Morgunblaðið - 14.02.2004, Side 60

Morgunblaðið - 14.02.2004, Side 60
ÍÞRÓTTIR 60 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Firma- og hópakeppni FRAM verður haldin dagana 28. og 29. febrúar í Framhöllinni við Safamýri Stórglæsilegir vinningar 1. Verðlaun Ferð fyrir 6 með Icelandair til áfangastaðar í Evrópu 2. Verðlaun Errea íþróttafatnaður og 6 ársmiðar á heimaleiki Fram sumarið 2004 3. Verðlaun 6 ársmiðar á heimaleiki Fram sumarið 2004 Fyrirkomulag Lengd leikja er 10 mín., 4 leikmenn inná og leikið á handboltamörk. Fimm lið eru í hverjum hverjum riðli og fer efsta liðið í 4 liða úrslit. Leikmenn í úrvalsdeild og 1. deild ekki gjaldgengir. Skráning Með tölvupósti til brynjar@fram.is eða í síma 5335600 Mótsgjald er kr. 20.000 Lýsingar í borðtennis TBR Íþróttahúsinu í dag 14. febrúar 2004 Dagskrá: Íslandsmeistari og Grand Prix meistari Guðmundur E. Stephensen Laugardagur 14. feb. Eldri flokkur karla kl. 11:00 Opinn flokkur karla kl. 13:00. Úrslit kl. 15:30 Opinn flokkur kvenna kl. 14:00. Úrslit kl. 15:30. Áhugamenn um borðtennis fjölmennið Áfram Víkingur FÓLK  WAYNE Rooney, framherjinn ungi hjá Everton, hefur verið kærð- ur af konu í Manchester sem heldur því fram að hann hafi hrækt í auga hennar á næturklúbbi í Manchester á aðfaranótt síðasta sunnudags þar sem hann var að skemmta sér með félögum sínum í Everton-liðinu eft- ir að þeir töpuðu fyrir heimamönn- um fyrr um daginn. Rooney segir ekkert hæft í ásökunum konunnar sem aftur á móti situr fast við sinn keip.  FULHAM gæti átt von á hárri sekt eftir að bjórflösku var kastað úr áhorfendastúku heimavallar liðs- ins í átt að Paul Melin aðstoð- ardómara, í viðureign Fulham og Aston Villa á miðvikudagskvöldið. Atvikið er litið mjög alvarlegum augum, ekki síst þar sem um gler- flösku var að ræða.  GLENN Hoddle er ekki baki dottinn við að sækjast eftir knatt- spyrnustjórastarfinu hjá South- ampton. Í gær sagðist hann í viðtali við enska fjölmiðla aðeins vilja fé- laginu hið besta og því væri hann rétti maðurinn til að taka við starfi Gordons Strachans sem sagði starfi sínu lausu í gær og hætti þremur mánuðum fyrr en gert var ráð fyrir.  LEEDS fékk í gær tveggja vikna frest til viðbótar til þess að leita leiða til að komast hjá gjaldþroti.  CHRIS Kirkland, markvörður Liverpool, meiddist í baki í vara- liðsleik með félaginu gegn Aston Villa í fyrrakvöld og gæti það gert að verkum að hann leiki ekki á næstunni. Óheppnin heldur því áfram að elta þennan efnilega og snjalla markvörð. Krikland hefur nýlega jafnað sig eftir að hafa fing- urbrotnað í kappleik á öðrum degi jóla. Hann var einnig talsvert frá keppni á síðustu leiktíð vegna meiðsla.  DAVID James, markvörður enska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður Manchester City, vann jafnvirði nærri 12 milljóna króna á dögunum þegar hann veðjaði rétt á úrslitin í úrslitaleik ameríska fót- boltans. James hefur gefið alla upp- hæðina til félags langveikra barna í Englandi. SÝSLUMAÐURINN í Modum í Noregi, Halvor Hartz, segir að jafnréttislög landsins séu brotinn þar sem konum er meinað að taka þátt í Vikersund-skíða- stökkskeppninni sem fram fer í mars. Mótið fer fram á stökkpalli sem er 90 metrar og sam- kvæmt reglum Alþjóða skíðasambandsins, FIS, mega konur ekki taka þátt í keppni á slíkum pöllum, þær mega aðeins keppa á mótum sem fram fara á 70 metra palli. Skipuleggjendur mótsins í Vikersund hafa sagt að konurnar megi taka þátt í forkeppni fyrr um dag- inn, en fái ekki tækifæri í aðalkeppninni. Margar konur stunda skíðastökk af miklum krafti í Noregi og víðar, en þær fá hins vegar ekki að taka þátt í öllum þeim mótum sem fram fara í Noregi af ýmsum ástæðum. Norskir sérfræðingar telja hins vegar að það sem standi í mönnum sé sú staðreynd að líklega myndu konurnar stökkva lengra en karlarnir eftir nokkur misseri þar sem þær eru mun léttari og hafa því meiri möguleika á að svífa lengur eftir stökkið. Konum meinað að stökkva á skíðum Skíðastökkkeppni við Innsbruck. TVEIR drengjalandsliðsmenn í knattspyrnu, Gunnar Krist- jánsson, 16 ára KR-ingur, og Bjarni Þór Viðarsson, 15 ára