Morgunblaðið - 27.12.2003, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GÖNGUSTÍGUR og grjótgarður
meðfram ströndinni í Ánanaustum og
á Eiðisgranda í vesturbæ Reykjavík-
ur eru mikið skemmdir á nokkur
hundruð metra kafla eftir mikinn sjó-
gang að morgni aðfangadags.
Stórstreymt var á aðfangadags-
morgun og gekk sjór, grjót og þari yf-
ir Ánanaust og Eiðsgranda og voru
göturnar lokaðar fram undir hádegi.
Sjór komst inn í verslunarhús BYKO,
bílakjallara fjölbýlishúsa við Granda-
veg og Sólvallagötu og fleiri bygging-
ar á svæðinu.
Sigurður I. Skarphéðinsson, gatna-
málastjóri Reykjavíkur, segir að
þarna hafi skapast aðstæður sem
verði sjaldan; stórstreymt, djúp lægð,
álandsvindur og mikil undiralda, og
allt hafi þetta spilað saman.
Tjónið metið milli jóla og nýárs
Ekki er búið að meta tjónið, en Sig-
urður segir að farið verði í það á milli
jóla og nýárs að meta tjónið „Við þurf-
um að fara í það mjög fljótlega að laga
garðinn því í janúar og febrúar getum
við átt von á svona veðri aftur og þetta
getur leitt til tjóns á okkar mannvirkj-
um, dælustöð og hreinsistöð svo við
munum setja það í gang fljótlega eftir
áramót að lagfæra þessar grjót-
hleðslur. Væntanlega munum við
gera stígana betur göngufæra, slétt-
um þá og þrífum. Svo munum við
væntanlega malbika þá aftur næsta
vor,“ segir Sigurður.
Sjógangur olli miklum skemmdum
Morgunblaðið/Júlíus
Malbikið flettist upp og grjót úr grjótgarðinum var dreift um svæðið.
MAÐUR á jeppa lenti í hrakningum
á leið frá Reykjavík til Patreksfjarð-
ar á aðfangadag þar sem hann hugð-
ist eyða jólunum með dóttur sinni.
Þegar hann hafði ekki skilað sér um
kl. 20:30 var lögreglu á Patreksfirði
gert aðvart, enda veður á svæðinu
mjög slæmt.
Síðast fréttist af manninum í
Djúpadal í Austur-Barðastrandar-
sýslu um klukkan 16 eða 17 á að-
fangadag og ræsti lögreglan út
mannskap á svæðinu til leitar. Jeppi
mannsins fannst svo yfirgefinn um
kl. 23 um kvöldið. Björgunarmenn
hófust handa við að leita í eyðibýlum
og öðrum húsum á svæðinu, og
fundu loks manninn sofandi í veiði-
húsi.
Maðurinn gaf litlar skýringar á
ferðum sínum í vondu veðri og lé-
legri færð, en var glaður að sjá
björgunarmenn. Hann komst ekki til
Patreksfjarðar þetta aðfangadags-
kvöld, heldur fékk að gista í gistihúsi
í Djúpadal yfir nóttina.
Jeppamað-
ur í hrakn-
ingum
BETUR fór en á horfðist þegar leki
kom að neysluvatnslögn í lagnastokki
í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur 22.
desember síðastliðinn. Á tímabili var
óttast að listaverk, sem geymd voru í
matsal hússins og geymslum í kjall-
ara þess, hefðu orðið fyrir skemmd-
um en svo varð ekki. Að sögn Guð-
mundar Þóroddssonar, forstjóra
Orkuveitu Reykjavíkur, urðu engar
alvarlegar skemmdir við vatnslekann.
„Það eru allar horfur á að þetta verði
litlar skemmdir,“ segir Guðmundur.
„Það þarf væntanlega ekkert að gera
nema hugsanlega slípa upp eitthvað
af parketi. Þetta skrifast á snögg við-
brögð starfsmanna fyrst og fremst.
Það var starfsmaður að vinna við hlið-
ina á lekanum þegar hann varð og
brást fljótt við. Slökkvilið og húsverð-
ir voru komin á staðinn innan tíu til
fimmtán mínútna. Listaverkin eru
óhult, það lak ekki neitt inn á þau.
