Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 31
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 31
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar.
(Afgr. gjöld á flugvöllum).
Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið - Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
FJÓRÐA hverjum Norðmanni
þykir æskilegt að leikskólar
séu opnir á nóttunni, sam-
kvæmt könnun sem gerð var á
vegum barna- og fjöl-
skylduráðuneytisins í Noregi
og greint frá á fréttavef Aft-
enposten.
Ráðherrann, Laila Dåvøy
frá Kristilega þjóðarflokkn-
um, er hlynnt því að málið
verði skoðað. „Ef fólk hefur
raunverulega þörf fyrir þetta
ætti ekkert að standa í vegi
fyrir því að leikskólarnir séu
opnir á nóttunni,“ segir hún.
Slík þjónusta gæti hentað ein-
stæðum foreldrum og vakta-
vinnufólki.
Persónulega er Dåvøy þó
þeirrar skoðunar að leik-
skólar eigi aðeins að vera
opnir að degi til og sjálf
myndi hún ekki hafa börnin
sín á leikskólanum að nóttu
til.
29% kvenna sem tóku þátt í
könnuninni voru með því að
leikskólar væru opnir á nótt-
unni en 21% karlanna sem
svöruðu.
LEIKSKÓLAR
Vilja hafa opið að næturlagi
Morgunblaðið/Golli
Dagur eða nótt: Það yrði líklega rólegra á
leikskólanum á nóttunni en að deginum.
Á FÁUM árum hefur tilfellum af
gáttatifi, sem er eitt afbrigði af
óreglulegum hjartslætti, fjölgað til
muna hjá dönskum karlmönnum
sem komnir eru yfir fimmtugt sam-
kvæmt frétt í Berlingske Tidende. Á
árunum 1974 til 1994 fjölgaði þeim
úr 1,4% í 3,3% hjá körlum á þessum
aldri á meðan tíðnin lækkaði úr
1,5% í 1,1% hjá konum.
Vitnað er í rannsókn sem gerð var
að Jens Friberg lækni á Bispebjerg-
sjúkrahúsinu og er haft eftir honum
að lítið sé vitað um orsakir þess að
eldra fólk fær þessa hjartslátt-
aróreglu. Hún sé ekki lífshættuleg í
sjálfu sér en eykur hættuna á heila-
blóðfalli hjá sjúklingunum.
Davíð O. Arnar hjartasérfræð-
ingur á Landsspítala telur hins veg-
ar að ein ástæðan gæti verið sú að
sífellt fleiri sem fá kransæða-
sjúkdóm lifa lengur. Þessir sjúkling-
ar hafa aukna tilhneigingu til að fá
gáttatif.
„Tíðni gáttatifs hefur einnig farið
vaxandi hér á Íslandi og má segja að
þetta sé að verða þó nokkuð heilsu-
farsvandamál.
Þegar hjartsláttur verður óreglu-
legur er oftast reynt að leiðrétta
hann með svokallaðri rafvendingu.
Staðreyndin er hins vegar sú að það
eiga sér stað vissar breytingar í
hjartanu við gáttatif. Það leitast við
að viðhalda óreglunni og því er erfitt
að halda hjarta sjúklingsins í réttum
takti eftir rafvendingu. Um 50–60%
þeirra sem fara í rafvendingu þurfa
því að koma aftur eftir um það bil
hálft ár í aðra slíka tilraun,“ sagði
Davíð.
Hann segir að einkenni gáttatifs
séu aðallega skerðing á úthaldi,
mæði og hjartsláttaróþægindi. Al-
varlegasti fylgikvillinn er hins vegar
möguleiki á heilablóðfalli, því óregl-
an veldur því að blóðtappi getur
myndast í vinstri gátt, losnað og far-
ið af stað upp í heila.
