Morgunblaðið - 20.11.2003, Side 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FJÓRIR útlendingar á pallbíl
sluppu ótrúlega vel í bílveltu ná-
lægt Hellu í gær.
Mikil hálka var á Suðurlands-
veginum þar sem slysið varð og
kastaðist einn fjórmenninganna
úr úr bílnum. Enginn slasaðist
þó alvarlega en allir fengu lækn-
isskoðun á Hellu. Bíllinn er mik-
ið skemmdur og var dreginn á
brott með kranabíl.
Kastaðist út
úr bílnum
KOMIÐ hefur í ljós að skemmd-
irnar á Urðarvita í Vestmanna-
eyjum fyrir skömmu voru ekki af
mannavöldum heldur náttúrunnar.
Þrír starfsmenn Siglingastofnunar
komu til Eyja og staðfestu þeir að
elding hafi laskað vitann. Sigurður
Sigurðarson, einn starfsmannanna,
sagði að aðkoman hafi verið heldur
ljót. „Glerið var allt sprungið utan
af, um er að ræða fjórtán millí-
metra plexigler sem var í molum og
það hefði enginn brotið nema með
mjög öflugu verkfæri.“ Auk þess
sagði Sigurður að glerið hafi allt
sprungið út. Rafmagnstöflurnar
voru allar ónýtar og raunar í frum-
eindum og slíkur hefur krafturinn
verið að spennistöð fyrir vitann
sem er í um kílómetra fjarlægð
skemmdist einnig. „Hurðin var
gengin út að neðan og nokkur
brunagöt voru á klæðningunni. Við
teljum okkur vita hvar eldinguna
sló niður og er þar járnstykki
bráðnað. Aðspurður hversu mikið
tjónið er sagði Sigurður ómögulegt
á þessari stundu að nefna einhverja
tölu. Þeir ætla þó ekki að vera lengi
að koma honum aftur í gagnið.
„Það tekur okkur um tvo daga að
laga hann. Við verðum að flýta okk-
ur, það eru 140 vitar um allt land
sem við þurfum að laga og það er
nóg að gera í því.“ Sigurður sagði
að í sjálfu sér geti menn hrósað
happi yfir eldingunni. „Þá er alla
vega hægt að útiloka skemmd-
arverk af mannavöldum og ég segi
nú sem betur fer,“ sagði Sigurður.
Það voru fleiri sem urðu varir við
eldingar þessa nótt. Sigurður Al-
freðsson var á vakt í Sorpu aðfara-
nótt 5. nóvember þegar ósköpin
dundu yfir. „Það var búið að vera
mikið um þrumur þessa nótt en um
hálftvö var eins og jarðskjálfti
hefði riðið yfir. Húsið lék á reiði-
skjálfi og gríðarlegur hávaði sem
fylgdi með. Það sló öllu strax út og
það blossaði út úr rafmagnstöflunni
hjá okkur.“ Sigurður sagði að eftir
eldingarnar hafi fylgt gríðarleg úr-
koma, fyrst rigning og svo haglél.
„Ég brunaði niður í bæ og það sull-
aði upp úr öllum niðurföllum sem
höfðu ekki undan ósköpunum.“
Spurður um skemmdir á Sorpu
sagði hann að eldvarnarkerfið hefði
eyðilagst hjá þeim sem og eftirlits-
myndavélar. „Það vantar hreinlega
stykki í brettið inni í eldvarn-
arkerfinu og það er allt brunnið yf-
ir.“
Skemmdir á Urðarvita í Eyjum vegna eldingar en ekki af manna völdum
Þrír starfsmenn vitasviðs Siglingastofnunar vinna að viðgerð á Urðarvita.
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið
Húsið lék á reiðiskjálfi
Í FRÉTT breska blaðsins Financial
Times í gær er því haldið fram að hús-
leit starfsmanna skattrannsókna-
stjóra hjá Baugi Group og Gaumi á
mánudaginn sé til komin vegna skatt-
legrar meðferðar á kaupréttarsamn-
ingum við stjórnendur fyrirtækisins.
Húsleitinni hafi þó verið frestað í
nokkra daga svo Baugur Group gæti
gengið frá kaupunum á Oasis-keðj-
unni.
„Íslensk skattayfirvöld hafa hrund-
ið af stað nýrri rannsókn á hendur
fjárfestingafélaginu Baugi Group,
sem um helgina keypti bresku tísku-
vöruverslunarkeðjuna Oasis, en mál
félagsins hafa nú verið til rannsóknar
í eitt ár,“ segir í upphafi fréttarinnar.
