Morgunblaðið - 27.12.2003, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 33
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert vinsæll vegna velvildar
þinnar og hjartahlýju. Þú hefur
mikla þörf fyrir að þjóna mann-
kyninu en mátt ekki gleyma
því að berjast fyrir sjálfstæði
þínu og hagsmunum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fólk tekur eftir því sem þú
segir og gerir þessa dagana,
sama hvað þú tekur þér fyrir
hendur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er mikilvægt að þú sinnir
löngun þinni til að gera eitt-
hvað nýtt. Skráðu þig á nám-
skeið, lestu framandi bækur og
tímarit og gefðu þér tíma til að
hlusta á ólík sjónarmið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur sterka þörf fyrir að
bæta sjálfa/n þig á einhvern
hátt. Nýttu þér þetta. Vendu
þig af slæmum ávönum og
taktu upp nýja og betri siði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú getur lært margt um
sjálfa/n þig af maka þínum og
nánustu vinum. Á þessum tíma
í lífi þínu skiptir sköpunarferlið
þig meira máli en álit annarra á
því sem þú ert að gera.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur óvenju miklar
áhyggjur af heilsunni og hrein-
lætinu. Þú vilt breyta um lífs-
stíl og bæta heilsu þína. Byrj-
aðu á því að hreyfa þig meira.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er mikilvægt að kunna að
meta eigin sköpunargáfu. Það
skiptir ekki máli hvað öðrum
finnst um það sem þú ert að
búa til heldur er það sköp-
unarferlið sem skiptir mestu
máli.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt eiga mikilvægar sam-
ræður við maka þinn eða ein-
hvern annan í fjölskyldunni í
dag. Þér finnst þú þurfa að
verja gerðir þínar á einhvern
hátt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefðir gott af því að fara í
stutt ferðalag í dag. Ef þú
kemst ekki frá farðu þá út og
gerðu eitthvað sem kemur
blóðinu á hreyfingu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur áhyggjur af fjármál-
unum. Þú gætir fengið góða
hugmynd um það hvernig þú
getir aukið tekjur þínar en það
er þó eins líklegt að þú freistist
til að eyða of miklu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér finnst þú alltaf vera að rek-
ast á fólk úr fortíðinni. Þetta á
sérstaklega við um þá sem þú
varst eitt sinn náin/n. Líttu á
þetta sem tækifæri til að end-
urnýja gömul kynni og læra
eitthvað nýtt um sjálfa/n þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert opin/n og átt auðvelt
með mannleg samskipti en
þarft engu að síður á hvíld að
halda. Njóttu dagsins í ró og
næði og gættu þess að reyna
ekki of mikið á þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð tækifæri til að endur-
lifa gömlu góðu dagana. Þetta
vekur hjá þér löngum til að
kaupa þér eitthvað og til að
auka tekjur þínar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SVANIRNIR
Hvert svífið þér, svanir, af ströndu
með söngvum í bláheiðan geim?
Ég sé það af öllu, þér ætlið
í ósýnis fjarlægan heim.
„Vér erum þíns sakleysis svanir,
vor samvista tími nú dvín;
vér förum með klökkvandi kvaki
og komum ei framar til þín.“
Með augunum yðar ég fylgdi,
og alltaf bárust þér fjær
í bláinn með blikandi vængjum,
og burt dóu sönghljóðin skær.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
85ÁRA og 20 ÁRA af-mæli. Í dag, laugar-
daginn 27. desember, verður
85 ára Markús Hjálmarsson.
Markús og sonardóttir hans,
Lilja Þórunn Þorgeirsdóttir,
sem varð tvítug 31. október
sl. ætla að fagna afmælum
sínum á afmælisdegi Mark-
úsar. Þau bjóða vinum og
ættingjum að þiggja kaffi-
veitingar í sal Félags-
þjónustunnar í Bólstaðarhlíð
43 kl. 14-16. Gjafir eru vin-
samlega afþakkaðar en þó
verður baukur til styrktar
PKU á Íslandi í anddyri.
