Morgunblaðið - 14.02.2004, Page 62
ÍÞRÓTTIR
62 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Leikurinn var sögulegur á marganhátt og Kristinn Óskarsson
dómari sagði við Morgunblaðið að
hann hefði aldrei
lent í öðru eins.
Alls voru dæmdar
sjö óíþróttamanns-
legar villur og tækni-
villur á Tindastólsliðið sem lét mót-
lætið meira bitna á dómurum
leiksins en andstæðingunum, eins og
Kristinn dómari komst að orði.
Tindastólsmenn skoruðu fyrstu
körfuna og var það eina karfa þeirra
í tæpar sex mínútur. Þórsarar fóru
líka frekar rólega af stað en náðu þó
fljótt tökum á leiknum og sýndu all-
an leikinn að þeir réðu gangi hans.
Erfitt er að gera upp á milli manna
í Þórsliðinu því þeir sex til sjö menn
sem spiluðu nær allan leikinn stóðu
sig mjög vel. Í Tindastólsliðinu voru
það Svavar Atli, Nick Boyd og Clif-
ton Cook sem drógu vagninn en
Helgi Rafn og Friðrik Hreinsson
komu sterkir inn með þriggja stiga
skot í lokin. Hittni gestanna var að
öðru leyti ekki góð.
Þjálfari Þórs, Robert Dean Hodg-
son, sagði að hann væri svo stoltur af
strákunum að hann snerti varla jörð-
ina. „Þeir spiluðu frábæra vörn og
sóknin var líka mjög góð eins og
stigaskorið sýnir. Það mikið búið að
ganga á hjá Þórsliðinu því fyrir utan
mannaskiptin þá höfum við misst
menn í ökklabrot og veikindi. Héðan
af verður allt upp á við og við erum
ekki búnir að gefast upp.“
Langþráður
sigur hjá
Þórsurum
ÞÓR úr Þorlákshöfn vann fræki-
legan sigur á Tindastóli í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í gær-
kvöldi. Lokatölur 110 gegn 85
segja þó varla alla söguna því
munurinn á liðunum var lengst
af meiri. Eftir tvo sigra í fyrstu
tveimur leikjum tímabilsins
höfðu Þórsarar tapað 14 leikj-
um í röð og stigin voru þeim því
afar kærkomin í harðri fallbar-
áttu deildarinnar.
Jón H.
Sigurmundsson
skrifar
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Úrvalsdeild karla, RE/MAX-deild:
Austurberg: ÍR - KA.............................16.30
Ásgarður: Stjarnan - Valur .......................17
Framhús: Fram - HK ...........................15.30
1. deild kvenna, RE/MAX-deildin:
Framhús: Fram - Haukar ....................13.30
KA-heimili: KA/Þór - Stjarnan.................16
Seltjarnarnes: Grótta/KR - Víkingur.......13
1. deild karla, RE/MAX-deild:
Víkin: Víkingur - ÍBV ................................14
Sunnudagur:
Úrvalsdeild karla, RE/MAX-deild:
Ásvellir: Haukar - Grótta/KR...................17
1. deild karla, RE/MAX-deild:
Smárinn: Breiðablik - FH ....................19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild karla:
Egilsstaðir: Höttur - Ármann/Þróttur.....15
Selfoss: Selfoss - ÍG ...................................16
Sunnudagur:
Úrvalsdeild karla, Intersportdeild:
Ásvellir: Haukar - KR...........................19.15
Ísafjörður: Ísafjörður - Hamar............19.15
Njarðvík: UMFN - Breiðablik.............19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll - Keflavík ...19.15
Stykkishólmur: Snæfell - ÍR................19.15
1. deild karla:
Hlíðarendi: Valur - Fjölnir........................16
Mánudagur:
Úrvalsdeild karla, Intersportdeild:
Grindavík: UMFG - Þór Þ....................19.15
1. deild kvenna:
Kennaraháskóli: ÍS - KR......................19.30
Seljaskóli: ÍR - Keflavík .......................19.15
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Norðurlandsmót, Powerademótið:
Boginn: KA - Höttur .............................12.15
Boginn: KS - Leiftur/Dalvík ................15.15
Sunnudagur:
Reykjavíkurmót karla, úrslitaleikur:
Egilshöll: KR - Fylkir................................19
Norðurlandsmót, Powerademótið:
Boginn: Tindastóll - Þór .......................13.15
Boginn: Höttur - Leiftur/Dalvík..........15.15
GLÍMA
Þriðja og síðasta umferð í Íslandsmótinu í
glímu, Leppinmótaröðinni, verður í
Íþróttahúsi Hagaskóla í dag, laugardag, kl.
