Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 32
DAGLEGT LÍF
32 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ástin er dýrgripur
Maðurinn í lífi mínuÁstríðufullt augnablik
Þú lætur það gerast
Gjöf handa ástinni þinni sem hittir í mark.
Líttu við á næsta útsölustað.
He
im
sæ
kt
u
w
w
w
.la
nc
om
e.
co
m
ÞAÐ ER ekki amalegt að rata inn í
fiskbúðina Fylgifiska þegar bragð-
laukarnir kalla á eitthvað gott en
enginn tími gefst fyrir eldamennsku
heima fyrir, því í versluninni er starf-
andi matreiðslumaður sem töfrar alla
daga fram fjölda gómsætra hálf-
tilbúinna fiskrétta sem reynast kann
hverjum manni erfitt að velja úr.
Forsvarsmenn verslunarinnar, sem
var opnuð um mitt
ár 2002, leggja
kapp sitt á að
þjóna við-
skiptavinum sínum
á þann hátt að
matargerðin verði
sem auðveldust og
fljótlegust með
ferskleikann að
vopni.
Fiskbúðin er til
húsa í rúmgóðu
rými á jarðhæð við Suðurlandsbraut
10 í Reykjavík. Guðbjörg Glóð Loga-
dóttir er framkvæmdastjóri og eig-
andi verslunarinnar ásamt fjölskyldu
sinni og matreiðslumanninum Sveini
Kjartanssyni, sem
á síðustu árum
hefur starfað mik-
ið erlendis enda
ber fiskborðið
hans þess glöggt
vitni að alþjóð-
legur blær sigli
þar yfir vötnum. Í
borðinu eru á degi
hverjum um eða
yfir þrjátíu hálf-
tilbúnir réttir auk
þess sem hægt er að fá í búðinni með-
læti svo sem ferskt grænmeti, pasta,
hrísgrjón, kartöflur, salöt, sósur og
úrval krydda. „Okkar viðskiptavinir
þurfa því ekki að fara í fleiri búðir
þegar verið er að kaupa í matinn. Við
notum alltaf ferskt grænmeti og mik-
ið af ferskum kryddjurtum, en notum
engin íblöndunarefni og engar til-
búnar sósur heldur blöndum allt á
staðnum,“ segir Guðbjörg Glóð.
Fiskar og fuglar
Auk hálftilbúnu réttanna í fisk-
borðinu, er vissulega líka hægt að fá
ferskan fisk eða flök, auk þess sem í
hverju hádegi er boðið upp á heitan
mat, einn til þrjá fiskrétti og fiski-
súpu. Þessa rétti er hægt að borða á
staðnum eða taka
með sér. Þá geta
fyrirtæki og hóp-
ar sérpantað heit-
an mat. Fyr-
irtækið gefur sig
einnig út fyrir að
sjá um veislur,
þar sem á borðum
eru bæði fiskar og
fuglar.
Guðbjörg Glóð
segir að allt hrá-
efnið komi að minna og meira leyti
frá ferskfiskframleiðendum á Suð-
urnesjunum. „Við sækjum fiskinn til
sérfræðinga á hverju sviði og kaup-
um svo viðbót á fiskmörkuðum ef
með þarf. Við vilj-
um vera til fyrir
fólk, sem vill
borða hollan og
góðan mat en hef-
ur ekki alltaf
tíma, og þegar
nær dregur helg-
unum, leggjum
við áherslu á fínni
rétti og mat-
arboðin.“
Gamall draumur
Þegar Guðbjörg Glóð er spurð um
ástæðu þess að hún sé nú fisk-
kaupmaður, svarar hún því til að
rekstur fiskbúðar hafi í raun verið
gamall draumur hjá sér. „Ég ákvað
árið 1992, þá tvítug að aldri, að ég
ætlaði mér að reka fiskbúð, sem varð
svo ekki að veruleika fyrr en tíu ár-
undið upp á sig eftir að ég fékk allt
mitt góða samstarfsfólk og meðeig-
endur til að vinna með mér.
Þegar við opnuðum, byrjuðum við
bara með viljann að vopni. Nú höfum
við fengið góðan aðlögunartíma og
getum státað af ánægðum kúnna-
hópi, sem látið hefur orðróminn ber-
ast, svo að nú erum við líklega orðin
fær í flestan sjó.
Guðbjörg og Sveinn létu Matar-
kistunni að lokum í té tvær framandi
uppskriftir, annars vegar að steinbíti
og hinsvegar að rækjusalati, sem
vert er að prófa heima í eldhúsi. Hvor
uppskrift er ætluð fyrir einn.
