Morgunblaðið - 17.01.2004, Side 42

Morgunblaðið - 17.01.2004, Side 42
MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigurður Bjarna-son Guðnason fæddist á Flanka- stöðum í Sandgerði 12. desember 1937. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 8. janúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Guðríðar Guðjóns- dóttur, f. 7. nóvem- ber 1904, d. 26. júní 1980, og Guðna Jóns- sonar, f. 29. apríl 1905, d. 24. desem- ber 1966. Sigurður var sjötti í röðinni af tíu systk- inum. Þau eru í aldursröð: María Gréta, Jón, lést í bernsku, Guð- jón, Guðrún, látin, Hulda, Haf- steinn, Karólína, Guðfinna Alda og Aðalsteinn Hólm. Hinn 31. desember 1958 kvænt- ist Sigurður Lilly Henny Walder- haug, f. 21. júní 1939, d. 14. sept- ember 1984. Eignuðust þau fjögur börn. Þau eru: 1) Guðríð- ur, f. 22. ágúst 1960, sambýlis- maður hennar er Ævar Þor- björnsson. Guðríður á dæturnar Lilly Roslyn og Elsu Söruh. 2) Sigurður Úlfar, f. 22. febrúar 1962, eiginkona hans er Björk Magnúsdóttir og eiga þau þrjá syni, Dag Sigurð, Úlfar Mána og Magnús Gauta. Fyrir á Úlfar dótturina Henny. 3) Ólöf, f. 8. október 1965, eiginmaður hennar er Douglas Simonds og eiga þau börnin Johnny Ray og Shirley. Fyrir á Ólöf soninn Ásgeir Loga. 4) Ásta Rán, f. 19. apríl 1970, eigin- maður hennar er Sigurður Þorbjörns- son. Fyrir á Ásta soninn Stefán Henning. Sambýliskona Sigurðar sl. ell- efu ár er Edda Márusdóttir, f. 25. janúar 1935. Hún á þrjá syni sem eru: Márus, Jónas og Ólafur Jó- hannessynir. Edda á einnig átta barnabörn og tvö langömmubörn. Sigurður var lengst af búsettur á Suðurnesjum og starfaði þar sem rakari. Síðan lá leið hans á sjóinn og vann hann við sjómennsku þar til hann veiktist árið 2000. Útför Sigurðar fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi, í dag ertu borinn til grafar eftir erfið veikindi. Eftir margra ára baráttu kom að því að sjúkdómurinn hafði betur. Mér þótti vænt um að ég gat verið hjá þér síð- ustu vikurnar. Mig langar að kveðja þig með þessum orðum: Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og bezta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Þegar freisting mögnuð mætir, mælir flátt í eyra þér, hrösun svo þig hendir, bróðir, háðung að þér sækja fer, vinir flýja, – æðrast ekki, einn er sá, er tildrög sér. Drottinn skilur, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pét.) Ég og fjölskylda mín vottum systkinum pabba og öðrum aðstand- endum dýpstu samúð okkar. Megi Guðs blessun fylgja ykkur. Elsku Edda, ég bið um að frið- arins faðir umvefji þig kærleika og gefi þér styrk, von og trú í þínum erfiðu raunum. Ljúfar minningar um góðan föður lifa í hjarta mér og fjölskyldu minnar. Eins og við sögð- um alltaf: Bless á meðan, pabbi minn, við elskum þig. Far þú í friði og friður Guðs þig blessi. Þín dóttir, Guðríður. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, Ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku pabbi, Guð umvefji þig elsku sinni og bless í bili. Öllum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Edda mín, ég bið góðan Guð um að gefa þér styrk í þessum erfiðu raunum. Þín dóttir, Ólöf og fjölskylda. Það var ekki laust við að ég fyndi fyrir örlitlum kvíða fyrir tæpum ell- efu árum. Von var á Sigga tengda- pabba í heimsókn í fyrsta sinn, en við Úlfar vorum nýfarin að búa sam- an. Svo mætti hann í Miðholtið, gler- fínn og strokinn, sem hann alltaf var, færandi blómvönd og sjálfur ör- lítið feiminn. Fann ég strax að ég kunni vel við hann. Siggi hafði góða nærveru og alltaf var