Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 31
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 31
ENN heldur áfram umræðan um
aðskilnað ríkis og kirkju. Ástæða
þess að ég sest niður og rita þetta
greinarkorn er að ég
vil koma á framfæri
ákveðnum atriðum
sem ég tel vera
grundvallaratriði
umræðunnar. Einn-
ig langar mig að
ræða þær röksemdir
sem notaðar eru með og á móti í um-
ræðunni.
Grundvallaratriðin
Sú röksemd sem ég legg til grund-
vallar afstöðu minni til aðskilnaðar
ríkis og kirkju, og sú sem nægir mér
ein og sér, er að núverandi ástand
tryggir ekki trúfrelsi þrátt fyrir að í
stjórnarskrá Íslands sé getið um
slíkt. Núverandi ástand brýtur gegn
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Það að eitt trúfélag hafi lögbundinn
rétt fram yfir aðra stenst ekki þá
jafnræðisreglu. Sama trúfélag hefur
annað aðgengi að fé, vel að merkja
skattfé almennings, sem aðrir hafa
ekki. Slík forréttindi ber að afnema
en ekki að bæta fleiri trúfélögum á
jötuna eins og stungið hefur verið
upp á til þess að slá á gagnrýn-
israddir.
Önnur rök sem notuð eru í um-
ræðunni af aðskilnaðarsinnum, til að
tryggja jafnrétti allra þegna Íslands,
er að hér hafi átt sér stað mikil
breyting á þjóðfélagsgerð, að þjóðfé-
lagið sé orðið fjölmenningarlegt með
fjölda fólks af öðrum trúarbrögðum
og trúlausum. Sú röksemd er rétt og
styður því grundvallarröksemdina
sem minnst er á hér að ofan. Ís-
lenskt þjóðfélag hefur breyst gíf-
urlega á síðastliðnum 10 árum hvað
þetta varðar.
Frelsi einstaklingsins eru einnig
rök sem styðja við og eru fyllilega
réttmæt rök aðskilnaðarsinna. Það
að hér skuli vera ríkiskirkja er and-
stætt frelsishugsuninni. Að hér geti
einstaklingur ekki ráðið hvort hann
greiði sóknargjöld hvað þá hvert þau
skuli renna er andstætt frelsi ein-
staklingsins. Mikil breyting í frels-
isátt hefur átt sér stað síðastliðin 10
ár á mörgum sviðum þjóðfélagsins,
s.s. í viðskiptum og ríkisfyrirtæki
hafa verið einkavædd undir for-
merkjum frelsis en það er eins og
trúfrelsi sé ekki eins mikilvægt.
Hvað þá um þau rök að 85% þjóð-
arinnar eru skráð í þjóðkirkjuna?
Það þýðir ekki að 15% þjóðarinnar
þurfi að líða eins og annars flokks
þjóðfélagsþegnum og sætta sig við
að búa ekki við sömu skilyrði. Og þá
staðreynd að um 8–10% þjóðarinnar
fara reglulega í kirkju vegna trúar
sinnar. Hin 90% fara í besta falli í
kirkju vegna giftinga, jarðarfara eða
á jólum til hátíðabrigða eða jafnvel
bara á tónleika í kirkjum eins og
undirritaður.
Hvað þá um þá afstöðu 2⁄3 hluta Ís-
lendinga sem ár eftir ár í tíu ár hafa
lýst þeirri afstöðu sinni að vera
fylgjandi aðskilnaði. Nú í byrjun
október birti Gallup árlega skoð-
anakönnun sína um afstöðu almenn-
ings til aðskilnaðar og staðfestir hún
10. árið í röð yfirgnæfandi stuðning
við aðskilnað. Stuðningurinn hefur
aukist úr 56% árið 1994 í 67% í ár.
Verða þá engin jól?
Það hefur verið fróðlegt að fylgj-
ast með rökum andstæðinga trú-
frelsis sem nota ýmis sérkennileg
rök til að mæla gegn aðskilnaði ríkis
og kirkju. Grípa menn til röksemda
eins og: Er fólk að mælast til þess að
jólin verði lögð af? Hvað um alla frí-
daga sem ber upp á kirkjulega daga
– er fólk tilbúið að fórna þeim? Er
fólk að kjósa gegn kirkjunni? Þetta
eru ekki málefnaleg rök heldur
byggjast á því að hræða almenning
með „rökum“ sem þessum.