Hins vegar lak aðeins niður í skjala-
geymslu á næstu hæð en það
skemmdist ekkert þar heldur,“ segir
Guðmundur.
Skemmdir
í OR minni en
á horfðist
BÍLL valt nokkrar veltur á Sval-
barðsströnd á veginum milli Akur-
eyrar og Húsavíkur um kl. 14:15 í
gær. Þrennt var í bílnum og voru þau
flutt á sjúkrahús á Akureyri til að-
hlynningar, en ekki er talið að fólkið
sé mikið slasað.
Lögregla telur að þarna hafi skipt
sköpum að allir voru í beltum. Bíllinn
er talinn gjörónýtur. Ekki er vitað
um orsakir óhappsins, en talsverð
hálka og vindur voru á veginum þeg-
ar óhappið varð.
Þrennt slasað
eftir bílveltu
Á ÞORLÁKSMESSU, var sett nýtt
aðsóknarmet í Kringlunni. Í fyrsta
skipti komu yfir 50.000 gestir (ná-
kvæmlega 50.187) í Kringluna á ein-
um degi og hefur sá gestafjöldi aldr-
ei áður komið í Kringluna á einum
degi, segir í fréttatilkynningu. Á síð-
asta ári komu rúmlega 48.000 gestir
á Þorláksmessu.
Í heildina var meiri aðsókn í des-
ember í Kringluna 2003 miðað við
desember 2002.
Aðsóknarmet á
Þorláksmessu
STÆRSTA verkefnið sem bíður nýrrar stjórnar-
nefndar Landspítala – háskólasjúkrahúss er að
fylgja eftir áformum um að reisa nýjan spítala
sunnan Hringbrautar. Tímabært er að skipuð verði
verkefnisnefnd eða byggingarnefnd sem hafi það
verkefni að gera áætlanir um þetta mikla verkefni
og tryggja framgang þess innan stjórnkerfisins.
Þetta kemur fram í nýrri greinargerð fráfarandi
stjórnarnefndar LSH um stærstu viðfangsefni
nefndarinnar á umliðnum árum og stærstu verk-
efnin sem framundan eru í málefnum sjúkrahúss-
ins.
Leita verður sátta
„Fyrir liggur að eftirspurn eftir þjónustu LSH
eykst jafnt og þétt, hlutfall eldri borgara eykst.
Þessi staðreynd ásamt auknum fólksflutningi á höf-
uðborgarsvæðið útheimtir aukið fjármagn. Veru-
legur hluti af fundartíma stjórnarnefndar hefur
farið í umræður um fjármál og fjárhagsvanda spít-
alans á hverjum tíma. Leita verður sátta um um-
fang þjónustu LSH og rekstrarfjármagn til sam-
ræmis við það. Aðstæður á spítalanum eru víða
ófullkomnar og húsnæðið samsvarar engan veginn
nútíma kröfum né væntingum borgaranna. Aðeins
nýr spítali getur leyst þann vanda ásamt skýrri
stefnumörkun um hlutverk spítalans,“ segir í
greinargerðinni.
Ráðning allra sviðsstjóra
rennur út 1. október 2004
Fram kemur að ráðning fjölmargra stjórnenda
við spítalann rennur út á árinu 2004. „Þegar stjórn-
skipulag LSH var ákveðið var afráðið að ráða í ým-
is lykilstörf til fimm ára og ýmsir stjórnendur þá
valdir til fjögurra ára. Huga þarf að þessum málum
á næsta ári og taka ákvörðun um frekari máls-
meðferð,“ segir í greinargerðinni.
Skv. upplýsingum sem fengust á LSH er hér um
sviðsstjóra á spítalanum að ræða en ráðning allra
sviðsstjóra við spítalann rennur út 1. október á
næsta ári. Skv. stjórnskipulagi LSH er spítalanum
skipt í 14 klínísk svið og eru í flestum tilvikum tveir
sviðsstjórar yfir hverju sviði. Ráðning manna í
framkvæmdastjórn rennur út á árinu 2005.
Hluti starfsfólks fer ekki eftir
reglum um viðveruskráningu
Tekið hefur verið upp nýtt og fullkomið kerfi fyr-
ir viðveruskráningu starfsfólks við LSH og er vikið
að því í greinargerð fráfarandi stjórnarnefndar.
