Morgunblaðið - 14.02.2004, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 11
BÚAST má við því að hugmyndir um
sumarhúsabyggð á jörðinni Skála-
brekku í Þingvallasveit og lega Gjá-
bakkavegar verði meðal þess sem
rætt verði um á opnum fundi á Þing-
völlum í dag, laugardag, sem sveit-
arstjórn Bláskógabyggðar hefur boð-
að til í tengslum við gerð
aðalskipulags Þingvallasveitar. Þing-
vallasveit er eini hluti Bláskóga-
byggðar sem enn er utan staðfests
aðalskipulags. Vonir standa til að
skipulagið verði staðfest í haust en
engin tillaga að skipulaginu liggur
enn fyrir.
Aðalskipulagshönnuðir munu
kynna vinnu sína á fundinum, for-
sendur skipulagsins og álitamál
verða rædd. „Við viljum fá umræður
um þetta,“ segir Arinbjörn Vil-
hjálmsson, skipulagsfulltrúi upp-
sveita Árnessýslu. „Megintilgangur
fundarins er að fá umræður um
stefnumörkun, samræmingu ólíkra
sjónarmiða. Einnig verður fjallað um
landnotkun í Þingvallasveit og
fleira.“
Ekki gert ráð fyrir frekari
sumarhúsabyggð
Ekki er gert ráð fyrir frekari sum-
arbústaðabyggð í Þingvallasveit
samkvæmt gildandi svæðisskipulagi,
en hugmyndir eru uppi um að á jörð-
inni Skálabrekku verði bætt við um
20 sumarbústaðalóðum sunnan þjóð-
vegar en norðan hans komi átján
holu golfvöllur ásamt ýmiskonar
annarri þjónustu og afþreyingu. Rík-
inu stóð til boða að kaupa jörðina á
sínum tíma en niðurstaðan varð sú að
einkaaðilar keyptu jörðina. Sveit-
arstjórn hefur ekki tekið neina
ákvörðun ennþá um hvort sum-
arbústaðabyggðin verði heimiluð en
að sögn Guðmundar Hólmsteins-
sonar, eins af fjórum eigendum helm-
ings jarðar Skálabrekku verður gætt
ýtrustu varúðar hvað varðar frá-
rennsli og önnur umhverfismál, verði
hugmyndirnar að veruleika. „Við
munum stíga varlega til jarðar því
við vitum hvaða þýðingu þessi staður
hefur í huga fólks,“ segir Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið.
Íslenskir aðalverktakar munu sjá um
allar framkvæmdir á jörðinni ef af
þeim verður að sögn Guðmundar.
Lóðirnar verða stórar eða um 0,7-1,1
hektari á stærð ásamt stórri sameign
við Þingvallavatn, en ekki verður
byggt nær vatninu en 100 metra.
„Við erum með hugmyndir að frek-
ari þjónustu við ferðamenn en um 30
þúsund bílar keyra þarna um ár-
lega,“ segir Guðmundur en þær hug-
myndir eru enn skammt á veg komn-
ar.
Á fundinum í dag verða hugmynd-
irnar kynntar fyrir almenningi í
fyrsta sinn.
Hvar mun
Gjábakkavegur liggja?
Þrjár útfærslur hafa verið kynntar
af Gjábakkavegi, sem liggur yfir
Lyngdalsheiði. Vegurinn mun stytta
leiðina milli Reykjavíkur og Laug-
arvatns, og þar af leiðandi til Gullfoss
og Geysis um u.þ.b. 20 kílómetra. Þá
yrði um heilsársveg að ræða en hing-
að til hefur vegurinn yfir Lyngdals-
heiði verið ófær yfir vetrartímann.
