Morgunblaðið - 14.02.2004, Page 1

Morgunblaðið - 14.02.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 44. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Aukadagur fyrir ást Bónda- og konudagur duga ekki lengur fyrir þá ástföngnu | Daglegt líf Lesbók | Rússneskur Booker-verðlaunahafi  Íslenskir lista- menn í Barcelona  Sjöunda sinfónía Mahlers Börn | Vinnu- morgunn í Húsdýragarðinum  Risaeðlurnar  Smáfólk LEIÐTOGAR Grikkja og Tyrkja á Kýpur komust í gær að tímamóta- samkomulagi um að hefja viðræður um endalok skiptingar eyjarinnar áð- ur en hún gengur í Evrópusambandið 1. maí. Samkvæmt samkomulaginu, sem Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, hafði milligöngu um, hefjast viðræðurnar á fimmtu- daginn á Kýpur. Nái Grikkir og Tyrk- ir ekki endanlegu samkomulagi mun Annan skera úr um deiluatriði, en grískir og tyrkneskir Kýpurbúar munu í almennri atkvæðagreiðslu hafa lokaorðið um samkomulag. Þáttaskil á Kýpur Sameinuðu þjóðunum. AP. FLUGLEIÐIR keyptu í gær 10% hlut í Eimskipafélaginu á genginu 9,20 krónur á hlut og nam kaupverð- ið 4.085 milljónum króna. Eignar- haldsfélagið Oddaflug á stærstan hlut í Flugleiðum, 38,48%, en félagið er í eigu Hannesar Smárasonar, að- stoðarforstjóra Íslenskrar erfða- greiningar, og Jóns Helga Guð- mundssonar, forstjóra Byko. Hannes á ennfremur fjárfestingar- félagið Primus sem á 3,14% í Eim- skipafélaginu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur hópur fjárfesta með Hannes Smárason innanborðs áhuga á að koma að rekstri flutningafélags- ins. Í hópnum eru að auki Þórður Magnússon, stjórnarmaður í Eim- skipafélaginu og stjórnarformaður Eyris fjárfestingarfélags sem á 2,86%, Erlendur Hjaltason, fram- kvæmdastjóri Eimskips hf., faðir hans Hjalti Geir Kristjánsson og að lokum eignarhaldsfélagið Saxhóll sem er í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar og á 1,91% hlut í Eimskipafélaginu. Samanlagt nemur hlutur félaga í eigu meðlima hópsins nærri fimmt- ungi hlutafjár, eða 17,91%, sé hlutur Flugleiða talinn með. Aðalfundur Eimskipafélagsins verður haldinn 19. mars. Stjórnar- formaður félagsins, Magnús Gunn- arsson, hefur sagt að ekki sé hægt að selja flutningafélagið formlega fyrr en eftir aðalfund, en þá verða kynnt- ar breytingar á samstæðunni sem fela í sér aðskilnað á flutningafélag- inu Eimskip og fjárfestingarfélaginu Burðarási. Kaup Flugleiða fóru fram í gegnum KB banka en ekki er vitað hvaða hluthafar seldu. Landsbankinn fagnar áhuga Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segir bankann fagna áhuga á Eimskipafélaginu. „Þetta er allrar athygli vert og ánægjulegt að stór félög á markaði deili því sjónarmiði með okkur að þarna sé um góðan fjárfestingarkost að ræða. Að öðru leyti er ekki eðli- legt að bankinn tjái sig neitt efnis- lega um viðskipti einstakra aðila á markaði,“ segir Halldór. Flugleiðir kaupa 10% hlut í Eimskipafélaginu Félög í eigu fjárfesta sem lýst hafa áhuga á kaupum á flutningafélaginu komin með tæpan fimmtungshlut TALIÐ er að dánarorsök manns- ins, sem fannst látinn í höfninni í Neskaupstað, hafi ekki verið út- vortis áverkar heldur hafi fíkniefni, sem hann bar innvortis, valdið dauða hans. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins kom þetta fram við krufningu líksins í Reykjavík í gær. Staðfest var að manninum hefðu verið veittir áverkar, en talið að þeir hefðu ekki valdið dauða hans. Samkvæmt upplýsingum blaðs- ins hefur sú spurning vaknað, hvort maðurinn hafi verið svokallað burðardýr fyrir fíkniefni, en það hefur ekkert fengizt staðfest. Ekki borin kennsl á líkið Enn hefur ekki tekizt að bera kennsl á líkið. Mynd af líkinu var send á allar lögreglustöðvar í land- inu í gær til að kanna, hvort lög- reglumenn annars staðar á landinu hefðu haft af manninum afskipti. Þá hefur aðstoðar kennslanefnd- ar ríkislögreglustjóra verið leitað við að bera kennsl á líkið. Óvíst er hversu langur tími fer í rannsókn nefndarinnar, enda er vinna henn- ar mikið nákvæmnisverk. Í gærkvöldi störfuðu níu lög- reglumenn að því fyrir austan að reyna að upplýsa málið, auk þeirra sem vinna að rannsókninni annars staðar á landinu. Fólk, sem var á gráum Mitsu- bishi-bíl sem lýst hafði verið eftir vegna rannsóknar málsins, gaf sig fram við lögreglu í gær. Jónas Vil- helmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, segir að fólkið hafi ekki tengzt málinu á nokkurn hátt. Hins vegar hefur enginn gefið sig fram og sagzt hafa verið á ferð um bryggjuna um klukkan þrjú aðfara- nótt miðvikudags, en vitni sá þá bíl- ljós á bryggjunni.  Fólkið/2 Líkið sem fannst í Neskaupstað krufið Fíkniefni inn- vortis talin dánarorsök AÐ sögn Sigurðar Helgasonar, for- stjóra Flugleiða, er sterk lausa- fjárstaða félagsins ástæða þess að félagið fjárfesti í Eimskipafélaginu. Hann segist telja Eimskipafélagið áhugaverðan kost. „Þetta ár lítur ágætlega út, bók- anir eru mjög góðar þannig að lausafjárstaða fyrirtækisins er mjög sterk og hefur verið það und- anfarin misseri. Við erum ekki með nein stór áform um fjárfestingar í hótelum eða flugvélum. Við fórum því að hugleiða hvar við ættum tækifæri og höfum verið að líta á markaðinn und- anfarnar vikur. Okkur fannst þetta mjög áhugaverður kostur. Þarna er búið að gera miklar breyt- ingar og við telj- um að það séu tækifæri fram- undan hjá Eim- skipafélaginu.“ Hann segir engin áform uppi um frekari kaup á hlutabréfum í Eimskipafélaginu. Telja tækifæri framundan Sigurður Helgason Lesbók og börn í dag KAUPMAÐUR mokar snjó frá söluturni sínum skammt frá Bláu moskunni í Istanbúl í gær, og lætur kafaldsbyl- inn ekki aftra sér. Mikið hríðarveður hefti samgöngur á lofti, láði og legi í Tyrklandi í gær og einangruðust þúsundir þorpa. Er þetta í annað sinn á einum mánuði sem illviðri setur allt úr skorðum í landinu. Reuters Leiðindaveður í Istanbúl ÓGERLEGT verður að skipuleggja kosningar í Írak fyrir 30. júní, en þann dag ætla Bandaríkjamenn að afhenda heimamönnum völdin í land- inu, að því er talsmaður Sameinuðu þjóðanna (SÞ) tjáði breska ríkisút- varpinu, BBC, í gær. Lakhdar Brahimi, sendimaður SÞ í Írak, sagði við fréttamenn í Bag- dad, að ekki væri ráðlegt að fastsetja dag fyrir kosningarnar, heldur ætti það að vera sveigjanlegt hvenær þær færu fram. Ómögulegt væri að tryggja að frjálsar kosningar gætu farið fram með eðlilegum hætti fyrir júnílok. Kosningar í Írak ógerlegar fyrir valdaafsal London, Karbala. AFP. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.