Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 63
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 63
INDRIÐI Sigurðsson lagði upp
mark Genk sem gerði jafntefli, 1:1,
við Standard Liege í belgísku 1.
deildinni í knattspyrnu í gærkvöld.
Indriði átti góða sendingu frá vinstri
kanti og Cédric Roussel skoraði með
hörkuskalla.
GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Barnsley, hefur fengið
miðjumanninn Craig Rocastle lán-
aðan frá Chelsea. Hann verður því
með þrjá nýja menn í liði sínu sem
fer til Wales og mætir Wrexham í
ensku 2. deildinni í dag. Fyrr í vik-
unni fékk hann Arron Davies lán-
aðan frá Southampton og keypti
Michael Boulding frá Grimsby.
STAÐFEST hefur verið að fær-
eyski landsliðsmaðurinn Hans Fróði
Hansen var ólöglegur með Fram
þegar liðið sigraði Þrótt, 5:3, í leik
um 5. sæti Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu um síðustu helgi. Þrótt-
ur telst því hafa sigrað, 3:0, og
hreppir 5. sætið.
KRISTJÁN Uni Óskarsson varð í
46. sæti og Kristinn Ingi Valsson í
51. sæti í stórsvigi á heimsmeistara-
móti unglinga skíðum í Maribor í
Slóveníu í gær.
SPÆNSKA knattspyrnusam-
bandið hefur sektað Jorge Valdano,
framkvæmdastjóra Real Madrid,
um 2.000 evrur, jafngildi um 170
þúsund króna, fyrir ummæli sín í
garð dómarans í leik Real gegn Se-
villa í bikarkeppninni í vikunni.
Dómarinn, Eduardo Iturralde, rak
Zinedine Zidane af velli rétt fyrir
leikhlé og Valdano sendi honum tón-
inn þegar liðin gengu til búnings-
herbergja.
ZIDANE var talinn hafa slegið
Pablo Alfaro, leikmenn Sevilla, í
andlitið, þegar þeir börðust um bolt-
ann. Fyrir vikið verður Zidane í
banni þegar Real Madrid mætir Val-
encia í sannkölluðum toppslag í 1.
deildinni annað kvöld. Real er með
tveggja stiga forystu í deildinni og
hefur unnið alla 11 heimaleiki sína á
tímabilinu.
SPÆNSKA 1. deildin fagnar 75
ára afmæli sínu í þessari viku en
fyrsta umferð hennar var leikin 10.
febrúar árið 1929. Þann dag mætt-
ust Baskaliðin Real Sociedad og
Athletic Bilbao, skildu þá jöfn, 1:1,
og þau eigast einmitt við í deildinni í
dag.
SVEN-GÖRAN Eriksson, lands-
liðsþjálfari Englendinga í knatt-
spyrnu, sagði í gær að hann myndi
örugglega stýra enska landsliðinu
fram yfir HM 2006 í Þýskalandi.
Hann hefur ítrekað verið orðaður
við stöðu knattspyrnustjóra Chelsea
– að hann tæki við henni eftir úr-
slitakeppni EM í Portúgal í sumar.
ERIKSSON sagðist jafnframt
hafa fulla trú á því að England kæm-
ist í úrslitaleikinn á EM í Portúgal
og myndi þar mæta Frakklandi.
FÓLK
AP
Eiður Smári Guðjohnsen og samherjar hans hjá Chelsea urðu að játa sig sigraða fyrir Arsenal í
bikarúrslitaleik í Cardiff 2002. Hér sést hinn litríki fyrirliði Arsenal, Tony Adams, gefa sér tíma til
að hughreysta Eið Smára, eftir að búið var að flauta leik Arsenal og Chelsea af , 2:0.
