Morgunblaðið - 26.10.2003, Side 44
DAGBÓK
44 SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Selfoss,
Bjarni Sæmundsson og
Árni Friðriksson
RE-200.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun eru Selfoss og
Ludvik Anderson
væntanleg.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Orlofs-
farar á Vestfirði í sum-
ar. Fimmtudaginn 30.
okt. kl. 14 verður mynd-
banda- og ljós-
myndasýning í Hraun-
seli. Takið með ykkur
myndirnar ykkar. Boð-
ið upp á kaffi. Ferða-
nefnd.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun vinnustofur
opnar frá kl. 9–16.30.
Frá kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug. Frá hádegi
spilasalur opinn. Kl.
15.15 danskennsla. All-
ar upplýsingar á staðn-
um og í síma 575 7720.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Námskeið í
Tai Chi, kínverskri leik-
fimi, hefst næsta þriðju-
dag, 28. október, kl. 12 í
Garðabergi. Kennt
verður á þriðjudögum
og fimmtudögum og
það kostar 2.000 kr. á
mánuði. Kennari er
Guðný Helgadóttir.
ITC Harpa. Fundur
verður þriðjudaginn 28.
október, kl. 20 á þriðju
hæð í Borgartúni 22.
Gestir velkomnir.
Tölvupóstfang ITC
Hörpu er itc-
harpa@hotmail.com,
heimasíða http://
www.life.is/itcharpa.
Nánari upplýsingar
gefur Guðbjörg í síma
553 0831
Hollvinir Ríkisútvarps-
ins. Aðalfundur sam-
takanna Hollvinir RÚV
verður haldinn í Nor-
ræna húsinu í dag
sunnudag 26. október
kl. 16. Allir áhugamenn
um málefni RÚV eru
velkomnir á fundinn.
Minningarkort
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykjavík.
S. 570 5900. Fax: 570
5901. Netfang: slysa-
varnafelagid@lands-
bjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-
8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581 og hjá Krist-
ínu Gísladóttur, s. 551-
7193 og Elínu Snorra-
dóttur, s. 561-5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16,
Reykjavík. Opið virka
daga kl. 9–17. S. 553-
9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningakort Breið-
firðingafélagsins, eru
til sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni s. 555-0383
eða 899-1161.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást
nú í Lyf og heilsu, versl-
unarmiðstöðinni Firði í
Hafnarfirði. Kortið
kostar 500 kr.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar
eru afgreidd á bæj-
arskrifstofu Seltjarn-
arness hjá Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
síma 552-4994 eða síma
553-6697, minning-
arkortin fást líka í Há-
teigskirkju við Háteigs-
veg.
Minningarkort Kven-
félags Langholts-
sóknar fást í Lang-
holtskirkju s. 520-1300
og í blómabúðinni
Holtablómið, Lang-
holtsvegi 126. Gíróþjón-
usta er í kirkjunni.
Minningakort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn s. 555 0104 og
hjá Ernu s. 565 0152
(gíróþjónusta).
Minningarkort ABC
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu
ABC hjálparstarfs í
Sóltúni 3, Reykjavík í
síma 561-6117. Minn-
ingargjafir greiðast
með gíróseðli eða
greiðslukorti.
Allur ágóði fer til hjálp-
ar nauðstöddum börn-
um.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Í dag er sunnudagur 26. októ-
ber, 299. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Móðir mín og bræður
eru þeir, sem heyra Guðs orð og
breyta eftir því.
(Lúk. 8,21).
Heimdellingar, ungirsjálfstæðismenn í
Reykjavík, kynntu til-
lögur sínar um nið-
urskurð ríkisútgjalda fyr-
ir fjárlaganefnd Alþingis
á fimmtudaginn. Þar er
lagt til að ríkið dragi
saman útgjöldin um 63
milljarða króna á næsta
fjárlagaári. „Við vonum
að tillögur okkar styrki
þá sem hafa þessa sýn í
brjósti og veiti mönnum
aðhald í útgjaldaaukn-
ingu ríkisins,“ sagði Atli
Rafn Björnsson, formað-
ur Heimdallar, þegar
hann afhenti tillögurnar
Magnúsi Stefánssyni, for-
manni fjárlaganefndar.
Athyglisvert er að ekkisé lagt til að hagrætt
sé í útgjöldum til heil-
brigðis- og menntamála.
Meira en helmingur allra
útgjalda ríkisins, sem eru
áætluð 273 milljarðar
samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi 2004, fara í
velferðar- og fræðslumál.
Það hlýtur því að vera
mikið svigrúm í þessum
málaflokkum til að gera
annað hvort; bæta þjón-
ustuna fyrir sama fjár-
magn eða veita sömu
þjónustu fyrir minni pen-
inga. Skipulags- eða kerf-
isbreyting ætti ekki að
vera hræðsluskref á þess-
um sviðum frekar en öðr-
um.
