Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 31

Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 31 FIMMTU tónleikarnir á Myrkum músikdögum þetta árið voru í samstarfi við sinfoníuhljómsveit- ina sem flutti fjögur íslensk verk eftir jafnmörg ís- lensk tónskáld. Tvö verk voru frumflutt og eitt var flutt í fyrsta sinni á Íslandi. Verkið Flow and Fusion fyrir sinfóníuhljóm- sveit og rafhljóð samdi Þuríður Jónsdóttir árið 2002 og var það frumflutt í Bologna í febrúar 2002. Samkvæmt fréttatilkynningu segist Þuríður „hafa verið að leita eftir ákveðnu litaflæði til að skapa ákveðna hljóðmynd og einnig hafa haft í huga ólíka tauma flæðandi glóðheitrar bergkviku sem sameinuðuðust í einni iðandi hraunkvoðu, sem storknaði svo, varð að kletti ...“. Það má segja að þetta sé mjög sönn lýsing á verkinu þar sem hinir ólíku tónalitir hljóðfæranna flæddu úr hljóðfær- inu, runnu saman, sameinuðust og mynduðu eina heild eins og líðandi straumur, stundum lygn og stundum straummeiri, stundum smá kaos er þeir runnu saman en sjaldan stór átök. Straumurinn leið áfram, endaði í lygnu og dó út. Skemmtileg notkun slagverkshljóðfæra átti sinn þátt í litaauð verksins. Þuríður sat sjálf úti í sal og stjórnaði þaðan rafhljóðunum sem voru á geisladiski. Sam- spil hljómsveitarinnar og rafhljóðanna var mjög vel úthugsað og féll algjörlega saman. Skilin á milli þegar annað tók við af hinu voru svo mjúk og eðlileg að þau fóru næstum fram hjá manni. Frumflutnignur á tveggja þátta Hljómsveitar- verki VI eftir Finn Torfa Stefánsson var næst á dagskrá. Verkið virkaði á undirritaðan sem síð- rómantískt sinfónískt verk með nútíma yfirbragði og innihaldi. Finnur nýtir vel breidd hljómsveit- arinnar, hann hefur gott eyra og auga fyrir sam- hljómi og getu hljóðfæranna sem hann nýtir vel og gerir kröfur til hljóðfæraleikaranna og nýtir alla hljómsveitina vel bæði í breidd og styrk og var flutningurinn mjög góður. Hljómsveitarverk VI virkaði á undirritaðan sem vel samin og vel í eyru fallandi tónlist. Eftir hlé lék strengjadeildin Endurskin úr norðri (Réminiscence du Nord) opus 40 eftir Jóns Leifs. Jón samdi þetta strengjaverk á haustdögum 1952 sem var erfiður tími í einkalífi hans. Í verkinu má heyra hinn stöðuga og kröftuga undirtón ís- lenskrar náttúru, róleg áhrif tvísöngsins og takt- vissan flutning rímlaga. Flutningur hljómsveitar- innar var hreint magnaður og nákvæmur, áherslurnar og taktskiptin samtaka og vel útfærð svo og dýnamíkin. Síðast á efnisskránni var frumflutningur á Sin- fóníu eftir Þórð Magnússon. Í verkinu sem er fyrsta tónverkið sem hann semur fyrir stóra hljómsveit kennir ýmissa grasa og margar góðar og smellnar hugmyndir koma fram bæði í litrófi tónanna, dýnamík og samsetningu hljóðfæranna. Ýmsir kaflar voru hreint grípandi en í heild verkar verkið dálítið laust í reipunum eins og hugmynd- irnar væru gripnar héðan og þaðan. Í lokin deyr allt út líkt og skrúfað sé niður í útvarpi. Verkið gerir greinilega kröfur til hljóðfæraleikaranna sem þeir stóðust með miklum glæsibrag. Niklas Willén er greinilega ákveðinn stjórnandi sem hefur gott tangarhald á viðfangsefninu og hljómsveitinni, gefur skýrar hreyfingar og hljóm- sveitin