Morgunblaðið - 17.01.2004, Side 63

Morgunblaðið - 17.01.2004, Side 63
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 63 „ÞETTA var besti kosturinn í stöð- unni að mínu mati þótt ljóst sé að samkeppnin við enska landsliðs- markvörðinn verður hörð,“ sagði Árni Gautur Arason, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, sem í gær gerði samning um að leika með enska úrvalsdeildarliðinu Man- chester City til loka leiktíðarinnar í Englandi í maí. „Ég verð bara að taka því sem að höndum ber og gera mitt besta þegar tækifæri gefst. Eftir það verður maður að sjá til með framhaldið,“ sagði Árni sem er ánægður með að vera kominn inn í ensku deildina. „Enska deildin er ein sú skemmtilegasta í Evrópu og því þykir mér bæði spennandi og skemmtilegt að vera kominn í hana.“ Árni Gautur verður ekki í leikmannahópi City í dag þegar Blackburn sækir Manchester heim. „Það er stefnt að því að ég verði klár í slaginn eftir viku þegar við mætum Tottenham í bikarkeppn- inni,“ sagði Árni en keppinautur hans, David James, landsliðs- markvörður Englendinga, er ekki löglegur með Manchester City- liðinu í bikarnum þar sem hann hef- ur áður leikið með sínu fyrra félagi, West Ham í bikarkeppninni á leik- tíðinni. „Ég geri mér grein fyrir að samkeppnin við enska landsliðs- markvörðinn verður hörð, en ég er staðráðinn í að nýta þau tækifæri sem ég fæ til að sýna hvað í mér býr,“ segir Árni Gautur. Árni Gautur: Manchester City er besti kosturinn  NORSKU stúlkurnar Ida Gullak- sen og Kariana Løck, sem eru að- eins aðeins 24 og 25 ára, dæma Evr- ópuleiki ÍBV og búlgarska liðsins Etar, sem fara fram í Vestmanna- eyjum í dag og á morgun. Þær dæma sína fyrstu Evrópuleiki í Eyjum. Leikmenn Etar komu í gær sjóleið- ina til Eyja með Herjólfi.  DANIR eru nokkuð undrandi á því að Gísli Kristjánsson, leikmaður Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni, væri ekki inni í myndinni í íslenska landsliðshópnum. Gísli gekk til liðs við Fredericia fyrir þetta tímabil og hefur leikið mjög vel en hann spilaði áður með Gróttu/KR.  ZDRAVKO Zovko, handknatt- leiksþjálfari sem stýrði Króötum til gullverðlauna á ÓL í Atlanta 1996, er aðstoðarþjálfari Ungverja um þess- ar mundir. Zovko er margreyndir þjálfari og var Júgóslavíu á EM í Svíþjóð fyrir tveimur árum og Egyptalandá HM í fyrra. Hann er nú þjálfari ungversku meistaranna, Veszprem, en er ætlað að vera Laszlo Skaliczki, landsliðsþjálfara Ungverja, til halds og trausts á EM vegna yfirgripsmikillar reynslu sinn- ar og kunnáttu. Ungverjar eru með Íslendingum í riðli á EM.  STEVE McClaren, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, sagði í gær að hann hefði rætt við forráðamenn Liverpool um kaup á Emile Heskey. McClare hefur einnig áhuga á Mark Viduka hjá Leeds. Sir Alex Fergu- son, Man. Utd, hefur einnig áhuga á Viduka, sem metinn er á sex millj. punda, eftir að hann hefur misst af Louis Saha, miðherja Fulham, sem er ekki til sölu.  LANDSLIÐSÞJÁLFARI Nígeríu gaf Kanu leyfi til að leika með Ars- enal gegn Aston Villa á morgun – áður en Kanu kemur til liðs við landsliðshóp Nígeríu fyrir Afríku- keppnina. Kanu mun leika í fremstu víglínu við hlið Thierry Henry, en þrír sóknarleikmenn Arsenal eru á sjúkralista – Sylvain Wiltord, Denn- is Bergkamp og Jeremie Aliadiere.  ARSENE Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, þvertók fyrir það í gær að félagið væri á höttunum eftir Jermain Defoe, sóknarmanni West Ham. Sögur hafa verið á kreiki þess efnis en Wenger neitar því. Hann reiknar ekki með að kaupa neinn leikmann á meðan markaðurinn er opinn nú í janúar – segir að hann sjái ekki leikmann sem er til sölu á sann- gjörnu verði. Búið sé að sprengja upp verð á knattspyrnumönnum.  