Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 19

Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 19 Fitulítil og freistandi SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, fór í andlitslyftingu í desember, að sögn ítalskra dagblaða í gær. Ráðherrann,sem er 67 ára gamall, var ekki í Róm frá 23. desember til 13. janúar og var þá sagður halda sig í glæsi- villu sinni á eynni Sard- iníu. En dagblaðið Li- bero sagði að hann hefði skroppið til lýtalæknis í París og Umberto Sca- pagnini, þekktur læknir og flokksbróðir ráð- herrans, sagði í viðtali við La Stampa í Torino að leiðtoginn hefði farið í „dálitla skurðaðgerð“ á augnumbúnaði. Kosið verður til Evrópuþingsins í sumar og segja heimildarmenn að Berlusconi vilji líta vel út í kosningabarátt- unni. Vitað er að hann er mjög upptekinn af útliti sínu og telur það skipta miklu máli við að byggja upp jákvæða ímynd í stjórnmálum. Hann er aðeins um 170 cm á hæð en notar að sögn skó með óvenju háum hælum. Berlus- coni hefur kvartað yfir því að skopmynda- teiknarar sýni hann stundum eins og dverg. Scapagnini sagði að Berlusconi væri í betra formi en hann hefði verið um langt skeið: „Við fengum hann til að létta sig – hann passaði upp á mataræðið, þjálfaði sig og nú er hann tilbúinn.“ Berlusconi í andlits- lyftingu í París? Róm. AFP. Silvio Berlusconi Í GÆR voru 40 ár liðin síðan smá- skífa Bítlanna, „I Want to Hold Yo- ur Hand“, komst í efsta sæti vin- sældalista í Bandaríkjunum og var það fyrsta lag þeirra sem sló í gegn vestra. Þetta gerðist aðeins þremur vikum eftir að útgáfufyr- irtækið Capitol Records gaf lagið út í miklum flýti eftir að hafa hafnað fyrstu þremur smáskífum Bítlanna í Bretlandi. Yfirmenn Capitol Records töldu í fyrstu að Bítlarnir „hentuðu ekki bandaríska markaðnum“. Þegar smáskífan var gefin út 26. desem- ber 1963 höfðu tiltölulega fáir Bandaríkjamenn heyrt af hljóm- sveitinni. Hún var hins vegar þekkt í bandarísku höfuðborginni. Wash- ingtonbúar höfðu fengið forskot á sæluna vegna 15 ára stúlku í Sil- ver Spring í Maryland og bréfs sem hún sendi plötusnúði í borg- inni. Í bréfinu óskaði hún eftir því að plötusnúðurinn léki lag lítt þekktrar breskrar hljómsveitar og margir telja að þessi hógværa ósk hafi komið Bítlaæðinu af stað í Bandaríkjunum. Hún er þó sjálf treg til að við- urkenna þetta og virtist hafa horf- ið sporlaust fyrir mörgum árum. Tilraunir fjölmiðlamanna til að finna hana mistókust þar til nú í vikunni. „Þakka þér fyrir, Marsha“ Bítlarnir komu til John F. Ken- nedy-flugvallar í Bandaríkjunum 7. febrúar 1964 og þúsundir æstra unglinga tóku á móti þeim með öskri og skrækjum. Tveimur dög- um síðar kom hljómsveitin fyrst fram í „The Ed Sullivan Show“ og talið var að 73 milljónir manna hefðu fylgst með sjónvarpsþætt- inum, en það var met á þeim tíma. Bítlarnir héldu fyrstu tónleikana í Washington 11. febrúar. Áður en þeir stigu á sviðið komu þeir við í hljóðveri útvarpsstöðvarinnar WWDC í hjólhýsi sem lagt var við tónleikastaðinn. Þeir vildu heilsa upp á Carroll James, sem varð fyrstur bandarískra plötusnúða til að leika „I Want to Hold Your Hand“ í útvarpi – og líka Marsha Albert, stúlkuna frá Silver Spring. „Þakka þér fyrir, Marsha,“ sögðu Bítlarnir við stúlkuna í beinni útsendingu. Marsha er enn mjög eftirsótt og margir vilja þakka henni. Hópur vina, ættingja og samstarfsmanna Bítlanna hafði lengi leitað hennar til að fá hana til að taka þátt í há- tíðahöldum í tilefni af 40 ára af- mæli Bítlaæðisins í Bandaríkj- unum. Hópurinn hafði jafnvel rætt við einkaleynilögreglumann. Og á blaðamannafundi á Hard Rock Cafe í New York í gær hugðist hópurinn tilkynna að hafin væri leit út um öll Bandaríkin að „ung- lingsstúlkunni sem kom Bítlaæðinu í Bandaríkjunum af stað fyrir 40 árum með hógværri beiðni til út- varpsstöðvar í Washington“. Marsha er ekki ánægð með leit- ina. Hún er nú gift og vill ekki að fjölmiðlar gefi upp nýtt eftirnafn hennar og aðsetur. Hún varð mjög undrandi þegar blaðamaður The Washington Post fann hana loksins á miðvikudaginn var. Nágrannar hennar vissu ekki af þætti hennar í sögu Bítlanna þótt þeir hefðu þekkt hana í mörg ár og fjölskylda hennar hafði svar- ið þagnareið. „Þegar desember var liðinn og ég heyrði ekkert um þetta hélt ég að ég væri hólpin vegna þess að í þeim mánuði var haldið upp á út- gáfuafmælið,“ sagði hún. „Auk þess var það Carroll James [er lést árið 1997] sem hélt þessu alltaf gangandi. Ég hélt að þessu væri lokið!