Morgunblaðið - 27.12.2003, Blaðsíða 25
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 25
✝ Alice Ege Larsenfæddist í Dan-
mörku 11. desember
1943. Hún lést á
Landspítalanum hinn
9. desember síðast
liðinn. Foreldrar
hennar voru Karen
Elisabet Gíslason, f.
17.11. 1916, og Viggo
K. Larsen. f. 6.4.
1917, d. 1949. Systk-
ini Alice eru Flemm-
ing K. Larsen, f. 9.10.
1939, og Kathi Ege
Larsen, f. 28. 9. 1941,
d. 1988.
Sonur Alice með Ingva Ólafs-
syni, f. 1938, d. 1964, er Ingvi Sæv-
ar Ingvason, f. 4.3. 1964. Dóttir
Alice með John Hammond Grant,
f. 5.9. 1943, d. 1986,
er Janet Ege Grant,
f. 20.7.1967. Barna-
börn Alice: Börn
Ingva Ingvasonar
með Maríu Sigurðar-
dóttur, f. 8.8. 1962,
eru Karen Elísabet
Særún, f. 30.7. 1985;
Astrid Lisa, f. 26.11.
1986; Ingvi Ólafur, f.
16.3. 1993. Börn Jan-
etar Grant með Jose
Maria Corado Pa-
lomo, f. 31.8. 1963,
eru: Ástþór Mario
Corado Grant, f.
10.10. 1989; og Monica Ósk Cor-
ado Grant, f. 18.12. 1992.
Útför Alice Ege var gerð í kyrr-
þey.
Fyrir næstum þremur árum,
annan í jólum, hitti ég Alice fyrst
heima hjá ömmu Karen í Mið-
túninu.
Ég kom ásamt Ingva syni henn-
ar, sem vildi kynna mig fyrir
mömmu sinni og ömmu. Það hafði
verið eldað hangikjöt með öllu og
okkur boðið að borða með. Mér var
tekið opnum og ástríkum örmum af
Alice sem geislaði á sinn einstaka
hátt. Hún var brosleit og glettin og
gantaðist í syni sínum og mér.
Eftir þessi fyrstu kynni hittumst
við ekki svo oft, en þó nokkru sinn-
um og þá hjá ömmu, þar sem ég
var ávallt velkomin með mín börn.
Fyrir u.þ.b. tveimur árum festi
Alice kaup á lítilli íbúð á Freyju-
götu hér í Reykjavík og þá varð
vinskapur okkar nánari. Þrátt fyrir
mótbyr og erfiða lífsbaráttu áranna
á undan var hún ekki á því að gef-
ast upp. Hún hélt ótrauð áfram með
von í hjarta um betra líf. Hún
hreiðraði fallega um sig í nýju íbúð-
inni og var yndislegt að vita og sjá
hve samviskusamlega hún hugsaði
um sig og sína. Heimilið var ávallt
hreint og fallegt, því hún var með
eindæmum þrifin. Heimili hennar
stóð mér ávallt opið og það var auð-
fundið hve yndisleg mannvera Alice
var. Hún var sérlega gjafmild og
góðhjörtuð og var mér alltaf boðið
að borða og leyft að vera eins og
heima hjá mér og heima hjá Alice
var ekkert eðlilegra. Ég verð henni
ævarandi þakklát fyrir það. Ófáar
voru komur mínar til hennar með
Ingva og fannst mér enginn í heim-
inum skilja nema hún hve heitt
væri hægt að elska. Hún hafði
kynnst ástinni í lífinu og var það
falleg tilfinning sem hún var einkar
næm á.
Alice var með spádómsgáfu og
spáði í spil og bolla fyrir þá er vildu
og hafði gaman af.
Það er ekki svo langt síðan Alice
greindist með illkynja æxli í báðum
lungunum og var það mikið áfall
fyrir hana og hennar nánustu. Dótt-
ir hennar Janet stóð með mömmu
sinni hvern einasta dag í baráttunni
við sjúkdóminn. Þegar sjúkdómur-
inn var langt genginn var hún ekki
að kvarta. Hún var viss um að þetta
mundi lagast. Í lok nóvember var
hún komin í jólaskap og vildi strax
skreyta hjá sér. Hún var sannkallað
jólabarn og hlakkaði til jólanna. Um
daginn minntist hún gamlárskvölds-
ins í fyrra við mig og óskaði þess að
þannig yrði það aftur. Því miður
naut Alice ekki 60 ára afmælisins
síns sem var núna 11. desember,
ekki líðandi jóla og síðasta dags
ársins með okkur sem elskuðum
hana, en hún verður örugglega með
okkur í anda að fylgjast með öllu.
Ég vil fá að nota tækifærið hér og
koma þakklæti á framfæri til hjúkr-
unarþjónustunnar Karitas og hjúkr-
unarfólks Landspítalans fyrir djúp-
an skilning og samúð.
Megir þú hvíla í friði, elsku Alice
mín, og takk fyrir að vera mér
svona góð. Guð blessi ömmu Karen,
Ingva og Janet sem nú eiga um
sárt að binda.
Þín vinkona
Halla.
ALICE EGE
LARSEN
Jólamessa
Kvennakirkjunnar
í Háteigskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur jóla-
messu í Háteigskirkju sunnudaginn
28. desember kl. 20.30. Séra Auður
Eir Vilhjálmsdóttir prédikar, barn
verður borið til skírnar, Anna Pál-
ína Árnadóttir syngur einsöng og
Hallfríður Ólafsdóttir leikur á
flautu. Kór Kvennakirkjunnar leið-
ir almennan söng á jólalögum við
undirleik Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur. Á eftir verður kaffi í safn-
aðarheimilinu.
