Morgunblaðið - 07.02.2004, Qupperneq 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sumarbæklingur Heimsferða
kemur út í dag.
10.000 kr. afsláttur fyrir þá
sem bóka strax.
Sumarbæklingur Heimsferða
kemur út í dag.
Opið í dag
frá kl. 12 til 16.
MJÖG góð veiði var á loðnumiðunum í gær, svo
góð að nætur sprungu vegna of mikils afla.
Segjast sjómenn sjaldan eða aldrei hafa séð
jafn mikið af loðnu á miðunum. Þeir segja
loðnukvóta vertíðarinnar ekki gefa rétta mynd
af ástandi stofnsins og skora þeir á stjórnvöld
að veita meira fé til loðnurannsókna hið fyrsta,
enda sé loðnan mjög góð til manneldisvinnslu
þessa dagana og nú fáist gott verð fyrir loðnu-
afurðir.
Mikið hefur verið fryst af loðnu á Rússlands-
markað frá áramótum, enda fæst nú þar gott
verð fyrir afurðina. Nýliðinn janúarmánuður
var þannig sá besti hjá Síldarvinnslunni frá
upphafi hvað loðnufrystingu varðar. Fryst
voru 3.100 tonn af loðnu og hefur aldrei verið
fryst jafn mikið af loðnu hjá fyrirtækinu í jan-
úar.
Hrognafylling loðnunnar sem veiðist þessa
dagana er um 10% en þegar hún nær 12% má
hefja frystingu á Japansmarkað. Ætla má að
það gerist innan fárra daga. Vel horfir með
sölu á frosinni loðnu til Japans um þessar
mundir og má gera ráð fyrir góðu verði.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Ida Jeremiassen pakkar loðnu til frystingar í
fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í gær.
Nætur sprungu
undan loðnunni
Loðnan/16
PÉTUR Björnsson, formaður Sam-
taka verslunarinnar, sagði á aðalfundi
félagsins í gær að samtökin vildu að
bannað yrði með lögum að selja vöru
á undirverði. „Það kann að vera neyt-
endum hagkvæmt á þeirri stundu
sem þeir kaupa tiltekna vöru á verði
langt undir innkaupsverði en til
lengri tíma er þetta óhagkvæmt og
óheilbrigt og leiðir til brenglunar á
verðskyni enda gert í þeim tilgangi
meðal annars. Slík drápsverðlagning
er víða bönnuð í nágrannaríkjum okk-
ar, t.d. Bretlandi,“ sagði Pétur
Björnsson.
Þá sagði hann á fundinum að um-
bjóðendur samtakanna væru hræddir
við að opinbera ástand, sem þeir segja
að ríki í viðskiptalífinu, vegna ótta við
hefndaraðgerðir.
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar Há-
skóla Íslands, sagði í erindi sínu að
samþjöppun væri ríkjandi hér á landi
í matvöru, byggingarvörum, trygg-
ingum, flutningum, lyfjum, olíu og
fjölmiðlum, en hafði þó fyrirvara á því
síðastnefnda þar sem óvíst væri um
lokaniðurstöðu í þeim málaflokki, eins
og hann orðaði það. Tryggvi sagði
einnig að mikilvægt væri að hlaupa
ekki til og setja ný lög og reglugerðir
nema að vel athuguðu máli og taldi að
styrkja ætti samkeppnisyfirvöld og
auka þekkingu þeirra, þannig að þau
gætu fylgst vel með þróun markaða af
kunnáttu, innsæi og skynsemi.
Vilja banna sölu á undirverði
Hræddir/16
NIÐURSKURÐUR á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi mun hafa áhrif á launakjör 260
hjúkrunarfræðinga, en alls mun ársverkum
hjúkrunarfræðinga fækkað um 23. Vaktakerf-
um verður breytt, en enn er ekki orðið ljóst
hvernig niðurskurðinum verður háttað.
Dagbjört H. Kristinsdóttir, aðaltrúnaðar-
maður hjúkrunarfræðinga á LSH, og Fríða
Björg Leifsdóttir, trúnaðarmaður á slysa- og
bráðadeild í Fossvogi, segja hjúkrunarfræð-
inga hafa miklar áhyggjur af áhrifum sparnað-
araðgerðanna á öryggi sjúklinga.
„Það er ætlast til að við hlaupum hraðar og
sinnum fleiri sjúklingum. Rannsóknir hafa
sýnt að það er við öryggismörk að hjúkrunar-
mann, hvort maður verður einn af þeim sem
missa vinnuna eða verður fyrir einhverri
skerðingu,“ segir Fríða. Dagbjört segist hafa
rætt við hjúkrunarfræðinga sem ætli ekki að
sætta sig við kjaraskerðingu, frekar muni þeir
ganga út og hætta störfum.