Þingvallanefnd þarf að gefa sam-
þykki sitt fyrir því að vegurinn verði
lagður í gegnum jörðina Gjábakka
og verður fundað um það í nefndinni
á næstu dögum. Gjábakkajörðin er í
eigu og umsjá þjóðgarðsins og sam-
kvæmt lögum um þjóðgarðinn frá
1928 þarf samþykki Þingvallanefnd-
ar um framkvæmdir á jörðinni, þrátt
fyrir að hún sé ekki innan friðlands-
ins. „Það er alfarið háð samþykki
Þingvallanefndar að farið sé [með
veginn] í gegnum Gjábakkalandið.
Því samkvæmt lögunum má ekki
leggja vegi á því svæði,“ segir Sig-
urður Oddsson, framkvæmdastjóri
Þingvallanefndar og þjóðgarðsvörð-
ur, „en það verður gert út um það á
næstu dögum“.
Verði ekki gefin heimild til að fara
með veginn í gegnum Gjábakka-
landið lengist leiðin til Laugarvatns
um fjóra kílómetra.
Opinn fundur á Þingvöllum í dag um aðalskipulagshugmyndir
Hugmyndir eru um stærri
sumarhúsabyggð í Skálabrekku
Þingvallanefnd fjallar um nýtt vegarstæði Gjábakkavegar á næstu dögum
VACLAV Klaus, forseti Tékklands, og
Gary Becker, verðlaunahafi í hagfræði,
munu báðir flytja erindi á ráðstefnu Mont
Pelerin-samtakanna á Íslandi 21.–24. ágúst
á næsta ári. Þeir munu taka þátt í um-
ræðum um frelsi í smáum ríkjum ásamt
Davíð Oddssyni forsætisráðherra, en þar
mun Becker meðal annars kynna þá nið-
urstöðu sína að litlar þjóðir séu jafnan auð-
ugri en stórar þjóðir, meðal annars vegna
þess að hagkerfi þeirra séu oftast opin og
þær treysti á frjáls alþjóðaviðskipti. Ruth
Richardson, fyrrverandi fjármálaráðherra
Nýja-Sjálands, mun skýra umræðurnar
fyrir gestum.
Ráðstefnan verður haldin undir yfir-
skriftinni „Frelsi og eignarréttur á 21. öld“
og munu umfjöllunarefni fyrirlesara verða
eignaréttur meðal annars á sviði fiskveiða,
fjölmiðla og stofnanahagfræði.
Aðalskipuleggjandi ráðstefnunnar er
Hannes H. Gissurarson.
Fjallað um
frelsi á Mont
Pelerin-ráð-
stefnu
TILRAUNUM til sjálfsvígs fækkaði um 25%
á tveggja ára tímabili í Nürnberg í Þýskalandi
þar sem forvarnarstarf gegn þunglyndi og
sjálfsvígum var þróað, sem að stofni til er not-
að hér á landi í verkefninu „Þjóð gegn þung-
lyndi“ sem hleypt var af stokkunum síðasta
vor.
Dr. Ulrich Hegerl, prófessor við læknadeild
Ludwig Maximilian háskólans í Munchen, sem
þróaði þetta forvarnarstarf, er meðal þeirra
sem heldur erindi á ráðstefnu á vegum verk-
efnisins og Landlæknisembættisins í dag.
Átakið hófst árið 2000 í Nürnberg þar sem
um 500.000 manns búa. Safnað var upplýs-
ingum um sjálfsvíg og tíðni sjálfsvígstilrauna í
borginni og síðan unnið markvisst að því að
finna einstaklinga sem þjáðust af þunglyndi og
koma þeim til hjálpar.
Unnið á fjórum sviðum
Dr. Hegerl segir forvarnarstarfið miðast við
aðgerðir á fjórum stigum. „Fyrsta skrefið var
að fræða heimilislækna um þunglyndi, því
flestir þunglyndissjúklingar eru meðhöndlaðir
af heimilislæknum. Við bjuggum til fræðslu-
efni, t.d. myndband sem heimilislæknar gátu
afhent fólki sem þjáðist af þunglyndi, þar sem
mátti finna upplýsingar um sjúkdóminn og
meðhöndlun hans,“ segir hann.
