Morgunblaðið - 27.12.2003, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 27.12.2003, Qupperneq 31
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 31 R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R INánari upplýsingar á www.fujifilm.is S k i p h o l t i 3 1 , R e y k j a v í k , s : 5 6 8 0 4 5 0 ı K a u p v a n g s s t r æ t i 1 , A k u r e y r i , s : 4 6 1 2 8 5 0 M y n d s m i ð j a n E g i l s s t ö ð u m ı F r a m k ö l l u n a r þ j ó n u s t a n B o r g a r n e s i ı F i l m v e r k S e l f o s s i Fujifilm stafrænar myndavélar, framúrskarandi myndgæði – frábært verð. MYNDARLEGT TILBOÐ 3.24 milljón virkir dílar. Ljósnæmi ISO 100. 6x aðdráttarlinsa (38-228mm). Hægt að fá víðvinkil (30mm) og enn meiri aðdrátt (342mm). Tekur allt að 200 sek kvikm. með hljóði. Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30 sek á hverja mynd. Notar nýju x-D minniskortin. Hægt að taka allt að 300 skot á venjulegar AA Alkaline rafhlöður! Allt sem þarf til að byrja fylgir Verð kr. 59.900,- S304 4 kynslóð af Super CCD HR. 3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að 2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla! Fjöldi myndatökumöguleika; s/h, króm, runur osfrv. Ljósnæmi ISO 200-800. 3x aðdráttarlinsa (38-114mm) auk stafræns aðdráttar. Með F hnapp sem auðveldar allar myndgæða stillingar. Tekur kvikmyndir 320x240 díla, 10 rammar á sek., upp í 120 sek í einu. Hægt að tala inn á myndir. Lithium Ion hleðslurafhlaða og hleðslutæki fylgir. Notar nýju X-D minniskortin. 165 g án rafhlöðu. Verð kr. 49.900,- F410 4 kynslóð af Super CCD HR. 3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að 2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla! Ljósnæmi ISO 100/200/400/800 (800 í 1M). 3x aðdráttarlinsa (38-114mm). Hægt að taka allt að 250 skot á venjulegar AA Alkaline rafhlöður! Tekur allt að 120 sek kvikmynd (án hljóðs). Notar nýju x-D minniskortin. Hægt að fá vöggu. Allt sem þarf til að byrja fylgir. 155 g án rafhlöðu. Verð kr. 35.500,- A310 Ný send ing komin Framkö llun á 25 sta frænum myndum fylgir hv erri seldri m yndavél í septem ber! ÖSKJUHLÍÐARSKÓLI í Reykja- vík er öðruvísi grunnskóli. Sér- staða nemendanna felst í því að þeir eru þroskaheftir og þurfa sér- hæft skólaúrræði fötlunar sinnar vegna. Þeirra bíður annars konar lífshlaup en ófatlaðra jafnaldra þeirra og á margan hátt erfiðara vegna þess hve háð þau eru ut- anaðkomandi aðstoð okkar sem ófötluð teljumst. Virðing fyrir þeim sem einstaklingum og skilningur á aðstæðum þeirra er grundvöllur þess að þau geti notið sín og þrosk- að hæfileika sína til innihaldsríks lífs. Fjölskyldur þessara barna hafa upplifað bæði gleði og sorgir tengdar fötlun barna sinna. Sorg- ina yfir fötluninni og þeirri stað- reynd að börnin okkar eiga ekki sömu möguleika og önnur börn í lífinu, gleðina yfir hverjum litlum sigri í dagsins önn. Þessar fjöl- skyldur berjast endalausri baráttu fyrir þjónustu til handa börnum sínum og fyrir því að geta lifað sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir fötlun barna sinna. Skóladagvist er ein sú þjónusta sem foreldrum grunnskólabarna þykir í dag bæði sjálfsögð og nauð- synleg. Sú hugsun er almenn í dag að 6–9 ára gömul börn geti ekki og eigi ekki að vera ein heima meðan foreldrar þeirra eru í vinnu. Skóla- dagvist hefur verið sett á laggirnar sem hluti af fjölskyldustefnu sveit- arfélaga á Íslandi og hefur m.a. tryggt konum jafnrétti á vinnu- markaði á við karla. Því miður er það þó svo að í velferðarþjóðfélagi nútímans er jafnréttið ekki fyrir alla. Nemendur Öskjuhlíðarskóla, (og raunar þroskaheftir nemendur í hinum almenna grunnskóla), þurfa skóladagvist upp í 10. bekk grunn- skólans vegna þeirrar einföldu staðreyndar að þau geta ekki verið ein heima þegar foreldrar þeirra eru í vinnu. Í vetur hafa nemendur í 7.