og
andlegs atgervis lykilatriði í
mannlegri tilveru? Er ekki ávinn-
ingur að því fyrir allar að rann-
saka og rýna í margbreytileikann í
öllum sínum myndum? Það er tími
til kominn að fötlunarfræði verði
hluti af þeim fræðum sem rann-
saka margbreytileika, mismunun
og mannréttindi.“
Hvert er markmiðið með útgáf-
unni?
„Þessi bók er fyrsta ritið sem
birtist á íslensku og kennir sig við
hin nýju fötlunarfræði. Henni er
því ætlað að bæta úr brýnni þörf
fyrir íslenskt efni á þessu sviði.
Jafnframt er þetta fyrsta ritið
sem inniheldur safn nýrra ís-
lenskra rannsókna sem beinast að
lífi og aðstæðum fatlaðs fólks í ís-
lenskum samtíma. Markmiðið er
að kynna fötlunarfræði sem nýja
fræðigrein og vekja at-
hygli á nýjum íslensk-
um rannsóknum á
þessu sviði. Útgáfa
hennar er liður í upp-
byggingu þessa nýja
fræðasviðs hér á landi.“
Fyrir hverja er bókin ætluð?
„Leitast hefur verið við að setja
efni bókarinnar fram á aðgengi-
legan hátt án þess að slaka á kröf-
um um fræðileg viðmið. Bókin
ætti því að koma flestum þeim að
gagni sem láta sig málefni fatlaðs
fólks varða. Vonandi munu fatlað-
ir einstaklingar og samtök þeirra
finna hér gagnlegt efni. Bókinni er
jafnframt ætlað að nýtast fólki við
nám og rannsóknir, og kennurum
og fagfólki sem kemur að málum
fatlaðs fólks. Einnig má ætla að
stuðnings- og umræðuhópar fatl-
aðra einstaklinga og aðstandenda
þeirra geti haft af henni nokkurt
gagn. Bókin er umfram allt fyrsti
víðtæki umræðuvettvangur á ís-
lensku þegar kemur að því að
fræðast um og skoða hlutskipti
fatlaðra í íslenskum samtíma.“
Hver eru efnistökin?
„Bókin skiptist í fimm hluta. Í
fyrsta hlutanum er fötlunarfræði
kynnt sem ný fræðigrein. Að öðru
leyti er hún kynning á nýjum ís-
lenskum rannsóknum. Viðfangs-
efnin eru fjölbreytt og brugðið er
upp myndum af ólíkum sviðum og
aðstæðum fatlaðs fólks frá
bernsku til fullorðinsára, fjöl-
skyldum þeirra og kerfinu sem
ætlað er að veita því þjónustu.
Bókin veitir innsýn í fjölbreyttan
og flókinn veruleika sem til þessa
hefur verið mörgum framandi og
hulinn. Greinunum er það öllum
sameiginlegt að leggja áherslu á
rétt fatlaðs fólks til fullrar þáttöku
í lífi, starfi og leik með öðrum í
samfélaginu.“
Hvernig tengist fötlunarfræðin
mannréttindabaráttu fatlaðra?
„Fatlaðir hafa um aldir búið við
mismunun og undirokun. Fatlað
fólk hefur verið einangrað, inni-
lokað, athugað, þjálfað, sett í með-
ferð, skorið upp, skipað fyrir, leið-
beint, lokað inni á
stofnunum og stjórnað
í meiri mæli en nokkur
annar minnihlutahópur
hefur mátt þola. Þrátt
fyrir það hefur þessum
hópi ekki verið gerð viðhlítandi
skil í rannsóknum og ritum um
minnihlutahópa, mismunun og
mannréttindi. Það er ekki fyrr en
á síðustu áratugum sem mismun-
un fatlaðra hefur verið almennt
viðurkennd. Það er ekki síst fyrir
tilstilli samtaka fatlaðs fólks.
Meðal þess sem gerir fötlunar-
fræði spennandi eru tengsl fræði-
starfa og mannréttindabaráttu.“
Rannveig Traustadóttir
Rannveig lauk doktorsprófi í
fötlunarfræðum og kvennafræð-
um frá Syracuse University í
New York 1992. Hún stundaði
einnig nám í uppeldisfræði og
stjórnun í Kaupmannahöfn og fé-
lagsfræði og heimspeki við Há-
skóla Íslands. Rannveig er dós-
ent við Félagsvísindadeild
Háskóla Íslands. Hún er einnig
þroskaþjálfi og starfaði um ára-
bil með fötluðum og sem kennari
við Þroskaþjálfaskóla Íslands.
Hún hefur birt rannsóknir sínar í
ritum hér á landi og erlendis.
Rannveig á eina dóttur og tvær
ömmustelpur.
Fræðastarf og
mannréttinda-
barátta