Þar segir að öllum starfsmönnum sé skylt að skrá
sig til starfa í hinu nýja kerfi.
„Málefni þetta hefur oft verið rætt á fundum
stjórnarnefndar en athuganir sýna að enn fer hluti
starfsmanna ekki eftir settum reglum um viðveru-
skráningu,“ segir í greinargerðinni.
Fráfarandi stjórnarnefnd LSH segir mörg aðkallandi mál bíða úrlausnar
Stærsta verkefnið að fylgja eft-
ir áformum um nýjan spítala
KVEIKT var í rusli í Rafha-húsinu
svonefnda við Lækjargötu í Hafnar-
firði um kl. 19 á jóladag, en húsið
hafði staðið autt í nokkurn tíma.
Nokkur eldur logaði í húsinu þegar
slökkvilið kom á vettvang og stóðu
logar og reykur út um glugga.
Vel gekk að slökkva eldinn í hús-
inu, og ekki er talið að miklar
skemmdir hafi orðið á byggingunni
af völdum eldsins.
Einnig kom upp eldur í iðnaðar-
húsnæði í Garðabæ á jóladag, og
voru þrír íbúar í íbúð á efri hæð
hússins fluttir á sjúkrahús vegna
gruns um reykeitrun. Eldurinn
kviknaði í íbúðinni, sem er mikið
skemmd eftir eld og reyk. Íbúarnir
komust út úr íbúðinni eftir að hafa
vaknað við reykskynjara.
Eldur kviknaði í jólaskreytingu í
heimahúsi á Akureyri á jóladag, en
nágranna hafði tekist að slökkva eld-
inn með slökkvitæki þegar Slökkvilið
Akureyrar kom á vettvang. Slökkvi-
liðið reykræsti íbúðina, en óverulegt
tjón varð af völdum eldsins.
Einnig kviknaði í kertaskreytingu
í mannlausri íbúð í Leirubakka í
Reykjavík á jóladag. Nágranni
heyrði í reykskynjara og tókst hon-
um að komast inn í íbúðina og
slökkva eldinn áður en Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins kom á stað-
inn. Ekki urðu miklar skemmdir í
íbúðinni.
Erill hjá slökkviliði um jólin
Kveikt í rusli
í Rafha-húsinu
Morgunblaðið/Júlíus
ERLENDIR ferðamenn hér á
landi höfðu lengi vel í fá hús að
venda yfir hátíðirnar, enda
mátti hvorki veita þeim mat né
skemmtun á hátíðisdögum. Nú
hefur þjónusta við erlenda
ferðamenn batnað til muna og
væsir ekki um þá sem kjósa að
dvelja hér á landi yfir hátíð-
irnar. Að sögn starfsmanna hót-
ela eru ferðamenn enn nokkuð
hissa á lokunum um hátíðirnar,
sérstaklega í sundlaugum og á
skemmtistöðum.
Á Nordica hótel dveljast nú
um hundrað og sextíu gestir og
hafa þeir það gott, að sögn
starfsmanna hótelsins. „Það var
hátíðarkvöldverður á veit-
ingastaðnum Vox bæði á að-
fangadag og jóladag,“ segir
Bjarni Ásgeirsson, hótelstjóri
Nordica hótel. „Á aðfangadag
vorum við með um tvö hundruð
manns í mat. Þá kom mikið af
fólki af öðrum hótelum í matinn
og það kíktu hingað jólasveinar.
Síðan höfum við boðið þeim upp
á heitt kakó og smákökur á
barnum um miðjan daginn og á
kvöldin. Heilsulindin okkar,
Nordica Spa, er einnig opin fyr-
ir þá og þar geta þeir slakað á
yfir hátíðirnar.
Það hefur verið opið í Bláa
lóninu og í ferðir upp á jökul,
þannig að þeir hafa geta farið í
þessar lengri ferðir og veðrið
búið að vera fullkomið til þess.
Það er þó engin skipulögð
skemmtun fyrir þá í gangi hér á
hótelinu, en eftir þessa tvo daga
geta þeir farið niður í bæ að
skemmta sér, því þá opnar allt.“
Erlendir ferða-
menn undrast
jólalokanir
STUTT
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