Messur Kvennakirkjunnar eru
öllum opnar. Njótum jólagleðinnar
á rólegu sunnudagskvöldi milli há-
tíðanna.
Guðsþjónusta
Ellimálaráðs Reykja-
víkurprófastsdæma
Á LIÐNUM árum hefur skapast sú
venja að eldri borgarar í Reykja-
víkurprófastsdæmum sameinist í
guðsþjónustu um jólin.
Að þessu sinni verður guðsþjón-
ustan þriðjudaginn 30. desember
kl. 14:00 í Grafarvogskirkju.
Prestar eru sr. Ragnar Fjalar
Lárusson fv. prófastur og sr. Vigfús
Þór Árnason sóknarprestur. Ung-
lingakór Grafarvogskirkju syngur
og leiðir almennan söng undir
stjórn Oddnýjar Þorsteinsdóttur.
Organisti er Hörður Bragason.
Eftir guðsþjónustuna eru kaffi-
veitingar í boði sóknarnefndar
Grafarvogskirkju.
Guðsþjónustan er samstarfsverk-
efni Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma og Grafarvogs-
sóknar. Allir eru velkomnir.
Áramót í
Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN milli jóla og ný-
árs 28.des. verða tvær athafnir,
messa kl. 11 í umsjá dr. Sigurðar
Árna Þórðarsonar og Jólasöngvar
og lestrar á jólum kl. 17.00.
Dagskráin er byggð á ensku fyr-
irmyndinni Nine Lessons and Car-
ols, þar sem vinsælir jólasálmar eru
sungnir á milli þess sem valdir stað-
ir úr Biblíunni eru lesnir. Öllum
söngvinum er boðið að taka þátt í
kórsöngnum. Æfingin fer fram í
Hallgrímskirkju kl. 15 sama dag.
Stjórnandi kórsins er Hörður Ás-
kelsson, kantor. Lesarar verða á
öllum aldri og úr ýmsum starfs-
greinum kirkjunnar. Síðasta lest-
urinn les biskup Íslands Karl Sig-
urbjörnsson, sem einnig flytur
blessun.
Á gamlárskvöld hefst hátíðin
með Hátíðarhljómum við áramóti
kl. 17. Flytjendur verða: Ásgeir H.
Steingrímsson trompet, Eiríkur
Örn Pálsson trompet og Hörður Ás-
kelsson orgel.
Að tónleikum loknum verður aft-
ansöngur kl. 18 í umsjá sr. Jóns D.
Hróbjartssonar. Mótettukórinn
syngur undir stjórn Harðar Áskels-
sonar. Einsöng syngur Eyjólfur
Eyjólfsson tenór.
Á nýársdag verður hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14 í umsjá sr. Sigurðar
Pálssonar, en hann hefur verið í
námsleyfi í allt haust og hefur nú
störf að nýju. Mótettukórinn syng-
ur undir sjórn Láru Bryndísar Egg-
ertsdóttur organista.
MINNINGARGREINUM í
Morgunblaðinu hefur fjölgað
verulega á undanförnum árum.
Til að öllu efni Morgunblaðsins
verði haganlega fyrir komið
reynist nauðsynlegt að setja
minningargreinum, sem og öðru
efni, ákveðin lengdarmörk. Því
hefur verið ákveðið að fyrir utan
aðalgrein verði aðrar greinar
1.500 slög (með bilum), sem eru
um 50 línur í blaðinu (17 dálk-
sentimetrar) og í kringum 300
orð.
Hinsta kveðja
– nýtt form
Jafnhliða þessu verður tekin
upp nýjung sem kölluð er
HINSTA KVEÐJA þar sem
hægt verður að senda örstutta
kveðju (5–15 línur), þegar það á
við. Þetta form á við þegar votta
á virðingu án þess þó að það sé
gert með langri grein (sjá sýn-
ishorn).
Lengd minningargreina
Hæfileg lengd. Til þess að sjá
lengd minningargreinar í t.d.
Word-ritvinnslu, þá er valið
Tools-valblaðið og síðan Word
Count. Þá opnast þessi upplýs-
ingagluggi og sýnir orðafjöldann
(Words); slagafjölda án orðabila
(Characters (no spaces)); slaga-
fjölda með orðabilum (Characters
(with spaces)): 1.500.
g
fa
g
n
ar
n
k,
a
ð-
m
g
m
n-
r
r
ð
r-
i.
m
r-
n-
í
ar
l-
u
í
ð
ð-
gg g
Sú hugsun að svo kynni að fara var
manni þó oftast fjarri, svo mikill var
lífsþróttur hennar, hugurinn vökull
og atorkan óbilandi.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj.
lkasdjf laksjf laks jdf.
Laksdjælaskdjfæalskjfaæls
kdjfaæl sk djfalæs kd.
Jón Jónsson og
Jónína Jónsdóttir
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs
kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh
dfgh dfgh dfh fdgh.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
HINSTA KVEÐJA
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina
Morgunblaðið/Ásdís
Morgunblaðið/Sverrir
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upp-
lýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helg-
ar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga kl. 8–24. Sími 564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trún-
aði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjald-
frjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að
tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
ÞJÓNUSTAN/KIRKJUSTARF