Morgunblaðið - 17.01.2004, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Næring ekki
refsing
„SVÍAGRÝLAN“ lifir enn nokkuð góðu lífi á
handknattleiksvellinum því enn einu sinni varð
íslenska landsliðið í handknattleik að sætta sig
við að tapa fyrir Svíum, að þessu sinni þó með
minnsta mun, 29:28, þegar þjóðirnar mættust í
Malmö síðdegis í gær.
Íslenska landsliðið komst þó nær því en oft
áður að kveða „grýlu“ niður því það var með
frumkvæðið lengst af síðari hálfleik eftir að
hafa átt á brattann að sækja í þeim fyrri. Á
lokasprettinum voru Svíar hins vegar sterkari
í jöfnum og bráðskemmtilegum leik að við-
stöddum tæplega 4.000 áhorfendum í Baltiska-
íþróttahöllinni í Malmö.
Ólafur Stefánsson átti stórleik fyrir íslenska
liðið og skoraði 9 mörk en Ólafur og félagar
verða aftur í eldlínunni í dag þegar þeir mæta
Egyptum í næst síðasta undirbúningsleik ís-
lenska landsliðsins áður en það heldur á Evr-
ópumeistaramótið í Slóveníu eftir helgina.
Thommy Nyhln / SCANPIX
Einar Örn Jónsson og Rúnar Sigtryggsson taka
Martin Boquist föstum tökum í leiknum í gær.
„Svíagrýlan“
lifir góðu lífi
Svíar unnu/63
HANNES Hólmsteinn Gissurarson svarar
gagnrýni Helgu Kress á fyrsta bindi ævisögu
sinnar um Halldór Laxness í Lesbók í dag og
segir að dylgjur Helgu um ritstuld sinn eigi
ekki við nein rök að styðjast. Ennfremur segir
hann að það hefði óneitanlega „verið viðkunn-
anlegra, að Helga Kress hefði sagt hreinskiln-
islega frá því, að hún ætti beinna hagsmuna
að gæta í málinu,“ þegar hún skrifaði dóminn.
Hannes segir að Helga hafi um nokkurt
skeið verið að vinna að riti um Halldór Kiljan
Laxness og telji eflaust að hann taki í bók
sinni að einhverju leyti af henni umræðuefnið.
Hannes segir og að Helga sé annar tveggja
manna, sem hafa sérstakt leyfi fjölskyldu Lax-
ness til að skoða bréfasafn hans. „Hún er því í
raun ekki sjálfstæður fræðimaður, óháður fjöl-
skyldu Laxness (eins og ég er), og kann það
að skýra ýmislegt í gagnrýni hennar,“ segir
Hannes.
Hannes segir í greininni að Helga hafi gerst
sek um furðulega ónákvæmni í gagnrýni sinni.
Ennfremur segir hann að hin harða árás
Helgu Kress og nokkurra annarra úr hinum
þrönga hóp vinstri sinnaðra bókmenntafræð-
inga á bók sína leiði athyglina frá aðalatriði
málsins sem sé spurningin um það hvernig
eigi að skrifa ævisögu.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Furðuleg óná-
kvæmni í gagnrýni
Helgu Kress
Sagnfræði/Lesbók
GENGI hlutabréfa deCODE Genetics, móður-
félags Íslenskrar erfðagreiningar, fór í gær í
fyrsta skipti í rúm tvö ár yfir 10 Bandaríkja-
dali á hlut. Lokagengi bréfa félagsins á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum í New York í
gær var 10,35 dalir og hækkaði um 4,55% frá
deginum áður.
Forsvarsmenn Íslenskrar erfðagreiningar
kynntu fyrirtækið og ræddu um nýlega áfanga
í starfsemi þess á 22. árlegri heilbrigð-
isráðstefnu verðbréfafyrirtækisins JP Morgan
í San Francisco í Bandaríkjunum í fyrradag.
Gengi deCODE
yfir 10 dali
TVEIMUR af hverjum þremur
aðspurðra líst illa á þær hug-
myndir að Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis verði seldur
Kaupþingi Búnaðarbanka eða
KB banka eins og hann heitir nú.
Liðlega 19% líst hvorki vel né
illa á sölu SPRON en 13% líst vel
á hana. Þegar aðeins er tekið
mið af þeim sem tóku beina af-
stöðu til sölu SPRON til KB
banka líst 84% illa á hana en 16%
vel. Þetta er meðal niðurstaðna í
könnun sem IMG Gallup vann
fyrir Samband íslenskra spari-
sjóða.
Í henni kemur einnig fram að
afgerandi meirihluti, eða 70,5%,
telur óréttlátt að stofnfjáreig-
endur geti selt stofnfé við hærra
verði en sem nemur núvirði þess,
19,4% töldu það réttlátt en
10,1% taldi það hvorki réttlátt né
óréttlátt. Sé einungis tekið mið
af þeim sem tóku beina afstöðu
þá telja 78% þetta vera óréttlátt
en 22% finnst það réttlátt.
