Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 70
ÍÞRÓTTIR
70 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
JÓN Jóhannsson 21 árs gamall línumaður sem leikur
með danska 2. deildarliðinu Söndeborg hefur gert
þriggja ára samning við danska úrvalsdeildaliðið
Skjern og gengur hann í raðir liðsins fyrir næstu leik-
tíð. Jón er hávaxinn af línumanni að vera, um 2 metrar
á hæð og þykir ekki ósvipaður í vexti og Sigfús Sig-
urðsson línumaður þýska liðsins Magdeburg og ís-
lenska landsliðsins.
Jón hefur verið búsettur í Danmörku í þrjú ár en
hann lék með Fjölni og Fram og hefur leikið með yngri
landsliðum Íslands.
Aron aðstoðar Anders Dahl
Hjá Skjern hittir Jón fyrir Aron Kristjánsson, fyrr-
verandi leikmann Hauka og landsliðsins, en Aron hefur
verið ráðinn aðstoðarþjálfari Skjern og mun starfa við
hlið Anders Dahl Nielsens. Nielsen hefur þjálfað Skjern
undanfarin sex ár og lék Aron undir hans stjórn fyrir
nokkrum árum en Aron er nú í herbúðum Tvis/
Holstebro.
Skjern samdi við
íslenskan línumann
NJARÐVÍK og bikarmeistaralið Keflavíkur eigast við í
úrslitaleik bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í karlaflokki í
dag í Laugardalshöll og eru allar líkur á því að Brenton
Birmingham og Brandon Woudstra verði með Njarð-
víkurliðinu í leiknum. En þeir hafa verið frá vegna
meiðsla undanfarna daga. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins æfðu Brandon og Brenton báðir með
liðinu í gær og eru bjartsýnir á að geta látið að sér
kveða í úrslitaleiknum, en forsvarsmenn félagsins hafa
ekki viljað ljóstra því upp hvort þeir verði í liðinu gegn
grönnum sínum úr Keflavík.
Brenton meiddist í undanúrslitarimmu liðsins gegn
Snæfelli í Stykkishólmi þann 17. janúar sl. og hefur
hann ekki leikið með Njarðvík í síðustu tveimur deild-
arleikjum liðsins sem töpuðust báðir. Brenton hefur
skorað 21,8 stig að meðaltali í fjórum leikjum í bik-
arkeppninni til þessa. Woudstra sneri sig á ökkla í
grannaslagnum gegn Keflavík sl. föstudag í Intersport-
deildinni en hann hefur einnig skorað 21,8 stig að með-
altali í bikarkeppninni í fjórum leikjum.
Brenton og Brand-
on klárir í slaginn?
Ársþing KSÍ
58. ársþing Knattspyrnusambands Íslands
fer fram á Hótel Selfossi í dag.
Þorrablót Víkings
Víkingar verða með hið árlega Þorrablót
sitt Víkinni í kvöld kl. 19.30.
HANDKNATTLEIKUR
Stjarnan – KA 26:34
Ásgarður í Garðabæ, úrvalsdeild karla í
handknattleik, RE/MAX-deild, föstudagur
6. febrúar 2004.
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 5:5, 6:9, 7:12, 9:14.
11:14, 13:19, 14:19, 16:20, 17:23, 19:24,
19:28, 21:30, 24:31, 26:34.
Mörk Stjörnunnar: David Kekelia 6, Vil-
hjálmur Halldórsson 5/4, Arnar Jón Agn-
arsson 4, Arnar Theódórsson 3, Gunnar
Ingi Jóhannsson 3, Sigurður Bjarnason 2,
Björn Friðriksson 2, Gústaf Bjarnason 1.
Varin skot: Jacek Kowal 17/1 (þar af 10/1
aftur til mótherja), Guðmundur K. Geirs-
son 1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk KA: Arnór Atlason 10/6, Einar Logi
Friðjónsson 9, Andrius Stelmokas 7/1, Árni
Björn Þórarinsson 3, Jónatan Magnússon
2, Bjartur Máni Sigurðsson 2, Þorvaldur
Þorvaldsson 1.
Varin skot: Hafþór Einarsson 12/1 (þar af
3/1 aftur til mótherja), Hans Hreinsson 3.
Utan vallar: 14 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur
Leifsson. Dálítið ryðgaðir eftir fríið.