“ Hún segist þó ekki skammast sín fyrir bréfið. Hún líti aðeins á þátt sinn í sögu Bítlanna sem „nokkurs konar neðanmálsgrein“. „Algjör hetja“ Þetta er fjarri öllum sannindum, segir Bítlasagnfræðingurinn Bruce Spizer og höfundar bókarinnar „The Beatles Are Coming! The Birth of Beatlemania in America“ sem kom út í Bandaríkjunum í gær. „Marsha Albert varð til þess að stórt útgáfufyrirtæki neyddist til að flýta útgáfu smáskífu óþekktrar hljómsveitar í Bandaríkjunum og platan kom út um jólin, á degi sem fyrirtækin gefa yfirleitt ekki út nýjar plötur,“ sagði Spitzer. „En þar sem „I Want to Hold Your Hand“ kom út daginn eftir að Bandaríkjamenn héldu jólin og unglingarnir voru í fríi, heyrðu lagið í útvarpi nokkrum sinnum á dag, voru með jólapeningana og gátu notað þá til að kaupa plötur, varð allt þetta til þess að platan rauk upp vinsældalistana miklu fyrr en annars hefði orðið.“ Spitzer bætti við að Bítlarnir hefðu örugglega slegið í gegn síð- ar ef útgáfunni hefði ekki verið flýtt en einhver hefði þurft að koma Bítlaæðinu af stað. „Hefði hún ekki sent bréfið, sem varð til þess að lagið var leikið í nokkrar aukavikur í útvarpi, hefðu ekki þúsundir ungmenna fagnað Bítl- unum á Kennedy-flugvelli og 73 milljónir manna hefðu ekki stillt á „The Ed Sullivan Show“. Hún er algjör hetja í allri þessari sögu.“ Flugfélag útvegaði plötusnúðnum eintak Bítlaæðið í Bretlandi hófst árið 1963 og fréttamaður CBS tók við- tal við Bítlana sem senda átti út í heild í kvöldfréttum sjónvarps- stöðvarinnar 22. nóvember, þegar önnur breiðskífa hljómsveitarinnar „With the Beatles“, var gefin út í Bretlandi. Þennan sama dag var John F. Kennedy Bandaríkja- forseti myrtur og þess vegna var hætt við að sýna viðtalið í kvöld- fréttunum. Það var ekki sýnt fyrr en 10. desember. Marsha Albert sá það og heillaðist svo af laginu „She Loves You“ að hún ákvað að skrifa plötusnúðnum. „Ég hafði aldrei gert neitt þessu líkt áður,“ sagði hún. „Ég skrifaði að ég héldi að Bítlarnir yrðu mjög vinsælir hérna og það væri frá- bært ef James gæti fundið ein- hverja af plötunum þeirra.“ Plötusnúðurinn fékk einn af yf- irmönnum útvarpsstöðvarinnar til að hafa samband við flugfélagið BOAC (nú British Airways) sem útvegaði eintak af plötunni „I Want to Hold Your Hand“ frá Bretlandi. Tveimur dögum síðar birtist flugfreyja með plötuna á út- varpsstöðinni. „Carroll James hringdi í mig daginn sem hann fékk plötuna,“ sagði Marsha. „Hann sagði: Ef þú kemst hingað fyrir klukkan fimm færð þú að kynna hana.“ Hún kynnti plötuna með orð- unum: „Dömur mínar og herrar, í fyrsta sinn í Bandaríkjunum, núna syngja Bítlarnir „I Want to Hold Your Hand“.“ Yfirmenn Capitol Records höfðu þá ætlað að gefa plötuna út 13. janúar en vinsældir hennar voru svo miklar í Washington að útgáf- unni var flýtt. Fyrirtækið hafði ætlað að gefa út 200.000 eintök en ákvað að þrykkja milljón platna. Fjórðungurinn seldist fyrstu þrjá dagana, helmingurinn á tíu dögum og afgangurinn 10. janúar. Næstu árin seldist smáskífan í fjórum milljónum eintaka til viðbótar. Hún kom Bítlaæðinu af stað vestra The Washington Post. ’ Marsha Albertvarð til þess að stórt útgáfufyrirtæki neyddist til að flýta útgáfu smáskífu óþekktrar hljóm- sveitar í Bandaríkj- unum. ‘ Washington Post/Jahi Zhikwendiu Marsha Albert er „unglingsstúlkan sem kom Bítlaæðinu í Bandaríkj- unum af stað fyrir 40 árum með hóg- værri beiðni til útvarpsstöðvar“. TALSMAÐUR lögreglunnar í Finn- landi viðurkenndi í gær, að 16 flótta- mönnum hefðu verið gefin róandi lyf, þar af þremur gegn vilja þeirra, þegar þeir voru fluttir úr landi eftir að umsókn þeirra um hæli var hafn- að. Þetta kom fram í máli Jorma Vu- rio, sem er yfirmaður innri rann- sókna á vegum finnsku ríkislögregl- unnar. Þeir sem fengu lyf gegn vilja sín- um voru maður sem vísað var úr landi í fyrra og tveir úr úkraínskri fjölskyldu sem vísað var úr landi ár- ið 2002. Byrjað var að gefa flótta- fólki róandi lyf í Finnlandi árið 2000. Upp komst um málið þegar nefnd á vegum Evrópusambandsins skoð- aði flóttamannamiðstöð í Helsinki í fyrra og vakti það mikla athygli. Samkvæmt finnskum lögum má gefa fólki, sem vísað er úr landi, ró- andi lyf ef það óskar þess, en ólög- legt er að gefa fólki lyf gegn vilja þess nema lífshætta vofi yfir. Finnska landlæknisembættið hef- ur veitt lækninum og hjúkrunar- fræðingnum, sem gaf fólkinu lyf þvert á samþykki þess, áminningu. Flóttafólk var neytt til að taka róandi lyf Helsinki. AFP. Lögreglan í Finnlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.