Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 27
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 27
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norð-
urlands heldur tónleika á morgun,
sunnudaginn 8. febrúar, kl. 16. Tvö
verk eru á efnisskránni, Söngvar
farandsveins eftir Gustav Mahler og
Sinfónía nr. 2 í D-dúr op. 73 eftir Jo-
hannes Brahms. Einsöngvari er Sig-
ríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran
og stjórnandi er Guðmundur Óli
Gunnarsson.
Sigríður sagðist áður hafa flutt
Söngva farandsveins, með píanói
fyrir tveimur árum. „En það er allt
annað að flytja
verkið með
hljómsveit. Það
er frábært að fá
tækifæri til
þess,“ sagði hún.
„Þetta er eitt
þekktasta verk
Mahlers, eitt af
hans æskuverk-
um, þetta er mjög
gott tónverk, rétt
eins og öll önnur
tónlist hans.“
Sigríður lauk burtfararprófi frá
Söngskólanum í Reykjavík árið 1995
og árið 2000 lauk hún námi frá óp-
erudeild Tónlistarháskólans í Vínar-
borg, en einnig stundaði hún nám
við ljóða- og óratóríudeild skólans
frá 1997–2001. Hún þreytti frum-
raun sína sem óperusöngvari við
Þjóðaróperuna í Vínarborg vorið
1997 í hlutverki Mercedesar í Car-
men, en á árunum 1999 til 2002 söng
hún ýmis hlutverk við húsið auk
þess að taka þátt í óperuuppfærslum
á Íslandi, hjá Íslensku óperunni og
Norðurópi. Einnig hefur hún haldið
fjölda ljóðatónleika og tekið þátt í
flutningi á messum og óratóríum hér
heima og í útlöndum. Sigríður er um
þessar mundir að æfa hlutverk Mar-
celliu í Brúðkaupi Fígarós í upp-
færslu Íslensku óperunnar. Hún
hefur búið á Akureyri og kennt við
Tónlistarskólann á Akureyri frá því í
ágúst á liðnu sumri. „Ég hef alltaf
verið á miklu flakki, fyrst milli Ís-
lands og Vínarborgar þar sem ég bjó
lengi en nú flakka ég milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur, það er aðeins
styttra,“ sagði hún. „Það er gott að
vera á Akureyri, þar er mikið og öfl-
ugt tónlistarstarf og Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands heldur uppi mjög
gróskumiklu tónlistarstarfi,“ sagði
hún.
Metnaðarfullir tónleikar
Tónleikana á morgun sagði hún
mjög metnaðarfulla. „Það er mikill
kraftur í hljómsveitinni og hún hefur
alltaf sett markið hátt. Tónleikarnir
á morgun eru dæmi um það, en um
50 manna hljómsveit mun þá flytja
þetta glæsilega verk sem Sinfónía
nr. 2 eftir Brahms er. Það er mikið
og fallegt verk.“
Það tók Brahms hátt á annan ára-
tug að ljúka við samningu fyrstu sin-
fóníu sinnar og var hann kominn vel
yfir fertugt þegar hann lauk við
hana. Hún var svo loks var frumflutt
í nóvember 1876 og tæpu ári síðar
greindi hann frá því að nýrrar sin-
fóníu væri að vænta. Við hana lauk
hann haustið 1877 og var hún frum-
flutt af Fílharmoníuhljómsveit Vín-
arborgar í lok desember sama ár.
Tilfinningaferðalag
Gustav Mahler samdi Söngva far-
andsveins á árunum 1884 til ’85, en
hann var þá hljómsveitarstjóri við
Cassel-hirðleikhúsið í Vínarborg.
Við leikhúsið starfaði ung og fögur
sópransöngkona sem hann varð yfir
sig ástfanginn af. Ekki virðist hún
hafa endurgoldið ást hans og varð
ekkert meira úr þeirra kynnum.
Söngvarnir endurspegla þannig til-
finningar skáldsins, en sögupersón-
an í þessum ljóðaflokki er ungur
maður, þjakaður af ástarsorg og
leitar huggunar í faðmi náttúrunnar.
„Þetta er með fyrstu ljóðunum sem
Mahler skrifar og í fyrstu voru þau
fyrir píanó, en það var ekki fyrr en
töluvert löngu síðar sem hann skrif-
ar þau fyrir hljómsveit,“ sagði Sig-
ríður. „Ég sé þetta verk alltaf fyrir
mér sem eins konar tilfinningaferða-
lag. Ungi maðurinn sem segir sög-
una hefur lent í sinni fyrstu ástar-
sorg og þannig tengist sagan eigin
reynslu tónskáldsins,“ sagði Sigríð-
ur. „Hann vinnur svo úr reynslu
sinni þetta glæsilega verk.“ Hún
sagði að söngvarnir væru jöfnun
höndum fluttir af konum og körlum,
mezzósópransöngvurum eða barí-
tónum. „Ég hlakka til að takast á við
þetta verkefni, það er ögrandi og
einhvern veginn allt öðru vísi en
þegar ég flutti það með píanói. Þetta
er allt annar heimur.“
Hún sagðist vona að Akureyring-
ar og nærsveitamenn kynnu að meta
það mikla og öfluga starf sem fram
færi innan Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands. „Menn leggja alla sína
krafta í þetta. Það er afskaplega
mikilvægt fyrir bæinn að hjómsveit-
in sé starfandi hér og bæjarbúum
gefst kostur á að sækja mjög metn-
aðarfulla tónleika hennar. Ég vona
að þeir séu stoltir af því sem þeir
eiga, að hafa innan sinna bæjar-
marka hljómsveit í svo háum gæða-
flokki,“ sagði Sigríður.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt einsöngvara heldur tónleika í Glerárkirkju á morgun
Brahms-sinfónía og
Söngvar farandsveins
Sigríður
Aðalsteinsdóttir.