Áhorfendur: Um 160.
Fram – ÍR 27:32
Framheimilið:
Gangur leiksins: 0:4, 4:8, 6:8, 7:12, 10:14,
11:16, 13:17, 14:21, 19:21, 22:23, 23:27,
25:30, 27:32.
Mörk Fram: Héðinn Gilsson 10, Valdimar
Þórsson 3, Arnar Þór Sæþórsson 3/1, Jón
Björgvin Pétursson 3/2, Guðlaugur Arnars-
son 2, Guðjón Finnur Drengsson 2, Haf-
steinn Ingason 2, Hjálmar Vilhjálmsson 1,
Stefán B. Stefánsson 1.
Varin skot: Egidijus Petkevicius 24/2 (þar
af fóru 10/1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk ÍR: Einar Hólmgeirsson 10, Fannar
Þorbjörnsson 7, Bjarni Fritzson 7, Ingi-
mundur Ingimundarson 4, Hannes Jón
Jónsson 4.
Varin skot: Ólafur H. Gíslason 22/3 (þar af
fóru 8/1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Arnar Kristinsson og Þorlákur
Kjartansson.
Áhorfendur: 128.
Valur – Grótta/KR 29:20
Hlíðarendi:
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 5:2, 7:6, 9:6, 9:8,
12:8, 18:8, 19:9, 20:11, 23:13, 25:15, 27:18,
29:20.
Mörk Vals: Markús Máni Maute 6/1, Hjalti
Gylfason 4, Heimir Árnason 4/1, Bjarki
Sigurðsson 3, Hjalti Pálmason 3, Atli Rún-
ar Steinþórsson 2, Freyr Brynjarsson 2,
Sigurður Eggertsson 2, Brendan Þorvalds-
son 1/1, Kristján Karlsson 1, Fannar Frið-
geirsson 1.
Varin skot: Pálmar Pétursson 13/1 (Þar af
fór eitt skot aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Gróttu/KR: Páll Þórólfsson 5, Krist-
inn Björgúlfsson 4, Konráð Olavsson 3,
Þorleifur Björnsson 3, Kristján Þorsteins-
son 2, Daði Hafþórsson 1, Hörður Gylfason
1, Sverrir Pálmason 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 12/1 (Þar af
fór eitt skot aftur til mótherja), Gísli Guð-
mundsson 4/1
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð-
jónsson.
Áhorfendur: 112.
Haukar – HK 30:23
Ásvellir:
Gangur leiksins: 2:0, 4:1, 6:4, 9:6, 13:6, 14:9,
15:12, 17:13, 19:15, 23:17, 27:19, 28:21,
30:23.
Mörk Hauka: Jón Karl Björnsson 14/9,
Andri Stefan 5, Robertas Pauzuolis 4, Ás-
geir Örn Hallgrímsson 3, Halldór Ingólfs-
son 2, Þorkell Magnússon 2.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 25/2
(þar af 8 til mótherja).
Utan vallar: 16 mínútur.
Mörk HK: Andrius Rackauskas 8/2, Elías
Már Halldórsson 5, Samúel Árnason 3, Al-
exander Arnarsson 2, Augustas Stradaz 2,
Atli Þór Samúelsson 2, Ólafur Víðir Ólafs-
son 1.
Varin skot: Björgvin Gústafsson 8 (þar af 1
til mótherja), Hörður Flóki Ólafsson 1 (þar
af 1 til mótherja).
Utan vallar: 16 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson. Stóðu sig virkilega vel.
Áhorfendur: 400.