lék eftir því, tandurhreint og samtaka og dýnamíkin nákvæmlega útfærð eftir hverri smá hreyfingu Willén. Íslenskt sinfóníukvöld Morgunblaðið/Ásdís Þórður Magnússon, Þuríður Jónsdóttir og Finn- ur Torfi Stefánsson. TÓNLIST Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Guðný Guðmundsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Niklas Willén. Þur- íður Jónsdóttir: Flow and Fusion, Finnur Torfi Stefánsson Hljómsveitarverk VI (frumflutningur), Jón Leifs: End- urskin úr norðri, op. 40, Þórður Magnússon: Sinfónía (frumflutningur). Fimmtudagurinn 5. febrúar 2004 kl. 19.30. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Jón Ólafur Sigurðsson Á DAGSKRÁ Myrkra músíkdaga verða flaututónleikar kl. 15 í dag á Nýja sviði Borgarleikhússins. Flutt verða verk eftir þrjú tónskáld, Þor- stein Hauksson, Huga Guðmunds- son og George Crumb. Verk Þorsteins heitir Cho (1992) og er samið fyrir flautu og töluhljóð, verk Huga Equilibrium. I, II og III (2000-2002). Öll verkin eru fyrir upp- mögnuð hljóðfæri og síðast á dag- skrá eru verk eftir George Crumb, Vox Balaenae (Voice of the Whale) (1971), fyrir uppmagnaða flautu, selló og píanó. Þorsteinn Hauksson hefur lengi verið í fararbroddi meðal raf- og tölvutónskálda en hefur engu að síð- ur samið töluvert fyrir hefðbundin hljóðfæri. Cho, fyrir flautu og tölvu- hljóð, var samið fyrir Kolbein Bjarnason fyrir tilstilli Tónskálda- sjóðs, Ríkisútvarpsins og Reykjavík- urborgar. Verkið var frumflutt á Há- skólatónleikum í Glasgow í nóvember 1992 af Kolbeini Bjarna- syni. Eftir lokapróf frá tónfræðadeild- inni vorið 2001 hélt Hugi til Kaup- mannahafnar til áframhaldandi tón- smíðanáms við Konunglegu tónlistarakademíuna. Um verk sín Equilibrium, segir Hugi m.a.: „Verk- in eiga það öll sameiginlegt að vera skrifuð fyrir gítar í mismunandi samhengi, ýmist sem einleikshljóð- færi eða í samspili með öðrum hljóð- færum. Equilibrium I var pantað af fyrrverandi gítarkennara mínum, Pétri Jónassyni. Eq. II: Godpass var skrifað fyrir Atónal hópinn. Eq. III: In memoriam var pantað af Berg- lindi Maríu Tómasdóttur og Kristni H. Árnasyni og var frumflutt af þeim í Sigurjónssafni sumarið 2002. Verk- ið hefur verið leikið í Danmörku, Ís- landi og Noregi. “ Vox Balaenae, fyrir þrjá grímu- klædda hljóðfæraleikara, eftir George Crumb, var frumflutt árið 1972 af The New York Camerata í Washington D.C. Crumb samdi verkið innblásinn af hvalahljóðum, nánar tiltekið söng hnúfubaks. Auk þess sem kveðið er á um að hljóð- færaleikarar beri grímur við flutning verksins er stungið upp að lýsing sé djúpblá við flutninginn. Uppmagn- aðir flautu- tónleikar Strengjakvart- ett í Hvera- gerðiskirkju FYRSTU áskriftartónleikar THÖ, Tónlistarfélags Hveragerðis og Ölf- uss, verða kl. 17 í dag í Hveragerð- iskirkju. Þar leikur strengjakvartett skipaður Hlíf Sigurjónsdóttur og Sigurlaugu Eðvaldsdóttur á fiðlur, Örnólfi Kristjánssyni á selló og Þóri Jóhannssyni á kontrabassa. Verk- efnavalið spannar tímabil frá dögum Rossinis og fram á miðbik síðustu aldar. Á efnisskrá verða strengja- sónötur no. 1 og 2 eftir Rossini sem eru bernskuverk hans, dúó fyrir selló og kontrabassa einnig eftir Rossini samið fyrir