„Fyrir um áratug kom í ljós mikill
ávinningur af því að gefa þessum
sjúklingum blóðþynningarlyfið Kóv-
ar. Magnyl hefur stundum verið
notað og það er klárlega betra að
nota það en ekkert. Það hefur sýnt
sig að blóðþynningarlyfið Kóvar
getur dregið úr blóðtappamyndun
um 62%, en áhrif Magnyls eru síðri
en minnka hættuna um 22%. Kóvar
er talsvert notað við þessu hér á
landi en hefur þann galla að það
eykur blæðingarhættu. En það eru
ekki einungis kransæðasjúklingar
sem þjást af gáttatifi. Einnig er vit-
að að háþrýstingur getur leitt til
gáttatifs. Dæmi eru líka um gáttatif
hjá ungu fólki sem hefur annars
eðlilegt hjarta. Mikill áhugi er á
hvort gáttatif er ættgengt og er það
talsvert til skoðunar um þessar
mundir.“
HEILSA| Óreglulegur hjartsláttur
Morgunblaðið/Þorkell
Rannsóknir: Nú er verið að skoða
hvort gáttatif er ættgengt.
Tíðni gáttatifs
fer vaxandi
asdish@mbl.is
Kristín Johansen á margauppáhaldsstaði í Kaup-mannahöfn, bæði veit-ingahús, skemmtileg
söfn og síðan finnst henni gaman
að kíkja í búðir. „Kronprins-
ensgade, sem liggur út frá
Købmagergade, er vinsæl versl-
unargata en þar eru nokkrar góð-
ar fataverslanir á borð við Flying
A, Bruuns Basaar og skóversl-
anirnar Bruno & Joel og Nota-
bene,“ segir Kristín.
„Flestir hafa þá gaman af að
skoða sig um í stóru verslunarhús-
unum á borð við Illums og Magas-
in du Nord sem bæði eru í mið-
bænum. Illums Bolighus á
Strikinu er í sérstöku uppáhaldi,
en þar fást bæði húsgögn og
smávara eftir þekkta hönnuði.
Litla Latínuhverfið svokallaða,
við Larsbjørnstræde, sem liggur
út frá Strikinu, lumar á skemmti-
legum litlum verslunum eins og
Sneaky Fox og kaffihúsi á borð
við Robert’s Café. Helstu antík-
verslanirnar eru í Nørrebro-
hverfinu í nágrenni við Ravns-
borggade og Sankt Hans Torv,
en á torginu eru líka skemmtileg
kaffihús.“
Að mati Kristínar ætti svo eng-
inn að láta Louisiana-safnið í
Humlebæk framhjá sér fara.
Safnið er eitt vinsælasta og
þekktasta listasafn Dana en þar
eru munir frá milli-
stríðsárunum auk þess sem
áhersla er lögð á listasögu
áranna eftir 1945 og má m.a.
sjá þar muni eftir Arne Ja-
cobsen, Hans Arp, Francis
Bacon o.fl.
Fjölda áhugaverðra veit-
ingastaða og kaffihúsa er í Kaup-
mannahöfn þar sem gaman getur
verið að tylla sér niður og njóta
góðra veitinga. Að mati Kristínar
Johansen standa nokkrir upp úr.
Kronborg – Þetta segir Kristín
að sé besti „smørrebrød“-
staðurinn í Kaupmannahöfn. Þar
er hægt að fá hefðbundinn
danskan mat eins og heita lifr-
arkæfu, síld og rauðsprettu, sem
er þar algjört lostæti, ekki síst ef
veitinganna er notið við arineld á
veturna. Þetta er lítill staður sem
lætur lítið yfir sér og er rekinn
af fjölskyldu, svo þjónustan er
góð og persónuleg.
Aura – Skemmtilegur staður
með spænsku eldhúsi. Kristín
mælir með sjö rétta matseðlinum
með mjög góðum tapas-réttum.
Góður „brunch“-staður.
Café Victor – Klassískur staður
og á besta stað í miðbænum.
Minnir á evrópskan brasseri-stað,
er frekar dýr en maturinn alltaf
góður og andrúmsloftið þægilegt.
Margir úr viðskiptalífinu sækja
staðinn og þar er hægt að panta
úrval kjöt- og fiskrétta.
Extra – Frábært veitingahús í
Østerbro. Lætur lítið yfir sér í
fyrstu en maturinn er ótrúlega
góður og eftirréttirnir ekki síðri.
Matreiðslan er í evrópsk-
latneskum stíl þar sem aðal-
áhersla er lögð á tapas úr fersk-
asta hráefni sem fáanlegt er
hverju sinni.