Staðan:
Valur 1 1 0 0 29:20 10
KA 1 1 0 0 34:26 10
Haukar 1 1 0 0 30:23 9
ÍR 1 1 0 0 32:27 7
Fram 1 0 0 1 27:32 6
HK 1 0 0 1 23:30 6
Stjarnan 1 0 0 1 26:34 5
Grótta/KR 1 0 0 1 20:29 3
Þýskaland
Magdeburg – Hamborg ........................32:27
Kronau-Östringen – Minden................22:28
Staðan:
Flensburg 19 16 2 1 617:500 34
Magdeburg 19 15 1 3 580:491 31
Lemgo 19 14 2 3 632:534 30
Kiel 19 13 2 4 592:504 28
Hamburg 20 14 0 6 565:515 28
Essen 19 11 2 6 524:473 24
Gummersb. 19 11 1 7 527:493 23
Wallau 19 9 3 7 592:577 21
Nordhorn 18 8 2 8 536:520 18
Wetzlar 19 8 2 9 478:521 18
Großwallst. 19 6 4 9 450:503 16
Minden 20 7 0 13 523:582 14
Stralsunder 19 6 0 13 423:522 12
Wilhelmshav. 19 4 2 13 498:534 10
Göppingen 19 5 0 14 486:533 10
Pfullingen 19 4 1 14 500:566 9
Kr-Östringen 20 4 1 15 522:591 9
Eisenach 19 4 1 14 494:580 9
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Ármann/Þróttur – Fjölnir ..................83:106
Staðan:
Skallagrímur 14 13 1 1314:1131 26
Fjölnir 15 13 2 1399:1106 26
Valur 13 11 2 1137:1038 22
Ármann/Þróttur 14 7 7 1180:1127 14
Stjarnan 14 6 8 1124:1107 12
ÍS 14 6 8 1114:1200 12
Þór A. 15 6 9 1268:1335 12
ÍG 13 3 10 1023:1175 6
Höttur 14 3 11 1042:1221 6
Selfoss 14 2 12 1121:1282 4
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Philadelphia – LA Lakers ....................96:73
San Antonio – Seattle ...........................96:90
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla, A-riðill:
Valur – KR.................................................1:1
Matthías Guðmundsson – Kjartan Henry
Finnbogason.
Þróttur – ÍR...............................................4:1
Lokastaðan:
KR 4 3 1 0 22:3 10
Valur 4 3 1 0 9:5 10
Þróttur R. 4 1 1 2 8:12 4
ÍR 4 1 0 3 4:19 3
Leiknir R. 4 0 1 3 5:9 1
KR mætir Víkingi og Valur mætir Fylki í
undanúrslitum 12. febrúar.
Holland
Roosendaal – Waalwijk ............................1:3
Frakkland
Bordeaux – Nantes ...................................2:0
Valsmenn byrjuðu úrvalsdeildinasérdeilis vel þegar þeir lögðu
Gróttu/KR á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Eftir nokkuð jafnan
fyrri hálfleik tóku
Valsmenn öll völd á
vellinum í byrjun
þess seinni og
spiluðu gestina upp úr skónum, stað-
an í hálfleik var 12:8 en þegar upp
var staðið unnu Valsmenn með níu
marka mun, 29:20.
Leikurinn byrjaði fjörlega og var
greinilegt að liðin höfðu nýtt vetr-
arfríið til hins ýtrasta. Hraðar sóknir
Gróttu/KR skópu þeim auðveld
mörk en þeir áttu það til að detta nið-
ur í hægar sóknir þar sem vantaði
einhvern til að taka af skarið – Gint-
aras Savukynas er frá vegna meiðsla
og munaði þar um minna. Heima-
menn spiluðu agaðan leik og sýndu
styrk sinn þegar þeir gerðu út um
leikinn á fyrstu átta mínútunum í síð-
ari hálfleik, komu stöðunni úr 12:8 í
18:8. Eftir það varð róðurinn þungur
fyrir gestina sem létu lítið að sér
kveða, náðu aldrei að grynnka á
muninum og heimamenn fóru með
auðveldan sigur af hólmi, 29:20.
„Þetta var ágætis byrjun og ég er
mjög sáttur með leikinn á köflum –
við áttum meira inni,“ sagði Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals-
manna.
„Það er alltaf erfitt að mæta
Gróttu/KR, þeir voru að missa sinn
sterkasta leikmann og ég bjóst við að
þeir kæmu þéttir til baka. Þeir
spiluðu vel í fyrri hálfleik, fengu
mörg dauðafæri og fundu glufur á
vörninni. En í byrjun seinni hálfleiks
gekk allt á afturfótunum hjá þeim og
við brutum þá snemma niður og eft-
irleikurinn var auðveldur. Við erum
að smella vel saman og hlökkum til
næsta leiks við Hauka, þó skemmti-
legra væri að mæta þeim með
Viggó,“ bætti Óskar við að lokum.
Ágúst Jóhannson, þjálfari Gróttu/
KR, var ekki sæll á svip eftir leikinn.
