Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 43 ur hárskeri. Manna á meðal var orð- inu „rakari gjarnan bætt aftan við nafnið þitt og þá vissu allir við hvern var átt. Við unnum líka saman um tíma við smíðar hjá honum pabba en smiður varstu góður þó ómenntaður værir sem slíkur. Aldrei man ég eft- ir þér öðruvísi við vinnu en harð- duglegum og ósérhlífnum. Vissulega voru þröskuldar á vegi þínum í gegnum lífið, eins og okkar hinna. Mesta áfall þitt varð fyrir 20 árum þegar konan þín hún Lillý frænka, lést langt um aldur fram, aðeins 45 ára gömul. Seinna fannstu þér annan lífsföru- naut, hana Eddu, sem studdi þig til hinstu stundar. Ég votta að lokum Eddu og börn- unum þínum þeim Gurrý, Úlla, Ólöfu og Ástu Rán mína innilegustu samúð. Ég mun sakna þín mjög og bið guð að blessa minningu þína. Guðni Walderhaug. Fimmdudaginn 8. janúar lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut mikill vinur minn, Sig- urður B. Guðnason, eftir tveggja mánaða erfiða legu. Sigurður var alla tíð sérlega léttur og ljúfur í lund og átti mjög gott með að koma öðrum í gott skap. Eftir hálfrar aldar góð kynni kveð ég minn ljúfa vin með ljóði skáldsins góða frá Fagraskógi: Við sjáum, að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. Eddu vinkonu minni, börnunum og systkinum Sigurðar votta ég mína dýpstu samúð. Megi góður guð vin okkar geyma. Jóhann S. Walderhaug. Með þessum fátæklegu orðum vil ég kveðja góðan vin, Sigurð Guðna- son. Ég átti því láni að fagna að kynnast Sigga í gegnum mína kæru vinkonu Eddu, og var jafnan tíður gestur á notalega heimilinu þeirra í Hörðalandinu. Gestrisni þeirra og glaðværð þekktu allir sem þangað komu. Hógværð og hjálpsemi ein- kenndu Sigga í hvívetna. Hann var náttúrubarn sem hvergi kom betur í ljós en á litla setrinu þeirra á Snæ- fellsnesinu, „þar, sem jökulinn ber við loft“. Dvöldu þau þar jafnan sumar- langt og þar var unaðslegt að fá að heimsækja þau og dvelja nokkra daga og njóta með þeim hreina lofts- ins og fjallanna og horfa með honum Sigga á kríugerið sem flögraði við húsdyrnar. Aldrei var Siggi glaðari en þar og óþreytandi að fara með okkur Eddu í göngu- eða ökutúra um þetta kynngimagnaða umhverfi og sýndi okkur Eddu ótrúlegt um- burðarlyndi að hirða með okkur steina og skeljar og annað dýrmætt, sem við fundum, og troða því í fína bílinn sinn sem alltaf var tandur- hreinn. Snyrtimennska og reglu- semi var honum í blóð borin og sást það best hve natinn hann var að snyrta og fegra í kringum litla bú- staðinn þeirra. Þá var ekki síst horft á silfurbláan hafflötinn og kíkt eftir bátum, sem voru að koma og fara, og þar var Siggi á heimavelli. Því sjó- maður var hann og þekkti vel til flestra þeirra. Stundum brá hann sér líka á sjóinn frá Arnarstapa og sótti í soðið. En ferðunum fækkaði smátt og smátt eftir því sem heilsunni hrak- aði og nú er hinsta ferðin framund- an, því miður allt of fljótt. Ég vil þakka þessum góða dreng margar ánægjustundir og óska hon- um góðrar heimkomu. Ég sendi Eddu, börnum hans og öllum að- standendum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Dagbjört. ✝ Hulda Harðar-dóttir fæddist 16. mars 1955. Hún and- aðist á Borgarspítal- anum 8. janúar síð- astliðinn. Hulda var dóttir þeirra hjóna Harðar Bjarnasonar og Aðalheiðar Ólafs- dóttur sem búa í Stóru Mástungu II í Gnúpverjahreppi í Árnessýslu. Hulda var næstyngst systk- ina en þau eru Þór- dís, Jóna Sigurbjörg, Ólöf Unnur, Jóhanna og Bjarni. Sambýlismaður Huldu var Steindór Stefánsson frá Skyggni í Hrunamannahreppi. Þau eignuð- ust þrjá drengi; Ólaf Steindórsson f. 4. ágúst 1976, Kristin f. 18. ágúst 1981, dó í sama mánuði, og drengur f. 21. ágúst 1984, dó í október á sama ári. Hulda ólst upp í Stóru Mástungu II, stundaði gagnfræða- nám