sir. David Sal- omons sem lék á selló og Domenico Dragonetti mesta kontrabassasnill- ing þess tíma, svíta fyrir fiðlu og kontrabassa eftir Reinhold Gliere og sónata fyrir tvær fiðlur eftir Prokof- fiev. Samstarf hópsins byrjaði á haust- mánuðum 2001 og spilaði hann á Sumartónleikum í Sigurjónssafni sumarið 2002. Sýningu lýkur Gallerí Kling og Bang, Laugavegi 23 Sýningu Ingo Frölich, Strich + Linie /Lína + strik lýkur á morgun. Opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. Aðgangur er ókeypis. Í SÝNINGARSAL félagsins Íslensk Grafík að Tryggvagötu 17, Hafn- arhúsinu, verður í dag kl. 14 opnuð sýningin Fljúgandi teppi (Flying Carpet). Á sýningunni getur að líta 152 verk eftir 165 konur frá 24 lönd- um, þar á meðal sjö íslenskar lista- konur. Þær eru Björg Þorsteins- dóttir, Friðrika Geirsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Margrét Birgisdóttir, Margrét Guð- mundsdóttir, Valgerður Hauks- dóttir og Þorgerður Sigurðardóttir, sem nú er látin. „Hugmyndin að þessu verkefni er komin frá listakonum sem Val- gerðar þekkir í Sviss, sem voru að leita eftir þátttöku starfssystra sinna að þessu verkefni í öðrum löndum. Valgerður bauð okkur í grafíkfélaginu að taka þátt og þekktumst við nokkrar það boð,“ segir Björg aðspurð um tilurð sýn- ingarinnar. „Hver okkar var beðin að senda 30 mynda upplag af verki í stærðinni 30 x 30 cm til Sviss og varð lokaútkoman 152 verk eftir 165 konur frá 24 löndum. Verkin eru sett saman í 30 möppur og fær lista- safn í hverju landi eina möppu til eignar. Þarna eru mest graf- íkmyndir, m.a. ætingar og litógrafí- ur, tölvugrafík og ljósmyndir. Kon- urnar sem eiga verk á sýningunn eru ýmist myndlistarmenn, rithöf- undar eða vísindamenn. Sum verk- anna eru samvinnuverkefni mynd- listarmanns og rithöfundar. Allar þessar konur hafa með þessum verk- um sínum ofið saman vef sem tengir löndin saman. Eins getur þetta virk- að eins og stórt „bútasaumsteppi“, að vísu ekki í einu lagi þarna, því verkin eru á nokkrum spjöldum.“ Sýningin hefur verið nú verið sett upp í 30 löndum og segir Björg að ís- lensku listamennirnir gefi verk sín grafíksafni félagsins Íslensk grafík og vilji með því efla þann vísi að grafíksafni sem félagið á nú þegar. Þetta safn er varðveitt í skúffugall- eríi félagsins og er í sýningarsal þess. Í skúffugalleríinu eru auk graf- íksafnsins til sölu grafíkverk fé- lagsmanna í Íslenskri grafík. Í fram- tíðinni verður hægt að skoða verk og kynnast starfsemi sýningarsal- arins á vef félagsins Íslensk grafík, www.islenskgrafik.is. Einnig má sjá öll verkin á sýningunni á slóðinni www.flyingcarpet.ch. Sýningin, sem stendur til 22. febr- úar, verður jafnframt hluti af Vetr- arhátíð. Opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. Skúffugalleríið er einnig opið á þessum tíma og eftir sam- komulagi. Aðgangur er ókeypis. Morgunblaðið/Heiðar Þór Grafíklistsakonurnar Friðrika Geirsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir, Margrét Birgisdóttir og Valgerður Hauksdóttir. Grafíkvefur tengir saman 24 lönd ÞRÍR kammerkórar halda tónleika í Hásölum, Hafnarfirði, kl. 17 í dag: Kammerkór Mosfellsbæjar, Kamm- erkór Hafnarfjarðar og Kammerkór Reykjavíkur. Á