GULLBRÚÐKAUP. Í gær, 26. desember, annan í jólum,
áttu 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Jónína Guðmundsdóttir
og Guðmundur Hjartarson frá Grænhóli í Ölfusi, nú til
heimilis að Sóltúni 43, Selfossi.
TERENCE Reese skrifaði
rúmlega 50 bækur um brids,
flestar góðar og fáeinar sí-
gildar. Sú vinsælasta er
sennilega „Play Bridge
With Reese“, sem gefin er
út aftur og aftur. Stefán
Guðjohnsen þýddi bókina
fyrir margt löngu og Jóhann
Þórir Jónsson í Skákprenti
gaf hana út árið 1977. Reese
er rökfastur í skýringum
sínum og alltaf raunsær:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ G72
♥ K1062
♦ 954
♣K106
Suður
♠ D83
♥ ÁG9763
♦ 6
♣ÁD4
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 3 tíglar *
Pass 4 hjörtu Allir pass
* Stuttlitur.
Vestur kemur út með
tíglukóng, fær kall, spilar
næst litlum tígli og austur
lætur ásinn. Hvernig á að
spila?
Til að byrja með íhugar
Reese íferðina í trompið, en
kemst að þeirri niðurstöðu
að það hljóti að liggja 2-1 úr
því að AV blönduðu sér ekk-
ert í sagnir. Spaðaliturinn
er mesti vandinn. Tækni-
lega eru tvær leiðir færar:
Að spila að báðum manns-
pilunum (sem skilar slag ef
sami mótherji er með ÁK),
eða spila smáum spaða að
öðru mannspilinu og svo
smáu frá báðum höndum
(sem gengur ef háspil er
annað réttum megin).
Norður
♠ G72
♥ K1062
♦ 954
♣K106
Vestur Austur
♠ K106 ♠ Á954
♥ D8 ♥ 4
♦ KD1072 ♦ ÁG83
♣852 ♣G973
Suður
♠ D83
♥ ÁG9763
♦ 6
♣ÁD4
En tæknin leysir ekki
þetta spil. Reese dregur þá
ályktun af sögnum að spaða-
háspilin séu skipt: „Báðir
virðast eiga 5 punkta í tígl-
inum og ef annar ætti líka
ÁK í spaða hefði hann
blandað sér í sagnir,“ segir
Reese réttilega. Hann telur
líka langsótt að spaðinn sé
5-2: „Þá hefðu þeir tekið
stunguna sína strax, því ein-
spilið í tígli var ekkert
leyndarmál.“
Reese telur því einu raun-
hæfu leiðina að læðast fram
hjá austri með spaðagosann.
Hann mælir með því að spila
hjartaás og kóng, og síðan
spaðagosa úr blindum.
Austur gæti dúkkað og þá
er spilið unnið.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. Bf4
d5 4. e3 Rc6 5. Bd3 f5 6. Rc3
e6 7. Bxe4 dxe4 8. Rb5 Bd6
9. Dh5+ g6 10. Dh6 De7 11.
Rxd6+ cxd6 12. Re2 Bd7 13.
d5 exd5 14. Rc3 Be6 15. O-
O-O O-O-O 16. Bg5 Df8 17.
Dxf8 Hdxf8 18. Rxd5 Kd7
19. Bf4 Re5 20. Rc3 Kc6
Staðan kom upp í
sterku lokuðu al-
þjóðlegu móti sem
fram fór fyrir
skömmu í Frakk-
landi. Christian
Bauer (2602) hafði
hvítt gegn Jean-
Pierre Le Roux
(2480). 21. Hxd6+!
Kxd6 22. Hd1+ Ke7
Aðrir kóngsleikir
hefðu ekki breytt því
að hvítur fengi peði
meira og unnið tafl. Í
framhaldinu hélt
svartur vonlausri
baráttu sinni í langan tíma.