og lauk bú- fræðinámi frá Hvanneyri. Hulda og Steindór hófu bú- skap í Stóru Mást- ungu II, þá í Hvera- gerði um nokkurra ára skeið en síðan að Austurhlíð í Gnúp- verjahreppi. Síðustu ár átti Hulda við erf- ið veikindi að stríða og bjó með Ólafi syni sínum í Reykjavík, milli þess sem hún þurfti að dvelja á sjúkrahúsi löngum stundum. Útför Huldu verður gerð frá Stóranúpskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Við systkinin ólumst upp saman í Mástungu enda voru ekki nema tæp tvö ár á milli okkar yngstu, mín og Huldu. Kyrrð sveitarinnar var al- gjör, ekki var sjónvarpi til að dreifa fyrr en við vorum orðnir unglingar en við lékum okkur saman og fórum þá oft í „Hornamóinn“. Þá kom fljótt í ljós áhugi hennar og natni fyrir bú- fénaði, hún hugsaði af alúð um bú- peninginn sem voru leggir og völur og aldrei gleymdist að forða þeim frá vondum veðrum og setja inn áður en við fórum heim. Mitt hlutverk var aftur á móti að brjóta land til rækt- unar og leggja vegi. Fyrirvaralaust barði alvara lífsins að dyrum, aðeins tíu ára gömul hafði Hulda fengið sykursýki sem færði hana næstum úr þessum heimi en ég stóð óttasleginn og horfði á og skildi ekki óréttlæti heimsins. En Hulda tók þessu með stóískri ró, ekkert virtist geta raskað jafn- aðargeði hennar, hún hélt áfram líf- inu, lagaði það að breyttum forsend- um og aldrei heyrði ég hana barma sér eða fyllast sjálfsvorkunn yfir hlutskipti sínu, þvert á móti var hún skyldurækin við námið og naut þess að hirða um skepnurnar í útihúsun- um og var ekki laust við að ég fylltist lotningu yfir slíkri samviskusemi. Og þannig liðu unglingsárin, hún hafði til að bera þetta jafnaðargeð og gleði í fari sínu þrátt fyrir að lenda í alvarlegum veikindum og horfast í augun við dauðann. En flestir dagarnir voru bjartir því að það var bjart í sál Huldu og þrátt fyrir mótlæti sem lífið skapaði henni, þá nýtti hún mótlætið til eigin þroska og fór aldrei í biturleika eða reiði. Þegar ég lít til baka sé ég að fyrir löngu var hún byrjuð að þroska með- vitað sína visku og vitund um tilgang lífsins, hún trúði á Guð og við sátum oft og ræddum um veru okkar hér á þessari jörð. Hulda, ég trúi því að allir gætu verið stoltir af þeirri hugarró sem þú hafðir, þú tókst með þér þau mestu verðmæti, reynsluna, þú kenndir mér svo margt um lífið, hvað sé mikilvægt og hvað ekki, Guð geymi þig. Þakka ykkur sem hugsuðuð svo vel um hana í veikindum. Bjarni Harðarson. Mig langar að minnast Huldu Harðardóttur, fyrrverandi mágkonu minnar, með nokkrum fátæklegum orðum, en hún lést á Landspítalan- um hinn 8. janúar sl. eftir hetjulega baráttu við þrálátan sjúkdóm, langt um aldur fram. Hulda var næstyngsta barn hjónanna Harðar Bjarnasonar og Aðalheiðar Ólafsdóttur sem búa í Stóru-Mástungu í Gnúpverjahreppi. Ég ætla ekki að rekja lífshlaup Huldu, en mig langar til að þakka henni fyrir öll góðu árin og þær stundir sem ég fékk að deila með henni. Þótt tengslin hafi slitnað fyrír nokkrum árum fylgdist ég alltaf með Huldu og baráttu hennar við sjúk- dóm sinn, sem var aðdáunarverð. Aldrei kvartaði Hulda þótt vitað væri að hún var sárþjáð. Maður verður orðlaus á svona stundu og ekki laust við að reiði blossi upp í manni. Finnst manni mikið ósanngjarnt að svona ung kona sé tekin í blóma lífsins, en svona er lífið. Þetta kennir manni að þakka fyrir hvern dag sem maður fær að lifa og vera ekki að kvarta yfir því sem ekkert er. Elsku Hulda nún, þjáningum þín- um er lokið og vonandi líður þér vel. Ég sendi öllum aðstandendum og sérstaklega Ólafi syni Huldu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hvíldu í Guðs friði. Rúnar Sigurðsson. Síminn hringir, Heiða er í síman- um. Ég fann strax, það er búið, Hulda er dáin. Ég finn engin orð en það þurfti engin