Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Um hva› snúast stjórnmál?
Kynntu flér máli› í Stjórnmálaskóla Sjálfstæ›isflokksins í Valhöll
mánudags-, flri›judags- og fimmtudagskvöld frá 9. til 25. febrúar.
Dagskráin er á heimasí›u Sjálfstæ›isflokksins, www.xd.is
Skráning og nánari uppl‡singar í síma 515 1700/515 1777 og á netfangi disa@xd.is
- borgarmálin
- listina a› hafa áhrif
- flokksstarfi›
- menntun og menningarmál
- heilbrig›isfljónustu
- umhverfismál
- listina a› vera lei›togi
- efnahagsmál
- utanríkismál
- sjávarútvegsmál
Fyrirlestrar og umræ›ur, m.a. um
Sjálfstæ›isflokkurinn
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
Þá getur nú glíman á milli Davíðs og Golíats hafist fyrir alvöru.
Fluguveiðiskólinn á Langárbökkum
Konur eru í
meirihluta
Þessa dagana er veriðað skrá nemendur íFluguveiðiskólann
á Langárbökkum, en þetta
er sjötta árið sem skólinn er
rekinn og að sögn skóla-
stjórans Ingva Hrafns
Jónssonar, leigutaka Lang-
ár, eru vinsældir skólans
viðvarandi. Morgunblaðið
ræddi aðeins við Ingva um
skólann og ræktunarátak
sem skaut ánni í efsta sæti
íslenskra laxveiðiáa á síð-
asta sumri.
– Aðeins um Fluguveiði-
skólann, Ingvi?
„Já, þetta er sjötta árið
sem við starfrækjum hann
á Langárbökkum. Þetta
eru tvö námskeið á sumri,
hvort á eftir öðru í upphafi
veiðitímans í júní. Nem-
endur okkar eru því með góða
veiðivon samhliða því að læra
grundvallarhandtökin og það hafa
veiðst laxar alla daga skólans hjá
okkur. Þetta eru yfirleitt 16 manna
námskeið, en við höfum tekið við
allt að tuttugu nemendum í einu.
Eitt árið var reyndar aðeins eitt
námskeið, en ásamt með þeim sem
við verðum með á komandi sumri,
höfum við útskrifað um 150 flugu-
veiðimenn frá því að skólinn byrj-
aði. Margir af þeim hafa síðan
reynst góðir viðskiptavinir okkar
hér við Langá.“
– Hvaða fólk skráir sig?
„Þetta er fólk á öllum aldri og af
báðum kynjum. Það er svolítið
gaman að því að þrír af hvejum
fjórum nemendum í skólanum eru
konur, enda eru þær að færa sig
verulega upp á skaftið í veiði-
skapnum og er það vel. Ég býð
þær allar velkomnar í hópinn. Það
er engin munur á þeim eða körl-
unum þegar þær eru komnar í
hollninguna og gírinn, í vöðlurnar
með græjurnar hangandi á sér.
Það er sama einbeitnin og gleðin.
En þetta hlutfall þarf þó alls ekki
að koma á óvart í sjálfu sér þegar
að er gáð að tveir af hverjum
þremur háskólanemum í landinu
eru konur.“
– Hvernig er kennslan?
„Þetta er að flestu leyti bara
eins og veiðitúr nema að nemend-
ur eru með leiðsögumann. Þetta
byrjar á því að við kennum köst í
nokkra klukkutíma fyrsta eftir-
miðdaginn og pössum að ofgera
ekki handleggsvöðvum, enda eru
þetta mikil átök fyrir óvana. Við
förum síðan með allar þessar axlir
í gufu og um kvöldið er kennsla í
hnútum, tækjanotkun og flugu-
hnýtingum. Næstu þrjár vaktirnar
eru síðan fjórir nemendur með
einn kennara að veiðum í ánni og
erum við aðallega á þeim svæðum
neðst í ánni þar sem laxa er von
svo snemma veiðitíma. Ég er með
frábæra kennara, en auk mín
kenna synir mínir Hafsteinn Orri
og Ingvi Örn, Halldór Snæland og
Bjarni I. Árnason hefur komið þar
að. Þá er að nefna lávarðadeildina
frá Húsavík, Laxárkarlana Þórð
og Pétur Péturssyni og Birgi
Steingrímsson, sem eru
þjóðsögur í lifanda lífi.“
– Langá sló í gegn í
fyrra …
„Já, heldur betur og
ég er ekki að ýkja þeg-
ar ég segi að áin hafi verið iðandi af
laxi fram á síðasta veiðidag. Ef það
hefðu verið skapleg skilyrði á
besta tímanum, í stað þessara
ótrúlegu þurrka, þá hefði áin farið
vel yfir 3.000 laxa, en þess í stað
veiddust 2.290 stykki sem var frá-
bært miðað við aðstæður og það
hæsta yfir landið.“
– Er það ekki rétt að sérstætt
ræktunarplan hefur komið hér
talsvert mikið við sögu?
