Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 68
ÍÞRÓTTIR
68 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EINS og fram hefur komið er nokk-
urt skarð höggvið í leikmannahóp
Njarðvíkinga, sem mæta Keflavík í
bikarúrslitum í dag. Falur Harðar-
son, annar þjálfari Keflvíkinga seg-
ir alla heila hjá sér, nema hann
sjálfan og Fannar Ólafsson. Falur
er meiddur á hné en Fannar er að
jafna sig eftir brot á fingri og er
væntanlegur í slaginn á ný eftir 2-3
vikur. Fannar var við nám í Banda-
ríkjunum og lék þar með IUP há-
skólanum en snéri til Íslands á ný
þar sem að verkföll í skólanum
settu skólastarfið úr skorðum.
„Þetta verður hörkuleikur sem við
förum í af fullri alvöru þó svo það
séu miklar hremmingar hjá Njarð-
víkingum nú um stundir. Málið er
nefnilega að Njarðvíkingar leika
aldrei betur en þegar þeir sjá
Keflavíkurmerkið,“ sagði Falur.
Hjá konunum eru allar heilar í
Keflavíkurliðinu og sagðist Hjörtur
Hjartason, þjálfari stúlknanna, bú-
ast við miklum baráttuleik sem
Keflvíkingar ætluðu sér að sjálf-
sögðu að vinna. En þess má geta að
Hjörtur leikur með karlaliðinu.
Gréta M. Grétarsdóttir, þjálfari
KR, sagði að einhver meiðsli væru
hjá sér. „En það spila allar með í úr-
slitaleiknum, sama hvort þær eru
heilar eða hálfheilar. Ég vona að
þetta verði skemmtilegur leikur og
hef mikla trú á mínu liði. Ég hef tví-
vegis leikið í Laugardalshöll og
þeir leikir unnust báðir þannig að
það stendur ekki til að breyta því,“
sagði Gréta.
„Leika best þegar þeir sjá
Keflavíkurmerkið“
TÖLFRÆÐI gegnir veigamiklu
hlutverki í íþróttum og hefur
körfuknattleikshreyfingin staðið
vel að málum á því sviði undanfar-
in ár. Skömmu eftir að leikjum
lýkur í efstu deild karla og kvenna
er oftar en ekki hægt að ganga að
tölfræðiupplýsingum vísum á vef
Körfuknattleikssambandsins,
www.kki.is. Ber að hrósa þeim
sem standa að þeirri vinnu.
Þeir sem skrá tölfræðina gegna
því gríðarlega mikilvægu hlut-
verki.
Fjölmiðlar sem og aðrir nýta
sér þessar upplýsingar til hins
ýtrasta, og ef tekið er mið af
handknattleiksíþróttinni hefur
körfuknattleikurinn gott forskot á
þessu sviði.
Að auki eru þessar heimildir
mikilvægar og gagnlegar í sögu-
legu samhengi. Þeir leikmenn
sem hafa leikið í efstu deild geta
gengið að „sínum“ tölum vísum á
vef KKÍ.
Þar geta ættingjar, vinir, sam-
starfsfélagar, börn og barnabörn
sannreynt „tröllasögur“ af ótrú-
legum leikjum þar sem „sá gamli“
sagðist hafa skorað 30 stig, tekið
19 fráköst og gefið 12 stoðsend-
ingar. Það er ekki hægt að „ýkja“
með þessum hætti í dag þar sem
að upplýsingaöldin sér til þess að
öll gögn um afrek leikmanna fyrr
á árum eru til staðar í gagna-
grunni KKÍ.
Sá sem þetta skrifar rak augun
í smáatriði í tölfræði úr leik Snæ-
fells og Keflvíkinga sl. sunnudag.
Það sem vakti athygli mína var að
Snæfell gaf samtals 7 stoðsend-
ingar í leiknum, og gestirnir úr Ís-
landsmeistaraliði Keflavíkur alls
8 stoðsendingar. Samtals 15 stoð-
sendingar í leik þar sem Snæfell
hafði betur. Lokatölur 94:90.
Þessi niðurstaða varð til þess
að farið var í það að skoða þessar
tölur nánar og „ítarleg“ rannsókn
leiddi í ljós að í 94 leikjum vetr-
arins í úrvalsdeild karla, Inter-
sportdeild, eru að meðaltali 35,9
stoðsendingar gefnar í hverjum
leik. Tæplega 18 stoðsendingar á
hvort lið fyrir sig.
