Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EIN af verðlaunamyndum World Press Photo-
samtakanna fyrir síðasta ár er mynd sem Ástr-
alinn Tim Clayton hjá dagblaðinu Sydney Morn-
ing Herald tók. Hún er af ruðningsboltamann-
inum Yannick Bru í nokkrum vanda (andlitið
sést neðst á milli vígalegra fótleggja hinna leik-
mannanna) á heimsmeistarakeppninni í ruðningi
í Sydney í nóvember sl. Tugmilljónir manna í
mörgum löndum fylgjast með ruðningsbolta af
síst minni ákefð en fótbolta sem heldur þó auð-
veldlega stöðu sinni sem vinsælasta fjöldaíþrótt í
heiminum.
Reuters
Hvar er hann?
ÞRÍTUGUR Kínverji mun
gangast undir umfangsmiklar
lýtaaðgerðir til að breyta útliti
sínu en hann vann keppni þar
sem markmiðið var að velja
ljótasta manninn. Hann fékk
lýtalækningarnar í verðlaun og
segja læknar, sem rætt er við í
kínverskum fjölmiðlum, að
maðurinn verði að aðgerðunum
loknum, líkur söngvaranum og
leikaranum Lu Yi, sem nýtur
mikilla vinsælda í Kína.
Morgunpósturinn í Sjanghæ
hefur eftir Yu Xinrui, skurð-
lækni á lýtaaðgerðasjúkrahúsi í
borginni Wuhan, að andlits-
drættir mannsins og svipur
minni talsvert á Lu Yi og því
muni aðgerðirnar miða að því
að draga þá drætti betur fram.
Haft er eftir sjúklingnum að
hann hafi misst starf sitt vegna
þess hve hann er ófríður. „Ég
skammast mín. Ég hef aldrei
átt í ástarsambandi þótt ég sé
orðinn þrítugur,“ hefur blaðið
eftir manninum.
Dulbúnar auglýsingar
lýtalækna?
Á síðustu mánuðum hafa ver-
ið haldnar ljótleikakeppnir fyr-
ir konur í borgunum Sjanghæ,
Peking og Guangzhou og hafa
þær verið gagnrýndar harðlega
og sagðar vera dulbúnar aug-
lýsingar lýtalækna sem vilji
koma sér á framfæri. Lækna-
félög eða læknastofur standa
oft að þessum keppnum og sig-
urvegarinn fær ókeypis lýtaað-
gerðir.
Lýtaaðgerðir njóta sívaxandi
vinsælda í Kína eftir því sem
hagur landsmanna batnar og
þeir verða meðvitaðri um útlit
sitt.
Sjanghæ
Lýtaað-
gerð í
verðlaun
Sjanghæ. AFP.
HERMAÐUR í bandaríska þjóð-
varðliðinu hefur verið handtekinn og
sakaður um að hafa reynt að hafa
samband við hryðjuverkasamtökin
al-Qaeda og koma á framfæri við þau
leynilegum upplýsingum.
Talsmenn bandaríska varnar-
málaráðuneytisins sögðu í fyrra-
kvöld, að Ryan G. Anderson hefði
farið inn á spjallsíður öfgamanna á
Netinu og þar reynt að ná sambandi
við fulltrúa al-Qaeda í því skyni að
bjóða þeim upplýsingar um banda-
rískan vopnabúnað, til dæmis um
styrk og veikleika skriðdreka og
Humvee-jeppa.
Ekki kemur fram hvernig yfirvöld
komust á snoðir um þetta en And-
erson gerðist múslími fyrir nokkrum
árum.