orð. Mikil baráttu- kona er horfin á braut. Kona sem barist hefur fyrir lífi sínu nærri alla ævi. Þegar Hulda var 10 ára greind- ist hún með sykursýki, þessi knáa, glaðlega, ljóshærða telpa, full af lífs- orku og gleði. En, allt í einu er kippt í spottann. Áhugi Huldu á hestum leiðir okk- ur saman strax í æsku hennar. Mér líður aldrei úr minni er hún reið heim á folanum sínum sem hafði verið hér í tamningu. Hún strax dugleg á hest- um og folinn þægur, góður, ljúfur með 10 ára telpuhnokka á baki. Bjarta geislandi brosið og björtu lokkarnir blaktandi í vindinum þegar við riðum inn Steinsholtshaga og heim að St.-Mástungu. Foreldrarnir Heiða og Hörður á hlaðinu með út- breiddan faðminn og geislandi brosi að taka á móti dótturinni, og svo stolt með hana og folann. Allt eins og ósk- að hafði verið. En rétt seinna kom áfallið. Hulda, svona ung, greinist með þennan skæða sjúkdóm. En Hulda hélt áfram, ekkert gat bugað hana. Væntumþykja hennar og áhugi á öllum dýrum var einstakur og áhugi á búskap var svo einarður að hún fór á Bændaskólann á Hvann- eyri og eignaðist jörð. Með manni sínum rak hún myndarlegt kúabú og fjárbú, stundaði hestana og eignaðist lítinn dreng. Allt lék í lyndi, fram- tíðin blasti við. En, aftur er kippt í spottann. Hulda og Denni eignuðust tvo drengi með fárra ára millibili sem báðir létust nokkurra daga gamlir. Þvílík sorg, þvílíkt áfall sem ekki allir hefðu þolað. En Hulda, sterk, æðrulaus með sitt ljúfa skap bugaðist ekki, hélt áfram. Með sinn sjúkdóm sem gekk á líkamann með tímanum starfaði hún í Kvenfélagi Gnúpverja, söng í kirkjukórnum og stundaði búskapinn eins og heilsan leyfði. Styrkleiki Huldu var þannig að maður gerði sér ekki grein fyrir hversu veik hún var. Hún kvartaði aldrei, var alltaf bjartsýn, glöð en barðist fyrir lífi sínu. Elsku Hulda, það var gaman að koma til þín í Austurhlíð í sumar. Ég gleymi þér ekki þegar þú komst til dyra, sama geislandi brosið þitt, þú teinrétt og á göngulagi þínu gat mað- ur varla séð að þú hafðir misst annan fótinn. Þinn sérstaki hlátur hljómar í eyrunum. Glaðværðin, þrátt fyrir erfiðleikana, ætti að vera okkur hin- um til eftirbreytni þótt eitthvað bjáti á. Þakka þér, Hulda, fyrir það sem þú gafst okkur, kjark og æðruleysi til eftirbreytni. Megi góður guð styrkja Óla son þinn í sorginni og ykkur, elsku Heiða og Hörður, og aðra aðstandendur. Guð veri með þér. Rosemarie. Allir sem það hafa reynt skynja gildi þess að eiga gott nágrenni og hvað í því felst. Hvergi verður það þó ljósara en í hinum dreifðu byggðum, þar sem hver einstaklingur og fram- ganga hans ræður miklu um þróun samfélagsins. Þegar þau Hulda og Denni fluttu að Austurhlíð fyrir rúmum tveimur áratugum fundum við hér í Steinsholti fljótt að þar höfðum við eignast góða granna. Samvinna, samhjálp og hlýhugur hefur ávallt einkennt samskipti þess- ara bæja frá upphafi og engan skugga borið þar á. Tæpast verður sagt að þau Hulda og Denni hafi gengið að neinu gróða- fyrirtæki í Austurhlíð, eða heldur höfðu þau digra sjóði að leggja til með sér. Jörð og húsakostur þörfn- uðust endurbóta og bústofninn lítill, þótt hann væri að grunni til ágætur. Þetta voru tímar mikils samdráttar og erfiðleika í íslenskum landbúnaði og bitnaði það að sjálfsögðu á Aust- urhlíðarbúinu eins og öðrum. Aldrei var þó að finna neinn uppgjafartón í þeim Huldu og Denna en með þraut- seigju og viljastyrk bættu þau húsa- kost, ræktun og juku við bústofninn. Auk þess sótti Denni vinnu út í frá, fyrst á sjóinn og seinna með vinnu- vélum. Hulda var í eðli sínu mikið nátt- úrubarn, hún unni mjög sveitinni sinni og í Austurhlíð var eins og hún ætti sitt eigið ríki. Hún hafði mikið dálæti á skepnum og áhugi á ræktun þeirra var henni í blóð borin. Búfé sitt annaðist hún af