Dr. Hegerl bætir við að leitað sé með skipu-
lögðum hætti að mörgum hættulegum sjúk-
dómum, en ekki að þung-
lyndi, sem þó sé mjög
alvarlegur sjúkdómur. „Í
Þýskalandi eru 11 þúsund
sjálfsmorð framin á ári
hverju og um 100.000 sjálfs-
vígstilraunir gerðar. Yfir-
leitt má rekja ástæðuna til
geðrænna kvilla, aðallega
þunglyndis. Þetta er þó að-
eins toppurinn á ísjakanum
því flestir sem eru þunglyndir reyna ekki
sjálfsvíg. Ég tel að milli 2–5% þjóðarinnar þjá-
ist af þunglyndi,“ segir dr. Hegerl.
Athygli vakin á vandamálinu
Einnig var blásið til upplýsingaherferðar
með veggspjöldum, kvikmyndum og ýmsum
atburðum eins og „skokki gegn þunglyndi“,
ljósmyndasamkeppni og öðru í þeim dúr til að
vekja athygli á vandamálinu og að þunglynd-
um stæði ýmis hjálp til boða.
Þá voru kennarar, prestar og aðrir sem
skipta höfuðmáli í að finna einstaklinga sem
gætu þjáðst af þunglyndi og aðstoða þá til að
leita sér hjálpar, fræddir um þunglyndi.
Sömuleiðis var haft samband við fjölmiðla.
„Fjölmiðlar bera mikla ábyrgð vegna þess að
umfjöllun um sjálfsvíg getur haft þau áhrif að
aðrir einstaklingar ákveða að fremja sjálfs-
morð. Við gáfum fjölmiðlum í Nürnberg tíu
punkta þar sem við mæltum með því að fjallað
væri um sjálfsvíg út frá læknisfræðilegu tilliti,
en að einstaklingar sem hafa framið sjálfsvíg
væru ekki baðaðir hetjuljóma,“ segir hann.
Í fjórða lagi var fólki sem hafði áður gert
tilraun til sjálfsvígs afhent neyðarkort með
símanúmeri sem einstaklingar sem líður illa
geta hringt í allan sólarhringinn. Eins var
stutt við bakið á sjálfshjálparstofnunum og að-
ilum sem berjast gegn sjálfsvígum í Nürn-
berg.
Þetta var gert í tvö ár og að þeim tíma liðn-
um voru tölur um sjálfsvígstilraunir bornar
saman við tímabilið áður en átakið hófst og
eins var Nürnberg borinn saman við bæ þar
sem ekkert hafði verið aðhafst gegn sjálfs-
vígum. „Sjálfsvígstilraunum hafði fækkað um
25% á þessum tveimur árum. Á samanburð-
arsvæðinu hafði ekki orðið nein breyting í
þessa átt, þar hafði sjálfsvígstilraunum reynd-
ar frekar fjölgað.“
Nú er unnið eftir fyrirmynd dr. Hegerls á
40 svæðum í Þýskalandi og eins hefur átaki
verið hrundið af stað á Íslandi og á ákveðnu
svæði í Sviss. Í síðasta mánuði ákvað fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins að styðja
verkefni sem verður hrundið af stað í 16 Evr-
ópulöndum, þar sem þunglyndi og sjálfsvígum
verður sagt stríð á hendur. Ráðstefnan, sem
verður í Hringsal Barnaspítala Hringsins og
stendur frá 10 til 12.30 í dag, er öllum opin.