Lauk námi í hernaðarsögu
Mið-Austurlanda
Anderson er í skriðdrekasveit í 81.
brynvarða stórfylki Þjóðvarðliðsins
en það, 4.200 manns, er á leið til
Íraks. Charleen Taylor, talsmaður
Washington-háskóla, sagði, að And-
erson hefði útskrifast þaðan 2002
með gráðu í sagnfræði og hefði hann
einkum lagt fyrir sig hernaðarsögu
með áherslu á Mið-Austurlönd. Ekki
er talið líklegt að hann hafi haft vitn-
eskju um mikilvæg hernaðarleynd-
armál.
Hermaður handtekinn
Sakaður
um aðstoð
við al-
Qaeda
Fort Lewis. AP, AFP.
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, á undir högg að sækja
gagnvart John Kerry, sem virðist
vera að tryggja sér útnefningu sem
forsetaefni Demókrataflokksins í
kosningunum í haust. Kemur þetta
fram í skoðanakönnun Washington
Post-ABC News en nú telja 52%, að
forsetinn sé „trúverðugur“ og hefur
sú tala lækkað um sjö prósentustig
frá því í október. Á sama tíma og
70% telja Bush hafa trúað því, að
Írakar hafi ráðið yfir gereyðingar-
vopnum, telja 54%, að hann hafi ýkt
eða logið til um
þær upplýsingar,
sem leyniþjónust-
an bjó yfir fyrir
innrásina. 50%
eru sátt við
frammistöðu
Bush í embætti
eða átta pró-
sentustigum
færri en í janúar.
Könnunin sýnir, að yrði kosið nú,
myndi Kerry sigra Bush með 52%
gegn 43% og er þá miðað við skráða
kjósendur. Aðeins 44% voru sátt við
stefnu Bush í efnahagsmálunum en
nærri helmingur aðspurðra kvaðst
hafa það verra nú en þegar Bush tók
við sem forseti fyrir þremur árum.
Voru sex af tíu óánægð með stefnu
Bush-stjórnarinnar í atvinnumálum.
Kerry svarar ásökunum
um framhjáhald
Veffréttamiðillinn Drudge Report
heldur því fram, að Kerry hafi átt í
ástarsambandi við unga konu í tvö ár
frá því um vorið 2001 og fullyrt er, að
konan hafi komið sér til Afríku að
undirlagi Kerrys til að komast hjá að
svara spurningum um sambandið.
Kerry kom í gær fram í sjónvarps-
þættinum „Imus in the morning“ þar
sem hann vísaði ásökununum á bug.
Nokkrir fréttamenn segja, að
Wesley Clark, sem hefur hætt for-
kosningabaráttunni og ætlar nú að
styðja Kerry, hafi sagt í þeirra hóp
fyrr í vikunni, að barátta Kerrys
myndi „springa vegna einkamála“.
Clark vill hins vegar ekki kannast
við það.
Hallar á Bush gagnvart Kerry
Ný könnun gefur til kynna að forsetinn hafi 43% stuðning en Kerry 52%
Washington. AFP.
George W. Bush
EKKI verður annað um Teresu
Heinz Kerry sagt en að hún lífgi
upp á umhverfið hvar sem hún fer.
Fönguleg kona, vel fjáð og alls
ófeimin við að láta í sér heyra,
hvort sem er um réttindi kvenna,
umhverfismál eða annað. Hefur
hún verið manni sínum, hinum jarð-
bundna og stundum ekki allt of líf-
lega John Kerry, betri en enginn í
forkosningabaráttu demókrata.
Heinz Kerry er erfingi Heinz-
auðsins, rúmlega 34 milljarða ísl.
kr., og hún hefur ekki alltaf verið
hrifin af tilhugsuninni um að verða
forsetafrú. „Mér fyndist það skelfi-
legra en að ganga í Karmelíta-
klaustur,“ sagði hún eitt sinn í við-
tali við Times-tímaritið og í annað
sinn sagði hún, að fyrr myndi hún
detta niður dauð en setjast að í
Hvíta húsinu. Það er nefnilega ekki
aðeins, að menn hafi í nokkurn tíma
velt fyrir sér möguleikum John
Kerrys á að verða forsetaframbjóð-
andi, heldur voru líka vangaveltur
um það með fyrri eiginmann henn-
ar, repúblikanann og öldungadeild-
arþingmanninn John Heinz. Fórst
hann í flugslysið árið 1991.