Eftir að hafa farið í gegnum 7
heimaleiki Snæfells kemur í ljós
að þar á bæ eru stoðsendingar ef-
laust skilgreindar með öðrum
hætti en hjá öðrum liðum. Því að
stoðsendingar í leikjum sem fram
fara í Stykkishólmi eru 51% færri
að meðaltali en í öðrum leikjum
deildarinnar.
Aðeins 18,3 stoðsendingar að
meðaltali í leik, rétt rúmlega 9 á
hvort lið.
Í leik Snæfells gegn Grindavík
hinn 19. okt sl. gáfu heimamenn
sem eru sem stendur í efsta sæti
úrvalsdeildarinnar samtals 6 stoð-
sendingar í leiknum, og gestirnir
úr Grindavík gáfu alls 5 stoðsend-
ingar í þeim leik sem endaði með
sigri Grindvíkinga, 65:62.
Það er ótrúlegur munur á
skráningu þeirri sem fram fer í
Stykkishólmi miðað við aðra staði
á landinu.
Ekki er gott að segja hvað veld-
ur því, ekki er það vaninn í Stykk-
ishólmi að leikmenn beggja liða
búi ávallt til sín sóknarfæri á eigin
spýtur.
Það læðist að manni sá grunur
að þeir sem sjái um skráningu töl-
fræðinnar séu af yngri kynslóð-
inni og gleymi sér í hita leiksins.
Eða að of fáir starfi við þessa
skráningu á hverjum leik og allir
þættir leiksins komist þar með
ekki rétt til skila. Þar með er
komin skekkja í heildartölfræð-
ina, sem verður því ekki mark-
tæk.
Vonandi gera „Hólmarar“
bragarbót á þessu enda liðið á
allra vörum þessa dagana þar sem
það er í efsta sæti deildarinnar.
Sigurður Elvar Þórólfsson
þær eru búnar að gleyma honum þá
verður það örugglega rifjað upp fyr-
ir leikinn í dag. Keflavík átti séns á
að vinna tvöfalt þá og einnig í ár og
ég held að þær sleppi ekki tækifær-
inu á því. Það er útilokað að þær láti
það koma fyrir tvö ár í röð.
Bæði lið eru ágætlega mönnuð en
Keflavík er einfaldlega með sterkari
einstaklinga og reynslan hjá Keflvík-
ingum mun einnig segja til sín, þær
eru með miklu meiri reynslu og í
svona leikjum skiptir hún máli – en
þetta hélt maður nú reyndar í fyrra
líka. Keflvíkingar eru með mjög vel
mannað lið, bæði stórar og góðar í
öllum stöðum og því erfitt að taka
eitthvað eitt út sem KR gæti gert til
að stöðva þær,“ sagði Reynir.
KR og Keflavík hafa leikið fjóra
leiki í vetur og hefur Keflavík 3:1 yf-
ir. KR vann fyrsta leik liðanna 79:69
þegar þau mættust í DHL-höllinni
18. október. Rúmum mánuði síðar
vann Keflavík 72:59 á heimavelli og
21. janúar urðu úrslitin 73:63 fyrir
Keflavík á útivelli. Í úrslitum fyrir-
tækjabikarkeppni KKÍ, Hópbílabik-
arkeppninni, 20. desember hafði
Keflavík betur 73:52.
Njarðvík hefur lent í þvílíkumskakkaföllum upp á síðkastið
og ég held að það sé alveg vonlaust
fyrir liðið að veita Keflvíkingum ein-
hverja keppni í þessum leik. Þeir eru
komnir með nýjan erlendan leik-
mann, en þetta verður fyrsti leikur-
inn hans með liðinu og hlutirnir ger-
ast bara ekki einn, tveir og þrír eins
og maður segir. Það er afskaplega
ólíklegt að það ráði úrslitum þó að
þeir bæti við einum manni. Ég held
að það myndi jafnvel gera meira fyr-
ir þá að fá Teit til að taka fram
skóna.
Því miður held ég að ef Páll verður
í banni líka og Jónas meiddur auk
þeirra Brentons og Brandons eigi
liðið lítinn séns. Það er alveg tómt
mál að tala um að þeir eigi einhverja
möguleika. Njarðvík tapaði fyrir
Hamri á heimavelli um daginn og
það veitir þeim ekki aukið sjálfs-
traust.
Ég get ekki séð að Brenton og
Brandon leiki og ef þeir gera það þá
verða þeir alls ekki á fullu. Það er
erfitt að sjá að menn fari af hækjum
og í körfuboltaleik á tveimur til
þremur dögum – það yrði eitthvað
undarlegt.