13 til kl.15
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fer
fram um helgina í Baldurshaga og Kapla-
krika. Keppni hefst í dag kl. 9.30 í Bald-
urshaga með 60 m hlaupi og langstökki
karla og kvenna. Keppni hefst í Kaplakrika
kl. 15, en þar verður keppt í 800 m hlaupi,
hástökki, stangarstökki, kúluvarpi og at-
rennulausum stökkum.
Á morgun, sunnudag, hefst keppni kl. 10.15
með 1500 m hlaupi karla og kvenna í
Kaplakrika og kl. 13 í Baldurshaga með 60
m grindahlaupi og þrístökki karla og
kvenna.
BORÐTENNIS
Stigamót Lýsingar fer fram Íþróttahúsi
TBR í dag. Úrslitaleikir verða kl. 15.30.
UM HELGINA
ÍSLANDSMEISTARAR ÍBV í
handknattleik kvenna leika á
morgun fyrri leik sinn við
franska liðið Havre Athletic
Club Handball í 16 liða úrslitum
Áskorendakeppni Evrópu. Leik-
urinn fer fram í Le Havre. Havre
Athletic Club Handball vann
belgíska liðið STHV J. Melveren
samtals 71:30 í tveimur leikjum í
fyrstu umferð keppninnar á
sama tíma og ÍBV lagði Etar
Veliko 64 Tarnovo frá Búlgaríu
með yfir 20 marka mun í tveim-
ur viðureignum. Havre-liðið er
um þessar mundir í 3. sæti
frönsku 1. deildarinnar, hefur
unnið 8 leiki, gert eitt jafntefli
og tapað þremur leikjum, og er 7
stigum á eftir toppliði Metz.
Franskur kvennahandknatt-
leikur hefur tekið miklum fram-
förum á síðustu árum og m.a.
stóð franska landsliðið uppi sem
sigurvegari á heimsmeistara-
mótinu í Króatíu í lok síðasta
árs.
Síðari leikur ÍBV og Havre
Athletic Club Handball fer fram
í Eyjum eftir viku.
Vestmannaeyingar
í Frakklandi
ARSENAL og Chelsea mætast
fjórða árið í röð í bikarkeppninni.
2001 lagði Arsenal Chelsea í 16 liða
úrslitum 1:0 og árið eftir, 2002
mættust liðin í úrslitaleiknum í Car-
diff. Arsenal fagnaði þá sigri, 2:0. Í
fyrra áttust liðin við í 8 liða úrslitum.
Jafntefli varð á Highbury 2:2, en síð-
an fögnuðu leikmenn Arsenal sigri á
Stamford Bridge, 3:1.
Chelsea hefur aldrei náð að knýja
fram sigur í bikarkeppninni á Hig-
hbury. Chelsea lagði Arsenal síðast
að velli í bikarkeppninni 20. janúar
1947 í þriðja leik liðanna, sem fór
fram á heimavelli Tottenham, White
Hart Lane – 2:0.
Enska blaðið Evening Standard
sagði frá því fyrir ári – fyrir við-
ureign Arsenal og Chelsea, að ef
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri
Chelsea, vildi fá að vita hvernig til-
finning það er fyrir Chelsea-mann
að leggja Arsenal að velli í bik-
arkeppninni, verði hann að taka upp
símtólið og slá á þráðinn til Sviss –
ræða við Willi Steffen, 79 ára, sem er
búsettur í bænum Utzenstorf, sem er
25 km frá Bern. Þessi fyrrverandi
svissneski landsliðsmaður lék sem
vinstri bakvörður í liði Chelsea sem
lagði Arsenal að velli í bikarkeppn-
inni í janúar 1947, gæti sagt honum
það.
Síðan þá hafa liðin leikið 10 bik-
arleiki. Fjórir leikir hafa endað með
jafntefli, Arsenal hefur unnið sex.
Arsenal hefur leikið fjórtán leiki í
röð við Chelsea án þess að tapa.
Chelsea hefur ekki unnið leik í deild-
ar- eða bikarkeppninni á Highbury
síðan 17. mars 1990, er John Bum-
stead skoraði sigurmarkið.
Chelsea vann aftur á móti deild-
arbikarleik á Highbury í nóvember
1998, en þá tefldi Arsenal eins og svo
oft í deildarbikarkeppninni vara- og
unglingaliði sínu.