„Við spiluðum vel í fyrri hálfleik og
vorum klaufar að vera fjórum mörk-
um undir í hálfleik. Við yfirspiluðum
þá hvað eftir annað sóknarlega en
klúðrum mörgum dauðafærum og
vítaköstum og það má alls ekki á
móti liði eins og Val. Svo ætluðum við
að bæta þetta í seinni hálfleik en vor-
um eins og vitleysingar fyrstu fimm
mínúturnar. Leyfðum þeim að skora
sex mörk á móti engu og þar með var
sigurinn horfinn. Við reyndum eitt-
hvað að klóra í bakkann en svo fór
sem fór. Það þýðir ekkert annað en
spýta í lófana og rífa sig upp, við er-
um án lykilmanna og verðum þá að
þjappa okkur saman – komum svo
brjálaðir í næsta leik,“ sagði Ágúst.
„Ágætis byrjun“
Andri
Karl
skrifar
Páll Ólafsson brosti breitt þegarMorgunblaðið náði tali af hon-
um eftir leikinn en Páll ákvað að
verða við óskum
Haukanna og hlaupa
í skarð Viggós.
„Þetta er óska-
byrjun og ég get
ekki verið annað en mjög ánægður
með frammistöðu liðsins. Strákarnir
voru virkilega vel einbeittir og þrátt
fyrir það sem á undan er gengið þá
voru menn tilbúnir að þjappa sér
saman og sýna það í hverju þeir eru
bestir. Það er að spila handbolta,“
sagði Páll við Morgunblaðið eftir
leikinn.
Það mátti fljótt merkja að leik-
menn Hauka ætluðu sér ekkert ann-
að en sigur og allt frá fyrstu mínútu
léku þeir eins og þeir sem valdið
hafa. Birkir Ívar Guðmundsson gaf
tóninn með mjög góðri markvörslu,
ásamt öflugum varnarleik Haukanna
þar sem þeir Vignir Svavarsson og
Robertas Pauzuolis fóru fremstir í
flokki. Á þeim kafla náðu Íslands-
meistararnir fljótlega afgerandi tök-
um á leiknum. Haukar komust í 13:6
eftir 20 mínútna leik og þó svo að
HK-ingar næðu aðeins að klóra í
bakkann undir lok fyrri hálfleiks þá
hafði maður alltaf á tilfinningunni að
Haukar gætu bætt í að vild.
Haukar héldu HK-mönnum í hæfi-
legri fjarlægð frá sér í síðari hálfleik.
Sóknarleikur Kópavogsliðsins var
afar mistækur og Birkir Ívar hélt
áfram að gera leikmönnum HK lífið
leitt. Haukarnir juku forskotið jafnt
og þétt, mest fyrir stórleik Jóns
Karls Björnsson sem fór á kostum í
vinstra horninu og af vítapunktinum
en alls skoraði Jón Karl 14 mörk úr
15 skotum og var besti leikmaður
Haukaliðsins ásamt Birki Ívari sem
varði 25 skot í leiknum.
Páll Ólafsson, nýráðinn þjálfari
Hauka, reiknaði með jafnari leik
enda hafa leikir þessara liða nánast
undantekningarlaust verið spennu-
leikir. „Þetta hafa alltaf verið hörku-
leikir en við náðum okkur vel á strik í
kvöld. Vörnin var afar sterk og Birk-
ir átti stórleik í markinu. Þessir hlut-
ir skópu forskotið sem við náðum í
byrjun og eftir það varð ekki aftur
snúið. Ég vissi ekki alveg hvernig
menn kæmu til leiks eftir öll vand-
ræðin í vikunni en strákarnir sýndu
hvað í þá er spunnið og ég verð sér-
staklega að hrósa Jóni Karli og Birki
Ívari. Það er þungu fargi af mér létt
og þessi sigur gefur okkur gott vega-
nesti í baráttuna framundan,“ sagði
Páll.
Baráttan og leikgleðin sem oft
hefur einkennt HK-liðið var ekki til
staðar og hvar sem gripið er niður í
leik liðsins var það langt undir vænt-
ingum. Landsliðsmarkvörðurinn
ungri Björgvin Gústafsson náði sér
ekki á strik, vörnin var frekar slök
og sóknarleikurinn afar einhæfur og
aðeins Andrius Rackauskas sem var
með sæmilegu lífsmarki sem og Elí-
as Már Halldórsson en átti mjög
góða innkomu í síðari hálfleik.