–10. bekk Öskjuhlíðarskóla ekki fengið skóladagvist vegna þess að ekki hefur tekist að fá fólk til starfa við skóladagvistina. Foreldr- ar þessara barna búa við þær að- stæður að geta ekki sinnt fullum vinnudegi vegna þessa og verða fyrir tekjumissi af þeim sökum. At- vinnuöryggi fólks er ógnað og það er eingöngu fyrir velvilja atvinnu- rekenda ef foreldrar halda vinnu sinni. Dæmi eru um að 12 ára göm- ul börn séu í gæslu með 2ja ára börnum hjá dagmæðrum. Öðrum er þvælt á milli ættingja og vina í pössun eða yngri systkini gæta þeirra þar til foreldri kemur heim. Börnin líða fyrir þetta ástand. Þau eru félagslega einangruð og skilja ekki hvers vegna þau fá ekki að vera með skólasystkinum sínum eftir skóla. Þau verða óróleg vegna þess óstöðugleika sem skapast og með ófá þeirra hefur verið leitað til lækna og jafnvel þurft að grípa til annars óþarfrar lyfjagjafar þegar vanlíðanin brýst fram í erfiðri hegðun og depurð. Þetta er raun- veruleiki fjölskyldna fatlaðra barna í Reykjavík á ári fatlaðra 2003. Foreldra- og styrktarfélag Öskjuhlíðarskóla hefur undanfarin 3 ár margítrekað óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fundin verði framtíðarlausn varðandi skóladag- vistina. Ástæðan er sú að mörg undanfarin haust hefur gengið illa að manna skóladagvistina og for- eldrar ítrekað lent í vanda við að fá gæslu fyrir börn sín. Við höfum bent á þá lausn að ÍTR taki að sér þessa starfsemi eins og þeir hafa gert í öllum öðrum grunnskólum Reykjavíkurborgar. Hjá ÍTR eru til staðar hæfileikar, reynsla og vilji til að sinna þessu verkefni vel og til frambúðar. Í dag er staðan hins vegar sú að Reykjavíkurborg vill ekki fela ÍTR þetta verkefni nema ríkið taki þátt í þeim kostn- aði sem fylgir. Vanda þeirra 27 barna sem ekki njóta neinnar skóladagvistar nú á að reyna að leysa til vors til bráðabirgða ef fólk fæst til starfa og húsnæði fæst. Alls óvíst er að það takist. Hvað gerist haustið 2004 veit enginn. Það stendur ekkert um skóla- dagvist í íslenskum lögum, hvorki í lögum um grunnskóla né í lögunum um málefni fatlaðra. Þó kemur fram í 22.grein reglugerðar um sérkennslu nr.389 frá árinu 1996 að sérskólum og sérdeildum sé heim- ilt að veita nemendum samfellda þjónustu allan daginn, alla virka daga skólaársins. Á grundvelli lagaleysis benda fulltrúar ríkis- valdsins á Reykjavíkurborg og segja borgina eiga að sinna þessari þjónustu því ekkert standi um mál- ið í lögum um málefni fatlaðra. Reykjavíkurborg fullyrðir á móti að þeim sé ekki skylt að veita þessa þjónustu og muni ekki gera það nema ríkið komi að með fjármagn. Á milli þessara fylkinga standa fötluð börn og fjölskyldur þeirra og líða fyrir ástandið. Það er mannréttindamál að þroskaheftir nemendur fái notið skóladagvistar. Þau búa við fé- lagslega einangrun og þurfa fé- lagsleg úrræði eins og önnur börn sem eins er ástatt fyrir. Það er mannréttinda- og jafn- réttismál að foreldrar þessara barna eigi sömu atvinnu- og tekju- möguleika og aðrir foreldrar á Ís- landi og þurfi ekki að búa við fá- tækt og atvinnuleysi fyrir þá sök eina að eiga fatlað barn. Það er mannréttindamál að þannig verði búið að fjölskyldum