BIKAR-
PUNKTAR
Markahrókurinn ThierryHenry verður að sjálfsögðu í
sviðsljósinu, eins og áður. Það er
líklegt að Hollendingurinn Dennis
Bergkamp leiki við hlið hans, en
hinn ungi Spánverji Jose Reyes
vari á bekkinn, en hann tók stöðu
Bergkamps í leik Arsenal gegn
Southampton á Highbury sl þriðju-
dag. Þá fór Henry á kostum og
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri
Chelsea, sem var á meðal áhorf-
enda, sá hann skora tvö glæsileg
mörk. „Arsenal-liðið er mjög vel
upplagt um þessar mundir og það
verður erfitt að eiga við það,“ sagði
Ranieri, sem sagði um árið að
Henry væri „Muhammed Ali knatt-
spyrnunnar“.
Ranieri eins og aðrir knatt-
spyrnustjórar og markverðir óttast
Henry mikið, enda ekki nema von –
leikmaðurinn virðist skemmta sér
geysilega við að skora mörk. „Ég
hef lengi fylgst með Henry. Ég
byrjaði að fylgjast með honum er
ég var þjálfari Fiorentina á Ítalíu
og Henry lék með franska ung-
mennalandsliðinu. Ég sagði þá við
forráðamenn Fiorentina að kaupa
leikmanninn, þar sem hann væri
einn af þeim bestu. Hann er Mu-
hammed Ali knattspyrnunnar –
vegna hraða hans og kraft. Hann
væri höggþungur þegar hann sæi
netamöskvana fyrir framan sig.“
Það verður hlutverk Ranieris til
að finna út leið til að stöðva Henry
og er líklegt að það komi í hlut
miðjumannsins Franks Lampards
að hafa gætur á honum. „Ég hef yf-
ir mörgum góðum leikmönnum að
ráða – við munum gera okkar besta
til að stöðva Henry,“ sagði Ranieri,
sem bindur miklar vonir við
nokkra af nýju leikmönnunum sín-
um til að að kveða niður Arsenal-
drauginn, sem hefur verið í her-
búðum Chelsea lengi – og þá horfir
hann til Scott Parker og Hernan
Crespo.
Ranieri segir að það séu erfiðar
vikur framundan og lið hans sé í
baráttu á þremur vígstöðum –
fyrst í bikarbaráttu við Arsenal á
Highbury, síðan kemur meistara-
orrusta við Arsenal á Stamford
Bridge viku síðar og í kjölfarið
kemur leikur gegn Stuttgart í
Meistaradeild Evrópu. „Það er
mikið álag á okkur á næstunni.“
Síðast þegar liðin mættust – í
deildarleik á Highbury í október,
fagnaði Arsenal sigri. Chelsea hef-
ur aldrei náð að knýja fram sigur í
bikarkeppninni á Highbury og liðið
fagnaði síðast deildarleik á vellin-
um 1990.
Ranieri líkir
Henry við Ali
ÞAÐ má með sanni segja að stórviðureign 16 liða úrslita í ensku
bikarkeppninni um helgina fari fram á morgun á Highbury í Isl-
ington-hverfinu í Norður-London. Bikarmeistarar Arsenal síðustu
tvö ár taka þá á móti milljónaliði Chelsea. Arsenal hefur gengið vel
undir stjórn franska knattspyrnustjórans Arsene Wenger og þær
fréttir bárust í gær úr herbúðum Arsenal, sem hefur unnið tvo Eng-
landsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla undir hans stjórn, að
forráðamenn liðsins vilja gera ævisamning við Wenger, sem á eftir
18 mánuði af samningi sínum við Arsenal.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Þór Þ. - Tindastóll 110:85
Íþróttamiðstöðin Þorlákshöfn, úrvalsdeild
karla, Intersport-deildin, föstudaginn 13.
febrúar 2004.
Gangur leiksins: 0:2, 6:2, 12:6, 21:9, 28:14,
36:25, 43:29, 53:32, 55:34, 59:38, 68:43,
83:47, 90:58, 94:73, 100:82, 110:85.
Stig Þórs: Nate Brown 29, Robert Dean
Hodgson 29, Leon Brisport 22, Grétar Ingi
Erlendsson 14, Finnur Andrésson 9, Ágúst
Örn Grétarsson 5, Sigurbjörn Þórðarson 2.
Fráköst: 30 í vörn - 9 í sókn.
Stig Tindastóls: Svavar Birgisson 17, Nick
Boyd 16, Clifton Cook 14, Helgi Rafn
Viggósson 10, Friðrik Hreinsson 9, David
Sanders 7, Kristinn Friðriksson 5, Matt-
hías Rúnarsson 3.
Fráköst: 19 í vörn - 14 í sókn.
Villur: Þór 17 - Tindastóll 24.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson.
Áhorfendur: Um 100.