Þar segir og að málefni félagsins
hafi verið til rannsóknar hjá skatta-
yfirvöldum á Íslandi frá því í ágúst í
fyrra vegna fullyrðinga um að fé fyr-
irtækisins hafi verið notað til þess að
kaupa skemmtisnekkju. „Upplýsing-
ar sem fengust í þeirri rannsókn, sem
þó er ekki enn lokið, eru taldar hafa
valdið því að skattayfirvöld létu nú til
skarar skríða á nýjan leik gegn fyr-
irtækinu,“ segir Financial Times.
Financial Times skrifar
um málefni Baugs Group
Húsleit var
gerð vegna
kaupréttar-
samninga
ÞRÁTT fyrir aukna veiði á bæði mink og ref á
undanförnum árum virðist sem ref hafi fjölgað
nokkuð og mink að einhverju leyti einnig og er
full ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri þróun,
að mati Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra, en hún kynnti í gær aðgerðir ráðuneyt-
isins til þess að takmarka stofnstærð refs og
minks . Árið 1996 voru veiddir tæplega þrjú þús-
und refir og liðlega 5.700 minkar en veiðin í ár er
áætluð um 4.900 refir og um 7.500 minkar.
Heildarkostnaður ríkis- og sveitarfélaga
vegna veiða á mink og ref er áætlaður liðlega 100
milljónir á þessu ári og hefur hann vaxið umtals-
vert og fram kom í máli umhverfisráðherra á
fundi með blaðamönnum að hún teldi þennan
kostnað ærinn og því væri ástæða til að skoða
hvort ekki mætti ná fram meiri árangri í veið-
unum fyrir þetta fé. Þá taldi Siv koma til greina
að skoða hvort skynsamlegt sé að viðhalda friðun
á ref á Hornströndum. Áki Ármann Jónsson, yf-
irmaður veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnun-
ar, taldi nátturulegar stofnsveiflur og eins hlýn-
andi veðurfar geta skýrt fjölgun refs og minks,
sveiflur í stofnstærð gætu vissulega verið mikl-
ar.
Vaxandi umræða um minka- og
refastofna í kjölfar veiðibanns
Siv sagði umræðu um stærð stofnanna hafa
orðið meira áberandi og ráðuneytinu hefðu bor-
ist áskoranir frá ýmsum hagsmunaaðilum, s.s.
Bændasamtökunum, æðarbændum, Samtökum
verslunar og Landssambandi veiðifélaga, um að
tekið yrði með markvissari hætti á veiðum og
veiðiaðferðum á mink og ref.
„Það er er mikil skaðsemi af bæði ref og mink
á fugl og varplönd þeirra, á rjúpuna og sömuleið-
is á fiskveiðisvæði. Þessi umræða flýgur núna
líka út af ástandinu á rjúpnastofninum og banni
við veiðum á rjúpu og m.a. þess vegna viljum við
halda minka- og refastofninum niðri.“
Ráðherra tók þó fram að gera yrði greinar-
mun á dýrategundunum tveimur þar sem önnur
væri innflutt og talin til meindýra en refurinn
væri á hinn bóginn eina innfædda spendýrið á Ís-
landi og honum þyrfti að fækka en ekki útrýma.
Því hefði verið ákveðið að skipa tvær nefndir,
refa- og minkanefnd. Ráðherra sagði þegar búið
að skipa menn í minkanefndina og gert væri ráð
fyrir að hún myndi skila af sér tillögum í febrúar
á næsta ári og þá m.a. um útbreiðslu hans, stofn-
stærð og tjón og eins tillögum um hvernig
standa skuli að veiðum á minknum og hvort og
hvernig mætti takmarka útbreiðslu hans eða út-
rýma honum úr náttúru Íslands. Búið væri að
óska eftir tillögum í refanefndina og gert ráð fyr-
ir að hún gæti skilað tillögum í apríl á næsta ári.
Umhverfisráðherra kynnir aðgerðir til að takmarka stofnstærð minka og refa
Fjölgun þrátt fyrir aukna veiði
VANSKIL við Íbúðalánasjóð hafa
minnkað undanfarin fjögur ár þótt
lánum hafi fjölgað og heildarláns-
fjárhæð hækkað um rúm 87%. Á
sama tíma eru lántakendur tólf þús-
und fleiri og eru nú tæp 75 þúsund.
Í dag er 2.421 lántakandi með lán í
vanskilum og er það 3,2% allra lán-
takenda Íbúðalánasjóðs, en þetta
hlutfall var 4,8% í janúar árið 2000.
Þau lán sem eru í vanskilum nema
0,27% af öllum útlánum sjóðsins og
var sama hlutfall 0,4% fyrir fjórum
árum.