Í þessum tillögum felstað ríkið hætti af-
skiptum af mörgum verk-
efnum. „Við erum ekkert
endilega á móti öllum
þessum hlutum, sem við
leggjum til að verði spar-
að í, heldur er yfirskrift
okkar að treysta eintak-
lingunum til að ráðstafa
fjármunum og reka mikið
af þeim stofnunum sem
ríkið er að vasast í,“
sagði Atli Rafn í samtali
við Morgunblaðið. Það er
líka rökrétt að líta þannig
á málin, að telji borgarar
þörf á að tilteknum verk-
efnum sé sinnt, þá verði
þeim sinnt af þeim sjálf-
um.
Heimdellingar segjaeinstaklinga líka full-
færa um að sinna mik-
ilvægum verkefnum á
frjálsum markaði og án
opinberrar íhlutunar með
styrkjum úr sjóðum
skattgreiðenda. Um-
hverfi sem byggi á frjáls-
um viðskiptum, jafnrétti,
einföldum og sann-
gjörnum leikreglum, sé
betur til þess fallið að
sinna þörfum einstakling-
anna.
Magnús Stefánssonsagði við þetta tæki-
færi að það væri prakt-
ískara á allan hátt að fá
þessar tillögur áður en
ráðist væri í gerð fjár-
lagafrumvarpsins. Magn-
ús getur auðvitað kynnt
sér niðurskurðartillögur
síðustu ára. Fjár-
málaráðherra hefur líka
fengið þessar tillögur
undanfarin ár. Svo má
spyrja Magnús: Er bara
hægt að auka útgjöld í
fjárlagafrumvarpinu en
ómögulegt að draga úr
þeim?
STAKSTEINAR
Bara hægt að auka út-
gjöld í fjárlagafrumvarpi
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er nýkominn úr ferða-lagi um Brussel. Borgin kom
skemmtilega á óvart, sennilega að
hluta til af því að fyrirfram hafði
Víkverji nú ekki gert sér neinar
væntingar um staðinn.
Brussel hefur hingað til verið
þekktust í huga Víkverja og hans
kunningja sem miðpunktur Evrópu-
mála. Þá hafði Víkverji reyndar oft
heyrt talað um ölmenningu borg-
arinnar. Víkverji sá því fyrir sér að
borgin væri stappfull af jakkafata-
klæddu skrifstofufólki sem starfaði
í háhýsum. Þetta reyndist auðvitað
vera mesta firra og héðan í frá mun
Víkverji ekki síður mæla með borg-
arferðum til Brussel en til Prag eða
Búdapest.
x x x
MIÐBÆR Brussel er einmittpasslega stór fyrir stuttar
borgarferðir. Þar er fjölbreytt úrval
veitingastaða og verslanir í öllum
verðflokkum. Ekki má gleyma því
að Íslendingasamfélagið í Brussel
er stórt og á eflaust eftir að fjölga í
þeirra hópi á næstu árum frekar en
hitt. Víkverji er því mest hissa á því
að Flugleiðir sjá ekki hag sinn í því
að fljúga beint til Brussel eða að
Heimsferðir eða aðrar ferðaskrif-
stofur hefji þangað skipulagðar
borgarferðir. Af nógu er að taka í
borginni hvað varðar menningu og
listir og þegar ofantalin atriði eru
lögð saman er fyllsta tilefni til að
kynna Brussel sem fýsilegan við-
komustað á ferðalagi um Evrópu.
x x x
TALANDI um menningu, eins ogsönnum Íslendingum sæmir
tóku ferðafélagar Víkverja sig til og
sóttu karaókíbar í Brussel eitt
kvöldið í vikunni. Víkverja finnst
stundum helst til miklir fordómar
út í þessa gefandi iðju þó að gildi
hennar sem afþreyingar hljóti að
vera mönnum löngu ljóst. Íslend-
ingar hafa nefnilega í gegnum ára-
tugi og aldir sungið saman á manna-
mótum og því frekar furðulegt að
þeir fordæmi karaókíbari. Flestir
virðast þó hafa lúmskt gaman af
karaókí og það átti sannarlega við
um ferðafélaga Víkverja.
x x x
VÍKVERJI er svo hrifinn af þessufyrirbæri að hann vildi helst
leggja til að karaókíkerfum verði
komið upp í öllum skólum, í það
minnsta félagsmiðstöðvum. Með því
að stíga á svið og njóta „fimm mín-
útna frægðar“ í vina- eða vinnu-
félagahópnum er margt unnið, ísinn
brotinn og endalaust hægt að ræða
frammistöðuna. Víkverji hefur
sjálfur orðið vitni að mögnuðum
töktum kunningja með míkrafón í
hendi. Litlu máli skiptir hvort rödd-
in og tilþrifin séu til þess fallin að
koma þeim áfram í tónlistarheim-
inum, skemmtanagildið er eitt í fyr-
irrúmi.