„Mér finnst ríkisstjórnin vera að gefa kjós-
endum langt nef með þessu. Kjósendur eru
sjúklingarnir okkar,“ segir Dagbjört. „Fólk
hættir bara ekki að verða veikt, það er málið.
Ég veit ekki alveg hvað yfirvöld hafa haldið, að
við séum að rölta um gangana og gera ekki
neitt,“ heldur hún áfram.
fræðingur sinni fjórum sjúklingum sem eru
mjög veikir, eins og nýlega komnir úr aðgerð.
Um leið og hjúkrunarfræðingur er búinn að
bæta við sig fimmta sjúklingnum aukast lík-
urnar á mistökum og að sjúklingur deyi um 7%.
Ef bætt er við einum í viðbót eru líkurnar 14%
og þannig heldur þetta áfram. Hjúkrunarfræð-
ingar hérna á spítalanum eru kannski eina
næturvakt með 20–30 sjúklinga. Þetta skapar
mikla hættu fyrir sjúklingana,“ segir Dagbjört.
Segja þær starfsfólkið orðið mjög þreytt á
óvissunni hvernig niðurskurðinum verði háttað
í framtíðinni og óörygginu sem því fylgir.
„Maður veit ekki hverjar breytingarnar verða
og hvernig þær koma til með að hafa áhrif á
Niðurskurðurinn á LSH mun hafa áhrif á kjör 260 hjúkrunarfræðinga
Segja auknar líkur á mis-
tökum með meira álagi
Ætlast til/12
Í BRÉFI sem Ragnar Jónsson
í Smára sendi Matthíasi Jo-
hannessen er sá síðarnefndi var
að ljúka við ritun samtalsbókar
sinnar við Þórberg Þórðarson,
Í kompaníi við allífið, kemur
fram að Ragnar var langt frá
því að vera
sammála
mörgu því
sem Þór-
bergur
sagði í bók-
inni. Þór-
bergur held-
ur því til
dæmis fram
að syndir
verði ekki
fyrirgefnar en því svarar Ragn-
ar með þessum orðum: „Mann-
fjandann vantar þriðju víddina í
sálarlífið.“
Ragnar segir að Þórberg
skorti lífsreynslu. Hann hafi að
vísu „gengið á berum iljunum,
soltið eins og fjallarefur“ en
slíkt hafi allir menn reynt og
það orðið þeim „dýrðlegt lyf og
hjartastyrkjandi“.
Í dag er aldarafmælis Ragn-
ars í Smára minnst með dag-
skrá í Þjóðleikhúsinu og opnun
sýningar í Listasafni ASÍ. Enn-
fremur verður dagskrá helguð
Ragnari á Eyrarbakka á
sunnudag en þar var hann
fæddur.
Ragnar í Smára í
bréfi um Þórberg
Þórberg
skorti lífs-
reynslu
Lesbók/7–10
Ragnar í Smára.DAMIEN Rice,
ungur Íri, sem sló í
gegn á síðasta ári
með plötunni O,
mun halda tónleika
á NASA 19. mars
næstkomandi. O er
hans fyrsta plata
og hefur hún hlotið
mikið lof og var að
margra mati ein af
betri plötum síð-
asta árs. Rice leik-
ur angurværa og tilfinningaríka tónlist,
oftast studdur kassagítar, og hefur ósjald-
an verið líkt við sígild söngvaskáld á borð
við Bob Dylan, Leonard Cohen og Van
Morrison. Rice, sem kemur til landsins með
hljómsveit sinni, á eitt af mest spiluðu lög-
unum á Rás 2 um þessar mundir en það
heitir „Volcano“.
Damien Rice
til Íslands
Heimsókn/65
♦♦♦
ÞAÐ VAR boðið upp á finnskt
rokk á Gauki á Stöng í gær-
kvöldi við góðar undirtektir
viðstaddra. Gaukurinn var
stappfullur út úr dyrum er
Rasmus hefur átt tvö lög í
toppsætum vinsældalista víða
um heim og hefur engin önnur
finnsk popphljómsveit náð
þeim árangri.
strákarnir í The Rasmus stigu
á svið en áhorfendur voru
komnir í mikið stuð eftir upp-
hitun hljómsveitarinnar
Mauss.
Morgunblaðið/Golli
The Rasmus rokkaði á Gauknum