Það vekur athygli að þeir sem taka
viðbótarlán, það er 90% lán, standa
betur í skilum en aðrir. Að meðaltali
eru 0,13% heildarlána þeirra í van-
skilum en sama hlutfall er 0,27% ef
miðað er við alla viðskiptavini Íbúða-
lánasjóðs eins og áður sagði.
Þeir sem taka viðbótarlán eru með
16% allra útlána eða 70 milljarða
króna en alls nema lán Íbúðalána-
sjóðs 432 milljörðum.
Vanskil við
Íbúðalána-
sjóð minnka
! "
#
! " #$ "
$ !
%$
&# ' %
! (
" )* +
,-. $ "
/"" +-.
,
,
.
„VIÐ vonum að við getum glatt
alla og allir fái sinn völl,“ segir
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari ung-
mennalandsliðsins í knattspyrnu
og stjórnandi sparkvalla- og út-
breiðsluátaks Knattspyrnu-
sambands Íslands, en KSÍ stefnir
að því í samvinnu við aðra að
reisa um 40 sparkvelli á skólalóð-
um vítt og breitt um landið á
næstu tveimur árum og er mikill
áhugi á verkefninu. Upplýsinga-
handbók um vallagerðina verður
tilbúin um áramót og verður hún
send öllum bæjar- og sveit-
arfélögum, sem geta þá sótt um
að fara í samstarf með KSÍ um
framkvæmdina.
KSÍ gaf út bækling um spark-
velli fyrir um fimm árum og síð-
an hafa nokkrir vellir verið
byggðir. Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, segir mjög
mikilvægt að rétt sé staðið að
framkvæmdum, ekki síst með ör-
yggi í huga, en því miður hafi
ekki allir í Reykjavík fylgt ábend-
ingum sambandsins í því efni og
bendir hann til dæmis á í því
sambandi að mikilvægt sé að
mörkin séu inni í girðingunni um-
hverfis völlinn. Mannvirkjanefnd
KSÍ vinni nú að því að gera upp-
lýsingahandbók um hvernig
standa eigi að málum og eftir
kynningu á henni verði hægt að
gera samninga við bæjar- og
sveitarfélög og hefjast handa, „en
þörfin og áhuginn á verkefninu
er miklu meiri en við getum sinnt
í fyrsta áfanga,“ segir hann.
Í tilefni 50 ára afmælis Knatt-
spyrnusambands Evrópu hefur
verið ákveðið að hvert samband
innan UEFA fái milljón sviss-
neska franka, um 57 milljónir
króna, til að byggja sparkvelli, að
því tilskildu að margfalt hærri
upphæð fari í framkvæmdirnar.
KSÍ lítur til fjárhagsnefndar Al-
þingis, stuðnings frá helstu
styrktaraðilum sambandsins og
bæjaryfirvalda í því efni og von-
ast er til að um 150 til 200 millj-
ónir verði til skiptanna í fyrsta
áfanga.
Mikil þörf fyrir svona velli
„Með þessu erum við bæði að
byggja upp unglingastarfið og
um leið að sinna ákveðnu for-
varnarstarfi,“ segir Eyjólfur og
vísar til þess að þörfin fyrir
svona velli sé mikil og á Sauð-
árkróki, sínum heimabæ, sé til-
tölulega nýr sparkvöllur upptek-
inn frá morgni til kvölds.
Gert er ráð fyrir að vellirnir
verði um 16x27 m stórir og þar
með heppilegir fyrir leiki fimm
manna liða. KSÍ sér um gervi-
grasið og lagningu þess og segir
Eyjólfur að lögð verði áhersla á
fyrsta flokks gras sem UEFA við-
urkenni. Kostnaður sveitarfélag-
anna felst hins vegar í undirbún-
ingsvinnu, undirlagi og það helst
með hita, girðingu með mörkum
og lýsingu. „Við stefnum á um 40
velli í fyrsta áfanga,“ segir Eyj-
ólfur, „og spá mín er að á næstu
fimm árum verði byggðir svona
sparkvellir í flestum sveitar- og
bæjarfélögum á Íslandi,“ bætir
Geir við. „Þetta er það sem þarf
við skóla landsins.“
Mikill áhugi er um allt land á sparkvöllum KSÍ á skólalóðum
Vonumst til að geta glatt alla
Ljósmynd/Jóhann G. Kristinsson
Óskar Björnsson skólastjóri og Eyjólfur Sverrisson, umsjónarmaður
sparkvallaátaks KSÍ, á sparkvellinum við Árskóla á Sauðárkróki sem var
byggður í fyrra samkvæmt leiðbeiningum frá Knattspyrnusambandinu.