Reuters
ELÍN Sigurðardóttir
beinir penna sínum gegn
mér 22. október vegna
skrifa minna í Velvakanda
18. október. Hún efast um
að ég sé kristin og segir
það auðsýnilegt að aldrei
hafi ég opnað Biblíuna.
Hún vill fullvissa mig um
að það sé ekki guðs vilji að
miðlar kalli fram framliðna.
Elín ætti að spyrja sjálfa
sig fyrst að því hvort hún sé
kristin. Og hafi hún opnað
hina umdeildu bók, Biblí-
una, hefur hún varla lesið
nógu vel í henni því það
stendur í Biblíunni að fólk
hafi leitað til spámanna. Ég
hef orðið vitni að krafta-
verkum þegar fólk hefur
leitað til miðla þegar öll
sund eru lokuð.
Ég vil segja Elínu að það
er mikil guðsgjöf að hafa
hæfileika til að geta hjálpað
öðrum. Gerum því ekki lítið
úr því fólki sem guð hefur
sent okkur til hjálpar.
Krossfestum það ekki,
hvorki huglægt né með
pennanum.
Auðsýnum kristilegan
kærleika.
Sigrún Á. Reynisdóttir.
skerðingu á atvinnuleysis-
bótum.
Með þessu draga þeir at-
hyglina frá skattlagningu,
m.a. á neikvæðri ávöxtun
sparifjár almennings og
þegar eignir þjóðarinnar
eru gefnar völdum fjöl-
skyldum sem beita þeirri
tækni sem Óli í Olís við-
hafði við kaup sín á félag-
inu. Þetta tekur til opin-
berra eigna, verksmiðja og
banka.
Einar Vilhjálmsson.
Tapað/fundið
Poki týndist
í Kringlunni
POKI merktur versluninni
Next í Kringlunni týndist í
Kringlunni um kl. 18 sl.
miðvikudag. Í pokanum
voru tvær dökkbláar
barnaúlpur og röndóttar
húfur. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 866 1660.
Fundarlaun.
Geislaspilari og
diskar týndust
HINN 15. júlí sl. kom 11
ára drengur með flugi frá
Ísafirði og var hann á leið
til ömmu sinnar í Reykja-
vík. Hann hafði með sér
geislaspilarann og
geisladiskana sína í
svartri tösku. Einhverra
hluta vegna tapaði hann
töskunni sinni á leiðinni,
líklega í flugvélinni, flug-
stöðinni, strætóskýlinu,
við flugstöðina eða í
strætisvagni leið 5 frá
flugstöðinni inn í Laugar-
nes. Töskunnar er sárt
saknað.
Sá sem hefur fundið
töskuna eða fengið hana
afgreidda í flugstöðinni
er vinsamlega beðinn að
hafa samband í síma
553 6396, 895 6395,
568 9628 eða 860 2811.
Hjól í óskilum
HJÓL fannst á Ártúns-
holti.
Upplýsingar í síma.
587 5208, 865 2470 og
587 9414.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Auðsýnum
kristilegan
kærleika
Morgunblaðið/Ásdís
Fyrirspurn
VEGNA greinar á bls. 16 í
Morgunblaðinu sl. fimmtu-
dag um kjötvinnslu vil ég
koma á framfæri ósk minni
um að Dalaland í Búðardal
komi sér upp aðstöðu til að
selja heila og hálfa skrokka
(grillskorið) á höfuðborgar-
svæðinu.
Neytandi.
Deyfa sársauka
almennings
ALÞINGISMENN og ráð-
herrar hafa löngum beitt
nálarstungumeðferð til
þess að deyfa sársauka al-
mennings, af aðferðum í
efnahags- og velferðarmál-
um, með því að velja að
þræta um rjúpnaveiði og
LÁRÉTT
1 stökks, 4 lækurinn, 7
andinn, 8 hindri, 9 tölu-
stafur, 11 keyrir, 13 lipri,
14 skattur, 15 gjamm, 17
legstaður, 20 ílát, 22
draugs, 23 viðurkennir,
24 dreg í efa, 25 mál-
gefið.
LÓÐRÉTT
1 jarðsetja, 2 smástrákur,
3 bráðum, 4 voru und-
irgefin, 5 tölustaf, 6 synji,
10 Asíulands, 12 hlaup,
13 námsgrein, 15 örð-
ugur, 16 hvass, 18 óheil-
brigt, 19 útslitið, 20 fífl,
21 skilmálar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 gullvægur, 8 ragur, 9 illur, 10 kæn, 11 karri,
13 ganga, 15 spell, 18 sterk, 21 íla, 22 raust, 23 grípa, 24
ruglingur.
Lóðrétt: 2 uggur, 3 lerki, 4 æsing, 5 ullin, 6 brák, 7 gróa,
12 ræl, 14 art, 15 sorp, 16 efuðu, 17 lítil, 18 sagan, 19 El-
ínu, 20 klak.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16