FH- ingur, fara á morgun til Englands. Þeir verða þar til reynslu hjá 1. deildarliðinu Reading í eina viku, en með því leikur íslenski landsliðsmaðurinn Ívar Ingimarsson. Þar með verða sex leikmenn drengjalandsliðsins á ferðinni er- lendis á næstu dögum. Eins og áður hefur komið fram fara Bjarki Már Sigvaldason úr HK og Heiðar Geir Júlíusson úr Fram í annað skipti til Brann í Noregi næsta miðvikudag og Grímur Björn Grímsson úr KR fer til Bröndby í Danmörku á morgun og verður þar í viku. Þá fer Rúrik Gíslason úr HK alfarinn til Belgíu í dag en hann hefur samið við Anderlecht til fjögurra ára. „Það er geysilega sterkur hópur sem nú skipar drengjalands- liðið og það þarf ekki að koma á óvart að erlend félög vilji fá þessa stráka í sínar raðir,“ sagði Ólafur Garðarsson, umboðs- maður, sem hefur haft hönd í bagga með utanferðum flestra drengjanna. Drengjalandsliðið er komið í milliriðil Evrópukeppn- innar sem verður leikinn í Englandi í lok mars en þar mætir það Englandi, Noregi og Armeníu. Gunnar og Bjarni til reynslu hjá Reading ALLA atvinnukylfinga dreymir um að leika 18 holur á undir 60 höggum og í síðustu viku lék Ernie Els á 60 höggum og var hársbreidd frá því að ná því að leika á 59 höggum. Els lék fyrsta hringinn á Heineken- mótinu í Ástralíu á 12 höggum undir pari. Sá árangur er í raun einstakur því á síðasta ári náði aðeins einn kylfingur að leika á 12 höggum und- ir pari, en það var Svíinn Fredrik Ja- cobson sem náði því á Þýska meist- aramótinu. Aðrir sem hafa náð því að leika á 12 undir pari og jafnframt á 60 höggum á Evrópsku mótaröðinni eru: N-Írinn Darren Clarke (1999), Þjóðverjinn Bernhard Langer (1997) og Bretinn Jamie Spence (1992). Það segir aðeins hálfa söguna ef miðað er við höggin sem notuð eru, þar sem par vallar er mismunandi. Ítalinn Baldovino Dassu lék á 60 höggum á Sviss Open árið 1971, eða á 11 höggum undir pari. Bandaríkjamennirnir Al Geiber- ger, Chip Beck og David Duval eru þeir einu sem hafa náð að leika hring á 59 höggum en í þeim hópi er einnig hin sænska Annika Sörens- tam sem lék á 59 höggum árið 2001 á mótaröð atvinnukvenna í Banda- ríkjunum. LPGA. En metið á einum hring er í eigu Japanans Shigeki Maruyama sem lék á 13 höggum undir pari á fyrsta keppnisdegi Woodmont CC í Rock- ville, og notaði hann þá aðeins 58 högg til þess að leika völlinn sem er par 73. Maruyama á enn metið Nú hafa samtök kvenna bent áþann möguleika að hin 14 ára gamla Michelle Wie verði á meðal keppenda á Mastersmótinu á Aug- usta árið 2005. Wie er talin vera ein sú efnilegasta sem leikið hefur golf á undanförnum misserum og hefur hún sett markið á að leika á meist- aramóti bandarískra áhugamanna, APL, í sumar og nái hún að sigra á því móti öðlast hún keppnisrétt á Mastersmótinu árið 2005 Ed Money, sem sér um að skipu- leggja bandaríska áhugamanna- meistaramótið, segir við bandaríska íþróttatímaritið Sports Illustrated, að hann vonist til þess að Wie verði í fremstu röð á mótinu og tryggi sér jafnvel sigur. „Wie var nálægt því að komast í gegnum niður- skurðinn á Sony PGA-mótinu á Hawaii á dögunum. Og það segir mér aðeins eitt, hún getur keppt við karlana.“ Í kjölfarið á þeirri athygli sem Wie fékk á Hawaii hafa skipuleggj- endur sjö PGA-móta óskað eftir því að hún taki þátt í þeirra mótum. Aðeins eitt hvetur þá áfram í þeirri viðleitni en það er að markaðssetja mótið, fá aukna umfjöllun og sjón- varpsáhorf í kjölfarið. Bandaríska meistaramótið hjá áhugamönnnum fer fram í Minneapolis 12.–17. júlí. Reuters Hin fjórtán ára Michelle Wie sveiflar hér kylfunni. á móti í Honolulu. Það getur farið svo að hún verði fyrsta kon- an síðan 1945 sem verður keppandi á PGA-mótaröð- inni, sem er að hefjast. Michelle Wie á Masters árið 2005? UNDANFARIN misseri hafa forráðamenn golfklúbbsins á Augusta- vellinum í Bandaríkjunum staðið í ströngu við að svara fyrir sig vegna mótmæla samtaka kvenna víðsvegar um heiminn. Engar konur eru meðlimir Augusta-klúbbsins og engar konur fá að leika á vellinum sem hýsir eitt af stórmótunum fjórum sem fram fara á hverju ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.