LEEDS fær tveggja mánaða frest til að bjarga sér frá gjaldþroti en áð- ur hafði félagið haft frest til næsta mánudags.  ÞÝSKI varnarmaðurinn Moritz Volz, 20 ára, sem hefur verið hjá Ful- ham í láni frá Arsenal, gerði í gær samning við Fulham til ársins 2007. FÓLKÞAÐ mætti ætla að íslenskalandsliðið tæki þátt í tveimurmótum en ekki einu, sitt hvor-um megin við Eyrarsundið. Þegar leikið er í Danmörku heitir það LK-bikarinn, eftir aðalstyrktaraðila danska landsliðsins, en í Svíþjóð heit- ir það bara „Fjögurra þjóða mótið.“ Kannski skiljanlegt að því leyti að þetta er í fyrsta skipti sem þjóðirnar halda þetta mót saman en til þessa hefur hvor þeirra haldið sitt mót um miðjan janúar. Ísland hefur verið með á þeim báð- um, var síðast með á danska mótinu í fyrra (Danmörk, Ís- land, Pólland, Egyptaland) og tók tvisvar þátt í sænska mótinu, 1995 (Svíþjóð, Ísland, Noregur, Danmörk) og 1998 (Svíþjóð, Ísland, Egyptaland, Túnis.) Ísland lék mjög vel lengst af en rétteins og fyrir ári, þegar liðið var í sömu stöðu og á leið á HM, tapaði það með einu marki, nú 29:28. Svíar nutu heimavallarins og knúðu fram sigurinn eftir að Ísland hafði verið yfir, 26:24, sex mínútum fyrir leikslok. Nutu heimavallarins, sagði ég, því annars ágætir danskir dómarar voru þeim sænsku hliðhollir á mikilvægum augnablikum. Sérstaklega í lok fyrri hálfleiks þegar þeir komust í 14:11 á all vafasaman hátt, og síðan þegar Magnus gamli Wislander fékk víta- kast á ögurstundu, bara út á aldur og fyrri störf þegar honum mistókst að koma boltanum framhjá Reyni Þór Reynissyni, aleinn í dauðafæri. Þar jöfnuðu Svíar í 26:26 og náðu í kjölfar- ið undirtökunum í blálokin. Tomas Svensson heitir markvörður einn þrautreyndur og það var hann og enginn annar sem var maðurinn á bakvið þriggja marka forystu Svía í hálfleik, 14:11. Hann varði hvað eftir annað frá íslensku leikmönnunum úr dauðafærum, Sigfús Sigurðsson var t.d. fjórum sinnum einn gegn honum án þess að ná að skora, og Svensson varði tvö vítaköst þegar staðan var 5:3. Framganga hans nægði til þess að Svíar voru með eins til fjögurra marka forystu allan fyrri hálfleikinn en eini gallinn við leik íslenska liðsins þar var hræðileg nýting. Aðeins þrjár sóknir af fyrstu fimmtán skiluðu mörkum – samt var leikurinn nokk- urn veginn í jafnvægi, og það segir meira en mörg orð. Það tók íslenska liðið innan við fjór- ar mínútur að jafna, 14:14, í síðari hálfleik og eftir það var jafnt á flest- um tölum í hálfleiknum. Eftir að Ís- land hafði nýtt átta af fyrstu tíu sókn- um sínum brugðu Svíar á það ráð að láta hinn þrautreynda Stefan Löv- gren taka Ólaf Stefánsson úr umferð. Ólafur hafði leikið sænsku vörnina grátt hvað eftir annað og hafði í fyrri hálfleiknum hrist strákinn Jonas Källman auðveldlega af sér þegar sá félagi hans frá Ciudad Real reyndi að halda aftur af honum. En íslenska liðið átti svör við því að Ólafur væri klipptur út, og það er líka eins gott, því það má búast við því að allir mótherjar Íslands í Slóveníu hafi góðar gætur á handhafa íslensku fálkaorðunnar. Eins og hann hefur spilað gegn Svíum og Dönum stendur hann undir nafni sem einn allra fremsti handboltamaður heims. Jal- iesky Garcia lét virkilega vel að sér kveða vinstra megin, átti sinn besta leik á undirbúningstímabilinu, og sóknarleikurinn