Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 27
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 27
Siglufjörður | Eitt af eldri hús-
unum í Siglufirði hefur fengið
rækilega endurnýjun. Þetta er
svokallað Guðnahús, þriggja
hæða íbúðarhús sem er númer 18
við Túngötuna nánast í mið-
bænum. Húsið var upphaflega
byggt árið 1930 og var eitt af hin-
um svokölluðu Norsku húsum
sem voru byggð víða um land á
þeim tíma. Neðsta hæðin var
steypt en tvær þær efri úr timbri,
hver hæð er um 60 fermetrar að
stærð.
Böðvar Böðvarsson, bygginga-
meistari úr Reykjavík, hefur ann-
ast endurbæturnar á húsinu. Hann
sagði að Siglufjarðarbær, sem átti
húsið, hefði ætlað að láta rífa það
enda búið að dæma það ónýtt. Eig-
andi þess, Jóhanna Þorsteins-
dóttir, forstöðumaður á Sólheimum
í Grímsnesi, hefði fengið það gef-
ins og raunar smá peningaupphæð
með því gegn því að gera húsið
upp.
Húsinu lyft til að ná því réttu
Böðvar sagðist hafa byrjað end-
urbæturnar á húsinu árið 2000 og
unnið í því eitthvað á hverju ári
síðan. Nú væri líklega komin í það
um árs vinna hjá honum og auk
þess hefðu fleiri iðnaðarmenn
komið að því vatns-, skólp- og raf-
lagnir voru allar endurnýjaðar og
húsið málað bæði utan og innan.
Böðvar sagði að húsið hefði ver-
ið mjög illa farið þegar hann hófst
handa í því og steyptur skorsteinn
sem á því var hafi verið nánast að
sliga það. Byrjunin hafi verið að
tjakka húsið upp og ná því réttu.
Það þurfti að steypa nýja gólfplötu
því sú gamla var öll sprungin og
sigin.
Járnklæðning utan á húsinu var
öll rifin burt. Þá kom í ljós vatns-
klæðning og var hún látin halda
sér en endurnýjuð að hluta. Skipt
var alveg um þak og þakkanta og
endurnýjuð handrið á svölum o.fl.
Þá var skipt um alla glugga og
þeir færðir í sama horf og var árið
1930 samkvæmt myndum af hús-
inu sem fundust meðan á end-
urbótunum stóð. Einnig var skipt
um talsverðan hluta af klæðningu
innandyra og gerefti endurnýjuð.
Þá voru allar hurðir settar nýjar,
baðherbergi endurnýjuð og sett ný
eldhúsinnrétting o.fl. Eftir þessa
miklu endurnýjun er húsið hið
glæsilegasta jafnt utan sem innan.
Sumar- og vetrardvöl fyrir
fólk með þroskahömlun
En hvað kom til að Jóhanna,
sem býr á öðru landshorni og á
engar rætur til Siglufjarðar, fékk
áhuga fyrir að eignast þetta hús?
„Það var árið 1999 að sagt var
frá því í fréttum að tvö hús á
Siglufirði væru föl til endurbygg-
ingar. Áhugi minn á húsum ásamt
ótakmarkaðri framkvæmdagleði
varð til þess að ég fékk Böðvar til
að skoða húsið með mér og jafn-
framt til að vinna greinargerð og
kostnaðaráætlun um framkvæmdir
við það. Bærinn ákvað svo að taka
tilboði mínu. Síðan hafa end-
urbætur staðið yfir og ráðist af því
hvað ég hef haft mikið fjármagn til
að leggja í þetta á hverju ári. Ég
hef kostað þetta alfarið úr eigin
vasa nema hvað ég fékk 400 þús-
und króna styrk með húsinu og svo
síðar 150 þúsund krónur frá Hús-
friðunarsjóði. En Siglfirðingar
hafa verið óþreytandi við að heim-
sækja mig í húsið og gefa mér góð
ráð og iðnaðarmenn sem hafa kom-
ið að þessu finnst mér hafa unnið
að einstakri natni og smekkvísi við
þetta.“
En til hvers á að nota húsið í
framtíðinni?
„Það mun fá hlutverk með
hækkandi sól. Það verður til út-
leigu fyrir hópa en aðalhlutverk
þess verður að bjóða upp á sum-
ar- og vetrardvöl fyrir fólk með
þroskahömlun og er íbúð á neðstu
hæðinni sérstaklega hönnuð til
þess. Ég vil nota tækifærið og
senda öllum á Siglufirði sem að-
stoðuðu mig og leiðbeindu við
þetta mínar bestu kveðjur og
þakkir. Þá er hlutur Böðvars
byggingameistara við endurgerð
Túngötu 18 ekki lítill,“ sagði Jó-
hanna Þorsteinsdóttir að lokum.
Eitt af elstu húsum Siglu-
fjarðar í nýjan búning
Verklok nálgast: Þeir Mark Duffield, Georg Ragnarsson og Böðvar Böðv-
arsson unnu við húsið á lokastigi framkvæmdanna.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Endurbætur: Guðnahúsið á Siglufirði er glæsilegt útlits eftir viðgerðina og fær nú nýtt hlutverk.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Fékk 400 þúsund króna styrk með Guðnahúsi fyrir fimm árum
Egilsstaðir | Mjólkurbú Flóamanna
hefur keypt nýjan búnað til fram-
leiðslu á mozarellaosti í mjólk-
urstöð fyrirtækisins á Egilsstöðum.
Um er að ræða ítalska ostavél
frá vélaverksmiðjunni Dima og
kostaði hún um 160 þúsund evrur,
eða jafnvirði rúmra fjórtán millj-
óna íslenskra króna.
Búnaðurinn meðhöndlar ostinn
eftir að hann er tekinn úr ostakari,
formar hann og skilar honum til-
búnum til söltunar og pökkunar.
Nokkuð hliðstæð vél er á Sauð-
árkróki, þar sem mozarella er
einnig framleiddur.
Að sögn Birgis Guðmundssonar,
mjólkurbússtjóra MBF, tekur nýja
vélin við af eldri búnaði, sem orð-
inn var uppslitinn og kom frá Höfn
í Hornafirði þegar stöðinni þar var
lokað. „Afkastagetan er um 1 tonn
á klukkustund sem er ívið meira
en í gömlu vélinni,“ segir Birgir.
„Á þessu ári ætlum við okkur að
framleiða 350 til 400 tonn af moz-
arella hér eystra.“
Mjólkurkvóti þarf að
haldast á svæðinu
Birgir segir rekstur mjólk-
urstöðvarinnar á Egilsstöðum
standa vel undir væntingum. „Það
ferli sem við fórum í gegnum við
kaupin á þessari stöð virðist hafa
gengið upp og reksturinn gengur
vel. Hvað mjólkurkvótamál í fjórð-
ungnum áhrærir er það svo að
samþjöppun er í frumframleiðsl-
unni hér eins og annars staðar.
Það þarf ákveðna stærð til að geta
rekið svona einingu. Menn þurfa
því að reyna að gæta þess að halda
kvótanum hér á svæðinu og beita
áhrifum sínum til að svo megi
verða.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Nýr vélbúnaður hjá MBF: F.v. Birgir Guðmundsson, Auðunn Hermannsson,
Guðmundur G. Gunnarsson, Gísli Pétursson og Guttormur Metúsalemsson.
Ætla að framleiða
400 tonn af osti
með nýjum vélakosti