Morgunblaðið - 17.01.2004, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 69
Magnþrungin erótísk spennumynd með
Meg Ryan eins og þið hafið aldrei
séð hana áður.
„ATH!
SÝND
MEÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI“
KRINGLAN
kl. 2 og 4. Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 2 og 4. Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 2. Ísl. tal.
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
MEG RYAN
MARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
ÁLFABAKKI
Kl. 1.45, 3.50. Ísl. tal.
KRINGLAN
Kl. 1.50 og 4. Ísl tal.
Kl. 2 og 6. Enskt. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4 og 10.
Frá framleið-
endum Four
Weddings,
Bridget Jones &
Notting Hill
Kvikmyndir.is
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
GH. Kvikmyndir.com
HJ.MBL
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
ÁLFABAKKI
Kl. 1.50, 3.45. Ísl. tal.
Kl. 2. Enskt. tal.
VG DV
KEFLAVÍK
kl. 2. Ísl. tal.
KEFLAVÍK
kl. 2. Ísl. tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5, 8 og 11.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 5, 8 og 11.
HJ. MBL
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
ÓHT. Rás2
AKUREYRI
Sýnd kl. 6 og 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
NEW Icon Records er útgáfa sem
Tommi White rekur hérlendis.
New Icon hafa endrum og eins
staðið fyrir uppákomum og hafa þá
oft fengið hingað erlenda snúða til
að spila. Í kvöld á Kapital verður
einn slíkur viðburður en þá kemur
Bretinn Lewis Copeland í heim-
sókn. Copeland þessi hefur verið
starfandi í tónlistarbransum síðan
1987 og opnaði hann danstónlist-
arbúðina Vinyl Junkies árið 1995 í
SoHo, Lundúnum. Síðar dró hann
sig úr þeim rekstri og fór að að-
stoða vin sinn Matthew Bus-
hwacka! við útgáfuna Plank en í
dag reka þeir saman Plank, Oblong
og Upleft.
Copeland hefur þá gefið út sem
Landmine, Kopeland & Kooper og
unnið með Tomma White í The
Shaftesbury Sisters.
Ásamt Copeland í kvöld leika
Tommi White, Andrés, Funky Mo-
ses og Uncle Sam og hugsanlega
Urður „Earth“ úr gusgus og Blake.
Þess má geta að Copeland og
Tommi White munu hita upp í út-
varpsþættinum Party Zone á Rás 2
áður en kvöldið á Kapital hefst.
Lewis Cop-
eland leikur
á New Icon
kvöldi
Lewis Copeland.
uðum. Hún sneri sér hins vegar ekki
að kvikmyndagerðinni fyrr en hún
hafði numið myndlist við Listaháskól-
ann í Sydney. Fagið lærði hún í Ástr-
alska kvikmyndaskólanum í Sydney
þar sem hún hefur búið allar götur
síðan á nýbyrjuðum 9. áratugnum.
Eftir að hafa gert allmargar verða-
launastuttmyndir sendi hún frá sér
sína fyrstu mynd í fullri lengd árið
1989 sem heitir Sweetie. Sú mynd
vakti þegar mikla athygli á henni á
erlendri grundu og færði henni mörg
frumraunarverðlaunin. Vegtyllunum
fjölgaði enn með hinni metnaðarfullu
kvikmyndagerð á sjálfsævisögu
skáldkonunnar Janet Frane. Myndin
hét An Angel At My Table, kom út
1990, og kynnti til sögunar hina
mögnuðu Kerry Fox. Báðar fengur
þær Campion og Fox fjölda verð-
launa fyrir frammistöðu sína. Myndin
fékk verðlaun í Feneyjum, Berlín og
Toronto og fór sigurför um aðrar
kvikmyndahátíðir heimsins.
Það var þó ekki fyrr en með The
Piano sem Jane Campion varð al-
þekkt nafn í heimi kvikmyndanna.
Fyrir hana varð hún fyrsta konan og
eina enn þann dag í dag til að hljóta
hinn eftirsótta Gullpálma í Cannes,
auk þess sem hún fékk Óskarsverð-
laun fyrir besta handritið. Síðan þá
hefur hún gert tvær myndir sem báð-
ar hafa vakið eftirtekt fyrir það að
bera einkar sterk höfundareinkenni,
The Portrait of a Lady með Nicole
Kidman og Holy Smoke með Kate
Winslet.
Dottið í lukkupottinn
En þegar ég vék talinu að henni
sjálfri tókst henni ávallt að beina því
aftur inn á þær brautir að við töluðum
um Hilmar Örn vin hennar, sem var
mér náttúrlega síst á móti skapi.
Þegar ég segist gefa mér að þeim
hafi komið vel saman eftir lofræðurn-
ar sem á undan gengu þá bætir hún
við með áherslu:
„Okkur kom ákaflega vel saman.
Mér fannst allt svo frábært og snið-
ugt sem hann sýndi mér,“ segir hún
og hlær dátt, svefnþreyttum hlátri.
Campion segist ekki hafa þekkt
Hilmar Örn eða tónlist hans áður en
Parker fann hann.