MATARKISTAN|Sérvöruverslun og veisluþjónusta fyrir þá sem kunna að meta fisk
Fiskurinn
áhugamál
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í Fylgifiskum er að finna fjölda hálftilbúinna rétta,
sem aðeins þarf að steikja á pönnu eða hita í ofni.
Jóhanna Ingvarsdóttir rann á bragðið og ræddi við
framkvæmdastjórann Guðbjörgu Glóð Logadóttur.
um síðar. Það má segja að fiskurinn
sé mér mikið áhugamál. Ég er alin
upp í slorinu.
Foreldrar mínir áttu og ráku Tros
í Sandgerði, sem nú er í eigu SÍF, og
voru frumkvöðlar í ferskfiskútflutn-
ingi. Sjálf er ég sjávarútvegsfræð-
ingur að mennt, útskrifaðist frá Há-
skólanum á Akureyri 1997, fór síðan
að vinna hjá Bakkavör í tvö ár, síðan
fyrir Fiskmarkað Suðurnesja í Bras-
ilíu og að verkefni fyrir franskt fyr-
irtæki hér á landi. Það má segja að
gamli draumurinn um fiskbúðina sé
nú aðeins kominn fram úr mínum
björtustu vonum því allt hefur þetta
Fylgifiskar: Guðbjörg Glóð Logadóttir og Sveinn Kjartansson.
Steinbítur með engifer og piparrót
Piri-piri rækjusalat
OF MIKIÐ sjónvarpsáhorf barna
getur komið niður á tjáningargetu
þeirra. Foreldrar eru þess vegna
hvattir til að slökkva á sjónvarpinu
við og við og tala þeim mun meira
við börnin sín til að bæta mál-
þroskann. Frá þessu var nýlega
greint í breska dagblaðinu Even-
ing Standard og vitnað í þarlenda
skoðanakönnun um þetta efni.
Leikskólakennarar sitja nú orðið
oftar andspænis ungum börnum,
sem berjast við að þróa með sér
orðaforða, geta ekki talað skýrt og
eiga í erfiðleikum með að skilja til-
sögn. Skoðanakönnun bresku með-
ferðarstofnunarinnar „I can“ leiddi
í ljós að 96% leikskólakennara
höfðu í sinni umsjá að minnsta
kosti eitt barn, sem átti í erf-
iðleikum með tjáskipti. Þar af
kenndu 92% kennaranna samræðu-
skorti milli foreldra og barna um
hvernig komið væri. Um 75% leik-
skólakennaranna skelltu skuldinni
á sjónvarpið og 64% bentu á þann
leiða vana foreldra að tala og
svara fyrir hönd barna sinna í stað
þess að leyfa þeim að tjá sig sjálf
væru þau spurð. 10% aðspurðra
sögðust hafa tíu eða fleiri börn
með tjáskiptavandamál í sinni
umsjá.
Tjáningin mikilvæg
„Afar lítill skilningur virðist
ríkja á þessu vandamáli þrátt fyrir
að svo virðist sem það komi niður
á fjölmörgum börnum. Aðkallandi
er að bæði foreldrar og leikskóla-
kennarar geri sér grein fyrir mik-
ilvægi tjáningarmátans í þroska
BÖRN | Sjónvarpsáhorf og málþroski
Masa meira
og horfa minna
Steinbítur með
engifer, piparrót
og myntu
250 g roðlaus og beinlaus stein-
bítur
1 marið hvítlauksrif
2 msk ólífuolía
1 msk saxað engifer
1 tsk rifin piparrót
2 msk skorin mynta
salt og pipar eftir smekk
60-70 g Teriyakisósa
Olían er sett á pönnu og stein-
bíturinn steiktur í tvær mín. á
hvorri hlið í mörðum hvítlauk.
Engifer, piparrót og mynta sett út
á pönnuna og steikt saman. Þegar
fiskurinn er steiktur er hann tek-
inn af. Teriyakisósu hellt út á
pönnuna og látið malla í 1-2 mín.
Gott að hafa hrísgjón sem með.
Piri-piri
rækjusalat
200 g pillaðar risarækjur
1 marið hvítlauksrif
2 msk ólífuolía
1 msk saxað engifer
1 msk sæt chili sósa
½ sítróna
1-2 tsk piri-piri krydd
hálfur haus stökkt kál
1 agúrka
Rækjurnar eru steiktar í hvít-
lauk, olíu, engifer og sætu chilli.
Þær eru síðan látnar kólna. Kál
skorið niður og agúrkur skornar
og hvorutveggja sett í skál.
Rækjur eru svo settar saman við,
safi úr sítrónu er kreistur yfir og
piri-piri kryddi að lokum stráð yf-
ir.
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Föt fyrir
allar konur