Ef við reynum hins vegar að svara
þessum rökum, því sjálfsagt dettur
einhverjum í hug að þetta gæti
gerst, er því til að svara að að sjálf-
sögðu hverfa jólin ekki. Undirrit-
aður hefur haldið jól alla tíð án
kristilegra formerkja og kemur til
með að gera það áfram. Að mínu
mati er þetta tími fjölskyldunnar og
til þess að rækta slík sambönd.
Hvað varðar kirkjulega frídaga
(t.d. jól og daga í kringum páska) þá
er því til að svara að þeir koma ekk-
ert því við hvort ríki og kirkja verði
aðskilin. Það eru fyrst og fremst
samningar milli stéttarfélaga og
vinnuveitenda sem skapað hafa
þessa frídaga. Að sjálfsögðu byggj-
ast þeir samningar á þeim við-
horfum sem þá ríktu um friðhelgi
þessara daga. Helgidagalöggjöfin
verður að öllum líkindum endur-
skoðuð með það fyrir augum að ekki
verði bannað að vinna á ákveðnum
dögum. Slíkt er eðlilegt þar sem nú á
dögum á ekki að vera ákvörðun rík-
isins að ákveða hvernig vinnutíma
fólks er háttað.
Sú röksemd sem mér finnst einna
veikust er að þeir sem væru að taka
afstöðu gegn núverandi ástandi
væru að taka afstöðu gegn kirkj-
unni. Það er dapurlegt að grípa þurfi
til slíkra raka. Eflaust verður gripið
til þeirra á næstu misserum en þau
rök eru einkum til þess að koma að
sektarkennd og skömm hjá ein-
staklingum. Það er ekki verið að
taka afstöðu gegn einhverju heldur
með jafnræði þegnanna.
Hvað breytist?
Rétt þykir mér að rekja, í stórum
dráttum þó, hvaða breytingar verða
við aðskilnað ríkis og kirkju þó að
ekki sé um tæmandi lista að ræða.
Það sem ég tel helstu breytinguna
er kannski ekki áþreifanlegt en það
er að hér muni ríkja trúfrelsi. Allir
trúarhópar sem og trúlausir munu
hafa sömu stöðu. Enginn þeirra mun
hafa sérréttindi og geta sótt sér fé í
ríkissjóð eins og nú er. Að sama
skapi verður að breyta sókn-
argjaldakerfinu og heimila trúlaus-
um að ákveða sjálfir hvert þeirra
sóknargjöld renna. Viðurkenna þarf
þá kröfu samtaka trúlausra að Sið-
mennt verði skráð sem lífsskoð-
unarfélag með sömu stöðu og trú-
félög. Tveir áratugir eru síðan slíkt
var heimilt í Noregi og er félag trú-
lausra þar næststærsta lífsskoð-
unarfélagið sem skráð er á eftir
þjóðkirkjunni. Einnig á að heimila
þeim sem ekki vilja vera skráðir í
trúfélag eða lífsskoðunarfélög að
velja það að greiða engin gjöld.
Sjálfvirkri skráningu nýfæddra
barna í trúfélög verður hætt. Slík
skráning fer ekki fram nema við
skírn og formlega beiðni um inn-
göngu í eitthvert lísskoðunarfélag.
Þeir sem ekki gera slíkt verða skráð-
ir utan félaga.
Trúaruppeldi í grunnskólum,
hverju nafni sem það nefnist, verður
ekki heimilt og foreldrar gerðir
ábyrgir fyrir slíkri fræðslu eftir vilja
hvers og eins í stað skólans. Breyt-
ing verður því í skólum en kristni-
fræðslu verður breytt í trúar-
bragðafræði og ekki verður heimilt
að vera með trúboð í grunn- og leik-
skólum eins og því miður gerist enn í
dag. Meginatriðið er að hver og ein
fjölskylda beri ábyrgð á trúarupp-
eldi barna sinna.
