Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 17

Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 17 FINNAR stefna á að byggja nýtt kjarnorkuver, hið fyrsta sem byggt yrði í einu aðildarríkja Evrópusam- bandsins síðan snemma á tíunda ára- tugnum. Þingmenn samþykktu þessa umdeildu tillögu ríkisstjórnar- innar árið 2002 með 107 atkvæðum gegn 92. Finnska orkufyrirtækið TVO, sem ber ábyrgð á verkinu, sótti í síðustu viku formlega um leyfi til að skipu- leggja verkið þrátt fyrir að hafa þeg- ar gert 260 milljarða króna samning við hóp þýskra og franskra verktaka fyrir nokkrum mánuðum. Kjarnaofninn yrði tvöfalt stærri en sá stærsti sem nú er í Finnlandi, en fyrir eru fjórir ofnar sem sam- anlagt framleiða meira en fjórðung alls rafmagns í Finnlandi. Græningjaflokkurinn sagði sig úr ríkisstjórn Gert er ráð fyrir að bygging nýja versins hefjist 2005 en undirbúning- ur mun hefjast síðar á þessu ári. Raf- mangsframleiðsla í kjarnorkuverinu yrði komin á fullt skrið 2009. Um er að ræða stærstu bygging- arframkvæmd sem Finnar hafa ráð- ist í til þessa og er hún afar umdeild en önnur Evrópuríki hafa reynt að draga úr notkun á kjarnorku undan- farin ár. Græningjaflokkurinn sagði sig úr ríkisstjórinni til að mótmæla fyrirætlununum og umhverfissinnar harma að þjóðin ætli að reiða sig á kjarnorku í enn meiri mæli en hún gerir nú. Margir óttast að geislun frá úrgangi slíkra vera muni valda spjöllum á umhverfinu. Timo Rajala, stjórnarformaður TVO, segir að nýr kjarnaofn sé nauð- synlegur til að mæta orkuþörf Finna. „Við erum hér í norðaustur- horni Evrópu og aðstæður okkar eru talsvert ólíkar því sem gerist í öðrum Evrópulöndum. Hér er kalt og iðn- aður okkar krefst mikillar raforku,“ segir Rajala. „Þessi lausn hentar vel í Finnlandi og það þarf ekki að þýða að hún væri góð í nokkru öðru landi.“ Finnar hyggjast hefja smíði á nýju og geysistóru kjarnorkuveri á næsta ári Stærsta framkvæmdin til þessa Fyrsta kjarnorkuverið sem reist hefur verið í ESB í rúman áratug EMBÆTTISMENN í Ástralíu hyggjast setja þúsundir kóala- bjarna á „getnaðarvarnapill- una“ vegna þess að þeir fjölga sér of ört. John Thwaites, um- hverfisráðherra Vikoríuríkis, segir að kóalabirnirnir séu orðnir svo margir á nokkrum svæðum að skortur sé á laufum tröllatrjáa sem er helsta fæða þeirra. Tilraunir með litlar plastpíp- ur, sem græddar eru undir skinn kvendýranna og gefa frá sér hormóna líka þeim sem not- aðar eru í getnaðarvarnapillur, hafa reynst árangursríkar. Vilja líka til Mars RÚSSAR sögðust í vikunni vera að íhuga þann möguleika að senda geimfara til Mars, hugsanlega innan tíu ára, eins og Bandaríkjamenn. „Við höfum fengið margar tillögur frá vísindamönnum um að skipuleggja leiðangra til tunglsins og Mars,“ sagði Níko- laj Mojsejev, aðstoðarfram- kvæmdastjóri rússnesku geim- vísindastofnunarinnar Rosaviakosmos. Fái upplýs- ingar um flugfélag EVRÓPUSAMBANDIÐ vill að flugfarþegum séu veittar betri upplýsingar um flugfélag- ið sem þeir ferðast með í því skyni að auka gegnsæi í flug- samgöngum og bæta öryggi farþeganna. Þetta kom fram nýlega í máli Loyola de Palacio, samgönguráðherra í fram- kvæmdastjórn ESB. Margir vonast til þess að flugslysið í Egyptalandi nýlega, þegar vél Flash Airlines hrap- aði í Rauðahafið, verði til þess að ríkisstjórnir landa greini frá því opinberlega að þau hafi neitað tilteknum flugfélögum um rekstrarleyfi á grundvelli öryggissjónarmiða. Konum bann- að að syngja FORRÁÐAMENN afganska ríkissjónvarpsins hafa ákveðið að hætta við áform um að sýna konur syngja í sjónvarpinu eft- ir að hæstiréttur landsins lýsti andmælum sínum. Nokkrar konur sungu í þætti í afganska ríkissjónvarpinu á mánudagskvöld og hafði það ekki gerst frá falli kommúnista- stjórnarinnar í Afganistan 1992. Afnám bannsins var liður í umbótastefnu Hamids Karza- is, forseta Afganistans. Hæstiréttur Afganistans er að mestu skipaður íhaldssöm- um múslímaleiðtogum sem vilja að íslömsk sharía-lög séu í heiðri höfð í landinu. „Við erum andvígir því að konur syngi,“ sagði Ahamad Manawi, aðstoð- arforseti hæstaréttarins. STUTT Birnir á pilluna Reuters útsala - útsala Ýmsar gerðir ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 2 26 01 10 /2 00 3 799 kr. 10 túlipanar Gott verð Mikið úrval Áður 6.990 kr. Nú 4.990 kr. Stórar kistur Pottaplöntur 30% afsláttur Silkiblóm 40% afsláttur Útsölumarkaður Gjafavara og Pottar 50% afsláttur Minni 3.990 kr. Stærri 5.990 kr. Allir Tiffanys lampar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.