Morgunblaðið - 14.02.2004, Qupperneq 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 25
SÝNING á verkum 114 barna á leik-
skólanum Iðavöllum hefur verið opn-
uð í útibúi Landsbankans á Ak-
ureyri. Alls sýna þau 140 myndverk í
afgreiðslusal bankans að Strandgötu
1, en þar er einnig hægt að horfa á
myndband frá vinnu barnanna að
verkefninu.
Á síðustu tveimur árum hefur
Landsbankinn á Akureyri staðið fyr-
ir myndlistarsýningum í af-
greiðslusal sínum, m.a. útskrift-
arsýningum nema við
Myndlistarskóla Arnar Inga og sýn-
ingar nemenda Myndlistarskólans á
Akureyri. Þá hafa verið haldnar þar
nokkrar einkasýningar auk þess sem
sýning var á Kjarvalsverkum í eigu
bankans í fyrrasumar. Nú er það
hins vegar yngsta kynslóðin sem fær
að láta ljós sitt skína. Landsbankinn
og nokkrir leikskólar á stöðum þar
sem bankinn er með útibú á Norður-
landi tóku höndum saman og verða
myndverkin sem út úr þeirri sam-
vinnu komu til sýnis í útibúum bank-
ans fram í marsmánuð.
Morgunblaðið/Kristján
Börnin á Iðavöllum eru stolt af
verkum sínum á sýningunni í
Landsbankanum og foreldrar
þeirra ekki síður.
Börn af Iðavöllum sýna
myndverk í Landsbankanum
OPIÐ hús verður hjá Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri á morgun,
sunnudaginn 15. febrúar, frá kl. 14
til 16 og á Kristnesi frá kl. 15 til 17.
Tilefnið er að 130 ár eru liðin frá
upphafi sjúkrahússrekstrar á Ak-
ureyri og 50 ár frá því elsti hluti nú-
verandi sjúkrahúss á Eyrarlands-
holti var tekinn í notkun.
Á flestum deildum verða kynn-
ingar og fræðsla um starfsemina og
einnig verða kynnt ýmis lækn-
ingatæki. Neyðarmóttaka slysa-
deildar verður kynnt, sem og að-
standendafélag vistmanna á Seli. Í
tilefni af 30 ára afmæli barnadeild-
ar verða sett upp veggspjöld og
ljósmyndir sýndar og þá verður al-
menn kynning á starfsemi á Krist-
nesi. Gestum verður boðið upp á
mælingu á blóðþrýstingi, súrefn-
ismettun í blóði og kólester-
ólmælingu á 2. hæð á FSA. Veit-
ingar verða í boði í kennslustofu
FSA.
Opið hús á FSA
Tryggði sér titilinn | Halldór B.
Halldórsson tryggði sér Akureyr-
artitilinn í skák á fimmtudagskvöld
með dramatískum sigri yfir Skúla
Torfasyni eftir að hafa staðið höllum
fæti lengst af. Halldór hefur því unn-
ið allar 6 skákir sínar í mótinu og
mun þetta vera 20. kappskákin í röð
sem hann vinnur á Akureyri! Hall-
dór hefur 1½ vinnings forskot á
Smára Ólafsson sem hefur 4½ vinn-
ing eftir jafntefli við Þór Valtýsson.
Þór er svo þriðji með 4 vinninga.
Aglow-fundur | Aglow-samtökin
verða með fund í félagsmiðstöðinn
Víðilundi 22 á mánudagskvöld, 16.
febrúar, kl. 20. Sr. Hildur Helga
Sigurðardóttir flytur hugleiðingu.
Söngur og bæn eru einnig á dag-
skránni og þá er kaffihlaðborð.
Þrjú innbrot | Þrjú innbrot eða til-
raun til innbrots eru til rannsóknar
hjá rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri, en þau voru öll framin í
vikunni. Tilkynnt var um að brotist
hefði verið inn í Oddeyrarskóla í
byrjun vikunnar. Þar hafði verið
brotist inn um glugga og brotnir upp
læstir skápar, m.a. hjá skólahjúkr-
unarfræðingi en ekki vitað til að
neitt hafi hafst upp úr krafsinu.