Þetta hefði orðið frábær leikur
með fullskipuðum liðum en eins og
Keflavíkurliðið er skipað sýnist mér
það eiga tiltölulega auðveldan dag
framundan. Það er mestur sjarminn
farinn af þessum leik vegna stöðunn-
ar hjá Njarðvíkinugm – því miður.
Það er virkilega leiðinlegt að þetta
skyldi hittast svona á, akkúrat þegar
bikarúrslitin eru,“ sagði Reynir um
karlaleikinn.
Keflavík og Njarðvík hafa leikið
tvo leiki í deildinni í vetur, Njarðvík
vann 93:86 á heimavelli 27. október
en tapaði 90:83 í Keflavík 30. janúar.
Liðin léku einnig til úrslita í Hópbíla-
mótinu og þar vann Njarðvík með
nákvæmlega sama skori, 90:83. Stað-
an er því 2:1 fyrir Njarðvík í vetur.
Jafnara hjá konunum
„Leikur Keflavíkur og KR í
kvennaflokki verður trúlega jafnari
en karlaleikurinn, en samt. Keflavík-
urstúlkur eru á mestu siglingunni
þessa dagana og hafa verið mjög
sannfærandi síðustu vikurnar og
unnið alla leiki sína. Ég held að þær
séu of sterkar fyrir KR.
Stelpurnar eru örugglega ekki
búnar að gleyma bikarúrslitaleikn-
um í fyrra, þar sem þær voru með
unninn leik en töpuðu fyrir ÍS. Ef
Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka,
á ekki von á spennandi úrslitaleikjum
„ÞVÍ miður á ég ekki von á spennandi leikjum. Þetta verður hátíð
Keflvíkinga sem vinna, bæði í karla- og kvennaflokki,“ sagði Reynir
Kristjánsson, þjálfari Hauka í körfuknattleik, um bikarúrslitaleikina
í körfu sem fram fara í Laugardalshöll í dag. Í kvennaflokki mætast
Keflavík og KR klukkan 13 og klukkan 16.30 leiða saman hesta sína
nágrannarnir úr Reykjanesbæ, Keflavík og Njarðvík.
Morgunblaðið/Sverrir
Jón N. Hafsteinsson, einn af ungum leikmönnum Keflavíkur-
liðsins, á ferð undir körfunni. Hann verður í sviðsljósinu í dag.
Anna María Sveinsdóttir, hin
reynda landsliðskona Kefla-
víkurliðsins.
Keflavíkurhátíð
í Höllinni
HELGI Bragason og Georg And-
ersen dæma úrslitaleik kvenna í
dag og Bergur Steingrímsson verð-
ur eftirlitsmaður.
LEIFUR Garðarsson og Rögn-
valdur Hreðarsson dæma karlaleik-
inn og þar verður Kristinn Alberts-
son eftirlitsmaður.
LÝSING efnir til skotkeppni í
leikhléi þar sem tveir heppnir þátt-
takendur í netleik fyrirtækisins fá
tækifæri til að taka eitt þriggja
stiga skot hvor. Hitti þeir fá þeir
100.000 krónur frá fyrirtækinu.
ÞEIR áhorfendur sem mæta
snemma til leiks í Laugardalshöll-
ina fá gefins bol í lit síns félags frá
Lýsingu og það má því búast við að
stúkan í Höllinni verði litskrúðug.
KR og Keflavík standa nokkuð
jöfn í bikarkeppni kvenna frá árinu
1975 þegar fyrst var keppt. KR hef-
ur níu sinnum orðið bikarmeistari
en Keflvíkingar hafa vinninginn,
hafa tíu sinnum sigrað. Bæði hafa
liðin leikið 14 sinnum til úrslita og
hafa engin lið leikið eins oft. Þetta
verður sem sagt í 15. sinn sem liðin
komast í úrslit.
KEFLAVÍK og KR hafa mæst
fimm sinnum í úrslitum og hefur
Keflavík vinninginn, hefur sigraði
þrívegis en KR tvisvar.
NJARÐVÍK hefur sjö sinnum
orðið bikarmeistari karla og er þar
í öðru sæti á eftir KR sem hefur 9
sinnum sigrað. Keflvíkingar koma
næstir á eftir Njarðvík með 4 bik-
armeistaratitla.
FÉLÖGIN hafa bæði unnið einum
úrslitaleik meira en þau hafa tapað.
Njarðvík hefur sigrað 7 sinnum en
tapað 6 úrslitaleikjum á meðan
Keflavík hefur sigrað fjórum sinn-
um en tapað þrívegis.
PUNKTAR
Stoðsending
í Stykkishólm