gaman að hitta hann og Eddu, sambýliskonu hans. Hvort heldur var í Hörðalandinu eða vestur á Arnarstapa, þar sem þau áttu sinn sælureit. Svo minnumst við með gleði, dagsins er hann fór með okkur í bíltúr um Suðurnesin og sýndi okkur átthagana, stoltur. Ekki var stoltið minna þegar elsti sonur okkar fæddist og við skírðum í höf- uðið á honum. Alltaf var hann boð- inn og búinn ef þurfti að klippa afa- strákana. Helst mátti enginn annar sjá um það en Siggi afi. Svo mætti hann með brjóstsykur í öðrum vas- anum og „klippigræjurnar“ í hinum. Þótt hann væri ákaflega hæglátur og prúður maður var stutt í grall- arann og grínistann, sem kom fram á góðum stundum. Hann kvaddi þetta jarðlíf alltof fljótt og verður sárt saknað af okkur öllum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk, fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín tengdadóttir, Björk. Þá er Sigurður bróðir sofnaður eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Þegar Siggi bróðir eða „rakarinn“ eins og hann var ætíð nefndur á mínu heimili er fallinn frá, þá hrúgast minningarnar upp. Það sem kemur fyrst upp í hugann er það sem skeði um hádegisbil 10. nóvember 1944. Siggi bróðir var að koma úr skólanum og þegar hann gengur að eldhúsborðinu heima í Breiðabliki, þar sem eldhúsglugginn snýr til norðurs, þá hrópar hann allt í einu: Sjáið þið blossann. Það var verið að skjóta Goðafoss niður norð- ur af Garðskaga. Þessi atburður hef- ur alltaf verið ljóslifandi fyrir manni þó að maður hafi ekki verið hár í loftinu þegar hann skeði. Á uppvaxtarárum okkar var alltaf nóg við að vera. Verbúðirnar sem ið- uðu af mannlífi voru skammt undan og þarna eignuðumst við marga vini, sjómenn, landmenn og fiskverkafólk alls staðar að af landinu. Við vorum ekki gamlir þegar við byrjuðum að vinna okkur inn ein- hverja aura. Barnaþrælkun var orð sem ekki heyrðist. Það var mætt á reitinn. Þegar Bergur verkstjóri flauaði eins og kallað var, þegar unglingar áttu að mæta til að breiða saltfisk. Hausar voru settir út á tún til þurrkunar og það þurfti að snúa þeim svo ekki úldnaði það sem niður sneri. Á vertíðinni var gellað, hve- nær sem færi gafst. Eftir barnaskólapróf lá leiðin á Núpsskóla en enginn gagnfræða- skóli var í Sandgerði. Eftir gagn- fræðapróf hóf Siggi nám í hárskurði hjá nafna sínum Guðlaugssyni í Keflavík. Hann vann síðan við iðn sína í Keflavík í mörg ár, var vinsæll rakari, alltaf léttur í lund og sagði skemmtilega frá. En sú tíð kom að menn hættu að láta klippa hár sitt, rakarar höfðu því ekki í sig og á. Siggi hætti að vinna við iðn sína, en fór að vinna í byggingarvinnu um tíma. Leiðin lá síðan á sjóinn þar sem Siggi starfaði meðan heilsan leyfði. Hann var fyrst háseti á ýmsum skip- um en tók síðan til við matseldina. Honum virtist matargerðin í blóð borin. Snilldarkokkur og köttur þrifinn eins og sagt hefði verið í gamla daga. Þá skemmdi hárskurðarkunnátt- an ekki fyrir, því eftir langa túra komu allir nýklipptir í land. Siggi var mörg síðustu starfsárin matsveinn hjá Gísla Arnbergssyni, kunnum togaraskipstjóra hér á Suð- urnesjum. Gísli hefur sjálfur sagt mér að Siggi hafi verið afburða starfsmaður og vel látinn af skips- félögum sínum. Siggi giftist Lillý Henný Walder- haug, f. 31.12. 