Aðfaranótt miðvikudags var gerð
tilraun til að brjótast inn í verslunina
Blómaval. Þar stökkti þjófavarn-
arkerfi innbrotsþjófnum á flótta og
hefur hann ekki fundist.
Á fimmtudagsmorgun var svo til-
kynnt um innbrot í Glerárskóla. Þar
höfðu verið unnin skemmdarverk og
stolið peningum og myndavél og
hugsanlega eitthvað af lyfjum.
Eru þessi innbrot óupplýst og all-
ar upplýsingar sem stuðlað gætu að
uppljóstrun þeirra vel þegnar segir í
yfirliti yfir helstu verkefni lögregl-
unnar á Akureyri.
Ekið á hross | Átta umferð-
aróhöpp urðu í vikunni og minni-
háttar meiðsli í tveimur þeirra. Á
mánudag var ekið á hross á Ólafs-
fjarðarvegi. Var verið að fara með
hrossarekstur norður þjóðveginn.
Ökumaður sem kom á móti varð
þess ekki áskynja fyrr en of seint
og lenti á einu hrossinu. Bifreiðin
skemmdist mikið og aflífa varð
hrossið að því er fram kemur í yf-
irliti yfir helstu verkefni lögregl-
unnar á Akureyri. Þar er þess
einnig getið að tuttugu ökumenn
voru kærðir fyrir að vera ekki
með öryggisbelti, einn fyrir ölvun
við akstur og nokkrir fyrir að tala
í farsíma auk annarra umferð-
arlagabrota.
Frjálsíþróttaaðstaða | Á fundi
íþrótta- og tómstundaráðs Ak-
ureyrar var lögð fram umsögn
Íþróttabandalags Akureyrar, ÍBA,
um erindi Íþróttafélagsins Þórs
varðandi uppbyggingu frjáls-
íþróttaaðstöðu.
ÍTA bendir á í bókun sinni að
óskin um umsögn sem send var ÍBA
á haustdögum 2003 fól ekki í sér
forgangsröðun á uppbyggingu
íþróttamannvirkja heldur eingöngu
álit bandalagsins á framtíð-
arstaðsetningu frjálsíþróttaaðstöðu
og stúkubyggingar.
Því óskar ÍTA eftir því við banda-
lagið að það taki málið til nánari
skoðunar og sendi svar sitt til ÍTA
sem fyrst.
Nemendur í Naustahverfi | Fyr-
ir síðasta fundi skólanefndar lá til-
laga um skólasókn nemenda í
Naustahverfi, ásamt upplýsingum
um dreifingu nemenda eftir skóla-
hverfum, sem byrja í 1. bekk næsta
skólaár. Skólanefnd samþykkti að
börn í Naustahverfi sem eru á skóla-
aldri sæki Brekkuskóla þar til nýr
grunnskóli rís í hverfinu. Þó verður
þeim nemendum sem nú þegar eru í
öðrum grunnskólum í bænum heim-
ilt að vera þar áfram óski foreldrar
eftir því. Til þess að Brekkuskóli
geti sinnt þessum nemendum er ósk-
að eftir því að skólinn hafi aðgang að
hluta Barnaskólahússins áfram ef
nauðsyn krefur eða þar til nýr skóli
rís í Naustahverfi.
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
35
68
0
2/
20
04
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
35
68
0
2/
20
04
Aðalfundur Landsbanka Íslands hf.
www.landsbanki.is
sími 560 6000
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á síðastliðnu reikningsári.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum.
5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa allt að 7% af eigin hlutabréfum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar
með skriflegum hætti eigi síðar en átta dögum fyrir aðalfund.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins fjalla meðal annars um aðlögun sam-
þykkta að lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og varða verkaskiptingu bankaráðs
og bankastjórnar. Þá er lagt til að heimild bankaráðs til aukningar hlutafjár verði aukin.
Einnig er gert ráð fyrir að tilkynna þurfi um framboð til bankaráðs með fimm daga
fyrirvara. Er hluthöfum bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda
munu liggja frammi í aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík,
hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Einnig verður hægt að nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upphaf fundarins.
Bankaráð Landsbanka Íslands hf.
Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn í Súlnasal
Radisson SAS Hótel Sögu, í dag kl. 14.00.