„Hér við Langá hefur staðið yfir
áratugalöng þróun og vöndun í
laxrækt, en það hefur ekki allt
gengið upp frekar en annars stað-
ar. Eftir heilan aldarfjórðung
virðist þó vera að við séum komnir
á sporið. Ég var búinn að segja
vinum mínum og Sigurði Má fiski-
fræðingi í Borgarnesi að ég væri
hættur að standa í þessu, við vær-
um búin að sturta ónýtum seiðum í
ána og eyða í það tugum milljóna
allan þennan tíma, en það væri
ekkert að koma út úr því. Þá var
það að vinur minn Alan Mann,
Breti sem veitt hefur hjá mér í
Langá í 20 ár, og rekur seiðaeldi í
Ullapool í Skotlandi, hvatti mig til
að gera eina tilraun enn og hún
fólst í því að ala seiði við ákveðin
hita- og birtuskilyrði sem Alan gaf
okkur upp. Með því móti fengum
við seiði sem voru 85 til 100
gramma í göngubúningi í stað 55
gramma og tilfellið er að síðan við
byrjuðum á þessu höfum við feng-
ið um eða yfir 3% heimtur sem er
frábært. Síðasta sumar voru rúm-
lega 500 af þessum tæplega 2.300
löxum úr sleppingunni árið áður.
Fyrsta sumarið sem við fengum
heimtur úr svona sleppingu voru
300 laxar af 1.400 laxa heildarafla.
Ársgamlir laxar úr sjó úr þessum
sleppingum eru auk þess stærri
heldur en þessir náttúrulega
klöktu laxar. En þetta er engin
hafbeit, þetta eru seiði
af Langárstofni, veidd í
klak í ánni og alin í
sveitinni.
Ef þessar tölur tala
ekki nógu sterkt, þá
settum við 7.000 seiði af þessum
toga upp á svokallað Fjall, efsta
hluta árinnar, sem hefur verið
veikasti hluti árinnar eins og gefur
að skilja, enda um langa leið að
fara og upp fossa og flúðir. M.a. er
teljari á þessu svæði og mesta lax-
gengd á Fjallið sem við þekktum
fyrir síðasta sumar var 800 laxar. Í
fyrra fóru þar hins vegar upp
1.600 laxar.“
Ingvi Hrafn Jónsson
Ingvi Hrafn Jónsson er fædd-
ur í Reykjavík 27. júlí 1942. Stúd-
ent frá MR 1965 og útskrifaður í
stjórnmálafræði frá Wisconsin-
háskóla 1970. Blaðamaður við
Morgunblaðið 1966–78 og þing-
fréttamaður, fréttastjóri, dag-
skrárgerðarmaður og þátta-
stjórnandi hjá Sjónvarpinu
1979–88. Fréttastjóri Stöðvar 2
1992–94 og útvarpsstjóri Út-
varps Sögu FM994 frá ágúst
2003. Stundað fjölmiðlaráðgjöf
um árabil og með Langá á Mýr-
um á leigu hluta til eða öllu leyti
frá 1979. Maki er Ragnheiður
Sara Hafsteinsdóttir og eiga þau
Hafstein Orra og Ingva Örn.
að sturta
ónýtum seið-
um í ána
NÝ STEFNA um upplýsingasam-
félagið var samþykkt á ríkisstjórnar-
fundi í gær. Leiðarljós hennar verða
einstaklingurinn, tækifæri hans og
velferð í samfélaginu og er yfirskrift
stefnunnar „Auðlindir í allra þágu“. Í
stefnunni segir m.a. að tryggja verði
aðgang fólks og fyrirtækja að traustu
háhraðaneti á samkeppnishæfu verði.
Öryggi upplýsinga og friðhelgi einka-
lífs skuli vera höfð að leiðarljósi í þró-
un upplýsingasamfélagsins.
Í stefnunni segir að upplýsinga-
tækni veiti einstaklingum, atvinnulífi
og opinberri þjónustu tækifæri til að
nýta sér þær auðlindir sem felast í
upplýsingum, þekkingu og nýsköpun.
Þungamiðjan og sú framtíðarsýn,
sem markmið og framkvæmd stefn-
unnar um upplýsingasamfélagið
munu byggjast á, er að einstaklingar
búi við fjölbreytt tækifæri í lýðræð-
issamfélagi sem er í fararbroddi í nýt-
ingu upplýsinga og þekkingar. Svig-
rúm verði fyrir alla til að þroskast,
öðlast aukin lífsgæði og axla ábyrgð.
Til að ná þessum markmiðum verði
nýtt þau sóknarfæri sem felast í
styrkleika og sérkennum lands og
þjóðar. Örugg og öflug upplýsinga-
tækni sé verkfæri til þess.
Í framtíðarsýn stefnunnar er lagt
út af því að aukin verði tækifæri ein-
staklinga og fyrirtækja til að miðla og
sækja þekkingu, eiga samskipti og
stunda viðskipti hvar sem er og hve-
nær sem er. Einnig að forystumenn á
öllum sviðum samfélagsins axli
ábyrgð og vinni saman að því að upp-
lýsingatæknin sé nýtt í þágu borgar-
anna og ólíkir einstaklingar geti fært
sér hana í nyt.
Loks að stuðlað verði að auknum
lífsgæðum og auðugra mannlífi með
því að nýta möguleika upplýsinga-
tækninnar í menntun, menningu,
heilbrigðismálum og á öðrum sviðum
samfélagsins.
Ríkisstjórnin samþykkir nýja stefnu um upplýsingasamfélagið
Aðgangur allra að traustu
háhraðaneti verði tryggður