Ráðstefna Landlæknisembættisins og „Þjóðar gegn þunglyndi“
Sjálfsvígstilraunum fækkaði
Dr. Ulrich Hegerl
LÁRUS Berg hjá Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni afhenti Leifi
Sveinssyni á dögunum kassa af
dökkum Guinness-bjór en 46 ár-
um áður hafði Leifur beðið for-
stjóra Guinness um kassa af
bjórnum svo hann gæti fullvissað
sig um að Guinness bæri af Carls-
berg-bjór. Lárus sagði skemmti-
legt að geta uppfyllt þessa ósk
Leifs þó að nokkuð væri liðið frá
því hún hefði verið sett fram.
Leifur ritaði grein um þessa
sérkennilegu sögu í síðasta
sunnudagsblaði Morgunblaðsins:
„Nú er það sumarið 1958, að
snúningastrákur, sem hjá okkur
var, finnur flöskuskeyti á Álfta-
nesfjörum og inni í flöskunni var
bæklingur frá ölgerðinni Guinn-
ess. Í bæklingi þeirra var hið
fræga slagorð: „Guinness is good
for you.“ Ég sendi ölgerðinni
nafn og heimilisfang finnandans
á meðfylgjandi eyðublaði og fékk
hann silfurskeið senda til baka,
svo sem lofað var í skeytinu. Höf-
uðstöðvar Guinness minnir mig,
að þá hafi verið í Liverpool.
Þangað vélrita ég bréf í A-4
stærð og segist ekki geta tekið
undir slagorð þeirra „Guinness is
good for you“, því fram til þessa
hafi mér alltaf þótt Carlsberg
betri.“
Forstjóri Guinness sendi Leifi
bréf um hæl og benti honum á að
hann hefði misskilið eðli öls, Gu-
inness væri „stout“, en Carlsberg
framleiddi aðeins „lager“. Stout
væri dökkur bjór en lager ljós.
„Ég bauð þeim að senda mér
einn kassa (24 flöskur) af Guin-
ness,“ skrifaði Leifur þá til for-
stjórans, „til að fullvissa mig um,
að þrátt fyrir allt bæri Guinness
af Carlsberg. En í svari forstjór-
ans kom í ljós sú furðulega stað-
reynd, að Ísland var þá eina land
í heiminum, þar sem lög leyfðu
ekki innflutning á bjór. Forstjór-
inn harmaði mjög þetta bann, en
sendi mér í staðinn metabók Gu-
inness.“
Fékk loksins bjórkassann
frá Guinness eftir 46 ára bið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leifur Sveinsson með kassann góða, Lárus Berg hjá Ölgerðinni og
Hilmar Einarsson en honum gaf Leifur bjórinn.
♦♦♦
NEFND hefur verið skipuð til að fara sér-
staklega yfir málefni Arnarholts og endur-
hæfingardeilar Landspítalans í Kópavogi.
Ákveðið var að loka endurhæfingardeildinni
vegna sparnaðaraðgerða á spítalanum.
Í nefndinni eiga m.a. fulltrúar frá félags-
mála- og heilbrigðisráðuneyti auk Landspít-
alans. Fyrsti fundur nefndarinnar var í
fyrradag og segir Anna Stefánsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri LSH, sem á sæti í nefndinni að
áfram verði fundað næstu daga.
Nefndin mun reyna að finna lausn á því
hvernig ákvörðun framkvæmdastjórnarinn-
ar, um að loka þessum stofnunum, verði
framkvæmd, en með tilliti til tilmæla stjórn-
arnefndar sjúkrahússins til stjórnar spítal-
ans að leitast verði við að tryggja áfram
rekstur endurhæfingardeildar fjölfatlaðra í
Kópavogi.
Lokun deildarinnar var eitt af niður-
skurðaráformum stjórnenda LSH og var
fyrirhugaðri lokun harðlega mótmælt. Um er
að ræða þjónustu við fjölfatlaða einstaklinga
í Kópavogi, alls 56 einstaklinga sem eru mik-
ið fatlaðir og munu þurfa slíka þjónustu ævi-
langt.
Nefnd til að
fjalla um endur-
hæfingardeild
í Kópavogi