23. Bxe5 a6 24. a4 g5 25.
Hd4 Hhg8 26. Bd6+ Kf6 27.
Bxf8 Hxf8 28. Hb4 Hf7 29.
Kd2 Hd7+ 30. Ke1 Hc7 31.
Hb6 Ke5 32. Re2 Bd7 33.
Rd4 Bxa4 34. He6+ Kd5 35.
b3 Bd7 36. c4+ Kc5 37. He7
Kd6 38. Hxh7 Hc5 39. Hg7
f4 40. Kd2 b5 41. Hg6+ Kc7
42. Hxa6 bxc4 43. b4 He5
44. Ha5 og svartur gafst
upp saddur lífdaga.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer. Fólk getur
hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
RÓLEGHEIT einkenndu jólahald í
Stykkishólmi eins og vant er.
Hólmarar sækja vel kirkjur sínar
um jól. Messað var í þremur
kirkjum, Stykkishólmshólmskirkju,
kapellu systranna á St. Franciskus-
spítala og Hvítasunnukirkjunni.
Aftansöngur var í Stykkishólms-
kirkju kl. 18 og þar messaði Gunn-
ar Eiríkur Hauksson. Mikill og
góður tónlistarflutningur var í
messunni þar sem þrjár söngkonur
sungu einsöng ásamt kór Stykk-
ishólmskirkju. Að venju fjölmenna
Hólmarar í katólska messu á mið-
nætti. Á eftir messu buðu syst-
urnar á spítalanum kirkjugestum
upp á kakó og kökur.
Fyrsta vetrarveðrið kom á að-
fangadag með hvassri austanátt og
snjókomu. Var það til þess að færri
lögðu leið sína í kirkjugarðinn með
kerti og skreytingar á leiði ást-
vina. Á jóladag var komið gott veð-
ur og var þá ekki vandkvæðum
bundið að láta kertin loga í kirkju-
garðinum. Hægviðri var einnig
annan dag jóla og voru margir
sem notuðu góða veðrið til útivist-
ar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Jólamessa í Stykkishólmskirkju var vel sótt. Í messunni var mikill og góður
söngur. Elísa Vilbergsdóttir, Hólmfríður Friðjónsdóttir og Lára Hrönn
Pétursdóttir sungu einsöng og sungu með kór Stykkishólmskirkju.
Hvít og góð jól
í Stykkishólmi
NOKKUÐ var um umferðaróhöpp í
Reykjavík í gær. Á Vesturlandsvegi
urðu fjögurra og þriggja bíla
árekstrar með 30 mínútna millibili
um kl. 14. Ekki þótti ástæða til að
flytja neinn á slysadeild en tveir
sögðust ætla að fara sjálfir á slysa-
deildina. Sex bíla þurfti að draga af
vettvangi með kranabíl.
Tveir voru fluttir á slysadeild eft-
ir harðan árekstur á Bústaðabrú í
gærmorgun, en ökumaður annarrar
bifreiðarinnar er grunaður um að
hafa verið undir áhrifum áfengis,
samkvæmt upplýsingum lögreglu.
Draga þurfti báða bílana af vett-
vangi. Ökumaður í hinum bílnum
kenndi sér eymsla í hálsi, og farþegi
í sama bíl fann fyrir eymslum á öxl
og voru þeir fluttir á slysadeild.
Tveir farþegar úr bílnum leituðu
svo sjálfir á slysadeild.
Einnig varð bílvelta á Gullinbrú
um kl. 10 í gærmorgun, en ökumað-
ur slapp án meiðsla og er hann ekki
grunaður um að hafa verið ölvaður.
Fjarlægja þurfti bílinn með drátt-
arbíl.
Tveir bílar rákust saman á mót-
um Háaleitisbrautar og Miklubraut-
ar og var einn maður fluttur á slysa-
deild.
Sjö bílar í árekstrum
á Vesturlandsvegi
SMS
tónar og tákn