Horfið verður frá því lögbroti að
nota allt að 2 kennsludaga í skólum á
hausti í fermingarfræðslu kirkj-
unnar. Því miður hefur þessi árátta
aukist á undanförnum árum og er
ótrúlegt að skólayfirvöld skuli heim-
ila slíkt.
Breyting verður á messuhaldi í
ríkisfjölmiðlum. Ríkisútvarpið mun
ekki flytja messur eins og gert er nú
í dag. Einnig verður sjáanleg breyt-
ing á setningu Alþingis þar sem
messuhaldi verður sleppt.
Evangelíska kirkjan þarf að
standa á eigin fótum. Í því felast
mikil tækifæri fyrir kirkjuna. Ég hef
fulla trú á því að kirkjan muni eflast
þó svo að skráðum félögum muni
sjálfsagt fækka þegar frá líður.
Langur ferill
Þegar að aðskilnaði ríkis og kirkju
kemur er mjög mikilvægt að slíkt
ferli fái að taka þann tíma sem þörf
er á. Skilgreina þarf ferlið vel og
ekki er ólíklegt að það taki 4–8 ár.
Ég tel að ríkiskirkjan þurfi ákveðinn
aðlögunartíma til þess að aðlaga
starf sitt breyttum aðstæðum.
Fara verður sérstaklega yfir þann
þátt er snýr að samningi ríkisins við
kirkjuna frá 1997. Sá samningur fól í
sér að ríkið yfirtók allar eigur kirkj-
unnar en skuldbatt sig til þess að
halda kirkjunni uppi um aldur og
ævi. Þessi samningur er að mínu
mati afar einkennilegur. Það getur
ekki staðist ströngustu löggjöf að
slík skuldbinding geti átt sér stað
óháð því hvert virði eignanna var.
Það merkilega er að slíkt var aldrei
reiknað út. Hvernig er þá hægt að
skuldbinda fjárútlát skattborg-
aranna á þennan hátt?
Hvað nú?
Ég á von á því að flutt verði a.m.k.
tvö frumvörp þegar í haust sem
koma inn á þessi mál. Í fyrsta lagi á
ég von á því að flutt verði frumvarp
um að vinna að aðskilnaði ríkis og
kirkju. Hitt frumvarpið mun taka á
því óréttlæti sem ég hef reifað í
grein minni þ.e. um sóknargjöld.
Það er von mín að þau verði tekin
á málefnaskrá og afgreidd. Ég tel
það Alþingi til vansa ef þessi mál
verða enn og aftur þögguð niður
með því að setja þau ofan í skúffur til
þess að þurfa ekki að afgreiða þau.
Ég vil taka undir orð fyrrverandi
formanns allsherjarnefndar Alþing-
is, Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur, frá því á seinasta þingi.
Þorgerður benti á að allsherj-
arnefnd ætti að taka til umfjöllunar
aðskilnað ríkis og kirkju til þess að
geta skilgreint áhrif aðskilnaðar
þegar til þess kæmi.
Ég vona einnig að þungavikt-
armenn ríkisstjórnarflokkanna eins
og Björn Bjarnason og Jónína Bjart-
marz láti af andstöðu sinni við þetta
mannréttindamál. Það væri ágæt
viðbót við frelsisbylgju íslensks
þjóðfélags undanfarinna tíu ára að
trúfelsi yrði staðfest með aðskilnaði
ríkis og kirkju.
Aðskilnaður ríkis og kirkju,
nokkur atriði til umhugsunar
Eftir Bjarna Jónsson
Höfundur er félagi í Siðmennt og
er áhugamaður um mannréttindi.
Kirkjustétt 18-20-22 OPIÐ HÚS
Sighvatur Lárusson
Sími 864 4615
sighvatur@remax.is
Nýbygging
Kirkjustétt 18-20-22, Grafarholti
Stærð: 196 m²
Byggingarefni: Steinhús
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
WWW.BUI.IS
Mjög skemmtileg raðhús á tveimur hæðum.
Húsin eru vel skipulögð - með fjögur svefnh.
niðri ásamt baðh., þvottah. og geymslu. Á efri
hæð er snyrtil. eldh., borðst. og stór stofa með
suðursvölum. Frábær hús á góðum stað innst í
botnlanga. Öll þjónusta í næsta nágrenni -
komið og skoðið í dag.
