Morgunblaðið - 17.01.2004, Side 66
66 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Sýnd kl. 5.50 og 8.
Yfir 75.000 gestir
HJ MBL VG. DV
Sýnd kl. 2, 4 og 8. B.i. 12.
Sýnd kl. 2. Með íslensku tali.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.10.
Stranglega bönnuð yngri en 16 ára.
Frábær rómantísk gamanmynd
með ótrúlegum eikkonum
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
Sýnd kl. 2 og 3.30.
Íslenskt tal.
Kvikmyndir.com
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Frábær rómantísk
gamanmynd
með ótrúlegum
leikkonum
Frumsýning
Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og
Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún
stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
kl. 2, 6 og 10.
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 75.000 gestir
VG. DV
ÞAÐ hefur vísast ekki fariðframhjá neinum að mik-ill styr hefur staðið umprófessor Hannes Hólm-
stein Gissurarson, stjórnmála-
fræðing og ævisagnaritara, að
undanförnu. Morgunblaðið ákvað
að skyggnast aðeins á bakvið for-
tjöldin hjá þessum litríka manni.
Hvernig hefurðu það í dag?
Mér líður vel. Ég er í góðu skapi og
með hreina samvisku. Andláts-
fregnir um mig eru mjög orðum
auknar.
Hvað ertu með í vösunum?
Lyklana að húsinu mínu, sem ver-
ið er að gera við, svo að ég hef
varla getað búið þar síðustu vikur.
En það stendur til bóta.
Uppvaskið eða skræla kartöflur?
Jarðepli, eins og við málvöndunar-
menn köllum þetta, eru hollari
óskrældar, svo að ég segi upp-
þvott.
Hefurðu tárast í bíói?
Það hefur komið fyrir, þegar eitt-
hvað hefur hrifið mig eða syrgt.
Ef þú værir ekki fræðimaður, hvað
vildirðu þá vera?
Rithöfundur.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Ég fékk ekki áhuga á tónlist fyrr en
seint. Þetta var líklega í Óperunni í
Vínarborg 1974, og þar var leikin
tónlist eftir Strauss.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Forseti lýðveldisins.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Dauf tilfinning fyrir umhverfi mínu
og skortur á nærgætni.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Dugnaður, einbeitni, trygglyndi, ör-
læti, baráttugleði.
Bítlarnir eða Stones?
Rolling Stones.
Hver var síðasta bók sem þú
last?
Andlátsfregnirnar ýktar
Hannes Hólmsteinn
Gissurarsson við
Rauða torgið í
Moskvu
Speglanir eftir Helgu Kress.
Hvaða lag spilarðu áður en þú
ferð út á laugardagskvöldi?
„It’s Now or Never“, sem er raun-
ar ekkert annað en „O, sole mio“,
í annarri útfærslu.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Söngva úr rússnesku byltingunni í
búð á Moskvuflugvelli.
Hver er unaðslegasti ilmur sem
þú hefur fundið?
Af litlu barni nýlauguðu. Það er
besti ilmur í heimi.
Hvert er þitt mesta prakkara-
strik?
Að fá óvini mína til að annast
kappsamlegan og ókeypis
prófarkalestur á bók minni,
Halldór, sem er fyrsta bindi
ævisögu Halldórs Kiljans Lax-
ness. Það kemur sér vel, þeg-
ar bókin verður endurprentuð,
sem verður fljótlega, þar
sem hún seldist vel.
Hver er furðulegasti matur
sem þú hefur borðað?
Eitt sinn í Suður-Afríku fékk
ég krókódílahala í forrétt og
gíraffasteik í aðalrétt, og ég
skolaði þessu niður með
suður-afrísku rauðvíni.
Krókódílahalarnir voru
ekki ósvipaðir humar eða þéttum
fiski, en gíraffasteikin minnti dálít-
ið á hreindýrasteik, ef ég man rétt.
Þetta var haustið 1987.
Trúirðu á líf eftir dauðann?
Já og nei. Ekki á framhaldslíf
neinna líkamslausra anda, heldur
upprisu holdsins og eilíft líf eftir
kennisetningum kristninnar.
SOS
SPURT & SVARAÐ
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
Verðlaunagripurinn, sem Mín-
us fékk fyrir hljómplötu árs-
ins, Halldór Laxness, á Ís-
lensku tónlistarverðlaununum
hvílir nú í öruggum höndum
Birgis Arnar Thoroddsen, sem
stjórnaði upptökum á plötunni
ásamt Ken Thomas og Mínusi.
Verðlaunahátíðin var haldin í
Þjóðleikhúsinu á miðvikudags-
kvöldið.
„Ég geymi styttuna fyrir
strákana því ég er pródúser-
inn. Þeir eru að sýna þakklæti
sitt því platan er unnin í mikilli
sameiningu. Mér þykir mjög
vænt um þetta og ótrúlega
vænt um strákana. Við erum
allir mjög glaðir að hafa fengið
þessa viðurkenningu, bestu
plötu ársins, því við lögðum
gífurlega hart að okkur. Hún
var tekin upp á nóttunni, frá
fimm á kvöldin til tíu á morgnana í
einn og hálfan mánuð. Allir lögðust á
eitt og gerðu sitt allra besta,“ segir
Bibbi eins og hann er kallaður en
Mínus skipa Krummi, Frosti, Bjarni,
Bjössi og Þröstur.
– Ert þú sjötti meðlimurinn?
„Ég er sjötti meðlimurinn innan
sviga. Þeir eru bandið og „dýnamík-
in“ en ég kannski spila á bandið, það
er mitt hljóðfæri, að reyna að ná því
besta út úr því,“ segir hann.
– Áttu góðan stað til að stilla
gripnum upp?
„Já, honum verður stillt upp við
hliðina á öðrum Mínus-minjagripum
í gegnum tíðina í Stúdíó Tíma,“ segir
Bibbi, en það er hljóðverið hans.
– Finnst þér styttan falleg?
„Styttan er mjög falleg en það sem
er langfallegast við þetta er viður-
kenningin sjálf,“ segir Bibbi og bæt-
ir við að hann hafi hringt í Ken
Thomas til að láta hann vita. „Það
má ekki gleyma honum. Hann
minnti okkur á það að þegar við vor-
um að byrja að vinna þessa plötu,
settum við okkur þá stefnu að gera
eins góða rokkplötu og hægt væri,
reyna að gera bestu rokkplötu Ís-
landssögunnar. Það getur hver fyrir
sig dæmt um niðurstöðuna en við er-
um rosalega ánægðir. Það hefur eitt-
hvað verið gert rétt.“
Bibbi með gripinn sinn góða.
Sjötti meðlimur
innan sviga
Birgir Örn Thoroddsen geymir
Mínus spilar á tónleikum á
Grandrokki í kvöld ásamt Jan
Mayen og Manhattan kl. 23. Ald-
urstakmark er 20 ár og að-
gangseyrir 1.000 kr.
ingarun@mbl.is
verðlaunagrip Mínuss fyrir plötu ársins á ÍTV
Morgunblaðið/Árni Sæberg