Bibendum – Þægilegur og per-
sónulegur staður þar sem eru yf-
irleitt tveir réttir á boðstólum
hverju sinni. Réttirnir eru á góðu
verði, en valið stendur oftast á
milli tapas-disks og „mömmu“-
gúllasréttar sem yljar um hjarta-
ræturnar. Eins og nafnið gefur til
kynna er mikið lagt upp úr góðu
víni, en vínkjallari er við hliðina á
staðnum. Notalegur staður fyrir
unga og ástfangna!
UPPÁHALDSSTAÐIR |Kristín Johansen í Kaupmannahöfn
Smurbrauð og dönsk hönnun
Kaupmannahöfn er vin-
sæll viðkomustaður Ís-
lendinga. Gréta
Hlöðversdóttir fékk
Kristínu Johansen til að
segja frá upphalds-
stöðum sínum í borginni.
Kristín Johansen: Segir Louisiana safnið í Humlebæk athyglisvert.
Almennar upplýsingar um
Kaupmannahöfn:
www.aok.dk/Copenhagen
Veitingastaðir og verslanir:
Kronborg
Brolæggerstræde 12, Kbh K
Aura
Raadhusstræde 4, Kbh K
Cafe Victor
Ny Østergade 8, 1101 Kbh K
www.cafevictor.dk
Extra
Østerbrogade 64, Kbh Ø
Bibendum
Nansensgade 45, Kbh K
Robert’s Café
www.robertscoffee.com
Illums-vöruhúsið
www.illum.dk
Magasin du Nord
www.magasin.dk
Louisiana-safnið
Gammel Strandvej 13, Humle-
bæk
www.louisiana.dk
Morgunblaðið/Golli
Egilsstöðum þann 19. janúar á skrif-
stofu UÍA á tjaldstæðinu.
Fundurinn hefst klukkan 18 með
kynningu á helgarferðum, m.a.
til Manchester 6.-8. febrúar og einnig
verða kynntar gönguferðir á Spáni í
júní, í Noregi í júní og leiguflug til
Stavanger. Þá verður sérstök kynn-
ing á íþróttaferðum.
Þá verða ÍT-ferðir með kynningu á
gönguferðum ársins sunnudaginn 25.
janúar í Félagshúsi Þróttar í Laug-
ardal (við gervigrasvöllinn) og hefst
hann klukkan 20.
Ferðavefur
samkynhneigðra
Nýr upplýsinga- og ferðavefur fyrir
samkynhneigða ferðamenn hefur
Yfir 700 hótel hjá Minotel
Minotel International hefur gefið út
bækling sinn fyrir árið 2004 og eru
Fosshótelin tvö í Reykjavík, Lind og
Baron þar áskrá.
Minotel International eru með
um700 hótel á skrá og á vefnum
www.minotel.com eru t.d. hótel í Evr-
ópu, Suður Ameriku, Afríku og á Mið-
austurlöndum. Hægt er að bóka
beint á vefnum en rúmlega 200 hót-
el eru í boði í Frakklandi og um 60 í
Þýskalandi. Hægt er að nálgast
bæklinginn hjá Fosshótel ehf. í síma
562-4000 eða á Netinu á bok-
un@fosshotel.is
ÍT-ferðir með ferðakynningu
ÍT ferðir verða með ferðakynningu á
verið opnaður og er slóðin www.gayi-
ce.is. Vefurinn verður til að byrja
með einungis á ensku, en honum er
helst ætlað að vera leiðandi í miðlun
upplýsinga til samkynhneigðra um Ís-
land og það sem landið hefur upp á
að bjóða með áherslu á menningu og
náttúru landsins. Með því að vekja
áhuga samkynhneigðra á Íslandi
vænta forsvarsmenn vefjarins til að
líkur aukist á því að samkynhneigðir
velji Ísland sem áfangastað. Auk
fróðleiks um land og þjóð, staðhætti,
samgöngur, menningu, gistimöguleika
og afþreyingu, er menningu samkyn-
hneigðra á Íslandi gerð skil. Öllum er
velkomið að kynna þjónustu sína á
vefnum sér að kostnaðarlausu og
hægt að senda efni um viðburði á
netfangið: info@gayice.is
VÍTT OG BREITT
DAGLEGT LÍF