efnisskránni er m.a. íslensk tónlist, kirkjuleg, gospel og madrigalar. Í lok tónleikanna syngja kórarnir saman ,,!492, The Conquest of Paradise“ eftir O. Van- gelis. Sigurlaug Arnardóttir og Ardís Ólöf Víkingsdóttir syngja einsöng og tvísöng. Hljóðfæraleikarar eru Arnhildur Valgarðsdóttir, píanó, Hugrún Sif Hall- grímsdóttir, þver- flauta, og slag- verksleikararnir Andri Freyr Þor- geirsson, Egill Þorkelsson og Páll Guðjónsson. Kórarnir eru allir ungir að ár- um. Kammerkór Mosfellsbæjar var stofnaður haustið 2002 af Símoni H. Ívarssyni og er hann jafnframt stjórnandi hans. Félagar í kórnum eru um tuttugu talsins. Kammerkór Reykjavíkur hefur einnig á að skipa um tuttugu félögum, hann var stofn- aður árið 2002. Söngstjóri er Sig- urður Bragason. Kórinn hélt m.a. í mars í fyrra styrktartónleika undir heitinu Fíkn er fjötur í samvinnu við UMFÍ. Kammerkór Hafnarfjarðar er skipaður ungu fólki. Hann var stofn- aður í byrjun ársins 1997 og hefur gefið út geisladiskinn Gaudete! Stjórnandi hans er Helgi Bragason. Þrír kammerkórar í Hásölum Arndís Ólöf Víkingsdóttir Stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ Í TILEFNI aldarminningar Ragnars Jónssonar verður opnuð í Listasafni ASÍ kl. 14 í dag sýningin Gjöf Ragnars í Smára. Þar getur að líta hluta úr listaverkagjöf Ragnars Jónssonar til Alþýðusambands Ís- lands, sem jafnframt var stofngjöf Listasafns ASÍ. Ragnar hefði orðið 100 ára í dag, 7. febrúar. Hinn 17. júní 1961 afhenti Ragnar Alþýðusambandi Íslands til eignar listaverkagjöf og var Listasafn ASÍ stofnað í þeim til- gangi að varðveita og hafa gjöfina til sýnis fyrir almenning. Í stofngjöfinni voru 120 málverk eftir ýmsa fremstu listamenn þjóðarinnar. Í gjafabréfi Ragnars til Alþýðusambands Íslands segir hann: „Ég hef í meira en þrjá áratugi safnað listaverkum eftir ís- lenzka málara ... Ég hef í aldarþriðj- ung staðið í mjög nánu sambandi við flesta hina eldri málara, og því oft átt kost á að velja úr myndum þeirra. Myndir þessar hefi ég ákveðið að gefa samtökum íslenzkra erfiðismanna, fyrir þeirra hönd Alþýðusambandi Ís- lands, í minningu Erlends Guð- mundssonar, Unuhúsi.“ Sýningin í Listasafni ASÍ hverfist um þau myndverk sem Ragnar taldi vera þungamiðju safns síns, m.a. verk eftir Jóhannes Kjarval, „Fjallamjólk“ frá 1941, en einnig verk eftir Jón Stef- ánsson og Gunnlaug Scheving. Í gjöf Ragnars eru einnig nokkur lykilverk abstraktlistar fimmta áratugarins eftir Þorvald Skúlason og Svavar Guðnason, m.a. „Einræðisherr- ann“,frá 1949. Sýningin stendur til 14. mars. Í gjöf Ragnars eru um 20 manna- myndir og sjálfsmyndir eftir ýmsa listamenn. Hluti þessara mynda er á sýningunni „Myndir af skáldum“ sem opnuð verður í Húsinu, Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka, á morgun kl. 15, en Eyrarbakki er fæðingarbær Ragnars. Sýndar verða myndir eftir listamennina Gunnlaug Blöndal, Jón Engilberts, Kristján Davíðsson, Nínu Tryggvadóttur og Þorvald Skúlason. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns ASÍ og Byggðasafns Ár- nesinga. Sýningin stendur til 15. maí og er opið helgina 14.–15. febrúar kl. 14–17 og eftir samkomulagi. ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.