1958, og eignuðust þau fjögur börn. Lillý andaðist 14. september 1984, langt um aldur fram. Síðustu árin hefur hann búið með Eddu Márusdóttur og höfðu þau bú- ið sér indælt heimili í Hörðalandi 10 í Reykjavík. Þá höfðu þau keypt sumarbústað vestur á Stapa, og veit ég að þar áttu þau nokkur góð sum- ur saman. Sem barn og unglingur var hann í sveit á stórbýlinu Hamraendum í Breiðuvík, Karolína systir var hjá Kristni í Syðri-Tungu, en ég hjá Sveini á Felli á Stapa. Vera okkar undir Jökli hafði góð áhrif á okkur öll og síðustu sumur hefur Siggi endurnýjað kynni sín við marga frá gamalli tíð. Einnig átti Edda því láni að fagna, að skyldfólkið frá Skjald- artröð var oft ekki langt undan. Nú þegar þú ert horfinn á braut er mér og fjölskyldu minni efst í huga þakklæti fyrir allar ánægju- stundirnar sem við áttum saman. Þá munum við alltaf dást að æðruleysi þínu á hverju sem gekk. Við Eydís biðjum góðan Guð að hugga þá sem næst þér standa. Minningin um góðan dreng lifir. Hafsteinn. Með Sigga rakara, föðurbróður okkar er genginn sá maður úr okkar frændgarði sem við munum minnast hvað helst fyrir afburða skopskyn. Siggi ólst upp í Sandgerði og var rétt rúmu ári eldri en pabbi og gengu þeir bræður saman í gegnum margt sem jafnaldrar væru, fermd- ust m.a. saman. Það var greinilega eitthvað sem gerði það að verkum að þeir bræður vildu slá hlutunum sam- an því þeir sáu nýtt tækifæri á slíku rúmum tuttugu árum síðar þegar yngstu börn þeirra voru skírð sam- an í Hvalsneskirkju á sjómannadag- inn 1971. Þetta endurspeglaði kannski viðhorf föður þeirra sem ekki var mikið fyrir óþarfa bruðl. Siggi lærði hárskurð og rakaraiðn og starfaði sem rakari en lengst af var hann sjómaður, oftast mat- sveinn. Hann var háseti og mat- sveinn m.a. á skipum sem pabbi okk- ar stýrði en síðar á togurum, lengst með Gísla Arnbergssyni, kunnum aflaskipstjóra. Hann hefur líklega eldað kjarngóða íslenska máltíð ofan í ófáa íslenska sjómenn, máltíðir sem veittu mönnum nauðsynlegan kraft á dekkinu eða í lestinni. Siggi var tíður gestur á Faxa- brautinni í æsku okkar. Í heimsókn- um hans sagði hann að jafnaði brandara eða fór með gamanmál sem fengu viðstadda til að tárfella af hlátri. Ekki hvað síst fyrir þær sakir að Siggi byrjaði yfirleitt að hlæja að sínum eigin bröndurum áður en fyndnasti hluti brandarans rann honum úr munni. Það var síðan til að æra óstöðugan úr hlátri er þeir bræður margmenntu á Faxabraut- ina. Heimsóknir Sigga þýddu jafn- framt að leikin voru teningaspil. Yatzy var og er ættaríþrótt númer eitt hjá okkur afkomendum þeirra hjóna í Breiðabliki enda amma Gudda búin að kenna okkur öllum helstu grunnatriði íþróttarinnar, en Siggi fékk líklega flesta aukatímana hjá henni. Siggi var afburða ten- ingaspilari, eins furðulegt og það kann að hljóma. Hann gat brugðið á leik með alls kyns brellum sem við krakkarnir áttuðum okkur engan veginn á. Þetta reynum við að leika eftir Sigga í dag, með misjöfnum ár- angri. Við höfum líka fengið það í arf frá Sigga og bræðrum hans og systrum að það er mjög stutt í okkar eigin hlátur þegar vel gengur í spilinu. Ættaríþrótt hin önnur, þar sem Siggi var jafnframt afburða leik- maður, er eggjatínsla. Siggi arkaði um Miðnesheiðina á hverju vori og leitaði uppi veiðibjölluegg og kannski einhverja frekari eggjabó- nusa ef þeir lágu vel við höggi. Hann grínaðist að jafnaði með það hversu E-vítamínrík eggin væru og hló sín- um smitandi hlátri í kjölfarið. Á ættarmótum hafa ungir sem aldnir úr frændgarðinum verið að ná æ betri tökum á ættaríþróttunum. En Sigga skarð verður vandfyllt. Þar skemmti hann okkur jafnan með leikþáttum, setti á sig hárkoll- ur, gervitennur og fór með gaman- mál. Enn og aftur situr eftir minn- ing um Sigga frænda sem fær mann til að brosa í gegnum tárin, nú þegar komið er að kveðjustund. Síðustu sumur dvaldist