„Þetta er eitt af þessum sjaldgæfu
tilfellum þegar maður dettur í lukku-
pottinn og finnur einhvern sem pass-
ar fullkomlega við mann, fattar alveg
hvert maður er að fara. Það er
draumur er að vinna með honum.“
Og hún segist aldrei hafa hikað við
að ráða Hilmar Örn til verksins, ekki
einu sinni þótt hann hefði aldrei áður
samið tónlist fyrir slíka mynd, svona
spennutrylli.
„Nei, vegna þess að ef þetta átti að
vera spennutryllir þá skyldi hann
vera óvenjulegur sem slíkur og þá var
fínt að fá fólk sem ekki hafði unnið að
þannig myndum. En í reynd litum við
aldrei á þessa mynd sem spennu-
mynd, ekki í eiginlegri merkingu.
Reyndum t.d. aldrei að beita neinum
brögðum til að gera framvinduna
meira spennandi. Fyrir mér var þetta
alltaf rómantísk sorgarsaga, drama.“
– „Sem sagt svona spennandi
drama?“
„Já, á sinn hátt.“
Meg Ryan leitaði að bakteríunni
Campion segir það ekki endilega
alltaf hafa verið markvissa stefnu að
velja óvenjulega kandítata til verks-
ins.
„Venjuleg spennumynd er svo dýr
að við þurftum einfaldlega að fara
óhefðbundnar leiðir í vali á fólki t.d.
en svo hef ég nú reyndar alltaf verið
gjörn á að velja mér allt aðra leið en
telst sú algenga. Kann betur við mig
á jaðrinum enda hefur útkoman úr
slíku verki mun sterkari persónuein-
kenni. En það að vera með bundnar
hendur fær mann til þess að hugsa
betur út í hverja maður velur til
verksins. Maður verður að vera
snjall.“
En Campion segir það hafa verið
auðvelt að fá Meg Ryan til þess að
vera með, því þessi margfræga
Hollywood-leikkona hafi einmitt um
það leyti verið að leita sér að ein-
hverju bitastæðara en hún hafði
fengist við áður. Djarfara og dýpra
hlutverki sem hún gæti týnt sér í og
fundið aftur gömlu leiklistarbakter-
íuna sem hún taldi sig hafa glatað.
En hvernig í ósköpunum datt
Campion í hug að biðja Ryan um að
leika í myndinni?
„Mér datt það ekki í hug og hefði
örugglega aldrei getað dottið það í
hug. Ég þekki leiklistarþjálfara
hennar mjög vel og hann benti mér á
að hún væri að leita að svona verk-
efni.“
– „Og efaðistu aldrei um að hún
gæti gert þetta? Hún hafði nú ekki
sýnt það í undanförnum myndum sín-
um.“
„Nei, það er rétt. En ég treysti
þjálfaranum hennar þegar hann
sagði hana algjörlega tilbúna í eitt-
hvert alvöru dæmi.“
Campion segir Ryan heldur aldrei
hafa hikað eða haft efasemdir um að
hún væri rétta manneskjan til að
leika í myndinni eftir að ljóst hefði
orðið hversu opinská hún yrði.
En var það nauðsynlegt að hafa
myndina svona hispurslausa. Var
nauðsynlegt að sýna „allt“?
„Já. Algjörlega. Ég varð að sýna
það sem hún sá. Til þess að koma til
skila hvað það kom henni í opna
skjöldu, hafði sterk áhrif á hana. Auk
þess sem mér fannst þetta fallegt at-
riði.“
Gefandi óöryggi
Þegar hér var komið sögu var ég
enn að velta fyrir mér því sem hún
sagði um sig og tónlistina, að hún
væri svo óörugg þegar að því kæmi
að finna þá réttu fyrir myndir sínar.
Hvernir færi hún þá að því að útskýra
það að í nær öllum myndum hennar
hefur einmitt tónlistin og valið á
henni vakið sérstaka athygli og nægir
þar að nefna tónlist Michaels Nym-
ans við The Piano og Angelos Badala-
mentis við Holy Smoke.
„Ég viðurkenni það að mér hefur
tekist alveg ótrúlega vel upp við að
finna réttu kvikmyndatónskáldin.
Þetta er kannski það jákvæða við það
að vera óöruggur, maður leggur sig
meira fram við að velja vel og það
rétta. Og fyrir vikið skipti ég mér
heldur ekki af því sem þeir eru að
gera, legg traust mitt á það. Kvik-
myndatónskáld hafa líka sagt mér að
það sé ekkert meira pirrandi og þeg-
ar leikstjórinn fer að leggja þeim lín-
urnar um einhverja dúra og molla,
sem þeir augljóslega hafi ekki hunds-
vit á. Þeir vilja að maður tali við þá
um tilfinningar og stemningu, en ekki
tæknileg atriði, því þá er maður kom-
inn inn á þeirra svið.“
Þótt Campion skipti gjarnan um
tónskáld með hverri mynd sinni þá
segir hún það enga reglu hjá sér. Hún
geti því meira en hugsað sér að vinna
aftur með Hilmari Erni. „Já, algjör-
lega.“
Campion ásamt aðalleikurum sínum Meg Ryan og Mark Ruffalo, rómaður
sviðsleikari, sem orðinn er einn heitasti leikarinn í Hollywood í dag.
skarpi@mbl.is