Staðan:
Snæfell 17 14 3 1451:1364 28
Grindavík 17 14 3 1528:1440 28
Keflavík 16 11 5 1566:1375 22
Njarðvík 17 11 6 1567:1462 22
KR 17 10 7 1576:1509 20
Haukar 17 10 7 1378:1350 20
Hamar 17 9 8 1423:1440 18
Tindastóll 17 8 9 1571:1525 16
ÍR 17 5 12 1469:1560 10
KFÍ 16 3 13 1467:1658 6
Breiðablik 17 3 14 1377:1500 6
Þór Þorl. 17 3 14 1416:1606 6
1. deild karla
Þór A. - Stjarnan .................................. 90:78
Skallagrímur - ÍS.................................. 81:47
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Chicago - Boston .................................107:87
Seattle - Toronto ...................................94:74
Denver - Portland ...............................107:98
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla
Selfoss - Afturelding ........................... 26:23
Mörk Selfoss: Haraldur Þorvarðarson 6,
Arnar Gunnarsson 4, Ramunas Kalenda-
uska 4, Hörður Bjarnason 3, Ívar Grétars-
son 3, Ramunas Mikalonis 3, Guðmundur
Eggertsson 1, Hjörtur Leví Pétursson 1,
Guðmundur Ingi Guðmundsson 1.
Mörk Aftureldingar: Daníel Berg Grétars-
son 6, Ernir Hrafn Arnarson 5, Hrafn
Ingvarsson 3, Hilmar Stefánsson 3, Níels
Reynisson 2, Ásgeir Jónsson 2, Reynir
Árnason 2.
Staðan:
Selfoss 3 3 0 0 96:89 6
Víkingur 2 1 0 1 60:52 2
Þór 1 1 0 0 33:25 2
FH 2 1 0 1 65:64 2
ÍBV 0 0 0 0 0:0 0
Breiðablik 1 0 0 1 32:35 0
Afturelding 3 0 0 3 69:90 0
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót kvenna
Breiðablik - Valur.................................... 3:6
Hildur Einarsdóttir, Melkorka Helgadótt-
ir, Silja Þórðardóttir - Nína Ósk Kristins-
dóttir 4, Dóra Stefánsdóttir, Málfríður Sig-
urðardóttir.
Staðan:
KR 2 2 0 0 10:4 6
Valur 2 1 0 1 10:8 3
Breiðablik 2 1 0 1 8:10 3
ÍBV 2 0 0 2 4:10 0
Belgía
Genk - Standard Liege ............................ 1:1
Staða efstu liða:
Anderlecht 21 18 2 1 55:18 56
Standard 22 12 7 3 41:20 43
Moeskroen 21 10 9 2 44:27 39
Club Brugge 21 11 4 6 45:23 37
Genk 22 10 6 6 42:30 36
Afríkukeppnin
Úrslitaleikur um 3. sætið:
Nígería - Malí ........................................... 2:1
Jay-Jay Okocha 16., Osaze Odemwingie 46.
- Janvier Aboute 69.
SELFYSSINGAR unnu í gær-
kvöld þriðja sigur sinn í jafn-
mörgum leikjum í 1. deild karla
í handknattleik þegar þeir
lögðu Aftureldingu að velli,
26:23, á heimavelli sínum. Eftir
jafnan fyrri hálfleik voru Sel-
fyssingar yfir í hléi, 10:9, en þeir
náðu góðri forystu eftir það og
létu hana ekki af hendi.
Góð byrjun Selfyssinga í
deildinni kemur talsvert á óvart
en þeir töpuðu 13 af 14 leikjum
sínum í riðlakeppni Íslands-
mótsins fyrir áramótin. Þeir
hafa meðal annars sigrað FH á
útivelli en fyrirfram var reiknað
með því að FH og Víkingur yrðu
í efstu sætum 1. deildarinnar.
Enn sigrar
Selfoss
ÓLAFUR Ingi Skúlason, knatt-
spyrnumaður hjá Arsenal, hefur ekki
áhuga á að fara til reynslu hjá hol-
lenska úrvalsdeildarfélaginu Gron-
ingen. „Þessi möguleiki kom upp fyrir
nokkrum dögum en ég er lítið spennt-
ur fyrir því. Ég hef heldur ekki viljað
fara frá Arsenal sem lánsmaður til
annars ensks liðs, eins og ég hefði get-
að en það hafa verið nokkrar þreif-
ingar í þá átt að undanförnu. Samn-
ingur minn er að renna út í vor og ég
tel skynsamlegast að vera um kyrrt hjá
Arsenal næstu vikurnar og sjá til hvað
gerist. Ég hef ekki fengið nýtt samn-
ingstilboð frá félaginu en bíð þolin-
móður og sé hvað gerist á næstu dög-
um og vikum,“ sagði Ólafur Ingi við
Morgunblaðið í gær.
Ólafur ekki til
Groningen