Elías H. Ólafsson
lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN BÚI
SLÉTTUVEGUR FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI
Mjög falleg um 70 fm 2ja herbergja íbúð á 3.
hæð í lyftublokk fyrir eldri borgara með glæsi-
legu útsýni til sjávar og yfir Kópavog. Eignin
skiptist í hol, baðherbergi, eldhús, stofu og sól-
stofu. Sérgeymsla á hæð. Mikil sameign, m.a.
líkamsræktaraðstaða, sturta, sauna og heitur
pottur ásamt aðgangi að fundarsal og veislus-
al. Húsvörður. V. 14,9 m. 3609
HÖRPULUNDUR
145 fm einbýlishús á einni hæð með tvöföld-
um 53 fm bílskúr, samt. 200 fm. Húsið stendur
á 1290 fm fallegri lóð innst í botnlanga og
skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú
svefnherbergi, baðherbergi, búr/þvottahús.
Húsið er nýlega múrað að utan en er ómálað.
Húsið er búið upphaflegum innréttingum og
gólfefnum. V. 22,5 m. 3704
EINARSNES - PARHÚS
Vorum að fá í sölu mjög fallegt og mikið end-
urnýjað 95 fm parhús í Skerjafirði. Húsið, sem
er á tveimur hæðum auk kjallara, skiptist m.a. í
stóra stofu og 1-2 herbergi. Svalir til suðurs.
Húsið stendur á sameiginlegri 1050 fm eignar-
lóð. Áhvílandi eru um 6,4 millj. V. 12,9 m.
3666
KRUMMAHÓLAR - „PENTHOUSE“
ÁSAMT BÍLSKÝLI
Góð 137 fm „penthouse“-íbúð á tveimur hæð-
um með glæsilegu útsýni til allra átta. Íbúðin
skiptist þannig: 2-3 stofur, 3 herbergi, 2 bað-
herbergi, eldhús, forstofa og hol. Stæði í bíla-
geymslu fylgir, ásamt sérgeymslu á hæðinni og
sameiginl. þvottahúsi í kjallara, frystiklefa o.fl.
V. 15,7 m. 3669
GALTALIND - M/BÍLSKÚR
Glæsileg 4ra herbergja 106 fm endaíbúð á 2.
hæð í fallegu húsi, ásamt 33,9 fm bílskúr sem
innangengt er í úr sameign. Stutt er í skóla og
leikskóla. Íbúðin er fullbúin í alla staði. Parket,
flísar og korkur eru á gólfum. Stórar svalir eru
út af eldhúsi. Upphituð hellulögn er fyrir fram-
an bílskúr. V. 18,9 m. 3710
BERGSTAÐASTRÆTI - ÞINGHOLT
Góð 4ra herb. 100 fm íbúð á 1. hæð í steinhúsi.
Íbúðin skiptist í tvær stofur og tvö herbergi,
nýlegt eldhús og nýlegt baðherb. V. 15,9 m.
3713
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR -
SKRIFSTOFUR EÐA TVÆR ÍBÚÐIR
146,9 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í nýlegu
húsi í miðbænum. Húsnæðið var upphaflega
teiknað sem tvær íbúðir 2ja og 3ja herbergja
og er skráð þannig skv. veðmálabókum, sem
tvær íbúðir og tveir eignarhlutar. Auðvelt væri
að breyta húsnæðinu í tvær samþykktar íbúðir.
Svalir eru meðfram suður- og vesturhlið húss-
ins. Sér geymsla og sameignar þvottahús fylgir
í kjallara. V. 19,5 m. 3703
FELLSMÚLI
Góð 3ja herbergja 94 fm íbúð með 25,4 fm bíl-
skúr í blokk sem verið að gera við að utan.
Undir bílskúrnum eru aðrir 25,4 fm sem hægt
er að nýta undir ýmislegt, s.s. útleigu. Íbúðin
skiptist í hol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö her-
bergi og baðherbergi. Fallegt útsýni. V. 14,5 m.
3670
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060 • www.stepp.is