fatlaðra barna að þeim sé ekki endalaust hent fram og til baka á milli mismunandi stjórnvalda vegna verkefna sem þarf að sinna en enginn vill axla ábyrgð á. GERÐUR AAGOT ÁRNADÓTTIR, HRÖNN KRISTJÁNSDÓTTIR, KARLOTTA FINNSDÓTTIR, ATLI LÝÐSSON, foreldrar þroskaheftra barna og stjórnarmenn í Foreldra- og styrktarfélagi Öskjuhlíðarskóla. Fötluð börn – ábyrgð hverra? Opið bréf til borgarstjórans í Reykjavík, borgarfulltrúa, þingmanna Reykjavíkur og áhugafólks um betra samfélag Morgunblaðið/ÞorkellÍ Öskjuhlíðarskóla. ÞAÐ er erfitt að skrifa um vændi, það snýst um frumstæðustu og sterkustu kenndir okkar, engu hærri eða lægri en þær sem við sjáum hjá dýrunum, en um leið tengjast þessar hvatir því göfug- asta í okkur, tryggð, ást, umhyggju gagnvart börnum okkar og fjöl- skyldu og gerir okkur að því sem gerir lífið þess virði að lifa því. Einnig, að hver sá sem lýsir yfir skoðun á þessu máli liggur þar með undir grun um að hafa und- arlegar ástæður fyrir skrifum sín- um. Kinsey, helsti kynlífssérfræð- ingur okkar tíma, hefur til dæmis verið ásakaður um að hafa skjönað til sinni frægu könnun á kynlífi, eingöngu til að réttlæta eigin af- brigðilega hegðun, en samt ætla ég að reyna. Allir geta verið sammála um að tilgangur kynlífs er fjárfesting í framtíðinni og að við getum vel lif- að án kynlífs án þess að líða sál- arkvalir, eða með öðrum orðum, kynlíf er ekki mannréttindi. Þar með erum við komin að kjarnanum, um hvort vændi sé réttindi í frjálsu þjóðfélagi, en staðreyndin er að hvar sem vændi er stundað eru fórnarlömb: mansal, kynsjúkdómar og glæpir. Þegar ég skilgreini vændi sem ber að banna er ég að tala um vændi sem stundað er gegn beinni greiðslu og þar sem oftast er um að ræða vændismiðlara (pimps). Spurningin í dag á Íslandi er um hvort kaupandinn eigi að sæta refsingu jafnt og seljandinn. Það hlýtur að liggja í hlutarins eðli að ef vændi er ólöglegt þá sé kaupandinn að minnsta kosti eins sekur og seljandinn og fyrir ítrek- að brot eigi viðkomandi að fara í meðferð. Þar með erum við komin að öðru vandamáli nútímaþjóð- félags, hvað á að gera við ein- staklinga sem annað hvort geta ekki eða vilja ekki sitja undir þeim reglum sem við höfum sett okkur, hvort sem það eru áfengissjúkling- ar, síbrotamenn, eiturlyfjasjúkling- ar eða kynlífsbrotamenn. Hvað á að gera við slíkt fólk? Hér með ætla ég að lýsa yfir minni skoðun þó hún sé líklega á móti tískunni í dag. Þetta fólk á heima á hælum og lokuðum vinnustöðum sem eru undir ströngu eftirliti hins opin- bera, þar sem það getur verið sér og þjóðfélaginu til gagns, eða með öðrum orðum, við verðum að hjálpa því að lifa heilbrigðu og hamingju- sömu lífi ef það getur það ekki á eigin spýtur. Svona einfalt er þetta allt saman, en um leið veit ég að hundruð sér- fræðinga munu segja mér hvers- vegna ég viti ekkert í minn haus og að ég með mínum skrifum hafi sýnt ótrúlegt skilningsleysi á vanda- málinu, en þetta er mín skoðun eft- ir langar hugsanir og ég get ekki betur en ég get. Það er fátt ömurlegra á Íslandi en að sjá þetta ólánsfólk sníkjandi öllum til ama, þessar manneskjur eiga að vera á heimilum eða stofn- unum þar sem þeim getur liðið vel, vinnandi sér og öðrum til gagns. Hér með lýsi ég yfir stuðningi mínum við frumvarp um að gera kaup á vændi refsiverð, og virðingu minni fyrir Kolbrúnu Halldórsdótt- ur og öðrum sem standa fyrir því máli. INGIMUNDUR KJARVAL, Delhi NY. Um vændi Frá Ingimundi Kjarval

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.