LEIKIRNIR í 16 liða úrslitum:
LAUGARDAGUR:
Man. United – Man. City
Fulham – West Ham
Millwall – Burnley
Tranmere – Swansea
Sunderland – Birmingham
SUNNUDAGUR:
Arsenal – Chelsea
Sheffield United – Colchester
Liverpool – Portsmouth
Liverpool and Portsmouth
hafa aðeins einu sinni áður glímt
í bikarkeppninni. Það var í
undanúrslitum 1992. Jafntefli á
Highbury í framlengdum leik 1:1
og aftur í aukaleik á Villa Park –
einnig eftir framlengingu, 0:0.
Liverpool vann þá í vítaspyrnu-
keppni, 3:1.
Bikarleikir
Eins og Árni vísaði til þá á Keeganafmæli í dag, verður 53 ára.
Hann þykir valtur í sessi knatt-
spyrnustjóra félags-
ins eftir fremur slakt
gengi í úrvalsdeild-
inni en sigur á erki-
óvininum, Manchest-
er United, á Old Trafford í dag gæti
tryggt Keegan fleiri starfsdaga hjá
Manchester City. „Það er vart um
annað rætt í borginni en leikinn enda
er mikill rígur á milli þessara tveggja
félaga. Nágrannaleikir af þessu tagi
eru auðvitað á meðal hápunkta ársins,
jafnt hjá leikmönnum sem stuðnings-
mönnum. Stemningin og eftirvænt-
ingin í borginni er gríðarleg og alls
ekki amalegt að fá tækifæri til að taka
þátt í leik sem þessum,“ segir Árni og
telur að flestir veðji á United vinni
leikinn.
„Flestir hallast að sigri Manchest-
er United, einfaldlega vegna þess að
þeim hefur gengið mun betur en okk-
ur í deildinni, en við erum staðráðnir
að gefa ekkert eftir. Það er meiri
pressa á United-liðinu vegna þess að
það er á heimavelli, er auk þess ofar í
deildinni og í raun að flestra mati mun
sterkara lið.
Það er mikið í húfi hjá báðum liðum
sem vilja eðlilega ná sem lengst í bik-
arkeppninni þar sem allt er hægt eins
ef til vill sannaðist á leik okkar við
Tottenham í fjórðu umferðinni. Ég
vona bara að okkur takist að leika vel
þannig það takist að velgja United-
liðinu undir uggum.“
Árni Gautur sagðist vonast til að
Manchester City-liðið gæti stillt upp
sinni vöskustu sveit í leiknum í dag.
Óvissa ríki um hvort franski fram-
herjinn Nicolas Anelka geti leikið.
„Hann var með á æfingu í dag [í gær]
en ég veit ekki nákvæmlega hver
staðan er hjá honum fyrir þennan
leik. Vonandi verða bara sem flestir
klárir í slaginn, okkur veitir ekki af ef
við eigum að geta velgt United-liðinu
undir uggum,“ sagði Árni Gautur
Arason landsliðsmarkvörður.
City hefur ekki unnið United
í bikarnum í 39 ár
Sagan er ekki á bandi með Árna
Gauti og félögum í leiknum í dag.
Mancehester-liðin hafa mæst fimm
sinnum í bikarkeppninni, þar af í síð-
ustu þrjú skipti á heimavelli United,
Old Trafford, og í öll skiptin hafa
heimamenn borið sigur úr býtum.
Síðast mættust liðinu í bikarkeppn-
inni á Old Trafford árið 1996 og þá
vann Manchester United, 2:1. Sá leik-
ur var einnig í fimmtu umferð bik-
arkeppninnar. Mörkin skoruðu Eric
Cantona og fyrrum leikmaður
Grindavíkur, Lee Sharpe. Þjóðverj-
inn Uwe Rosler klóraði í bakkann fyr-
ir City.
Manchester City hefur ekki unnið
nágrannaslag á Old Trafford síðan
1974 og þá áttust liðin við í gömlu 1.
deildinni, forvera úrvalsdeildarinnar.