var hreyfanlegur og fjölbreyttur. Svo þegar Lövgren var rekinn af velli fyrir að brjóta á Ólafi, nýtti sá síðarnefndi tækifærið og töfr- aði fram þrjú mörk í röð, skoraði tvö þeirra sjálfur, og Ísland var komið í 26:24. En Ólafi brást sjálfum boga- listin í dauðafæri þegar hann gat komið Íslandi í 27:25. Í stað fékk Wisl- ander gjafavítið sem áður er nefnt og leikurinn snerist við á ný. Jonas Er- nelind kom Svíum yfir, 28:27, þegar 70 sekúndur voru eftir. Wislander skoraði síðan úr hraðaupphlaupi, 29:27, eftir óðagot í íslensku sókninni en Ólafur átti lokaorðið í leiknum. Þrátt fyrir ósigurinn var frammi- staða íslenska liðsins í Malmö stór- góð. Með aðeins betri varnarleik, sem reyndar var fínn á köflum, og ívið betri markvörslu hefði sigur unnist. Og það hefði reyndar ekki þurft þetta til, eins og leikurinn gekk fyrir sig. Eins og í fyrra var hinn örvhenti Kim Andersson Íslendingum erfiðastur og þessi unga stórskytta skoraði mörkin sem vógu þyngst að þessu sinni. Nið- urstaðan er sú, að þó að um æfinga- leik hafi verið að ræða fer ekki á milli mála að íslenska liðið er í góðu standi og fyllilega tilbúið í átökin suður í Slóveníu. Guðmundur er greinilega kominn með sitt byrjunarlið þar: Guðmundur H., Guðjón Valur, Garcia, Snorri Steinn, Sigfús, Ólafur og Einar Örn. Hann hefur látið þessa leikmenn spila meira og minna gegn Dönum og Svíum og varla leikur vafi á því héðan af að þeir hefja Evrópu- keppnina. Thommy Nyhln / SCANPIX Bengt Johansson, landsliðsþjálfari Svía og Sigfús Sigurðsson skiptast á skoðunum eftir leikinn í Malmö í gær. Sigur á Svíum var innan seilingar ENN tekst íslenska landsliðinu ekki að brjóta ísinn og sigra Svía. Heil kynslóð af handknattleiksmönnum og áhugamönnum um íþróttina hefur farið á mis við þá dýrð, enda verið við ramman reip að draga síðustu fimmtán árin eða svo gegn einhverju albesta handknattleiksliði sögunnar. En miðað við leik þjóðanna í Malmö í gærkvöld er aðeins tímaspursmál hvenær það gerist. Víðir Sigurðsson skrifar frá Malmö „Tvö mót“ við Eyrarsund KLAVS Bruun Jörgensen, danski landsliðsmaðurinn í handknattleik, vandaði ekki Sigfúsi Sigurðssyni kveðjurnar eftir ófarir Dana gegn Íslendingum í Farum í fyrrakvöld. Jörgensen þurfti að fara meiddur af velli eftir aðeins níu mínútna leik eftir árekstur við Sigfús, og það var mikið áfall fyrir Torben Winther, þjálfara Dana, sem ætl- aði að nota Jörgensen sem leik- stjórnanda í leikjunum þremur í mótinu og breyta með því leikstíl liðsins. „Sigfús gerði þetta viljandi, það er hundrað prósent öruggt, og það er ótrúlegt að menn skuli spila eins og hann gerði í æfingaleik fyrir Evrópumót,“ sagði Jörg- ensen, sem fékk högg á lærið og sat á varamannabekknum með kælipoka það sem eftir var leiks- ins. Dönsku blöðin sendu flest Sig- fúsi tóninn fyrir framgang hans og í grein BT er sagt að Íslend- ingar hafi barið allt sem hreyfðist. „Stóri Sigfús frá Magdeburg entist aðeins í 29 mínútur og 59 sekúndur. Þá sýndi hann takta eins og Mike Tyson og barði Joac- him Boldsen beint í andlitið. Og þar með var hans þætti lokið. Það var gott fyrir danska liðið því Sig- fús Sigurðsson er geysilega góður línumaður. Þrátt fyrir stærðina fara þessi rúmlega 100 kíló um völlinn af slíkum krafti að hann galopnaði dönsku vörnina hvað eftir annað í fyrri hálfleiknum. Það var ekki að merkja að mað- urinn væri meiddur í baki og vafi léki á þátttöku hans í EM,“ skrif- aði Ole Ravn í BT. „Börðu allt sem hreyfðist“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.