„Við vorum bara skrefinu á eftir
Haukum allan leikinn. Menn virtust
ekki klárir í slaginn þegar á hólminn
var komið og mínir menn voru ekki
með rétt hugarfar. Það gengur aldr-
ei og sérstaklega ekki þegar leikið er
á móti Haukum. Við vissum vel að
Haukarnir myndu mæta grimmir til
leiks eftir það sem gengið hefur á hjá
þeim en við vorum ekki menn til að
taka á móti þeim og því fór sem fór.
Við fórum illa að ráði okkar í fær-
unum og misnotuðum þrjú vítaköst
og það var ansi dýrt,“ sagði Árni
Stefánsson, þjálfari HK-manna, eftir
leikinn. Spurður hvort hann hefði
ekki brugðist of seint við með því að
leika framliggjandi vörn á Haukana
sagði Árni; „Jú, það má vel vera að
ég hafi verið of seinn til því það kom
mikið hik á Haukanna þegar við sótt-
um fram gegn þeim. Við megum ekk-
ert hengja haus yfir þessum úrslit-
um og við verðum bara að þjappa
okkur saman fyrir næsta leik.“
Óskabyrjun hjá
Páli með Haukana
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka sýndu bæði styrk og liðsanda af bestu
gerð þegar þeir lögðu bikarmeistara HK á sannfærandi hátt, 30:23,
á Ásvöllum. Leikmenn Hauka létu orrahríðina sem staðið hefur yfir í
herbúðum liðsins frá því Viggó Sigurðsson yfirgaf þjálfarastarfið
ekkert á sig fá og Páll Ólafsson, arftaki Viggós, gat varla óskað sér
betri byrjunar. Haukar höfðu tögl og hagldir allan leiktímann og
með hornamanninn Jón Karl Björnsson og markvörðinn Birki Ívar
Guðmundsson í fararbroddi sýndu Haukar að þeir ætla ekki að láta
Íslandsmeistaratitilinn af hendi svo glatt.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, úrslitaleik-
ir í Laugardalshöll.
KONUR: Keflavík – KR.............................13
KARLAR: Keflavík – UMFN...............16.30
Sunnudagur:
1. deild karla:
Hlíðarendi: Valur – ÍG ...............................16
Ásgarður: Stjarnan – Selfoss ...............19.15
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild kvenna, RE/MAX-deild:
Framheimili: Fram – Valur..................15.30
Ásgarður: Stjarnan – FH ..........................16
Víkingur – KA/Þór .....................................16
1. deild karla, RE/MAX-deild:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Þór A. .................15
Sunnudagur:
Úrvalsdeild karla, RE/MAX-deild:
KA-heimilið: KA – Fram ...........................17
Digranes: HK – Stjarnan .....................19.15
Seltjarnarnes: Grótta/KR – ÍR............19.15
Hlíðarendi: Valur – Haukar .................19.15
1. deild kvenna, RE/MAX-deild:
Ásvellir: Haukar – Grótta/KR ..................17
1. deild karla, RE/MAX-deild:
Varmá: Afturelding – Víkingur.................20
Kaplakriki: FH – Selfoss ...........................17
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Reykjavíkurmót kvenna, efri deild:
Egilshöll: Valur – Breiðablik.....................15
Egilshöll: ÍBV – KR ...................................17
Norðurlandsmót, Powerade-mótið:
Boginn: KA – Völsungur.......................12.15
Boginn: Leiftur/Dalvík – Tindastóll ....15.15
Sunnudagur:
Reykjavíkurmót karla
Leikur um 5. sæti:
Egilshöll: Fram – Þróttur R. ....................19
Leikur um 7. sæti:
Egilshöll: Fjölnir – ÍR ...............................21
Reykjavíkurmót kvenna, efri deild:
Egilshöll: KR – ÍBV ...................................14
Norðurlandsmót, Powerade-mótið:
Boginn: Þór – Hvöt................................13.15
BLAK
1. deild karla:
Hagaskóli: Þróttur R. - Stjarnan..............14
UM HELGINA
FÉLAGSLÍF