Þá eru liðin 35 ár síðan liðið varð síð-
ast bikarmeistari og á síðustu ellefu
árum hefur það ekki komist lengra í
keppninni en í fimmtu umferð. Síðan
vann Manchester City nágranna sína
í 4. umferð bikarkeppninnar á Main
Road 29. janúar 1955, 2:0, og þar áður
21. mars 1926, 3:0, einnig á heimavelli.
Auk þess sem vafi leikur á því hvort
Anelka geti tekið þátt í leiknum í dag
er ljóst að Kínverjinn Sun Jihai verð-
ur ekki með þar hann tekur þátt í
undankeppni HM með landsliði sínu
gegn Kúveit.
Þá er ljóst að Gary Neville kemur
inn í vörn Manchester United eftir að
hafa verið fjarri góðu gamni gegn
Middlesboro í vikunni. Sömu sögu er
að segja af fyrirliðanum Roy Keane.
Ole Gunnar Solskjær verður örugg-
lega á varamannabekk ensku meist-
aranna – er að ná sér á strik eftir
meiðsli. Markahrókurinn Louis Saha
verður hins vegar á meðal áhorfenda
því hann er ekki gjaldgengur með
Man. Utd. í keppninni eftir að hafa
leikið með Fulham í keppninni.
Árni Gautur Arason stendur í marki Manchester City á Old Trafford
Vonandi fær Keegan
sigur í afmælisgjöf
„LEIKURINN fer fram á afmælisdegi Kevins Keegans knatt-
spyrnustjóra og það væri fínt að færa honum sigur í afmælisgjöf,“
sagði Árni Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær en hann stendur á milli
stanga marks Manchester City á Old Trafford í dag þegar erkifjend-
ur borgarinnar mætast í 5. umferð ensku bikarkeppninnar. Þetta
verður annar leikur Árna með Manchester City síðan hann gerði
skammtímasamning við félagið í byrjun árs. „Ég hef lengi alið með
mér þann draum að leika á Old Trafford og því vonast ég til að mér
og liðinu gangi sem best þegar á hólminn verður komið,“ sagði Árni.
Reuters
Árni Gautur Arason hitar upp fyrir hinn sögulega bikarleik
gegn Tottenham á dögunum, sem City vann, 4:3.
Eftir
Ívar
Benediktsson
GORDON Strachan hætti í
gær störfum sem knatt-
spyrnustjóri Southampton,
þremur mánuðum fyrr en
áætlað var. Hann ætlaði að
láta af störfum í vor, hvíla sig
og verja meiri tíma með fjöl-
skyldu sinni, en komst að
samkomulagi við Rupert
Lowe stjórnarformann um að
hætta strax. Steve Wigley,
þjálfari hjá félaginu, stjórnar
liðinu til vorsins eða þar til
nýr stjóri hefur verið ráðinn.
Strachan tók við stjórn
Southampton í október árið
2001 en hafði áður verið í
fimm ár við stjórnvölinn hjá
Coventry.
Strachan
er hættur
WATFORD hefur sektað Heiðar Helgu-
son fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í
leiknum gegn WBA í ensku 1. deildinni á
dögunum. Hann er kominn í leikbann frá
og með deginum í dag og missir af þrem-
ur næstu leikjum liðsins. Heiðar verður
látinn nota tímann til að vinna að fullu
bug á meiðslum í læri sem hafa verið að
plaga hann að undanförnu, þótt hann
hafi getað spilað með liðinu í flestum
leikjum þess.
Ray Lewington, knattspyrnustjóri
Watford, segir að Heiðar hafi komið og
beðið sig afsökunar á rauða spjaldinu.
„Þetta var óþarfa spjald, hann veit það
sjálfur og tekur út sína refsingu. Þar með
er málinu lokið, hann veit að þetta var
heimskulegt og er án efa mest svekktur
yfir þessu sjálfur,“ sagði Lewington.
Watford sekt-
aði Heiðar