Morgunblaðið - 27.12.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.12.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2003 9 Glæsilegir galakjólar fyrir áramótin Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið í dag frá kl. 10.00—16.00. Mikið úrval 5 % aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík Í dag, laugardag 27. desember, kl. 12-19, á morgun, sunnudag 28. desember, kl. 13-19, mánudaginn 29. desember, kl. 13-19 og þriðjudaginn 30. desember, kl. 13-19. Verðdæmi Stærð Verð áður Nú staðgr. Pakistönsk 60x90 cm 9.800 6.400 Pakistönsk „sófaborðsstærð“ 125x180 cm 44.900 28.400 Rauður Afghan 100x180 cm 29.300 21.900 og margar fleiri gerðir. RAÐGREIÐSLUR Sími 861 4883 Töfrateppið Áramótaútsala Opið 27. des. frá kl. 11-16 - Verið velkomin. Glæsibæ – Sími 562 5110 Útsalan hafin! 20-80% afsláttur - Glæsilegur fatnaður Áramótafatnaður Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán. - fös. frá kl. 10-18 lau. frá kl. 10-16. Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Nýársfatnaður Opið í dag kl. 10-14 STARFSMÖNNUM á Landspítala – háskólasjúkrahúsi (LSH) sem sagt verður upp störfum vegna samdrátt- araðgerða á spítalanum verður boðin aðstoð og ráðgjöf m.a. um réttar- stöðu sína. Skipaður hefur verið starfshópur til aðstoðar við starfsmenn sem sagt verður upp störfum, og eru verkefni hópsins m.a. að veita ráðgjöf varð- andi umsóknir og gerð starfsferils- skrár og um undirbúning fyrir viðtöl. Kannað verður hvort unnt sé að finna starfsmönnum störf annars staðar á LSH og leitað verður eftir ákveðnu samstarfi við valdar ráðn- ingarstofur þannig að unnt sé að mynda bein tengsl strax milli starfs- manns sem sagt er upp og tiltekins fulltrúa á ráðningarstofunni. Starfshópur veitir yfirstjórn ráðgjöf og aðstoð Einnig hefur verið skipaður sér- stakur aðgerðarhópur sem hefur m.a. það verkefni að veita yfirstjórn og handhafa ráðningarvalds aðstoð í undirbúningi aðgerða vegna fækk- unar starfa, afla upplýsinga um rétt- arstöðu starfsmanna sem segja á upp og veita ráðgjöf og aðstoð við framkvæmd uppsagnanna og niður- lagningu starfa. Gert er ráð fyrir að stöðugildum fækki um allt að 200 á spítalanum með þeim sparnaðaraðgerðum sem gripið verður til. Framkvæmda- stjórn LSH hefur haldið á þriðja tug kynningarfunda með starfsmönnum spítalans þar sem fjallað var um rekstur spítalans, sparnað og upp- sagnir. Samdráttaraðgerðirnar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi Starfsmönnum sem sagt verður upp veitt aðstoð „ÞETTA var mjög lærdómsríkur tími og ég lærði mikið af þátttöku í þessari aðgerð,“ segir Nína Björk Jónsdóttir blaðmaður um veru sína í Makedóníu lung- ann úr þessu ári sem íslenskur friðargæsluliði. Ísland var meðal 26 ríkja sem tóku þátt í fyrstu hernaðar- aðgerð Evrópusambandsins í landi þar sem átök áttu sér stað milli makedónska stjórnarhersins og alb- anskra skæruliða árið 2001. Aðgerðinni lauk 15. des- ember eftir átta og hálfs mánaðar úthald. Nína Björk gegndi stöðu kafteins á upplýs- ingaskrifstofu fjölþjóðahersins og var meðal örfárra kvenna í liðinu. „Fyrir Íslending er merkilegt að kynnast landi sem er mun flóknara að allri innri gerð en Ísland,“ segir hún. „Þarna viðgangast ýmis vanda- mál sem maður áttar sig ekki á að eru fyrir hendi fyrr en maður upplifir ástandið af eigin raun. Makdónía er mjög fátækt land og atvinnuleysi mjög víðtækt vanda- mál fyrir utan þá spennu sem ríkt hefur á milli ólíkra þjóðfélagshópa.“ Samkvæmt ákvörðun ESB tók borgararleg lög- regluaðgerð við af umræddum hernaðaraðgerðum nú í desmber. „Vandamál Makedóníu í dag hvað varðar ör- yggi eru fyrst og fremst glæpatengd og því var talið að lögreglulið myndi henta betur til þess að aðstoða heimamenn,“ segir Nína Björk. „Lögregluliðsins frá ESB bíður nú það starf að hjálpa innlendu lögreglunni að kljást við spillingu og ýmsa skipulagða glæpi. Á síðustu mánuðum hefur ör- yggisástandið í landinu batnað til muna sem lýsir sér í minni spennu á fyrrum átakasvæðum,“ segir Nína Björk einnig. „Mér fannst einnig mjög lærdómsríkt að vinna með fjölþjóðahernum. Ég hafði mjög takmarkaða vitneskju um starfshætti hermanna áður en ég hélt utan í vor. Hermennirnir sem ég átti samstarf við voru einkar ljúfmannlegir í allri framkomu og faglegir í störfum sínum,“ segir Nína Björk. „Mjög lærdómsríkur tími“ Nína Björk Jónsdóttir fær viðurkennningu fyrir vel unnin störf. Nína Björk Jónsdóttir, friðargæsluliði í Makedóníu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.