Flestir á móti því að bankar
eignist sparisjóðina
Í könnuninni var spurt hvort
mönnum litist almennt vel eða
illa á að sparisjóðir væru í eigu
banka. Sex af hverjum tíu sögðu
sér lítast illa á það, 23% leist
hvorki vel né illa á það en 16,4%
sögðu að sér litist vel á það. Af
þeim sem tóku afstöðu leist 79%
illa á að sparisjóðir kæmust í
eigu bankanna en 21% leist vel á
það. Í fjórða lagi var svo spurt
hvort menn teldu það skipta litlu
eða miklu máli hvort sparisjóð-
irnir yrðu áfram til á íslenskum
fjármálamarkaði. Tveir af hverj-
um þremur svöruðu því til að
þeir teldu það skipta miklu máli,
23,2% sögðu það skipta litlu máli
en 9,8% þótti það hvorki skipta
miklu né litlu máli.
Af þeim sem tóku beina af-
stöðu til spurningarinnar töldu
74% það skipta miklu að spari-
sjóðirnir yrðu áfram starfandi á
fjármálamarkaðinum en 26%
sögðu það skipta litlu.
Jón Björnsson, sparisjóðs-
stjóri í Sparisjóði Norðlendinga,
segir þessar niðurstöður sýna af-
gerandi andstöðu þjóðarinnar
við hugmyndir um sölu á
SPRON og að almenningi þyki
ósanngjarnt að menn taki til sín
peninga sem viðskiptavinir
sparisjóðanna og almenningur
hafi skapað gegnum tíðina.
Afgerandi andstaða við að
KB banki kaupi SPRON
Mikill meirihluti/6
KARL Bjarni Guðmundsson, 28
ára sjómaður úr Grindavík, varð
sigurvegarinn í keppni Stöðvar 2,
Idol stjörnuleit sem fram fór í
Vetrargarðinum í gærkvöld. Alls
greiddu 150.000 manns atkvæði
og fékk Kalli Bjarni, eins og hann
er kallaður, 49% greiddra at-
kvæða.
1.400 manns hófu keppnina í
ágúst og komust þrír þeirra í úr-
slit, hin voru Anna Katrín Guð-
brandsdóttir, sautján ára mennt-
skælingur, sem hlaut 19%
greiddra atkvæða og Jón Sig-
urðsson, 26 ára starfsmaður Sím-
ans, sem hafði stuðning 32%
þeirra sem greiddu atkvæði.
„Ég vil þakka alveg innilega
öllum sem hafa stutt við bakið á
mér. Þetta er búið að vera alveg
frábært og ég þakka öllum sem
ég elska og ég þakka ykkur öll-
um,“ sagði Kalli Bjarni þegar sig-
urinn var í höfn áður en hann
flutti aftur „Mustang Sally“, lagið
sem færði honum sigurinn.
Idol-teiti voru haldin víða um
landið, þau stærstu á heimavelli
keppendanna. Gífurleg fagn-
aðarlæti brutust út í félagsheim-
ilinu Festi í Grindavík þegar ljóst
var að Kalli Bjarni hefði unnið
keppnina. Þá fylltu stuðnings-
menn Önnu Katrínar Sjallann og
var gríðarleg stemmning á NASA
á Austurvelli þar sem stuðnings-
menn Jóns komu saman.
Kalli Bjarni sjómaður frá Grindavík sigraði í Idol stjörnuleit
„Þetta er búið að vera
alveg frábært“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kalli Bjarna, fyrsta Idol-stjarna Íslands, fagnar sigrinum þegar úrslitin lágu fyrir, ásamt Jóni og Önnu Katrínu.
Rífandi stemmning/65
SÍMALÍNUR voru rauðglóandi og löng bið
eftir pitsum áður en úrslitaviðureignin í
Idol stjörnuleit hófst í gærkvöld. Kristín
Kristinsdóttir, starfsmaður á Domino’s
pizza, sagði biðina eftir pitsu hafa lengst
farið í 90 mínútur.
„Það voru rúmlega 30 á bið áðan og þá
voru 40 að svara í símann þannig að það
voru 70 símtöl inni á sama tíma,“ segir
Kristín. „Síminn stoppar oft um leið og Idol
byrjar, þá minnkar allt. Ég hef fundið það
að það er miklu meira að gera á föstudags-
kvöldum eftir að Idol byrjaði,“ bætir hún
við.
Berglind Guðmundsdóttir, starfsmaður
Pizza 67, segir að óvenjumikið hafi verið að
gera í gærkvöld. Biðtími eftir heimsendri
pitsu hafi verið um klukkutími en flestir
komi að sækja pitsuna. „Það var allt stappað
hérna. Það var óvenjumikið að gera í kvöld,“
segir hún.
Allt að 90 mínútna bið eftir pitsum