Siggi að mestu vestur á Arnarstapa. Þar höfðu hann og Edda búið sér unaðs- reit í sumarbústað. Þar var gaman að koma í spjall og veitingar og hlusta á Sigga upplýsa um hvernig matseld á sjávarfangi væri best háttað. Þá sagði Siggi okkur jafn- framt margar skemmtilegar sögur frá uppvaxtarárum þeirra systkina frá Breiðabliki. Þær sögur munu lifa með okkur um ókomna tíð. Elsku Edda, Gurrý, Úlli, Ólöf og Ásta Rán. Guð blessi ykkur og fjöl- skyldur ykkar og styrki ykkur í sorginni. Minningin um frænda okk- ar mun ylja alla tíð. María, Hafdís, Björg og Guðni. Það var átakanleg sjón er við mér blasti þegar ég heimsótti þig í síð- asta skipti, kæri frændi, örfáum dögum áður en þú kvaddir þennan heim. Þú varst algerlega þrotinn að kröftum, lífsneistinn horfinn úr aug- um þínum og ljóst að hið óumflýj- anlega væri á næsta leiti. Mikið þótti mér sárt að horfa upp á þig við þess- ar kringumstæður. Nokkrum vikum fyrr, eða þegar þú varst lagður inn á spítalann, varstu líkari því sem þú áttir að þér að vera, kátur að vanda og sagðir mér brandara. Þú varst búinn að panta þér ferð til Bandaríkjanna þar sem þú hugðist dvelja með dætrum þínum um hátíðirnar. En það átti ekki fyrir þér að liggja að komast í það ferðalag þar sem veikindi þín reyndust miklu alvarlegri en þú ætl- aðir. Þegar ég rifja upp kynni mín af þér koma ekki aðrar en hlýjar minn- ingar upp í hugann. Alveg frá því ég var krakki minnist ég þess hve þú varst léttur og skemmtilegur. Kímnigáfu hafðir þú ómælda. Und- antekningarlítið fékk maður að heyra góða brandara eða eitthvað annað skemmtilegt þegar við hitt- umst. Góðum brandara laukst þú oftast með miklum og smitandi hlátri. Á mannamótum leitaðist maður gjarnan við að sitja nálægt þér svo maður missti nú ekki af „fjörinu“. Þú hafðir gaman að ýmsum spil- um og leikjum. Þegar ég var á ferm- ingar- og táningsaldri komstu oft heim og við fórum þrír, ég, þú og pabbi, í billiard. Þá var oft fjör. Þú varst mjög leikinn bridge-spilari og hafðir gaman af golfi. Ég var svo heppinn að fá að kynn- ast þér ekki aðeins í leik, heldur líka starfi. Við vorum saman til sjós hjá Hafsteini bróður þínum. Þú varst kokkur og fórst þér það verk sér- staklega vel úr hendi eins og annað. Súpurnar þínar voru t.d. alveg ein- stakar. Það vita þeir sem til þekkja, hve mikilvægt það er að á hverjum báti sé góður og hagsýnn kokkur. Það varst þú svo sannarlega. Mikið var spilað á sjónum þegar tími vannst til og varst þú þá gjarnan ná- lægur. Það var heldur ekki verra fyrir okkur skipsfélaga þína að hafa „rakara“ um borð en þú varst lærð- SIGURÐUR B. GUÐNASON Hjartkær maðurinn minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN BREIÐFJÖRÐ GÍSLASON, Skólastíg 14a, Stykkishólmi, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 10. janúar. Útför hans fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 24. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að hafa Orgelsjóð Stykkishólms- kirkju (Verslunin Heimahornið) eða Krabbameinsfélag Íslands í huga. Sólveig Sigurðardóttir, Magdalena Kristinsdóttir, Jón Pétursson, Sigrún Kristinsdóttir, Sesselja Kristinsdóttir, Árni Valgeirsson, afabörn og langafabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR GÍSLASON, Ásabraut 13, Grindavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grinda- vík, fimmtudaginn 15. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhanna Dagbjartsdóttir, Sævar Óskarsson, Khamnuan Óskarsson, Dagbjört Óskarsdóttir, Þorlákur Bernard, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.