alúð og hjá henni áttu allar skepnur ætíð sína máls- vörn. Óhætt er að segja að skipst hafi á skin og skúrir í Austurhlíðarbú- skapnum, þar fengu þau Hulda og Denni að ganga í gegnum mörg þungbær áföll, sem trúlega hefðu hvert og eitt verið flestum nægur kross að bera. Auk þess átti Hulda lengst af við heilsuleysi að stríða sem ágerðist eftir því sem á leið. Hvað á hugann leitaði í mótlætinu bar Hulda aldrei á torg en tók því öllu með ein- stöku langlundargeði og yfirvegun. Hógvær, reglusöm og staðföst. Hulda var í raun ekki sérlega mannblendin og barst ekki mikið á innan um fólk. Hún var hins vegar mikill vinur vina sinna og trú þeim sem traust hennar áttu. En þess nutu þeir líka í ríkum mæli. Hulda hafði mikið dálæti á tónlist og söng með Söngfélagi Stóra-Núps- kirkju og Árneskórnum. Í þessu átt- um við samleið eins og mörgu öðru og urðum því oftast samferða á æf- ingar og fleira sem þessu starfi fylgdi. Ósjaldan var ýmislegt órætt þegar heim var komið og þá var stundum sest inn í kaffi þó að farið væri að halla í miðnætti. Þá bar margt á góma. Búskapurinn var reyndar alltaf fyrirferðarmikill, en einnig tónlist og þá ekki síst óperur. Hulda var einlægur óperuaðdáandi og tónlistin var henni auðsjáanlega mikil lífsnautn. Nú er lífssól Huldu Harðardóttur hnigin eftir þunga baráttu við illvíg- an sjúkdóm. Eftir lifa minningar um mæta vinkonu og góðan granna sem seint verða fullþakkaðar. Aðstand- endum öllum er vottuð innileg sam- úð. Megi góður Guð styrkja ykkur öll. Sigurður og Sigríður, Steinsholti. HULDA HARÐARDÓTTIR Elsku pabbi, ég vil minnast þín í fáeinum orðum við ferðalok. Vegir þínir voru mis- greiðfærir eins og hjá okkur hinum en við stjórnvölinn sat þróttmikill, glaðvær og auð- mjúkur maður. Mér fannst þú oft á tíðum æði glannalegur þegar þú ókst um á risafengnum Bedfordin- um til að færa hestamönnum vistir SIGURÐUR Á.H. JÓNSSON ✝ Sigurður ÁgústHafsteinn Jóns- son fæddist í Reykja- vík 24. maí 1929. Hann lést á Hjúkrun- arheimilinu Skóg- arbæ 5. janúar síð- astliðinn og var jarðsunginn frá Bú- staðakirkju 16. jan- úar. og búnað. Á ferðum okkar austur í Mýrdal efaðist ég jafnan stór- lega að þér tækist að komast upp Gatna- brún eða hvort við myndum húrra rak- leiðis aftur á bak, ég stóð dísilinn í botni með þér. Þetta var nú bara vinnan þín og þú skoraðist aldrei undan enda reynsla þín sú að ógerlegt var að draga fram lífið án ötullar vinnu. Skoðun þín á stúdentum var af þessum sökum fremur einstreng- ingsleg: „Stúdentar eru kolbrjálað fólk,“ og saupst hveljur yfir lát- æðinu í uppreisnarseggjum í þeirra röðum. Mér fannst þú öllu fremur skoplegur en sannfærandi í þess- um efnum svo að ég ákvað að ganga menntaveginn. Í þessu samhengi er ekki úr vegi að minnast Valla gamla á Álfhólum í V-Landeyjum enda átti hann rík- an þátt í að móta þá hugmynd okk- ar beggja að vinnusemi væri af hinu góða. Hann bætti þó jafnan við að með bókalestri og sjónvarps- glápi fengi maður riðu í glyrnurnar og yrði hálfvitlaus. Þið frændurnir voruð oft ansi þrautseigir í rök- semdafærslunum. Þið mamma voruð um margt ólík og skiptuð með ykkur verkum við hæfi. Eitt af því sem var þér hvað ástkærast var tilþrifamikil matar- gerð. Þú sveifst um á blankskónum léttur á fæti, flautandi lagstúfa lið- inna ára með dálitlu djassívafi svo glitti í forkunnarfagra gulltönnina. Þú varst sannarlega lífskúnstner í eðli þínu en gekkst jafnframt fús til verka sem voru mömmu hvað kær- ust, garðræktar og hestamennsku. Raunar er langt síðan ég kvaddi þig í eigin persónu sökum veikinda en bros þitt lifir í minningunni. Vilborg Þórunn Sigurðardóttir. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Frágangur afmælis- og minningar- greina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.