Nú er Heinz Kerry á þönum
ásamt eiginmanni sínum og kemur
raunar oft fram án hans. Virðist
hún vera búin að sætta sig við þá
tilhugsun, sem hún hryllti sig yfir
áður, að verða húsfreyja í Hvíta
húsinu.
Talar fimm tungumál
reiprennandi
Heinz Kerry er 65 ára en virðist
miklu yngri. Vera kann, að „botox-
ið“ hafi hjálpað til við það en í við-
manni og stefnu hans í efnahags-
málum. Hún er bæði óréttlát og
óamerísk,“ segir hún.
Heinz Kerry var samt sem áður
skráður repúblikani fram á síðasta
ár þegar hún skipti um flokk til að
geta stutt mann sinn í forkosninga-
baráttunni. Þegar hún var spurð
um skattalækkun Bush-stjórnar-
innar, sem demókratar segja að
hafi komið þeim ríkustu best, svar-
aði hún þessu til: „Já, ég græddi á
henni en ég þurfti hvorki á henni að
halda né átti hana skilið.“
Heinz Kerry er mjög opinská og
fer ekkert í felur með, að John
Heinz hafi verið stóra ástin í lífi
hennar. Áttu þau þrjá syni og starf-
ar sá yngsti, Chris, 30 ára, nú að
framboði John Kerrys.
Kynntust á Ríó-ráðstefnunni
um sjálfbæra þróun
Þau John Kerry og Heinz Kerry
kynntust fyrst á Ríó-ráðstefnunni í
Brasilíu 1992 um umhverfismál og
sjálfbæra þróun en þar var hún sem
fulltrúi ríkisstjórnar George Bush
eldra. Kerry, sem er fimm árum
yngri en Heinz, skildi við konu sína
1988 en þau eiga tvær dætur.
Í viðtali við Elle-tímaritið sagði
Kerry, að sér fyndist Heinz „ákaf-
lega kynþokkafull, eitthvað svo
jarðnesk og evrópsk. Hún kann að
tala með augunum“.
Sumir segja, að John Kerry njóti
nú Heinz-auðsins en hann segir, að
fjármál þeirra hjóna séu alveg að-
skilin og bendir á, að hann hafi veð-
sett hús sitt í Boston til að fjár-
magna forkosningabaráttuna.
Heinz Kerry tafsar ekkert á orð-
unum þegar hún lýsir skoðunum
sínum á George W. Bush núverandi
forseta. „Ég er öskureið þessum
tali við tímaritið Elle í fyrra viður-
kenndi hún fúslega, að hún hefði
látið sprauta þessu efni í andlitið til
að losna við hrukkurnar.
Teresa Heinz Kerry er portú-
gölsk að uppruna, fædd í Mósambík
en uppalin í Suður-Afríku. Talar
hún fimm tungumál reiprennandi
og starfaði um hríð sem túlkur hjá
Sameinuðu þjóðunum. Eftir lát eig-
inmanns síns, John Heinz, stýrði
hún hjálparsjóðum Heinz-
fjölskyldunnar og studdi þá einna
mest ýmiss konar umhverfismál og
réttindabaráttu kvenna, þar á með-
al rétt þeirra til fóstureyðingar.
Falleg, fjáð og afar opinská
Teresa Heinz Kerry er búin að sætta
við að verða kannski forsetafrú
Washington. AFP.
AP
John Kerry með konu sinni, Teresu Heinz Kerry, á sigurhátíð í Virginíu.
’ Teresa HeinzKerry er mjög opin-
ská og fer ekkert í
felur með, að John
Heinz hafi verið
stóra ástin í lífi
hennar. ‘